Morgunblaðið - 23.06.2002, Síða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 31
F R Ó N
SÍÐUMÚLA 2
108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1313
fron@fron.is
www.fron.is
Finnbogi Kristjánsson,
lögg. fasts.
finnbogi@fron.is,
s. 897 1819
Olafía Zoëga,
þjónustufulltrúi,
ritari@fron.is,
s. 892 8579
Magnea Jenný Guðmundar,
skrifstofustjóri,
madda@fron.is
s. 898 1819
Valtýr Björn Valtýsson ,
sölumaður,
valtyr@fron.is,
s. 690-0700
Sigrún Stella Einarsdóttir,
sölumaður,
stella@fron.is,
s. 824 0610
Valdimar Óli Þorsteinsson,
sölumaður,
valdimar@fron.is,
s. 899 6439
fron.is
Fasteignasalan Frón er með öfluga starfskrafta í þína þjónustu.
Komdu í glæsilegt húsnæði okkar að Síðumúla 2,
og þiggðu ráðgjöf í hæsta gæðaflokki.
F R O N FA S T E I G N I R Í F Y R I R R Ú M I
FÉLAG íslenskra myndlistarkenn-
ara gengst fyrir alþjóðlegri nám-
stefnu að Skógum undir Eyjafjöllum
dagana 23.–29. júní næstkomandi.
Viðfangsefni námstefnunnar er ljós-
myndun í myndlist og myndlistar-
kennslu og nefnist hún „Tungumál
ljósmyndarinnar – ljósmyndin sem
listform“.
Þátttakendur eru norrænir mynd-
listarkennarar og aðrir sem starfa að
myndlistarfræðslu fyrir börn og ung-
linga. Auk Íslendinga koma þátttak-
endur frá Finnlandi, Danmörku, Sví-
þjóð, Noregi og Grænlandi.
Dagskrá námstefnunnar skiptist í
fyrirlestra; verklegar æfingar um
tungumál ljósmyndarinnar; fræðileg-
ar rannsóknir og vettvangsferðir.
Aðalskipuleggjandi námstefnunn-
ar er Ólafur Gíslason, listgagnrýn-
andi og kennari, en helstu fyrirlesar-
ar verða Liborio Termine, prófessor í
kvikmyndasögu og ljósmyndafræð-
um við háskólann í Torino á Ítalíu, og
John Hilliard, einn kunnasti mynd-
listamaður Breta, sem notar ljós-
myndina sem listmiðil. Þá mun Sig-
urður Guðmundsson flytja fyrirlestur
um eigin myndlist og þátt ljósmynd-
unar í henni. Einar Garibaldi Eiríks-
son, prófessor við Listaháskólann,
tekur þátt í kennslu og skipulagningu
verklegra æfinga á námstefnunni.
Námstefnan er haldin í samvinnu
við samtök myndlistarkennara á
Norðurlöndum og styrkt af menning-
aráætlun Evrópusambandsins – Cult-
ure 2000 og Norrænu ráðherranefnd-
inni.
Námstefna
um ljós-
myndun
UNNUR Guðjónsdóttir heldur á
þriðjudag litskyggnusýningu á
myndum frá Kína. Myndirnar hefur
hún tekið sjálf á
ferðalögum sín-
um um landið
gegnum árin.
Auk þess að
sýna skyggnurn-
ar mun Unnur,
sem er fyrrver-
andi atvinnudans-
ari, sýna kín-
verskan
sverðdans.
Sýning þessi er haldin af tilefni 10
ára afmælis Kínaklúbbs Unnar og
fer hún fram í Tjarnarsal Ráðhúss-
ins milli klukkan 18.00 og 19.00.
Sýningin er öllum opin og aðgang-
ur ókeypis.
Dans á
kínverska vísu
Unnur
Guðjónsdóttir
TÓNLISTARHÁTÍÐIN í Skálholti
verður haldin í tuttugasta og átt-
unda sinn í ár. Boðið er upp á tón-
leika fimm helgar í júní, júlí og
ágúst og hefst hátíðin laugardaginn
29. júní en lýkur 5. ágúst.
Að vanda er lögð áhersla á flutn-
ing íslenskrar kirkjutónlistar, svo og
barokktónlistar. Íslensk tónskáld
hafa verið studd til nýsköpunar
kirkjulegra verka sem byggja oft á
tíðum á fornu tónefni eða söngvum
sem voru á vörum þjóðarinnar um
aldir, en alls hafa á annað hundrað
tónverka verið frumflutt á Sumar-
tónleikunum.
Tvísöngur á Íslandi
og staðartónskáld
Fyrsta helgin, 29. og 30. júní, er
tileinkuð sönghætti fyrri alda á Ís-
landi, einkum tvísöng. Hefst hún á
fyrirlestri Árna Heimis Ingólfsson-
ar tónlistarfræðings um uppruna og
þróun tvísöngs á Íslandi. Árni hefur
m.a. unnið að fræðilegri útgáfu á tví-
radda tónlist úr íslenskum handrit-
um. Verður notast við þessar rann-
sóknir hans á tónleikunum.
Flytjendur verða sönghópurinn
Voces Thules sem fær einnig til liðs
við sig Arngeir Heiðar Hauksson
sem leikur á symfón og miðalda-
gígju.
