Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HALLGRÍMSKIRKJA og Hall- grímstorg verða vettvangur fjöl- skrúðugra hátíðahalda í dag, sunnudag, í tilefni af Jónsmessu, hátíð Jóhannesar skírara. Marg- breytileg dagskrá verður í boði allt frá miðjum degi og til mið- nættis. Hörður Áskelsson, kant- or kirkjunnar og nýútnefndur borgarlistamaður, hefur skipu- lagt sérstaka tónlistardagskrá í kirkjunni og Sigurbjörn Einars- son biskup heldur fyrirlestur um Jóhannes skírara, og kl. 23 hefst miðnæturmessa. Vinsældir miðnæturmessu á Jónsmessunótt í Hallgrímskirkju eru miklar. Undanfarin ár hefur kirkjan verið full út úr dyrum við þessar sumarbjörtu helgistundir og nú í ár, þegar aðfaradag Jóns- messu ber upp á sunnudag, þótti tilvalið að slá upp allsherjar veislu í kirkjunni og á torginu fyrir framan hana af þessu tilefni. Jónsmessuhátíð í Hallgríms- kirkju verður því haldin í fyrsta sinn á sunnudaginn kemur. Hörður Áskelsson segir að Mótettukór kirkjunnar hafi borið hitann og þungann af skipulagn- ingu og framkvæmd hátíðarinn- ar, og sé um leið að safna fé til kórstarfseminnar. „Það var kom- in á þessi hefð að messa á Jónsmess- unni, en það var herra Karl Sigur- björnsson biskup sem kom þessum sið á meðan hann var prestur hér. Frá því að þessar messur hófust hefur sá frasi lifað hér í kirkjunni að fara syngjandi út í nóttina, en kórinn leiðir söfnuðinn í söng út í nóttina í miðnæt- urmessunum á Jónsmessu. Það hefur nú oftast verið súld á þessu kvöldi, en ekki miðnætursól eins og við erum alltaf að bíða eftir, en við ætlum að halda þessum sið áfram, alla vega þar við upplifum hana. Við vildum nota tækifærið til að halda þessa hátíð um leið og kalla á fleira fólk og bjóða upp á mat og tónlist, bæði í kirkjunni og í safnaðarsal. Það verður andlegra efni í kirkjunni sjálfri en léttara í salnum.“ Menn ættu að ganga saddir frá kirkjunni, hvort sem þeir eru á hött- unum eftir líkamlegri eða andlegri fæðu og hvar svo sem þeir eru staddir á lífsleiðinni. Hátíðardagskráin hefst kl. 16.30 með klingjandi klukkuspili frá Hallgrímskirkjuturni og síðan verður boðið upp á allt það helsta sem prýðir góða fjölskylduskemmtun, svo sem andlitsmálun, hoppkastala, krokket, ratleik og lúðrasveitar- hljóma. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju og velunnarar kórsins munu bjóða upp á gómsæta grillrétti gegn vægu gjaldi. Kl. 18 hefst málstofa um Jóhannes skírara í norðursal kirkjunnar. Þá mun Sigurbjörn Einarsson biskup íhuga upphátt og deila með tilheyr- endum hugsunum sínum um manninn sem benti á Jesú og leið píslarvætti. Hvert var hlutverk hans og hvert er gildi hans tvö þúsund árum síðar? Stjórnandi málstofunnar verður dr. Sigurður Árni Þórðarson. Klukkustund síðar hefst svo fjöl- breytt tónlistardagskrá í kirkjunni. Tveir af efnilegustu orgelleikurum þjóðarinnar spila á hið glæsilega Klaisorgel kirkjunnar, Mótettukór- inn syngur og nokkrir félagar úr kórnum láta ljós sitt skína í einsöng, píanóleik og ljóðalestri. Hörður Ás- kelsson, kantor kirkjunnar, sem var útnefndur borgarlistamaður á þjóðhátíðardaginn, stendur svo sann- arlega í ströngu á Jónsmessuhátíð- inni. Auk þess að stjórna Mótettu- kórnum við nokkur tækifæri yfir daginn leikur hann á orgelið með trompetleikurunum Eiríki Erni Páls- syni og Ásgeiri Steingrímssyni, en þeir félagar hafa oft leikið saman í Hallgrímskirkju. Jónsmessuhátíð í Hallgrímskirkju lýkur á viðeigandi hátt með miðnæt- urmessu kl. 23. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson hefur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni og sr. Guðnýju Hallgrímsdóttur og leikmönnum. Mótettukór Hallgríms- kirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Að messu lokinni geng- ur söfnuðurinn út í sumarnóttina og ekki kæmi á óvart þótt Mótettukór- inn byði upp á einn eða fleiri ættjarð- arsöngva að skilnaði. Hann á að vaxa, ég á að minnka Fæðingardagur Jóhannesar skír- ara, 24. júní, er ein af elstu hátíðum kristinnar kirkju. Forsenda hátíðar- innar er sótt til heilags Ágústínusar, sem talinn er höfundur þessara orða: Eins og dagarnir verða lengri eftir fæðingardag Jesú Krists, verða þeir skemmri eftir fæðing- ardag Jóhannesar skírara. Þannig minnir náttúran á orð hans: Hann á að vaxa, ég að minnka. Jónsmessan er stundum köll- uð ein af fjórum hátíðum Ljóss Krists. Hinar eru jól og páskar og Mikjálsmessa (29. sept). Þær fella saman í eitt kirkjuárið og almanaksárið, eða ár Krists og ár náttúrunnar. Þannig helgar Kristur allt árið. Á Jónsmessu er ljósið skýrasta táknið. Jóns- messan er þegar ríki ljóssins er sterkast. Þá minnist kirkjan Jó- hannesar, sem er fyrirrennari Krists. Héðan af hnígur sól nátt- úrunnar hægt og hægt til viðar. Þannig á Jóhannes að minnka, svo að Kristur megi vaxa. Að fornri hefð er altarið og kirkjan skreytt með mörgum ljósum og rósum. Litúrgíiskur litur hátíð- arinnar er hvítur. Dagskrá hátíðarinnar 11.00 Messa Sr. Jón Bjarman prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Jóni D. Hróbjartssyni. Hópur úr Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngur. Orgelleikari: Hörður Áskelsson 16.30 Fjölskylduhátíð Hátíðahöldin hefjast á klukknaspili og ávarpi sr. Sigurðar Pálssonar. Á Hallgrímstorgi verður ýmislegt í boði fyrir börnin. Mótettukórinn verður með grill á staðnum þar sem hægt verður að kaupa veitingar. 18.00 Málstofa Dr. theol. Sigurbjörn Einarsson heldur fyrirlestur um Jóhannes skír- ara í norðursal kirkjunnar. Stjórn- andi málstofunnar verður dr. Sigurð- ur Árni Þórðarson. 19.00 Orgelleikur Guðný Einarsdóttir. 20.00 Orgelleikur Ágúst Ingi Ágústsson. 20.30 Einsöngur í suðursal Elmar Þór Gilbertson tenór, Guð- mundur Vignir Karlsson tenór, Sæberg Sigurðsson, bassi, Brynhildur Ásgeirsdóttir, píanó. 21.00 Orgel og trompetar Hörður Áskelsson, orgel, Eiríkur Örn Pálsson og Ásgeir Steingrímsson, trompet. 21.30 Píanóleikur í suðursal Ragnheiður Bjarnadóttir, Halldór Hauksson. 22.00 Kórsöngur Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar. 22.30 Ljóðalestur í suðursal Silja Björk Huldudóttir, Björn Thorarensen. 23.00 Miðnæturmessa Gestir fara syngj- andi út í nóttina Úr Hallgrímskirkju. Morgunblaðið/Sverrir Í HÚSI málaranna sýnir Ari Svav- arsson 26 abstrakt expressjónísk málverk unnin með akrýl á viðarplöt- ur. Ari hefur starfað sem grafískur hönnuður síðastliðin 15 ár og unnið að myndlist samhliða því. Sýningin nefn- ist „Augnablik“ og er fyrsta einkasýn- ing listamannsins. Abstrakt expressjónisminn á upp- tök sín í Bandaríkjunum skömmu eft- ir heimsstyrjöldina síðari. Hann skiptist í tvo hluta. Annars vegar „At- hafnamálverk“ (Action painting) og hins vegar „Litaflæmismálverk“ (Colour Field painting). Vinnubrögð Ara eru í anda athafnamálverksins, en nálgun hans við myndflötinn er í ætt við litaflæmismálverk, þ.e. opnir fletir í takmörkuðum litum og jafnvel tilbrigði við einn lit. Yfirskrift sýningarinnar má sjá sem tilvísun í hugmyndir litaflæmis- málaranna um að málverk hafi hug- leiðslugildi og geti lyft áhorfandanum á æðra plan tilvistar í eitt augnablik ef hann leyfir. Sú tilvísun er ekki endi- lega ætlun listamannsins, en sam- kvæmt fréttatilkynningu um sýn- inguna er titill hennar skírskotun í augnablikið þegar listamaðurinn veit að málverk er fullunnið. Textar eru stór þáttur í málverkum Ara. Í því sambandi þykir mér ástæða til að