Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 35
Elsku amma. Núna ert þú komin
á betri stað. Stað þar sem þér líður
vel.
Staðinn þar sem afi, Óli frændi
og Inga bíða eftir þér. Þar verða án
efa fagnaðarfundir.
Við erum víst ekki eilíf og ferða-
laginu verður að ljúka einhverntím-
ann. Ég vil þakka þér fyrir þau ár
sem ég fékk að þekkja þig og fyrir
það, sem þú kenndir mér.
Því mannsins hjarta er eins og umsetin
borg,
sem ár og dagar í vöku og svefni herja.
Og jörðin á sér enga þá gleði og sorg,
sem ást og minningum tekst til lengdar
að verja.
En hversu langt sem lífið haslar sér völl,
í lokasókninni miklu þess viðnám bilar.
Og dauðinn mun finna djásn okkar heil
og öll
þann dag, sem lífið herfangi sínu skilar.
(Tómas Guðmundsson.)
Guð geymi þig.
Gunnhildur Árnadóttir.
Það var bjartur morgunn nú í
júní þegar Ásta kvaddi þetta líf.
Heilsu hennar hafði hrakað síðustu
misseri og þetta lokastríð stóð
stutt. Það var ekki í hennar anda
að gefast upp en nú var nóg komið,
hún var sátt.
Ég kynntist Ástu fyrir hartnær
20 árum þegar verðandi eiginkona
mín, sonardóttir Ástu, kynnti mig
fyrir henni. Hún hafði þá hætt
störfum, var sest í helgan stein og
bjó í lítilli íbúð sem bar vitni um
hógværð og nægjusemi. Strit og
átök fyrri ára höfðu sett mark sitt
á hana en stutt var í glettni og
bros. Hún las dagblöðin spjalda á
milli, fylgdist með atburðum líðandi
stundar og hafði skoðanir á öllu
mögulegu og lá ekki á þeim. Hún
var tónlistarunnandi, hafði yndi af
blómum og tók þátt í félagslífi aldr-
aðra á meðan heilsan leyfði.
Ásta missti foreldra sína á ung-
lingsaldri og sá sjálfri sér farborða
eftir það eins og títt var um fólk af
hennar kynslóð. Hún vann ýmis
störf vítt um landið, þó aðallega í
Reykjavík, og um tíma starfaði hún
í Danmörku við saumaskap.
Hún giftist Gunnari Stefánssyni
sem lést í hörmulegu flugslysi árið
1951.
Eftir stóð hún ekkja og móðir
tveggja ungra barna þeirra Gunn-
ars.
Það er erfitt að gera sér í hug-
arlund, nú á dögum allsnægta, að-
stæður fjölskyldunnar á árunum
sem í hönd fóru, en með seiglunni
sem henni var í blóð borin og með
aðstoð venslafólks tókst henni að
koma börnum sínum til manns.
Ég minnist Ástu á svölum íbúð-
arinnar við Langholtsveginn, bað-
andi sig í sólskininu á dögum eins
og þessum nú í byrjun júnímán-
aðar.
Við kvöddum hana með blómum
og tónlist.
Guð blessi minningu Ástu Árna-
dóttur.
Rúnar.
!" # $ %
!
"
# $% &'&
& '
()*
+
!
" #$#
% &'#()
!
"#
# $
%
&'# (
$ ) *$
# +"#",#
$
)%
- $
*
)
.
/
0
% 1*22 '"" +,334#
#*
#!+,,'
")
#!- ! . *#+)# ( //
01 !
'2(, ( // ),01
"31 #* ! %"#( ( //
4,5 ! 6#/(,
#!+,/""#
#1 *#/ !
#(+
#!+,/""#7
! "
# $$ " %
$ & $" "
' '()
!
"#$
$
!"#$%%&
!"#$' %%&
' %() '
* % %%& +' ', () '
' %
# %%& -()' .)! %() '
/# - $' %%& 0%(% 12 /#$() '
' %%& -" '(% - $'%() '
3' 3 ' & 3' 3' 3 ' 2
!
!"#
## $$
%#!!"#
Elsku besti Elli
frændi. Nú hefurðu
kvatt okkur í bili og
viljum við þakka þér
fyrir allar ógleyman-
legu stundirnar sem þú gafst okk-
ur. Við munum geyma þær minn-
ingar alla tíð.
Þú varst okkur kærari en þú
nokkurn tíma vissir, Elli minn.
Slíkri góðmennsku og kærleik hafa
fáir kynnst sem við fengum að
kynnast hjá þér.
Aldrei máttir þú aumt sjá hjá
nokkrum manni og gafst þig allan í
að hjálpa þeim sem í kringum þig
voru. Bros þitt og hlátur lýsti best
hvernig maður þú varst. Um-
hyggjusamur og hjálpfús varst þú
með eindæmum og alltaf varst þú
til staðar þegar eitthvað bjátaði á
hjá okkur bræðrum. Við minnumst
allra góðu gjafanna sem þú færðir
okkur alltaf, hvort heldur sem það
voru epli og appelsínur í kassavís á
jólunum, stórar og fræðandi bækur
eða risastór páskaegg. Alltaf kann-
aðir þú vel hjá mömmu hvað hver
vildi og skiptir alltaf jafnt á millri
allra, því enginn mátti verða útund-
an eða fá meira en hinn.
Þú varst mikill göngugarpur og
þér þótti vænt um landið þitt. Þú
kenndir okkur líka að þykja vænt
GUÐMUNDUR ELÍS
GUÐMUNDSSON
✝ Guðmundur ElísGuðmundsson
fæddist í Hafnarfirði
27. janúar 1942.
Hann lést á líknar-
deild Landspítalans í
Kópavogi 11. júní
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði 18. júní.
um landið okkar og
tókst okkur oft með í
hina ýmsu göngutúra,
t.d. upp á Esjuna, en
þar voru farnar fleiri
en ein og fleiri en tvær
gönguferðir með þér.
Þá hringdir þú
kannski kvöldið áður
og spurðir hvort mað-
ur vildi fara í fjallatúr,
og passaðir svo vel
upp á að maður væri
með hlý föt, góða skó
og nesti. Svo varstu
náttúrulega alltaf með
aukaeldsneyti ef vant-
aði kraft, gamla góða síríussúkkul-
aðið.
Alltaf var gaman að heimsækja
þig, og oftar en ekki var sögð saga,
spilað á spil eða platan með Kaffi-
brúsaköllunum eða Úllen dúllen
doff sett á fóninn, því gamansamur
varst þú og þótti þér þetta alveg
jafngaman og okkur. Þú barst alltaf
fyrst hag annarra fyrir brjósti og
kappkostaðir að vera vinur vina
þinna. Þess munu allir þeir sem þig
þekktu alltaf minnast.
Nú ert þú genginn, elsku vinur,
frá okkur hér, en góðmennska þín
mun lifa áfram þar sem þú ert og
hjálpa öllum þar eins og hún hjálp-
aði öllum hér. Þú ert í himnaríki og
við vitum að þú hugsar hlýtt til okk-
ar, eins og við hugsum til þín.
Við söknum þín sárt, Elli frændi,
og þú munt lifa í minningu okkar
alla tíð.
Þú varst besti frændi sem nokkur
getur hugsað sér.
Bræðurnir
Hermann, Guðmundur
Jón, Ísidór Hinrik og
Elmar Daði.
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
Legsteinar
Vönduð íslensk framleiðsla
Fáið sendan myndalista
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
MOSAIK
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít