Morgunblaðið - 23.06.2002, Síða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 45
ARKARHOLT 11 - Mosfellsbæ
Fallegt 140 fm einbýlishús
með 46 fm bílskúr og glæsi-
legri 1.000 fm lóð í botngötu. 4
svefnherbergi, stór stofa, gott
baðherb., eldhús og þvotta-
hús. Ágúst og Jóhanna sýna
íbúðina í dag milli kl. 13 og
16, sími 566 8869/693 9797.
Opið hús í dag frá kl. 13-16
Glæsilegt 108 fm raðhús með
góðum garði. 3 svefnherb.,
baðherb. með kari, falleg og
björt stofa, opið eldhús og
sjónvarpshol á millipalli.
Ólöf og Guðmundur taka vel
á móti ykkur í dag á milli kl.
13 og 16, sími 566 8338/821
3403. Verð kr. 14,9 m.
KRÓKABYGGÐ 12 - Mosfellsbæ
Einar Páll Kjærnested,
löggiltur fasteignasali.
Fífulind 2, Kóp. – Íbúð 0401
Falleg 130 fm 3-4ra herbergja íbúð
á tveimur hæðum. Vandaðar inn-
réttingar og gólfefni, stórar stofur.
Vilhelmína Smáradóttir tekur á
móti gestum frá kl. 14-16. V. 14,9
m. 4055.
Reyrengi 10, Rvík – Íbúð 0102
Falleg og vel skipulögð 4ra her-
bergja íbúð á jarðhæð. Sérinn-
gangur og sérgarður. Vel staðsett,
gott útsýni, skammt frá verslun og
þjónustu. Húsið nýmálað og við-
gert að utan. Guðbjörg Helga-
dóttir tekur á móti gestum frá kl.
14-16. V. 12,9 m. 5781.
OPIÐ HÚS Í DAG
jöreign ehf
Sími 533 4040
www.kjoreign.is
Ármúla 21, Reykjavík
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali,
HAGAMELUR 27
Mjög rúmgóð fimm herbergja íbúð
á frábærum stað í vesturbænum á
3. hæð í góðu húsi. Nýtt þak, nýtt
rafmagn og nýr marmaramúr utan
á húsinu. Íbúðin er björt og vel
skipulögð með tvær samliggjandi
stofur og tvö svefnherbergi.
Hverfið er gott, stutt í skóla og
þjónustu. Flísar og parket á gólf-
um. Verð 14,6 millj. Nr. 2108
Björt og rúmgóð 78 fm íbúð á 10. hæð í
góðu lyftuhúsi. Gott herbergi, stór stofa,
svalirnar stórar og góðar. Gríðarlegt útsýni
sem gerist ekki betra. Íbúðin er laus til af-
hendingar strax. Verð 11,9 millj.
Díana tekur á móti þér og þínum.
Bjalla merkt 10.04.
Opið hús í dag milli kl. 13 og 15
„Penthouse“íbúð – Veghús 31, Grafarvogi
Um er að ræða snyrtilegt 3ja herbergja
sumarhús, þ.e. 2 svefnherb auk ca. 20 fm
svefnlofts. Húsið um 42 fm að gólffleti.
Sumarbústaðurinn stendur við Útey 5b við
Laugarvatn. ca 1 mín akstur frá Laugar-
vatni). Bústaðurinn hefur mjög gott útsýni.
Ef þú hefur áhuga á góðum bústað kíktu
þá við, því þessi er vel þess virði. Ca 180 fm verönd með skjólvegg.
Valdimar og Sigga taka vel á móti þér og þínum milli kl. 11:00 og 17:00
í dag. S. 869 8232 og 553 3218.
Verð TILBOÐ - TILBOÐ
Opið hús í dag - Útey 5B Laugarvatni
Skúlagata 17
Sími 595 9000
Fax 595 9001
holl@holl.is - www.holl.is
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
VIÐARRIMI 32 - EINBÝLI
Vandað og vel byggt 164 fm timb-
urhús á einni hæð ásamt inn-
byggðum 34 fm bílskúr. Húsið er
vel staðsett við lokaða götu í
rólegu og rótgrónu hverfi. Fjögur
svefnherbergi. Góður garður.
Stutt er í alla þjónustu. V. 20,9 m.
EYDÍS OG BJÖRN SÝNA HÚSIÐ Í DAG MILLI KL. 14 OG 17.
OPIN HÚS FRÁ KL. 14-17
LANGHOLTSVEGUR 176 - M. BÍLSK.
Rúmgóð og vel skipulögð ca 100
fm rishæð ásamt 28 fm bílskúr í
rótgrónu og rólegu umhverfi.
Stórir kvistir og svalir. Góðar inn-
réttingar. Parket og dúkar á gólf-
um. Þrjú rúmgóð svefnherbergi.
Verð 14,4 millj.
KRISTRÚN OG SÆMUNDUR SÝNA ÍBÚÐINA Í DAG
MILLI KL. 14 OG 17.
WWW.EIGNAVAL.IS
OPIÐ Í DAG MILLI KL. 12 OG 14
SOGAVEGUR 127 - OPIÐ HÚS Í DAG
Virkilega skemmtilegt 145 fm einbýlis-
hús. Parket og flísar. Gott skipulag.
Eign sem býður uppá mikla möguleika.
4-5 svefnherb. Fallegur garður.
