Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 11 hafa að engu ráðleggingar þeirra og álit sem best þekkja til,“ bætir hann við. Getum ekki liðið að gerð séu hróp að opinberum gestum Viðbrögð við þessum atburðum voru með miklum ólíkindum, að mati Davíðs. ,,Það var eins og menn hafi ekki áttað sig á út á hvað þetta gekk og talið að þarna væri bara einhver leikfimihópur á ferðinni, sem væri hingað kom- inn til að teygja úr sér. Það er auðvitað alveg fráleitt. Þetta fólk gengur eins langt eins og það getur og það sýndi sig. Hvað svo sem mönnum finnst um forseta Kína og það stjórn- arfar sem hann stendur fyrir þá getum við ekki leyft öðrum gestum hér í landinu að haga sér með þeim hætti að þeir geri hróp að opinberum gestum ríkisstjórnarinnar. Við myndum aldrei líða nokkrum manni að gera hróp að okkar gestum heima hjá okkur. Þetta hefur svo smitast út í það að þegar þjóðin heldur upp á eigin þjóðhátíð á Aust- urvelli eru menn orðnir svo ruglaðir í ríminu, að þeir halda því fram að það sé skerðing á tjáningarfrelsinu ef fólki leyfist ekki að skemma hana. Þeir sem höfðu mótmælt hér fyrir utan stjórnarráðið, fyrir utan kínverska sendiráðið og á Austurvelli, áttu að fá að skemma hátíðarstund þjóðarinnar á Austur- velli. Meira að segja formaður dagskrárnefnd- arinnar, sem á að gera grein fyrir dagskránni, hóf stórpólitíska árás á forseta og ríkisstjórn í viðurvist tuga erlendra sendimanna og dylgj- aði um að stjórnvöld á Íslandi væru kynþátta- hatarar. Ég hef heyrt einhverja sjálfskipaða umræðusnillinga halda því fram, að það væri bara sjálfsagt mál. Viðkomandi hefði að öðrum kosti ekki getað verið þarna. Gat þá ekki alveg eins stjórnandi lúðrasveitarinnar líka tjáð sig um þetta? Ráðist á ríkisstjórnina og forsetann fyrir framan 50 erlenda sendiherra eins og for- maður dagskrárnefndarinnar tekur allt í einu upp hjá sér að gera? Þetta er einhver vitleysa sem grípur fólk svo það missir allan þráð,“ seg- ir Davíð. Kompásinn snýst í hringi við smávegis öldufall – Nú er þetta í fyrsta skipti sem skipulagður hópur fólks kemur hingað í þeim erindagjörð- um að hafa í frammi mótmæli. Má ekki ætla að ísinn sé þar með brotinn og að búast megi við atburðum af þessu tagi í framtíðinni? ,,Það er hvergi liðið annars staðar að að- komufólk og gestir fari að taka rás atburða í sínar hendur. Það er í raun alveg furðulegt að sumir telji að það sé bæði sjálfsagt og eðlilegt að menn komi hingað frá öðrum löndum og eyðileggi ákvarðanir réttkjörinna stjórnvalda á Íslandi. Virðast sumir stjórnmálamenn meira að segja taka undir þetta, að vísu í einhverju dómgreindarleysi, sem gerir að verkum að maður fer að velta því fyrir sér, hvort þeir sem missa svona allan þráð af litlu tilefni séu yf- irleitt hæfir til að vera kosnir til trúnaðar- starfa. Við smávegis öldufall snýst kompásinn í hringi hjá þessu fólki.“ – Ríkistjórnin er sökuð um að ganga erinda kommúnistastjórnar vegna framgöngu sinnar í þessu máli. ,,Það er alveg fráleitt. Við hefðum orðið að gera hið sama ef hingað hefðu komið eitt þús- und Tíbetar. Ég ber mikla virðingu fyrir þeirra málstað en ef þúsund Tíbetar hefðu hingað komið og ætlað að stöðva heimsókn Kínafor- seta, þá hefðum við ekki getað unað því heldur. Það hefði engin þjóð gert,“ svarar Davíð. ,,Það er fundið að því að forseti Íslands og ríkisstjórn geri hið sama og önnur vestræn ríki og bjóði þjóðhöfðingja Kína hingað. En hvað gera Eystrasaltslöndin? Þau eru fyrir skömmu sloppin undan oki og kúgun kommúnista. Á þeim hefur eldurinn brunnið – en aldrei okkur. Þar er það ekki gagnrýnt að stjórnvöld telji rétt að eiga eðlileg viðskiptaleg, menningarleg og stjórnmálaleg samskipti við Kína. En að mati kjaftaþáttaspjallara gildir eitthvað allt annað um Ísland,“ segir hann. Borgarstjóri lifir í mjög pólitískt vernduðu umhverfi – Víkjum að sveitarstjórnarkosningunum. Sjálfstæðisflokkurinn lagði mikla áherslu á að ná meirihluta í borgarstjórn og gekk svo langt að einn af þremur helstu forystumönnum flokksins sagði af sér ráðherraembætti til að taka við forystu framboðslistans. Útkoman hlýtur að vekja margvíslegar spurningar með- al sjálfstæðismanna, þar sem Reykjavík var áratugum saman höfuðvígi Sjálfstæðisflokks- ins. Er að verða einhver grundvallarbreyting á stöðu flokksins í Reykjavík? ,,Nei, það sýnist mér ekki. Þótt þetta gengi ekki núna tel ég að okkar málflutningur hafi komist mjög vel til skila og ég held að þrátt fyr- ir þessa niðurstöðu, þá séu vaxandi efasemdir um með hvaða hætti borginni er stjórnað. Skuldir hafa hlaðist upp í því mikla góðæri sem verið hefur og lítið hefur gerst borgarbúum til heilla þrátt fyrir eyðslu og sóun fjár á bæði borð. Á hinn bóginn býst ég við að staða borg- arstjórans, sem lifir í mjög pólitískt vernduðu umhverfi, hafi enn um sinn náð að breiða yfir hin stjórnunarlegu afglöp. Ég hef ekki séð aðra stjórnmálamenn fá aðra eins silkihanskameð- ferð eins og núverandi borgarstjóri fær hjá fjölmiðlum,“ segir Davíð. Flokkurinn í reynd að vinna á Davíð segir að ef litið sé á kosningaútkomu Sjálfstæðisflokksins í heild komi í ljós að á landsvísu hafi flokkurinn aðeins tapað um einu og hálfu prósenti, þrátt fyrir að hann hafi ekki fengið meira fylgi í Reykjavík en raun beri vitni. ,,Í rauninni er flokkurinn að vinna á ann- ars staðar og ef þú skoðar landslagið núna, þá uppgang í efnahagslífinu, kosningar og umdeilda atburði í tengslum við opinbera heimsókn forseta Kína itaáhrif á stjórnarsamstarfið Morgunblaðið/RAX ,,Halldór, minn ágæti vinur, getur ekki átt við mig í þessu sambandi, því ég barðist fyrir því að við færum inn í EES-samstarfið, sem hann treysti sér nú ekki til að styðja á sínum tíma.“ ,,Vinstri stjórn gæti ekki haft á sinni könnu að fara inn í Evrópusambandið. Framsóknarflokk- urinn sem heild er ekki inn á því. Ekki heldur Vinstri grænir. Og það er mikill ágreiningur um Evrópumálin innan Samfylkingarinnar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.