Morgunblaðið - 23.06.2002, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 51
DAGBÓK
Opnun lögmannsstofu
Við höfum opnað lögmannsstofu á þriðju hæð
í Kirkjuhvoli, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík.
Veitum alla almenna lögmannsþjónustu.
HÞ Lögmenn
Símar: 511 1812, 894 1813 og 892 1813.
Netfang: logafl@logafl.is
Þröstur Þórsson, héraðsdómslögmaður.
Hanna Sigurðardóttir, lögfræðingur.
HÞ
Niðjamót í Þykkvabæ
Afkomendur Guðrúnar Magnúsdóttur og Gísla Gestssonar
frá Suður - Nýja bæ halda niðjamót
í nýja samkomuhúsinu í Þykkvabæ 29. júni nk.
Nánari upplýsingar veita
Guðrún Gyða Sveinsdóttir, s. 849 7077,
Kristín Auðunsdóttir, s. 567 1239 og
Sigríður Ágústsdóttir, s. 487 5630.
HLUTLAUS trompútspil
koma helst til greina þegar
mótherjarnir hafa skriðið í
geim við knöpp kjör. En ef
þeir virðast eiga nægan al-
mennan styrk er viturlegra að
spila hvasst út til sóknar. Svo
hljóðar ein af ábendingum
Lawrence og hann dregur
upp þetta dæmi:
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ ÁKG4
♥ ÁG
♦ D10873
♣96
Vestur Austur
♠ 87 ♠ 63
♥ D753 ♥ K964
♦ 952 ♦ KG4
♣Á1074 ♣D832
Suður
♠ D10952
♥ 1082
♦ Á6
♣KG5
Vestur Norður Austur Suður
– 1 tígull Pass 1 spaði
Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar
Pass 4 spaðar Allir pass
Með fjórum tíglum er suð-
ur að gæla við slemmu og það
segir vörninni þá sögu að fjór-
ir spaðar séu sterkt spil. Eftir
sagnir er líka vitað að norður
á tígullit, sem gæti verið
slagauppspretta fyrir sagn-
hafa, svo hér duga engin vett-
lingatök eins og þau að
trompa út. Nei – það verður
að taka á því og spila út
hjarta!
Með trompi út væri létt
verk fyrir sagnhafa að fríspila
tígulinn og henda niður tveim-
ur hjörtum heima. En eftir
hjartaútspil fær vörnin slag-
inn sinn þar og suður þarf að
hitta í laufið til að fá tíu slagi.
Við höldum áfram með út-
spilin eftir helgina, en beinum
nú sjónum okkar að útspilsdo-
blum af ýmsum toga.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur skýra stefnu og ert
ákveðin/n. Sjálfstraust þitt
byggist á sterkri trú á sjálf-
an þig og hefur mikla þörf
fyrir að takast á við nýjar
áskoranir.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Verulega spennandi ein-
staklingur gæti rætt við
þig í dag. Áhrif hans munu
hafa djúp áhrif á þig þrátt
fyrir að nærvera hans end-
ist ekki nema í skamma
stund.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ákveðin tækifæri eru fyrir
hendi. Þú skalt ekki láta
þau ganga þér úr greipum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú vilt öðlast frelsi og
brjótast undan oki annarra
á vinnustað þínum í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Óþekktur aðdáandi gæti
sent þér blóm, kort eða
gjafir. Leitaðu ráða hjá
vini um hvað gera skuli í
framhaldi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Notaðu daginn til þess að
eiga samskipti við þína
nánustu vini.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú vilt fara þínar eigin
leiðir í starfi þínu í dag.
Ekki taka áhættu þó að þú
viljir vera sjálfstæður og
teljir að þú þarfnist ekki
leiðsagnar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur mikla þörf fyrir
að bregða út af vananum
og komast í annað um-
hverfi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er nauðsynlegt að þú
getir greint á milli stað-
reyndar og staðleysu og
sért snöggur að því. Ann-
ars nærðu litlum eða eng-
um árangri í starfi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Náinn vinur eða félagi
kemur þér á óvart í dag.
Þú mátt búast við því að
þessi hegðun muni koma
þér á óvart.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú verður að sýna þolin-
mæði þegar nota þarf
tækni á vinnustað þínum.
Róm var ekki byggð á ein-
um degi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Reyndu að skemmta þér í
dag. Þú skalt bjóða nokkr-
um vinum þínum í heim-
sókn og eyða góðri stund
saman yfir mat og drykk.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er skynsamlegt að
staldra við öðru hverju og
velta hlutunum fyrir sér
því oft koma þá upp atriði
sem þér hafa yfirsést í erli
dagsins.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
KVÖLD
Á grunnsævi kvölds
flæðir gullinn straumur
um þéttriðin net
nakinna trjánna
og fyllir þau ljóskvikum fiskum.
Bráðum kemur rökkrið
undir brúnum seglum
og vitjar um aflann.
Snorri Hjartarson
Árnað heilla
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6.
Be3 Rg4 7. Bb5 Rxe3 8. fxe3
Bd7 9. O-O e6 10. Bxc6 bxc6
11. e5 Be7 12. Dh5 O-O 13.
exd6 Bxd6 14. Had1 Dc7 15.
Re4 Be7 16. Rb3 Be8 17.
Rec5 Bd6 18. Dh4 De7 19.
Dc4 Hb8 20. Hf3 Hb5 21.
Rd3 Hh5 22. Rf4 Hh6 23. h3
e5 24. Re2 e4 25. Hf2 De5 26.
Kf1 Bd7 27. Rc3 Dh2 28.
Rxe4 Be6 29. Dxc6 Be5 30.
Dc5 Hg6 31. Rd4 Hxg2 32.
Rf3 Dxh3 33. Rxe5 Hg4+
34. Ke2 Hxe4
Staðan kom
upp á Sigeman
mótinu sem lauk
fyrir skömmu í
Málmey í Sví-
þjóð. Emanuel
Berg (2514) hafði
hvítt gegn Hann-
esi Hlífari Stef-
ánssyni (2598).
35. Kd2?? Eins
og Sigurbjörn
Björnsson benti
á gat hvítur
tryggt sér sigur-
inn með 35.
Dxf8+! Kxf8 36.
Hd8+ Ke7 37.
Rc6#. Í framhaldinu stend-
ur svartur til vinnings.
35...Hc8 36. Kc1 Dxe3+ 37.
Dxe3 Hxe3 38. Rc6 Bg4 39.
Rxa7 Ha8 40. Hg1 h5 41.
Rb5 Hxa2 42. Rc3 Hxc3 43.
Hxg4 hxg4 44. bxc3 Ha5 45.
Kd2 f5 46. c4 g5 47. Hg2 Kf7
48. Kd3 Ke6 49. Kd4 He5 50.
c5 He4+ 51. Kd3 Kd5 52.
Hf2 f4 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
SÍÐAST var minnst á
samtengingarnar því að, af
því að, svo að, sem dæmi
um þá tilhneigingu í mæltu
máli að sleppa úr þeim
smáorðinu að og segja ein-
ungis því, af því, svo o. s.
frv. Voru sýnd dæmi um
þetta til skýringar. Ef til
vill hefur þessi þróun orðið
vegna þess, að mönnum
hafi þótt þjálla í tali að
sleppa þessu að-i. Má það
svo sem til sanns vegar
færa, þegar grannt er
skoðað. En svo er annað
fyrirbæri, sem ber veru-
lega á í tali og er alveg
gagnstætt, það er að setja
að með samtengingum,
þar sem það átti ekki
heima í upphafi. Þetta sést
stundum á prenti, en hitt
er miklu algengara, að
þessu bregði fyrir í tali
fólks og er ótrúlega al-
gengt. Sem dæmi má taka
málsgrein sem þessa: Ef
að þú getur ekki komið á
fundinn á morgun, getum
við frestað honum um
nokkra daga. Þeir eru
áreiðanlega margir, sem
kannast við þetta orðalag.
Hér er þarflaust að bæta
þessu smáorði við skilyrð-
istenginguna ef og er sízt
til málsbóta. Hér fer betur
að segja sem svo: Ef þú
getur ekki komið á fund-
inn o.s.frv. Eins bregður
fyrir að menn bæti þessu
smáorði við viðurkenning-
artenginguna þótt og segi.
sem svo: Ekkert geri til,
þótt að þetta dragist til
morguns. Hér á að segja:
þótt þetta dragist til morg-
uns. Vafalítið er hér um að
ræða áhrif frá annarri við-
urkenningartengingu: þó
að, þar sem að á einmitt
heima, þótt margir sleppi
því og segi einungis þó
þetta dragist til morguns.
Þá er einnig þekkt og eng-
an veginn nýlegt fyrir-
bæri, að menn bæti að við
tilvísunarfornafnið sem.
Mætti þá hugsa sér máls-
grein, sem hljóðar svo: Ef
að þú getur ekki gert þetta
fyrir mig, get ég örugg-
lega fundið einhvern ann-
an, sem að vildi taka þetta
að sér. Hér á smáorðið að
engan veginn heima og er
raunar til lýta í málinu. -
J.A.J.
ORÐABÓKIN
Ef – ef að
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 24. júní, er áttræður
Ragnar Edvardsson, Ár-
skógum 6, Reykjavík.
Ragnar tekur á móti ætt-
ingjum og vinum í sam-
komusalnum, Árskógum 6, á
afmælisdaginn kl. 17-20.
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 23.
júní, er sjötugur Jónatan
Arnórsson, fyrrverandi úti-
bússtjóri ÁTVR á Ísafirði,
til heimilis í Ásgarði 24,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Þóra Benediktsdóttir.
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 24. júní, er sjötugur Jón
Sigurðsson, Prestastíg 6,
Reykjavík, áður til heimilis
í Neskaupstað. Eiginkona
hans er Rósa Skarphéðins-
dóttir. Þau eru með heitt á
könnunni í dag, sunnudag, á
heimili sínu frá kl. 15.
Malasia - BALI - Singapúr
Algjört heimsklassa - Tækifæri
Sími 56 20 400
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
UNDRA-THAILANDSFERÐ
18. sept. Sími 56 20 400 - Tækifæri
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA