Morgunblaðið - 23.06.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 23.06.2002, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ NÆSTKOMANDI föstu-dag verður lögð fyrirfund stofnfjáreigendaSPRON tillaga stjórn-ar sparisjóðsins um að breyta SPRON í hlutafélag í sam- ræmi við samþykkt síðasta aðalfund- ar. Ef stofnfjáreigendur samþykkja tillöguna verður hluthafafundur í SPRON hf. haldinn í kjölfarið og bréf hlutafélagsins að líkindum skráð á Verðbréfaþing Íslands í haust, að af- loknu útboði þar sem a.m.k. 25% hlutafjárins fer í dreifða eignaraðild skv. reglum VÞÍ. Það er því ekki rétt sem fram kom í frétt Morgunblaðsins fyrir rúmri viku að bréf SPRON hf. yrðu skráð á VÞÍ 1. júlí nk. Guðmundur Hauksson, sparisjóðs- stjóri SPRON, hefur langa reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Hann er formaður Sambands íslenskra spari- sjóða, stjórnarformaður Kaupþings og áður forstjóri þess fyrirtækis. „Við teljum að sparisjóðirnir hafi mjög mikilvægu hlutverki að gegna og það skiptir miklu máli að standa vörð um sérstöðu sparisjóðanna. Þetta á ekki bara við um sparisjóðina hér á Íslandi. Það er skemmtilegt að geta þess að á nýafstöðnu Evrópu- þingi sparisjóðanna, sem haldið var í Finnlandi, var sérstaklega um það rætt að sparisjóðirnir hefðu gegnt stærra hlutverki við evruvæðinguna heldur en nokkurn óraði fyrir. Það kom í ljós að þeir stóðu í mun beinna sambandi við almenning og einstak- lingana í þessum löndum heldur en viðskiptabankarnir og áttu þess vegna mun stærri hlut í myntbreyt- ingunni heldur en menn áður höfðu gert sér grein fyrir. Einstaklingar vilja gjarnan skipta við stofnun sem stendur þeim nærri og þeir hafa yf- irsýn yfir. Það er ein helsta skýringin í okkar huga á því að sparisjóðirnir á Íslandi koma best út úr könnun á þjónustu meðal viðskiptavina fjár- málastofnana hér á landi. Sparisjóð- irnir munu reyna að standa vörð um þetta.“ Sjálfseignarstofnunin skal stuðla að góðri verðmyndun Fyrirkomulagið á væntanlegri breytingu SPRON í SPRON hf. verður með þeim hætti að SPRON- sjóðurinn ses (sjálfseignarstofnun) mun eiga 88,5% í SPRON hf. og nú- verandi 1.106 stofnfjáreigendur verða hluthafar sem eiga samtals 11,5%. Þeim verður gefinn kostur á að innleysa stofnfjárbréfin ef þeir óska þess eða auka hlut sinn, jafnvel tvöfalda, en nánari útfærslu á því er að vænta eftir að hlutafjárvæðingin er um garð gengin. Samkvæmt lögum um viðskipta- banka og sparisjóði er fyrirkomulagi atkvæðisréttar hluthafa öðruvísi far- ið hjá sparisjóði en viðskiptabanka. Í 37. grein þar sem kveðið er á um að hlutafjárvæðing sé heimil kemur fram að „einstökum hluthöfum er aldrei heimilt, fyrir sjálfs sín hönd eða annarra, að fara með meira en 5% af heildaratkvæðamagni í spari- sjóði. Í samþykktum er þó heimilt að kveða á um að sjálfseignarstofnun skv. 37. gr. B geti farið með meira en 5% af heildaratkvæðamagni í spari- sjóði. Á stofnfundi skal sjálfseignar- stofnunin fara með atkvæði í sam- ræmi við hlutafjáreign sína.“ Hlutverk sjálfseignarstofnunarinnar er m.a. að stuðla að sem bestri verð- myndun með hlutabréf SPRON hf. og stuðla að vexti og viðgangi í starf- seminni. SPRON-sjóðurinn ses eins og sjálfseignarstofnunin nefnist stefnir að því að minnka hlutfallslega eign sína í SPRON hf. svo skilyrðum skráningar á VÞÍ sé fullnægt og að laða almenning og aðra fjárfesta að félaginu. Stofnfjáreigendur munu skipa full- trúaráð SPRON og tilnefna fimm fulltrúaráðsmenn í stjórn SPRON- sjóðsins ses. Sjálfseignarstofnunin mun endurmeta hlutverk sjóðsins, markmið og stefnu með reglulegu millibili. Áfram sparisjóður með djúpar rætur Af hverju þarf að breyta SPRON í hlutafélag? „Markmið okkar hjá SPRON með því að færa okkur inn í hlutafélags- formið er einmitt að vera í aðstöðu til að halda áfram að efla sparisjóðinn en lokast ekki inni á grundvelli þeirra þröngu laga sem um sparisjóðina hafa gilt. Við viljum því ekki fórna þeirri sérstöðu sem við höfum haft og SPRON verður áfram sparisjóður með djúpar rætur í því samfélagi sem við erum sprottin úr. Það er lykilat- riði hjá okkur að SPRON er og verð- ur áfram sparisjóður og við breytum rekstrinum ekkert í grundvallarat- riðum. Formbreytingin á SPRON yfir í hlutafélag er að opna okkur dyr inn í það umhverfi sem við störfum í á fjármagnsmarkaði. Nú eru ýmsar dyr lokaðar og við eigum takmark- aðan aðgang að eigin fé. Þar með eru vexti okkar og samkeppnishæfni settar skorður. Ef við finnum ekki svör við þessum þætti munum við verða undir í harðnandi samkeppni. Með því að fara yfir í hlutafélags- formið verður t.d. sameining spari- sjóða auðveldari, við getum náð meiri stærðarhagkvæmni á fjármálamark- aði og tekið þátt í endurskipulagn- ingu á markaðnum, svo eitthvað sé nefnt. Það sem háir okkur mikið í dag er hin viðamikla þátttaka okkar í ýmsum hlutdeildar- og dótturfélög- um vegna þess að fjárfestingar í slík- um félögum dragast frá eiginfjár- grunni sparisjóðanna. Hingað til hefur okkur ekki verið unnt að sameinast slíkum félögum ef vilji hefur verið fyrir því, eins og t.d. viðskiptabankarnir hafa gert, en það kemur mun léttar út þegar verið er að reikna út eiginfjárgrunninn.“ Hlutdeildarfélög SPRON eru t.d. Tölvumiðstöð sparisjóðanna, Spari- sjóðabanki Íslands, SP- fjármögnun og Alþjóða líftryggingafélagið. „Breyting í hlutafélag mun auðvelda okkur að taka þátt í víðtækara þjón- ustuneti með því að fjárfesta í ýms- um fyrirtækjum sem snerta okkar starfsemi.“ Stendur til að sameina SPRON öðrum sparisjóðum eða peninga- stofnunum? „Það eru engin áform uppi um það í dag. Það verður síðan að koma í ljós hvernig markaðsaðstæður þróast eða hvaða kostir verða í boði þegar SPRON tekur þátt í endurskipulagn- ingu á fjármagnsmarkaði. Ég hef orðið var við dálítinn misskilning sem er fólginn í því að á undanförnum ár- um hef ég verið stjórnarformaður Kaupþings og var áður forstjóri fyr- irtækisins. Það eru margir sem telja að þessi formbreyting SPRON í hlutafélag sé beinlínis áfangi í því að sameina SPRON og Kaupþing. Þó það væri rangt að útiloka þann mögu- leika verður slíkt að teljast harla ólík- legt, vegna þess að það stangast á við grundvallarstefnu þessara tveggja fyrirtækja í dag. Kaupþing er að hasla sér völl sem norrænn fjárfest- ingarbanki á meðan SPRON er og verður staðbundinn sparisjóður með starfsemi sína í Reykjavík og hefur engin áform um að breyta því. Það er alveg klárlega ekki markmið SPRON að verða einhver deild eða lítill angi af stórum banka. Við mun- um halda áfram að rækta garðinn með þeim hætti sem við höfum gert á undanförnum árum.“ Ekki ógn af hlutafjárvæðingu Nú hyggja fleiri sparisjóðir á hlutafjárvæðingu, kemur sameining við einhvern þeirra til greina? „Það hafa ekki átt sér stað neinar viðræður um sameiningu einhverra af þessum sparisjóðum. En auðvitað er sá möguleiki opinn, rétt eins og það er opinn möguleiki að sparisjóðir sameinist innbyrðis án þess að það komi til hlutafélagavæðingar.