Morgunblaðið - 23.06.2002, Síða 19
ember í samstarfi við slökkviliðin í
landinu, þar sem samræmd fræðsla
um eldvarnir fer fram. Síðustu ár
hafa slökkviliðsmenn farið árlega í
yfir 190 grunnskóla víðs vegar um
land þar sem „við erum með beinan
boðskap fyrir yfir 5000 þriðju
bekkinga, á landsbyggðinni erum
við reyndar með fræðslu fyrir alla
sem vilja auk þess sem við dreifum
almennum forvarnarboðskap með
Morgunblaðinu inn á heimili einu
sinni á ári.“
Hann segir mikið starf að skipu-
leggja og vinna að fræðslu skóla-
barnanna, sem LSS heldur utan
um í samstarfi við slökkviliðin á
hverjum stað, en það sé mjög gef-
andi.
„Svo erum við með sérstaka for-
varna- og fræðsludeild LSS vegna
þess að mikil þörf var á því að fyr-
irtæki og stofnanir fengju slíka
þjónustu og við vissum að menn
vildu fá slökkviliðsmann með bæði
reynslu og þekkingu í heimsókn til
að fara með eldvarnafræðslu.“
LSS byrjaði með forvarnar- og
fræðsludeildina 1991 í samstarfi við
Slökkvilið Reykjavíkur, þegar tveir
menn sinntu verkefninu, en leið-
beinendur eru nú sex. „Við höfðum
mjög samstæða sýn á það að kröf-
urnar væru að aukast svo mikið
varðandi forvarnir í fyrirtækjum að
full ástæða væri til þess að styrkja
starfið hér á þessu svæði og hvetja
menn til að koma að starfi lands-
sambandsins í þessum efnum, utan
síns reglubundna vinnutíma.“
Um 3000 manns taka nú þátt í
námskeiðum þessum í fyrirtækjum
og stofnunum árlega. Þá sér LSS
um fræðslumál í leikskólum í
Reykjavík; kennslu, rýmingaræf-
ingar og gefur út efni sem dreift er
jafnhliða.
Vert er að geta þess að formaður
LSS er jafnframt framkvæmda-
stjóri þess í fullu starfi, einn
fulltrúi á skrifstofu er í tæplega
heilu starfi og einn umsjónarmaður
er með forvarnardeildinni. Þessir
þrír eru launaðir starfsmenn lands-
sambandsins, en félagar vinna að
auki mikið sjálfboðaliðastarf.
Góð viðbrögð
Félagsvísindastofnun Háskólans
gerði könnun fyrir LSS árið 1999
um viðhorf almennings til eldvarna
og til starfa landssambandsins að
forvarnarmálum og „þótt ég sé
bjartsýnn að eðlisfari komu nið-
urstöðurnar mér á óvart,“ segir
Guðmundur Vignir.
„Yfir 90% landsmanna þekktu til
dæmis forvarnarstarfið og jafn-
framt kom fram hvatning um að við
héldum áfram á sömu braut. Ég
átti von á 50-60% en niðurstaðan
var ótrúleg og kom okkur þægilega
á óvart.“
Fráfarandi formaður og fram-
kvæmdastjóri LSS segir margt
hafa breyst við starf slökkviliðs-
mannsins á síðustu árum. „Þegar
ég kem inn í liðið 1976 voru launa-
kjör mjög léleg og menn þurftu að
bæta sér það upp með annarri
vinnu. Iðnmenntun er grunnkrafa í
starfinu og menn voru eitthvað að
vinna við sín störf til hliðar, það er
ekkert launungarmál. Þetta um-
hverfi er gjörbreytt. Menn eiga
fullt í fangi með að standast allar
þær kröfur sem gerðar eru til
starfsins í dag. Þetta er mjög
ánægjuleg þróun, sem við höfum
hvatt til og staðið að með stjórn-
endum slökkviliðanna og viðsemj-
endum okkar.“
Á nýafstöðu þingi LSS í Mun-
aðarnesi, þar sem stofnfundurinn
var líka haldinn fyrir 10 árum, voru
samþykktar ýmsar ályktanir og
samþykktir varðandi brunavarnir,
björgunarþjónustuna í landinu,
sjúkraflutninga og umferðarörygg-
ismál og fleira í þeim dúr. Þar var
nýr formaður LSS kjörinn í stað
Guðmundar Vignis, Vernharð
Guðnason úr Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins bs.