Lengi hefur tíðkast að staðartón-
skáld semji tónverk til frumflutn-
ings á Sumartónleikum og eru stað-
artónskáld sumarsins Þorkell
Sigurbjörnsson og Þórður Magnús-
son. Það er sönghópurinn Hljóm-
eyki undir stjórn Bernharðs Wilk-
inson sem sér um flutning verka
eftir Þorkel Sigurbjörnsson aðra
tónleikahelgina 6. og 7. júlí. Flutt
verða verkin Koma og Missa Brevis
og frumflutt verður nýtt verk, byggt
á 145. Davíðssálmi, „Ég vil vegsama
þig, ó, Guð.“
Auk þess mun danski blokkflau-
tukvartettinn Sirena flytja kammer-
og einleiksverk eftir íslenska og er-
lenda höfunda. M.a. verður frum-
flutt verk eftir Elínu Gunnlaugs-
dóttur, „Fyrir líknarkraptinn þinn“.
Þriðju tónleikahelgina 13. og 14.
júlí er staðartónskáld Þórður Magn-
ússon. M.a. verður frumflutt verk
hans, „Ó Jesú eðla blómi“, sem
byggt er á gömlu sálmahandriti frá
1735. Flytjendur eru strengjakvar-
tettin Eþos og Marta Halldórsdótt-
ir, sópran. Þessa sömu helgi verða
einnig flutt verk eftir Georg Philipp
Telemann af Mörtu Halldórsdóttur
sópran, Camillu Söderberg blokk-
flautu, Hildigunni Halldórsdóttur
barokkfiðlu, Guðrúnu Óskarsdóttur
sembal og Ólöfu Sesselju Óskars-
dóttir selló.
Ung tónskáld og Bach
Fjórðu tónleikahelgina 27. og 28.
júlí verða flutt frumsamin og útsett
verk er byggja á söngarfinum eftir
tónskáldin Elínu Gunnlaugsdóttur,
Steingrím Rohloff, Misti Þorkels-
dóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur og
Jón Guðmundsson. Flytjendur eru
sönghópurinn Gríma og hljóðfæra-
leikararnir Sigurlaug Eðvaldsdóttir
fiðla, Ólöf Þorvarðsdóttir fiðla, Guð-
rún Þórarinsdóttir lágfiðla, Hrafn-
kell Orri Egilsson selló, Guðmundur
Pétursson gítar, Jón Guðmundsson
gítar, Helga Ingólfsdóttir semball
og Douglas A. Brotchie orgel undir
stjórn Gunnsteins Ólafssonar.
Johann Sebastian Bach verður
einnig í kastljósinu en hingað til
lands koma frá Lundúnum Carole
Cerasi semballeikari og James
Johnstone orgelleikari.
Fimmtu og síðustu tónleikahelg-
ina, 3., 4. og 5. ágúst, flytur Bach-
sveitin í Skálholti verk eftir J.S.
Bach og ensk kammerverk frá 17.
öld. Forkólfur Bach-sveitarinnar sl.
níu sumur hefur verið hollenski
fiðluleikarinn Jaap Schröder, sem
síðastliðið sumar var sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf sín.
Menningar- og sögutengd
helgardagskrá
Auk þess munu Gunnhildur Ein-
arsdóttir barokkhörpuleikari og hol-
lendingurinn Poul Leenhouts sem
leikur á endurreisnarblokkflautur
flytja fantasíur, kansónur og dansa
eftir meistara 16. og 17. aldar.
Skálholtsskóli, Sumartónleikar í
Skálholtskirkju, og Fornleifastofn-
un Íslands bjóða upp á menningar-
og sögutengda helgardagskrá tón-
leikahelgarnar í júní og júlí. Um er
að ræða dagskrá með fyrirlestri,
tónleikum, messu, gistingu og mat,
þar sem boðið verður uppá kaffiborð
Valgerðar biskupsfrúar og miðalda-
hlaðborð að hætti Þorláks biskups
og viðeigandi dagskrá undir borð-
um. Einnig verður boðið upp á stað-
arskoðun og leiðsögn um uppgraft-
arsvæðið í Skálholti.
Tónleikarnir verða haldnir í Skál-
holtskirkju kl. 15 og 17 á laugardög-
um og kl. 15 á sunnudögum. Sum-
artónleikarnir styrkja helgihald í
Skálholtskirkju með þátttöku tón-
listarmanna í messum sem verða á
sunnudögum kl. 17 en tónlistarflutn-
ingur hefst kl. 16:40 fyrir messu.
Fyrirlestrar tengdir tónleikahaldinu
og um uppgröftinn í Skálholti eru á
laugardögum kl 14.00.
Aðgangur að öllum tónleikum og
fyrirlestrum er ókeypis.
Sumartónleikar í Skálholti haldnir í tuttugasta og áttunda sinn
Áhersla sem fyrr á ís-
lenska tónlist og barokk
Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup, Barbara Guðnadóttir verkefnisstjóri hjá Fornleifastofnun Íslands, sr.
Bernharður Guðmundsson, rektor Skálholtsskóla, og Rúnar Óskarsson, framkvæmdastjóri Sumartónleikanna.
♦ ♦ ♦