Þórdís og Þórður taka vel á móti
ykkur á milli kl. 14 og 17 í dag.
Áhv. 4,8 m V. 15,5 m. (3381)
BERGSTAÐASTRÆTI 12 - OPIÐ HÚS Í DAG
Mjög góð 4ra herb. 102 fm íbúð á jarð-
hæð í Þingholtunum. Flísar og nýlegur
linoleumdúkur á gólfum. Íbúð sem býð-
ur uppá mikla möguleika. Íbúð sem
þarfnast smá lagfæringa.
Bjarni og Lára Þyrí taka vel á
móti ykkur á milli kl. 16 og 18 í
dag. V. 10,9 m. (2925)
UGLUHÓLAR 8 - OPIÐ HÚS Í DAG
Mjög góð 3ja herb. 65 fm íbúð á jarð-
hæð. 2 góð herb. Stór stofa, útgengt í
garð. Parket á gólfli. Mikið endurnýjuð.
Íbúðin er laus strax.
Sandra tekur vel á móti ykkur
milli kl. 14 og 16 í dag. Áhv. ca 6
m. V. 8,9 m. (3374)
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá Skot-
veiðifélags Íslands.
„Tólfta júní barst fréttatilkynning
frá Náttúrufræðistofnun Íslands um
ástand rjúpnastofnsins árið 2002.
Eins og búast mátti við er rjúpna-
stofninn í algjöru lágmarki, þessar
upplýsingar komu engum á óvart.
Líkur eru þó á að stofninn fari að
rétta úr sér á næsta ári eða þarnæsta
ári. Líkur virðast á að einhver upp-
sveifla sé að hefjast á Melrakkasléttu
og í Þistilfirði á NA-landi. Það skal þó
tekið fram að sú aðferð að telja karra
á óðulum sínum er alls ekki 100%
örugg aðferð til að meta stofnstærð
rjúpunnar. Þess vegna eru þessar
upplýsingar ónákvæmar, þær eru þó
þær bestu sem við höfum völ á í dag.
Það er í eðli rjúpnastofnsins að sveifl-
ast og munur á stofnstærð milli há-
marks- og lágmarksára hefur verið
þrefaldur til tífaldur. Þetta er svipað
og gerist í öðrum löndum, t.d. í Nor-
egi, en þar er styttra á milli sveiflna
eða um fjögur ár.
Athyglisvert er að þessi fækkun
nær einnig yfir þau svæði þar sem
skotveiðar eru bannaðar, eins og t.d. í
friðaða hólfinu í nágrenni Reykjavík-
ur. Enn er ekki vitað hvaða áhrif skot-
veiðar hafa á rjúpnastofninn en þær
eru að öllum líkindum afgerandi.
Vitaskuld er veiðiálagið of mikið í
næsta nágrenni þéttbýlis, líkt og í
Reykjavík. Hins vegar er veiðiálagið
lítið sem ekkert á afskekktum stöðum
á landinu. Auk þess hefur veðurfar
mikið að segja hvað varðar veiðar á
rjúpu. Skotveiðifélag Íslands telur að
ekki sé að svo komnu máli nein
ástæða til þess að grípa til neinna að-
gerða til verndar rjúpunni.
Það er hins vegar staðreynd að
rjúpnastofninn er hvað viðkvæmastur
þegar hann er í lágmarki. Þess vegna
er nauðsynlegt að veiðimenn veiði
eins lítið og unnt er, ef svo má að orði
komast. Nauðsynlegt er að draga sem
mest úr atvinnuveiðum því stað-
reyndin er sú að 10% veiðimanna
veiða 50% allra rjúpna. Rjúpnaveiðar
eiga að vera tómstundagaman en ekki
atvinna.“
Vill draga
sem mest
úr atvinnu-
veiðum
Telur upplýsingar
um rjúpnastofninn
ónákvæmar
JUNIOR Chamber Ísland átti kepp-
anda í ræðumennsku á Evrópuþingi
Junior Chamber International sem
haldið var í Istanbúl á dögunum. Ís-
lenski keppandinn, Sigurrós Frið-
riksdóttir, bar sigur úr býtum eftir
harða keppni, sem fram fór á ensku,
við bestu ræðumenn Evrópu. Um-
ræðuefnið var slagorð heimshreyf-
ingarinnar, „Frumkvöðlar í verki“.
Sigurrós mun keppa fyrir hönd Evr-
ópu á Heimsþingi Junior Chamber í
Las Vegas í Nóvember næstkom-
andi. Sigurrós er sjötti keppandinn
frá Íslandi sem vinnur Evrópumeist-
aratitilinn á sjö árum. Sigurganga
Íslendinga á Evrópuþingunum virð-
ist engan enda ætla að taka og höfðu
menn orð á því eftir sigur Íslands að
þessu sinni að nú mætti merkja verð-
launagripina fyrirfram. Á síðastliðnu
ári varð íslenski Evrópumeistarinn,
Ingimundur K. Guðmundsson, einn-
ig heimsmeistari. Sigurrós Friðriks-
dóttir er jarðfræðingur að mennt og
starfar hjá Náttúruvernd ríkisins.
Hún er félagi í Junior Chamber Vík
og hefur verið starfandi í JC frá
árinu 1997, samkvæmt því sem fram
kemur í fréttatilkynningu.
Fulltrúi Íslands vann ræðukeppni JC