Starf slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamannsins er þess eðlis að við-
komandi óskar þess ætíð að hafa
sem minnst að gera. „Við höfum
verið við mörg dánarbeð, erum oft
með fólki undir alls kyns viðkvæm-
um kringumstæðum. Starfið veitir
okkur því mikla innsýn í líf fólksins
í landinu, bæði á gleði- og sorg-
arstundum.“
Guðmundur bendir á að þjónusta
slökkviliðanna hafi breyst mjög
mikið í áranna rás. Starfið snúist
ekki einvörðungu um að slökkva
eld og flytja sjúka. „Þetta er orðið
mjög alhliða björgunarþjónusta og
bara það að halda sér við, eins og
við höfum lagt metnað í, er mikil
vinna. Slökkviliðsmenn eru í raun
afar uppteknir í verkefnum við sí-
og endurmenntun, auk margvís-
legra þjónustuverkefna.“
Sem dæmi eru ríflega 20 menn á
vakt hverju sinni á höfuðborgar-
svæðinu. Hann nefnir að á hverjum
sólarhring sjái þeir auk slökkvi- og
björgunarstarfa um 40 til 50
sjúkra- og neyðarflutninga, þ.m.t.
flutning fólks milli sjúkrastofnana -
sem eru um 20 þúsund flutningar á
ári „en þessi mannskapur sinnir
jafnframt móttöku, úrvinnslu, við-
haldi á tækjum og búnaði og þrif-
um, auk endurmenntunar sem áður
er getið, þannig að í raun og veru
eru ekki margar hvíldarstundirnar
sem menn
eiga. Enda eru menn ekki í þessu
starfi til þess að hvíla sig.“
Guðmundur gengur sáttur frá
formennsku í LSS. „Ég leit alltaf á
þetta starf mitt sem sérstakt verk-
efni og það hefur verið mjög gaman
að vinna að því í rúm 10 ár. Það er
mikið af dyggum og metnaðarfull-
um mönnum víðs vegar í sveitar-
félögum, slökkviliðsstjórum,
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
mönnum, menn, sem hefur verið
gefandi að fá að vinna með, sem
hafa sterkan félagslegan og fagleg-
an metnað og það hefur verið mikil
eindrægni og samstaða í því ferli
sem 10 ára brautarganga LSS hef-
ur verið. Nú lít ég svo á að við
séum að skipta svolítið um gír.
Uppbygging félagsins er að baki og
bjart framundan og nú getur ný
forysta einbeitt sér enn frekar að
fjölmörgum spennandi úrlausnar-
efnum m.a. í menntunar- og fag-
málum starfstéttarinnar.“
skapti@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 19
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
HÁGÆÐI Á ÓTRÚLEGU VERÐI!
ÁRANGUR SÍÐUSTU SAMNINGAFERÐAR HEIMSKLÚBBSINS
BARCELONA
FÁIÐ NÁNARI FERÐALÝSINGU Á SKRIFST.
PÖNTUNARSÍMI:
56 20 400
Ein fallegasta borg Evrópu og mörgum finnst hún skemmtilegasta borgin. Lifandi,
iðandi af mannlífi víðs vegar að, götumarkaðir, tískuhús, leikhús götunnar á Römblunni
ótrúlegra en orð fá lýst, kaffihúsin, fjölþjóðlegir veitingastaðir, listsýningar, ópera,
tónleikar, leikhús, frábær skemmtun og listræn upplifun í senn. Þú stendur augliti til
auglits við verk snillinganna Gaudis, Miro og Picasso í byggingarlist og myndlist.
Þetta er borg nútímans og hvers kyns lystisemda - í mátulega langri ferð.
TILBOÐSVERÐ: SÆLUVIKA Í BARCELONA 14. SEPT.
BEINT FLUG, VIKUDVÖL Á VÖNDUÐU HÓTELI Í MIÐBORGINNI FYRIR
ÁÐUR, ÓÞEKKT TILBOÐSVERÐ
KR. 98.600.- (innif. beint flug, toppgisting m. morgunv. 7 nætur,
þjónustugj., flugvallarsk., íslensk fararstjórn)
TAKMARKAÐUR
SÆTAFJÖLDI. TRYGGDU
ÞÉR SÆTI STRAX Í FERÐ,
SEM STENDUR UPPÚR!
GALLERY HÓTEL
Mjög glæsilegt 4* hótel í
klassískum stíl, rétt við
Rambla Catalunia.
Öll þægindi eða
HILTON/MERIDIEN
VEIÐIÞJÓNUSTAN Strengir,
sem hefur m.a. Hrútafjarðará,
Hvolsá/Staðarhólsá, Breiðdalsá,
Minnivallalæk og Seglbúðasvæði
Grenilækjar á leigu eða í umboðs-
sölu, hefur bryddað upp á nýrri
þjónustu í veiðihúsum sínum. Í
veiðihúsum allra svæðanna, að
Breiðdalsá undanskilinni, hefur
verið komið upp fluguhnýtinga-
hornum með önglum og öllum
öðrum grundvallarbúnaði.
Um er að ræða sérhönnuð
hnýtingaborð með skrúfstykki.
Að sögn Þrastar Elliðasonar, eig-
anda Strengs, er þetta þjónusta
við veiðimenn og þeim að kostn-
aðarlausu. „Við gerum þetta í
samvinnu við verslunina Veiði-
hornið sem leggur til efni, tól og
tæki. Þetta hefur mælst vel fyrir,
t.d. í Minnivallalæk þar sem veitt
hefur verið síðan 1. maí. Menn
hafa setið við borðið og hnýtt og
hnýtt,“ sagði Þröstur.
Veiðidagur fjölskyldunnar
Veiðidagur fjölskyldunnar er í
dag, sunnudaginn 23. júní. Lands-
samband stangaveiðifélaga stend-
ur fyrir deginum í samvinnu við
veiðiréttarhafa. Að sögn Ragnars
Hólm Ragnarssonar hjá LS er
markmið Veiðidags fjölskyldunn-
ar „að hvetja fólk til að drífa sig af
stað saman í veiðitúr, njóta þess í
eina dagstund að renna fyrir góm-
sætan vatnafisk í hinni stórbrotnu
íslensku náttúru og kynnast um
leið þeirri skemmtilegu tóm-
stundaiðju sem stangaveiðin er.“
Þau vötn þar sem endurgjalds-
laus veiði verður leyfð eru: Elliða-
vatn, Meðalfellsvatn, Geitabergs-
vatn, Þórisstaðavatn, Eyrarvatn,
Langavatn á Mýrum, Hítarvatn,
Vatnasvæði Lýsu, Haukadals-
vatn, Hnausatjörn, Höfðavatn,
Vestmannsvatn, Botnsvatn,
Langavatn í Reykjahverfi og
Kringluvatn, Urriðavatn í Fellum,
Langavatn, Krókavatn, Víkurflóð,
Höfðabrekkutjarnir, Heiðarvatn,
Þingvallavatn fyrir landi þjóð-
garðsins og Kleifarvatn. Í flestum
veiðibúðum og á bensínstöðvum
Olís má finna sérstakan kynning-
arbækling um Veiðidag fjölskyld-
unnar.
Veiðimaður við hnýtingarborðið í veiðihúsi Minnivallalækjar.
Morgunblaðið/Golli
Veiðidagur fjölskyldunnar er í dag. Þingvallavatn er einn af þeim
stöðum þar sem leyft verður að veiða endurgjaldslaust.
Frítt að
veiða
í 23
vötnum
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?