Morgunblaðið - 23.06.2002, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 23.06.2002, Qupperneq 54
FÓLK Í FRÉTTUM 54 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                          !"#$#%  & HORNBY er orðinn meist-ari í opinberun karl-mennskunnar. Hann skrifar um hrifn- ingu og ástríðu karlmanns fyrir dauð- um hlutum og fyrirbærum, undarleg- um staðreyndum, fótboltaliðinu sínu, plötusafninu sínu, bílnum sínum. Atferlis sem alltof gjarnan hefur verið bendlað við karlrembu. Hann skrifar óhræddur um tilfinn- ingalíf og -leysi nútímakarlmanna og þykir hafa dregið upp raunsannari mynd af viðhorfi þeirra til mannlegra samskipta, við kvenfólk, börn og aðra karlmenn – til vináttunnar, hjóna- bandsins og lífsins almennt. Hann skrifar um það sem er að ger- ast í hausnum á karlmönnum. Sumar konur hafa lýst yfir að það sé verra en þær óraði fyrir á meðan öðrum létti við að fá vitneskju um að þar væri yfir höfuð eitthvað að gerast. Stíll Hornbys er svo áreynslulítill og efnisvalið svo augljóst að lesandinn spyr sig gjarnan hvers vegna honum datt þetta ekki í hug á undan. En þar liggur snilligáfan, að skrifa um hið augljósa í stað stað hins fjarstæðu- kennda, að benda á fegurð þess sem þvælist fyrir nefi karlmannsins alla daga án þess að hann taki eftir því; fótboltaleiksins, bíóferðarinnar, plöt- unnar á fóninum, bjórsins eftir vinnu, bullsins með félögunum, einlæga sjónarmiðs barnsins og konunnar sem liggur við hlið hans. Það gerist ekkert í bókunum mín- um ... Ég skapa persónur sem eiga ekki að vera í neinu frábrugðnar þeim sem lesa bækurnar. Nick Hornby er Lundúnabúi í húð og hár, fæddur fyrir 45 árum síðan. Áður en rithöfundarferillinn hófst fyrir alvöru starfaði hann sem ensku- kennari og blaðamaður en upphaflega dreymdi hann um að skrifa kvik- myndahandrit. Sá draumur rættist þegar hann fékk það verk að skrifa handrit eftir fyrstu bók sinni, met- sölubókinni Fever Pitch, sem kom fyrst út árið 1992. Bókin sú þykir um margt vera tímamótaverk því þar er í fyrsta sinn reynt að varpa skýrara ljósi á hvers vegna karlmenn virðast á stundum elska heitar ellefu aðra karl- menn sem sparka í tuðru, en sína eig- in konu. Hornby byggir bókina á eigin endurminningum frá því er hann fékk fótboltabakteríuna fyrst og hvernig ást hans á Arsenal-liðinu hefur á stundum stjórnað lífi hans, tilfinning- um og háttalagi í garð hans nánustu. Og karlmenn um heim allan vissu ná- kvæmlega hvað hann var að fara, fannst eins og hann væri að lýsa þeirra eigin reynsluheimi. Og konur urðu forvitnar, eygðu loksins mögu- leikann á að skilja fárið. Fever Pitch gerði það loksins að „eðlilegri“ hegð- un að sjá ekki sólina fyrir fótbolta- liðinu sínu. Í Englandi er almennt talið að Fe- ver Pitch hafi ekki átt svo lítinn þátt í að gera fótboltann að því tískufyrir- bæri sem hann er í dag. Og ekki nóg með það, heldur varð þessi ástarjátn- ing menntaða millistéttarmannsins ef til vill til þess að afmá endanlega líf- seigan lágstéttarstimpil sem verið hafði í Englandi á íþróttinni. Spark- sjúkir úr efri stéttum komu í það minnsta hver af öðrum út úr skápnum um það leyti