Morgunblaðið - 23.06.2002, Side 15

Morgunblaðið - 23.06.2002, Side 15
HM 2002 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 15 TILBOÐ ÓSKAST í Dodge Durango SLT árgerð 2000 með 4,7 l. V-8 vél (ekinn 11 þús. mílur) og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 25. júní kl. 12-15. TORFÆRUBIFREIÐ Tilboð óskast í Mercedes-Benz Unimog torfærubifreið m/ dieselvél. TJALDVAGN Ennfremur óskast tilboð í Combi Camp Family tjaldvagn árgerð 1992. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt www.urvalutsyn.is Stökk- pallur Allra sí›ustu sætin … *Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting, fer›ir til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. kr.48.467 m.v. tvo fullor›na og tvö börn í viku. Aukavika: 14.000 kr. Ver›: kr.59.900 m.v. tvo fullor›na í viku. Aukavika: 18.000 kr. Ver›: ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 1 81 37 06 /2 00 2 Sætin bóku› og uppl‡singar gefnar um gistista› tveimur dögum fyrir brottför. Benidorm / Albir 17 sæti Krít 19 sæti Mallorca 22 sæti Portúgal 27 sæti * * í næstu ferðir KNATTSPYRNA ÁTTA LIÐA ÚRSLIT: Suður-Kórea - Spánn 0:0  Suður-Kórea sigraði í vítaspyrnukeppni, 5:3. Vítaspyrnur: 1:0 Hwang Sun-Hong, 1:1 Fernando Hierro, 2:1 Park Ji-Sung, 2:2 Ruben Baraja, 3:2 Seol Ki-Hyeon, 3:3 Xavi, 4:3 Ahn Jung-Hwan, Lee Won-Jae ver frá Joaquin, 5:3 Hong Myung-Bo. Markskot: Suður-Kórea 8 - Spánn 17. Horn: Suður-Kórea 5 - Spánn 6. Rangstöður: Suður-Kórea 2 - Spánn 5. Gul spjöld: Yoo Sang-Chul, Suður-Kóreu 52., Javi de Pedro, Spáni 53.; Fernando Morientes, Spáni 111. Dómari: Gamal Ghandour, Egyptalandi. Áhorfendur: 42.114. Lið Suður-Kóreu: Lee Woon-Jae; Choi Jin- Cheul, Kim Tae-Young (Hwang Sun-Hong 90.), Hong Myung-Bo, Kim Nam-Il (Lee Eul-yong 32.); Yoo Sang-Chul (Lee Chun- soo 60.), Lee Young-Pyo, Ahn Jung-Hwan, Park Ji-Sung, Song Chong-Gug; Seol Ki- Hyeon. Lið Spánar: Iker Casillas; Carles Puyol, Fernando Hierro, Enrique Romero, Mig- uel Angel Nadal; Ruben Baraja, Ivan Helg- uera (Xavi Hernandez 93.), Javi de Pedro (Gaizka Mendieta 70.), Juan Carlos Valer- on (Luis Enrique 80.), Joaquin Sanchez; Fernando Morientes.  Suður-Kórea mætir Þýskalandi í undan- úrslitum á þriðjudag kl. 11.30. Tyrkland - Senegal 1:0 Mark Tyrklands: Ilhan Mansiz 94., gull- mark í framlengingu. Markskot: Tyrkland 5 - Senegal 7. Horn: Tyrkland 7 - Senegal 1. Rangstöður: Tyrkland 2 - Senegal 2. Gul spjöld: Daf, Senegal 12., Emre, Tyrk- landi 22., Cisse, Senegal 63., Ilhan Mansiz, Tyrklandi 87. Dómari: Oscar Ruiz, Kólumbíu. Áhorfendur: 44.233. Lið Tyrklands: Rüstü Recber; Fatih Akyel, Bülent Korkmaz, Alpay Özalan, Ergun Penbe; Ümit Davala, Emre Belözoglu (Arif Erdem 91.), Tugay Kerimoglu, Yildiray Basturk, Hakan Sas, Hakan Sükür (Ilhan Mansiz 67.) Lið Senegals: Tony Sylva Ferdinand Coly, Papa Malick Diop, Lamine Diatta, Omar Daf, Papa Bouba Diop, Salif Diao, Aliou Cisse, Henri Camara, Khalilou Fadiga, El Hadji Diouf.  Tyrkland mætir Brasilíu í undanúrslitum á miðvikudag kl. 11.30. ÚRSLIT Suður-Kórea mætir Þýskalandi íundanúrslitunum á þriðjudag og Tyrkland mætir Brasilíu, í annað skiptið í keppninni, á miðvikudag. Leikur Spánar og Suður-Kóreu var bragðdaufur en Spánverjar voru nær sigri. Þrjú mörk voru dæmd af þeim og að minnsta kosti eitt þeirra virtist fyllilega löglegt. Aðstoðar- dómari veifaði þótt boltinn væri ekki farinn úr leik áður en Joaquin sendi hann fyrir mark Suður-Kóreu. Þá átti Fernando Morientes skot í stöngina á marki heimamanna í framlengingunni. Töpuðum á óréttmætan hátt, segir Camacho Jose Camacho, þjálfari Spánverja, var afar ósáttur við dómgæsluna. „Við bjuggumst við henni betri, þetta var þó einu sinni leikur í átta liða úrslitum. Ég er vonsvikinn því mínir menn lögðu mjög hart að sér og við töpuðum