Morgunblaðið - 23.06.2002, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.06.2002, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SKAMMT sunnan við álveriðí Straumsvík stendur fal-lega uppgert bárujárnshússem nefnist Gerði, fyrrumhjáleiga frá Þorbjarnar- stöðum í Hraunum. Húsið er nú í eigu Ísals en var eitt sinn sumar- hús Ragnars Péturs- sonar kaupfélagsstjóra í Hafnarfirði og fjöl- skyldu hans. Á meðan Gerði var enn bújörð bjuggu þar m.a. Guðjón Jónsson frá Setbergi og Stefanía kona hans, ásamt tveimur sonum og fóstursyni. Gerði fór í eyði líkt og fleiri jarðir í Hraunum um 1930. Milli Gerðis og Þor- bjarnarstaða eru ein- stakar ferskvatnstjarn- ir sem draga nafn sitt af kotunum sem stóðu við þær. Gamlar leiðir liggja suður í Almenning frá kotun- um og hér verður greint frá einni þeirra, Gerðisstíg, sem á upptök sín í heimatúni Gerðis. Leiðin liggur upp með Brunanum, sem margir kalla Kapelluhraun, til suðurs að Efri- Hellum og Gjáseli, þar sem hinn eig- inlegi Gerðisstígur endar. Upphaf Gerðisstígs er neðan bæj- arhólsins og tófta gömlu gripahús- anna. Hann liggur í gegnum gerðið, sem er hlaðinn varnargarður heima- túnsins og yfir Alfaraleiðina. Hægt er að nálgast stíginn frá Þorbjarn- arstöðum með því að ganga suðaust- ur fyrir tjarnirnar. Alfaraleiðinni er fylgt stuttan spöl til austurs í áttina að Brunanum, að hraunhrygg þar sem Gerðisstígur liggur til suðurs. Hann hefur verið auðkenndur að hluta með stikum sem merktar eru Byggðasafni Hafnarfjarðar og því auðvelt að feta sig eftir honum að Efri-Hellum. Leiðin þangað tekur um 1–2 tíma eftir því hve hratt er farið og rétt að gera ráð fyrir öðrum eins tíma til viðbótar ef haldið er alla leið í Gjá- sel. Á vinstri hönd, aust- an Gerðisstígs stendur uppmjó varða sem vís- ar á stíginn sem liggur um Hólaskarð milli vesturbrúnar Brunans og nokkurra hraunhóla á hægri hönd. Selja- hraun, þunn hraun- þekja sem var farar- tálmi áður en gata var rudd í gegnun hraunið í fyrndinni, tekur næst við. Handan þess er Seljatún, lítil gróin flöt sem varla er sjáanleg lengur. Þar mun hafa verið dálítið slægjuland í eina tíð. Áður fyrr stóð áberandi kennileiti upp úr landinu framundan, Þorbjarnarstaðarauðimelur. Meln- um var mokað upp á vörubílspalla á sjötta og sjöunda áratug 20. aldar og efnið úr honum nýtt sem fyllingar- efni í götur og húsgrunna. Norðan Rauðamelsins eru Neðri-Hellar skammt frá Rauðamelsklettum, lágri klettaþyrpingu og vestan þeirra eru brekkur sem kallast Enn- in. Stígurinn liggur suður frá nám- unni eða melnum eftir ruddri slóð að Efri-Hellum og stefnir á klett sem líkist stórri hraunhellu. Á leiðinni þangað blasir hús Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar við á vinstri hönd rétt ofan Brunabrúnarinnar, en neðan þess er Rauðamelsrétt, fallega hlað- in í skjólgóðum krika sem myndast hefur við Brunabrúnina. Þegar komið er að Efri-Hellum sjást fjárhellarnir fyrir útigangsféð frá Gerði og Þorbjarnarstöðum. Féð hefur gengið inn í annan hellinn frá suðri, en hinn úr norðurátt. Hægt er að skríða í gegnum annan hellinn, en hvorugur þeirra er manngengur frekar en aðrir fjárhellar í Hraunum. Nokkrir einkennandi stapar standa upp úr Brunanum sem skiptir um nafn á þessum slóðum og nefnist Brenna, þar sem brunatungan geng- ur til vesturs ofan Efri-Hella við Brennuhól. Guðmundur Bergsveins- son í Eyðikoti, hjáleigu frá Óttars- stöðum, sótti sér hellugrjót í kvarn- arsteina í Brennuna seint á nítjándu öld. Setti hann mosa á bak sér til að hlífa því er hann bar hellugrjótið heim í Eyðikot. Hér sleppir stikunum og þeir sem ætla að halda förinni áfram verða að treysta á hyggjuvitið. Framundan er Kolbeinshæð með Kolbeinshæðar- vörðu, en áður en komið er á þennan lága hraunhrygg er gengið framhjá annarri vörðu sem vísar á ágætis