“ En er ekki hætta á að SPRON verði gleyptur af stærri fjármála- stofnun í framtíðinni? „Til þess eru einmitt sett í lög ákveðin ákvæði til að hindra það að sparisjóðir við breytingu yfir í hluta- félagsform verði gleyptir. Það er alls ekki markmið löggjafans að spari- sjóðunum standi ógn af hlutafjár- væðingu. Ákvæði varðandi atkvæða- vægi hluthafa eru til að tryggja að sparisjóðurinn geti náð að fara í gegnum þessa breytingu en um leið haldið sérstöðu sinni.“ Lagaákvæðin sem Guðmundur vísar til eru fyrrnefnd ákvæði um há- markshlutfall atkvæða sem hluthafi má fara með. Tveir stofnfjáreigendur SPRON, Benedikt Jóhannesson og Ingimar Jóhannsson, hafa sett fram gagnrýni á tillögu stjórnar SPRON um hluta- fjárvæðinguna og hafa lagt til að henni verði hafnað. Í bréfi til stjórnar SPRON settu þeir einnig fram til- lögu þess efnis að ef af hlutafjárvæð- ingu SPRON yrði skyldi vægi at- kvæða sem sjálfseignarstofnunin fer með einnig vera 5% en ekki um 90% eins og nú horfir. Hver er afstaða þín til tillögunnar um að atkvæðavægi sjálfseignar- stofnunarinnar verði aðeins 5%? „Að mínu mati horfa þeir algjör- lega framhjá því grundvallaratriði að við breytingu yfir í hlutafélagsform myndast ákveðin yfirtökuhætta. Ákvæðið í lögunum um að sjálfseign- arstofnun megi fara með allt þetta at- kvæðamagn er til þess að koma í veg fyrir að nokkurt slys eigi sér stað við yfirfærslu úr einu rekstrarformi yfir í annað. Ef við myndum fara eftir þessari tillögu, væri búið að galopna fyrir að SPRON yrði yfirtekið af ann- arri fjármálastofnun, strax í kjölfar þess að fyrirtækinu væri breytt í hlutafélag.“ Kom gagnrýni stofnfjáreigend- anna stjórnendum SPRON á óvart? „Nei, það er svo að þegar stofnfjár- eigendur eru liðlega 1.100 talsins fer aldrei hjá því að uppi séu mismun- andi skoðanir. Við virðum þær. En við höfum reynt að svara öllum spurningum sem upp hafa komið og upplýsa fólk um hlutina. Hvað varðar gagnrýnina á að ekki hafi verið nægi- lega vel staðið að undirbúningi þess að gera SPRON að hlutafélagi vil ég segja að það er ótrúlegt að Benedikt skuli láta hafa slíkt eftir sér. Um þetta mál hefur verið fjallað á fjórum síðustu aðalfundum SPRON. Við höf- um kynnt þetta ítarlega í fréttabréf- um og viðtölum og nú síðast hefur stofnfjáreigendum verið gefinn kost- ur á að sækja sérstaka kynningar- fundi vegna þessa þar sem ýmsum þáttum sem Benedikt misskilur var svarað. Ég fullyrði að undirbúningur þessa máls og kynning af hálfu stjórnar og stjórnenda SPRON er eins góð og frekast verður á kosið. Við skulum hafa í huga að á síðasta aðalfundi var samþykkt samhljóða ályktun þess efnis að stjórn og spari- sjóðsstjóri undirbyggi þá breytingu sem við erum að framkvæma núna.“ Stofnfé ekki ígildi hlutafjár Bera stofnfjáreigendur ekki minna úr býtum eftir hlutafjárvæðinguna? „Nei þeir eiga sömu verðmæti áfram. Þeir fá þá hlutabréf sem eru að áætluðu markaðsgildi hin sömu og stofnfjárbréfin eru. Það er rétt að benda á að ef mönnum líður illa með þetta eru ákvæði um að stofnfjáreig- endur geti innleyst bréf sín og fengið greitt út. Þeim er ekki gert að taka þá áhættu sem hlutabréf óhjákvæmi- lega fela í sér. Það getur auðvitað enginn gefið tryggingu fyrir því að hlutabréfin verði mjög arðsöm. Það er eðli hlutafélaga að verðgildi þeirra þróast með því hvernig til tekst í rekstri. Það hefur gengið mjög vel mörg undanfarin ár en við erum að benda á að til að renna stoðum undir að svo geti orðið í framtíðinni