á óréttmætan hátt. Ég bjóst við því að gerðar yrðu ráð- stafanir til að bæta dómgæsluna eft- ir umdeild atvik sem hafa bitnað á liðum eins og Ítalíu, Mexíkó, Portú- gal og Bandaríkjunum, en FIFA virðist ekki hafa áhuga á því. Meiðsli sterkra leikmanna gerðu okkur líka erfitt fyrir. Við erum úr leik, en við lögðum mjög hart að okkur. Leik- menn Suður-Kóreu voru heppnari en við og það réð úrslitum,“ sagði Jose Camacho, þjálfari Spánverja, en Raúl, Tristan og Albelda voru allir frá vegna meiðsla. „Ég get ekki útskýrt hvernig mér líður en ég er innilega ánægður fyrir hönd strákanna. Nú hefur draumur okkar ræst fullkomlega. Gengi liðs- ins er ótrúlegt, það er framar öllum vonum. Ég er yfir mig stoltur af leik- mönnunum og áhorfendurnir eru stórkostlegir. Engin læti, ekkert of- belti, bara stórkostlegir. Nú fáum við okkur örlítið kampavín og hefj- umst síðan handa við undirbúning næsta leiks. Það er nægur tími til að hugsa um morgundaginn,“ sagði Guus Hiddink eftir sigurinn á Spán- verjum. „Skipulagið er ekki okkur í hag. Við fengum tveimur dögum skemmri hvíld milli leikja en Spánverjar, og Þjóðverjar hvílast einum degi lengur en við fyrir leikinn í undanúrslitun- um. En við mætum til leiks á sama hátt og áður, með fríska stráka sem hafa engu að tapa. Við munum spila þann leik eins og okkur hentar,“ sagði hollenski þjálfarinn. Hann gaf lítið fyrir mótmæli Spánverjanna. „Þeir sem tapa eiga að líta í eigin barm og skoða hvað fór úrskeiðis í stað þess að kenna dóm- aranum um ófarir sínar,“ sagði Hiddink. Hiddink þjóðhetja í Suður-Kóreu Hiddink er fyrsti þjálfarinn sem kemur tveimur landsliðum í undan- úrslit HM. Hann lék þann sama leik með Holland í síðustu keppni. Hann er nú þjóðhetja í Suður-Kóreu eftir magnaðan árangur landsliðsins und- ir hans stjórn. Hann var gagnrýndur harkalega í þarlendum fjölmiðlum skömmu fyrir mótið fyrir að leggja of hart að leikmönnum sínum og menn óttuðust að þeir væru yfir- keyrðir af þreytu. Í keppninni hefur hinsvegar komið á daginn að liðs- menn Suður-Kóreu eru í betra út- haldi en aðrir. Hiddink vissi að hann væri með í höndunum leikmenn sem gætu gert það sem þeir vildu við boltann en þyrftu að bæta styrk og úthald. Það tókst, og nú er spurn- ingin hvort strákarnir hans ráða við hina kröftugu leikmenn Þýskalands í undanúrslitunum. Verðskuldaður sigur Tyrkja Tyrkir voru mun betri aðilinn gegn Senegal og sýndu oft stórgóða knattspyrnu en nýttu ekki góð mark- tækifæri. Afríkuliðið var hinsvegar ekki eins kraftmikið og í fyrri leikj- um sínum í keppninni, en fékk samt nokkur ágæt færi sem ekki nýttust. „Þetta er afar sárt en við vissum að það kæmi að því að við yrðum slegnir út. Við vorum smeykir við að fá á okkur mark en sama er að segja um Tyrkina. Þeir unnu verðskuldað og ég óska þeim alls hins besta gegn Brasilíu. Við förum stoltir heim,“ sagði El Hadji Diouf, hinn snjalli sóknarmaður Senegals. Suður-Kórea og Tyrkland í undanúrslit í fyrsta skipti Reuters Geysilegur fögnuður braust út í Suður-Kóreu, þegar ljóst var að gestgjafarnir væru komnir í undanúrslit HM. Hér fagna þeir Lee Woon-Jae, markvörður, Song Chong-Gug og hollenski þjálfarinn Guus Hiddink, sem er þjóðhetja í Suður-Kóreu. SUÐUR-KÓREA og Tyrkland eru komin í undanúrslit heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu í fyrsta skipti. Suður-Kórea sigraði Spán í vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik og úrslitin réðust þegar markvörður liðsins, Lee Won-Jae, varði fjórðu spyrnu Spánverja frá Joaquin. Tyrk- ir sigruðu Senegal, 1:0, en þar var heldur ekkert mark skorað í venjulegum leiktíma. Varamaðurinn Ilhan Mansiz skoraði sig- urmarkið, gullmark, þegar fjórar mínútur voru liðnar af framlengingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.