minnast á listamanninn Cy Twombly sem hefur notað skrift til að nálgast teikningu og málverk síðan á sjöunda áratugnum. Twombly skrifar ekki skiljanleg orð eða stafi heldur notar hann óræða rithönd til að skapa áhrifarík abstraktverk. Textar í verk- um Ara hafa sjálfstæða merkingu en lítið innihald. Þetta eru orð og setn- ingar eins og „þolinmæði“ og „allt hefur sinn gang“ sem listamaðurinn ritar á myndflötinn með skrifstöfum. Skriftin gefur textunum teiknigildi frekar en tungumálagildi, en sam- ræmist ekki efnistökum málarans né brýtur þau upp. Textarnir og skriftin gera málverkin „smart“ en skyggja á þá dulúð sem býr í litunum. Ég hef það á tilfinningunni að textarnir og skriftin hafi meira með grafíska hönnuðinn Ara Svavarsson að gera en myndlistarmanninn. Það er vissulega erfitt að meta vægi hönnunar í málverki og halda margir því fram að abstraktmálverk sé ekkert annað en hönnun, þ.e. að raða saman litum og formum á flöt. Það sem hins vegar gerir abstrakt- málverk að listaverki er hið ósýnilega og ósnertanlega sem liggur handan við yfirborð myndflatarins. Morgunblaðið/Golli Málverk Ara Svavarssonar: Hún ætlar að breyta heiminum. Textar í litaflæmi MYNDLIST Málverk Sýningarsalurinn er opinn fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. Sýningunni lýk- ur 23. júní. HÚS MÁLARANNA ARI SVAVARSSON Jón B.K. Ransu ÞEGAR Margrét O. Leópoldsdótt- ir ákvað að búa til heimagallerí í gluggunum á húsi sínu á horni Vatns- stígs og Veghúsastígs var það meðal annars til að mæta þeim barlómi sem hún taldi sig verða of oft vara við hjá myndlistarmönnum og beindist gegn skilningsleysi almennings. Til að sanna að fólk væri ekki eins frábitið óvenjulegri listsköpun og bölmóður- inn vildi vera láta bauð hún kollegum sínum að nýta gluggarými heimilis síns undir heitinu Heima er best. Gluggarnir vísa út að báðum stígum gangandi vegfarendum til boða. Rósa Sigrún Jónsdóttir hefur á þeim stutta tíma sem liðinn er frá því hún útskrifaðist fengist við stað- bundna listsköpun, eða þá tegund tækifærislistar sem sköpuð er fyrir ákveðnar aðstæður. Gluggaverk Rósu í Heima er best heita Sögur og byggjast á frásögnum af hvers kyns toga, mest þó fyndnum og fáránleg- um, sem snerta húsið við Vatnsstíg níu og íbúa þess forðum daga. Sumt er í hreinum kjaftasögustíl en annars staðar teygir sögusviðið sig út og suður, upp í sveit, með tilheyrandi lýsingum á húsbúnaði, húsdýrum og öðrum ferfætlingum. Allur sá einka- fróðleikur sem gjarnan er geymdur bak við gluggatjöldin og varðveittur sem helgasta leyndarmál er allt í einu kominn á rúðurnar, vendilega skrif- aður í prentstöfum með þykkum merkipenna svo allir geti séð og lesið. Þannig snýr Rósa Sigrún innhverf- unni út og lokkar okkur gangandi vegfarendur til að staldra við og lesa það sem stendur á rúðunum. Um leið og lesandinn stendur fram- an við húsið og les veit hann ekki nema einhver standi á gægjum bak- við gluggatjöldin og fylgist með hon- um. Njósnir hafa alltaf tilhneigingu til að laða fram gagnnjósnir. Áður fyrr lágu allir á línunni og fylgdust með einkasamtölum fólks í símkerfi sem bauð upp á hlerun. En sá sem hleraði gat ekki komið í veg fyrir að einhver fylgdist með hans eigin samtali. Þannig endurspeglar þetta einfalda verk aldagamlan tvískinnung, þar sem allir kepptust við að fylgjast með náunganum um leið og þeir reyndu að halda sem mestu leyndu fyrir honum. Gluggasögur Morgunblaðið/Árni Sæberg Verk Rósu Sigrúnar í gluggum, Heima er best, við Vatnsstíg. MYNDLIST Heima er best, Vatnsstíg 9 Sýningin stendur til næstu mánaðamóta. TEXTAVERK RÓSA SIGRÚN JÓNSDÓTTIR Halldór Björn Runólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.