þurfum við meira eigið fé og að breyta SPRON í hlutafélag. Við erum að reyna að gera það sem við getum til að tryggja framtíð sparisjóðsins með þessari formbreytingu og það er í okkar huga skylda stofnfjáreigenda að hugsa um þau málefni miklu frem- ur en það nákvæmlega hvernig þetta snýr að þeirra eigin buddu. Misskilningurinn er fólginn í því að líta á stofnfé sem ígildi hlutafjár. Það hefur allt annað gildi í lögum og það er ekki fyrr en einmitt með breytingu sparisjóðs í hlutafélag að þau sjón- armið eiga við. Þá eiga stofnfjáreig- endur sem hluthafar tilkall til hluta og vaxtar eigin fjár eins og í öllum öðrum hlutafélögum. Það hefur ekki verið hingað til og menn mega ekki rugla þessu tvennu saman.“ Verður þetta nógu spennandi fjár- festingarkostur þar sem sjálfseign- arstofnunin á svo stóran hlut? „Það hefur komið mjög ítarlega fram í kynningum okkar að það er markmið að skrá hlutabréf SPRON á Verðbréfaþing Íslands, sem þá verð- ur reyndar orðin Kauphöll Íslands. Til þess að það verði hægt verða a.m.k. 25% hlutafjárins að vera í dreifðri eignaraðild. Þetta þýðir að sjálfsögðu að sjálfseignarstofnunin mun minnka sína eignaraðild. Stjórn SPRON hefur líka lýst því yfir að sjálfseignarstofnunin muni taka sér stöðu kjölfestufjárfestis í SPRON sem þýðir að hún verður öflugur bak- hjarl fyrir rekstur sparisjóðsins en hefur alls ekki að markmiði að verða allsráðandi í rekstri. Stjórn sjálfs- eignarstofnunarinnar mun huga að verðmætum hlutabréfanna og ef það getur stuðlað að auknu verðmæti bréfanna að selja stærri hlut af þeim og minnka eignarhlutinn niður fyrir 75% verður það skoðað. Spurningin er hins vegar hve hratt á að fara og það verður tíminn að leiða í ljós. Það fer eftir aðstæðum því auðvitað er markmið sjálfseignarstofnunarinnar að standa vörð um velferð sparisjóðs- ins.“ Hvernig er lagaákvæðið um að hver hluthafi fari að hámarki með 5% atkvæða tilkomið? „Þetta ákvæði er í lögum um spari- sjóði og mun jafnframt gilda um sparisjóði sem verða hlutafélög. Þetta stafar af því að sparisjóðirnir eru stofnaðir sem nokkurs konar grasrótarhreyfing í byrjun og það var vilji fyrir dreifðri eignaraðild. Það fer mjög vel heim og saman við að hjá okkur eru yfir 1.100 stofnfjár- eigendur og við höfum reynt að halda þannig á málum að dreifð eignaraðild haldist. Með nákvæmlega sama hætti var ákveðið að í kjölfar þess að sjálfs- eignarstofnunin taki við ákveðnum þáttum sem áður tilheyrðu SPRON mun hver og einn fulltrúi í fulltrúa- ráðinu hafa eitt atkvæði þannig að þar hafa allir jafnan atkvæðisrétt,“ segir Guðmundur Hauksson. Í lok vikunnar verður lögð fyrir stofnfjáreigendur SPRON tillaga um að breyta SPRON í hlutafélag Dyr að fjármagnsmarkaði Það er ekki markmið SPRON að verða angi af banka og harla ólíklegt að af sameiningu við Kaupþing verði í kjölfar hlutafjárvæðingar SPRON sem nú stendur fyrir dyrum, að sögn Guðmundar Haukssonar sparisjóðsstjóra. Steingerður Ólafsdóttir ræddi við hann m.a. um ástæður fyrir hlutafjárvæðingunni og gagnrýni tveggja stofnfjáreigenda. Morgunblaðið/Golli Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON. „Við teljum að sparisjóðirnir hafi mjög mikilvægu hlutverki að gegna og það skiptir miklu máli að standa vörð um sérstöðu sparisjóðanna.“ steingerdur@mbl.is ’ Nú eru ýmsar dyrlokaðar og við eigum takmarkaðan aðgang að eigin fé. Þar með eru vexti okkar og samkeppnishæfni settar skorður. ‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.