haglendi. Hraunið á milli Rauðamels og Kolbeinshæðar nefnist Gráhellu- hraun. Það er vel gróið umhverfis Kolbeinshæð og sunnan í hæðinni vestanverðri er Kolbeinshæðarskjól, forn smalaskúti. Það mótar enn fyrir föllnum hleðslum framan við skút- ann sem reft var yfir áður fyrr, en þekjan er löngu fallin. Stígurinn er óglöggur þar sem hann liggur til suðurs um skarð í áttina að Lauf- höfðahrauni. Kjarrið þéttist eftir því sem nær Laufhöfða dregur. Frá hon- um er stuttust spölur suður í Gjásel sem stendur á Gjáselshæð, lágri gró- inni hraunhæð. Norðan hæðarinnar er gömul kví í litlu jarðfalli og þegar komið er upp á hæðina sjást tóftir selsins, sem hefur líklega farið í eyði á síðari hluta 19. aldar. Við selið er niðurgrafið vatnsból, sem er fremur lítið og slæmt enda þornar í því bæði að vetri og sumri. Þegar horft er í suðvestur blasir Litlaholt við milli Straumssels og Hafurbjarnarholts, en svo nefnist hæðin sem hæst rís og þekkist á því að þar er steyptur landmælinga- stólpi. Þar var áður landamerkja- varða, Hafurbjarnarholtsvarða sem markaði skilin milli Þorbjarnar- staða- og Straumslands. Óttarssel auðkennt með selsvörðu Hinn eiginlegi Gerðisstígur endar í Gjáseli, en hægt er að halda áfram og fylgja Hrauntungustíg til suðurs í áttina að Sveifluhálsi allt til Krýsu- víkur. Einnig er hægt að fara í vest- ur og freista þess að rekast á Straumssel, sem þekkist m.a. á hlöðnu gerði og Straumsselsvörðu efst á Straumsselshöfða og þaðan áfram í Óttarsstaðasel sem er einnig auðkennt með selsvörðu. Þeir sem eru búnir að fá nóg halda frá Gjáseli til norðausturs út á Krýsuvíkurveg. Þá er stefnan tekin á Ásfjall ofan Hafnarfjarðar og gengið norðan skógræktargirðingar sem umlykur 50 hektara landsvæði sem Björn Þorsteinsson, Broddi Jóhann- esson, Þorbjörn Sigurgeirsson og Marteinn Björnsson fengu til rækt- unar og girtu 1955. Fljótlega er kom- ið í Hrauntunguna sem Hrauntungu- stígur liggur um og honum fylgt að námasvæðin í Háabruna norðan Rallýkrossbrautarinnar. Fyrrum lá ruddur vegaslóði í gegnum úfið hraunið í áttina að bænum Ási, en þegar Skógrækt ríkisins leyfði efn- istöku í landi sínu á níunda áratugn- um var þessi forni slóði eyðilagður á stórum kafla. Sjálf Hrauntungan vestan Háabruna er vaxin birki- trjám, víðikjarri, einibrúskum og lyngi á milli efri og neðri skolta hrauntungukjafts. Hrauntungustíg- ur liggur annarsvegar í áttina að Hamranesi, um Helludal og Ásflatir að bænum Ási sem stóð undir Ás- fjalli, og hinsvegar framhjá Forna- seli og Fjallinu eina, yfir Sveifluháls um Ketilstíg til Krýsuvíkur. Á slóðum Ferðafélags Íslands Ferðafélag Íslands og Umhverfis- og útivistarfélag Hafnarfjarðar hafa átt með sér samstarf um gönguferðir á síðustu árum og hefur Jónatan Garðarsson verið fararstjóri. Hér lýsir hann einni slíkri ferð um Gerðisstíg sem er gömul smalaleið við Kapelluhraun.                                                                                         !            # $                ! " #             $                  #                     #  %  # '  (  !     "       $    $       )#  ! "  !              ' *             Höfundur er formaður Umhverfis- og útivistarfélags Hafnarfjarðar. Gerðisstígur hefst við túngarð Gerðis, gamla býlisins skammt sunnan álversins í Straumsvík, sem sómir sér vel eftir að húsið var gert upp. Ljósmynd/ Gerður Steinþórsdóttir Birkikjarrið í Almenningi hefur tekið við sér eftir að beit lagðist að mestu af í Hraunum. Horft í áttina að Helgafelli ofan Hafnarfjarðar, Lönguhlíða og Þríhnúka. Það eru um 3 km að Gjáseli sem Gerðisstígur liggur að. Selhóllinn er greinilegur þegar komið er að honum og við seltóftirnar er gott að hvíla lúin bein og njóta útsýnisins. Gerðisstígur í Hraunum við Straumsvík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.