sem sögur Hornbys af vellinum voru á allra vörum, Major reyndist Chelsea-unnandi (en ekki hvað?), Mellor líka. Stjörnurnar fóru að klæðast fótboltatreyjum, sparka í góðgerðarskyni og daðra við krydd- drengi. Það kom fáum á óvart þegar kvik- mynd gerð eftir Fever Pitch var frumsýnd 1997. Myndin skartaði Col- in Firth í aðalhlutverki og skrifaði Hornby handritið sjálfur og notaði þá tækifærið til þess að draga skýrari línur undir þau vandamál sem komið geta upp í samskiptum kynjanna vegna hinnar óskiptu ástar karl- mannsins á boltanum. Ég hélt að ég væri að skrifa bækur fyrir hönd karla fyrir konur en hef komist að öðru. Konur hafa nefnilega brugðist við þeim eins og ég hélt að karlar myndu gera. Önnur bók Hornbys, High Fidelity, var einnig kvikmynduð, en þar fjallaði hann um aðra ástríðu sína og annarra karlmanna, plötusafnið, og kannaði dýpra hversu erfitt karlpeningurinn á með að hleypa konunni inn fyrir frið- helgi sína, inn fyrir landamæri sín og deila með henni öllum sínum stundum og eigum. Kvikmynda- útgáfan var ólíkt Fever Pitch staðfærð frá Lundúnum alla leið yf- ir Atlantshafið til Chic- ago og það þrátt fyrir að leikstjóri hennar, Stephen Frears, sé breskur. John Cusack fór með aðalhlutverk eiganda lítillar plötu- búðar, náunga sem líkt og Arsenal-aðdáandinn í Fever Pitch á í mest- um erfiðleikum með að stofna til varanlegra tilfinningatengsla við hitt kynið. Það var kannski fyrst og síðast vegna þess að myndin var bandarísk og skart- aði Hollywood-stjörnu sem High Fidelity náði frekari út- breiðslu en Fever Pitch, enda fengu báðar fínustu dóma og juku ef eitt- hvað er hróður Hornbys. Og sjálfur var hann hæstánægður með hvernig til tókst að færa þær á hvíta tjaldið. Allir sem eiga barn fá sig fullsadda eitt augnablik á hverjum einasta degi og flýgur í hug: „Fjandinn! Ég vildi að ég ætti heima í stúdíóíbúð þar sem geislaplötusafnið væri í röð og reglu og enginn að fikta í græjunum.“ Skáldsaga er vettvangur til að teygja úr slíkum hugarórum. Á einum degi hugsar maður milljón hluti sem stangast á. Þú horfir á konu og hugs- ar, í þessu augnabliki vildi ég að ég væri ekki giftur. Maður getur ekki stjórnað þankagangi sínum, ólíkt að- gerðunum. About a Boy er af öðrum meiði en fyrstu tvær bækur Hornbys. Hún er reyndar líkt og þær sögð frá sjónar- hóli einhleyps karlmanns á fertugs- aldrinum sem á í erfiðleikum með að festa ráð sitt en Will er hvorki búinn að selja sálu sína boltanum né tónlist- inni. Það sem amar að honum er að dægurmenningin hefur lamað hann, gert hann að tilfinningasljóum neyslusjúklingi sem heldur sig fá lífsfyll- ingu úr því að eiga nógu mikið af merkja- vörum, glápa á réttu sjónvarpsþættina, hafa rétta útlitið og gamna sér með réttu fegurð- ardísunum. Kápa bók- arinnar segir kannski allt sem segja þarf. Hún er rauð og hvít – Arsenal-litirnir – og stafirnir eru klipptir út úr kunnum vörumerkj- um, B úr Budweiser, O úr Rolo súkkulaði og Y úr Yves Saint Laurent. Neyslukeðja karl- mannsins, takk fyrir! Will er samt vorkun, hann er fórnarlamb umhverfisins, hefur aldrei þurft að hafa fyrir neinu eða sjá um annað en sjálfan sig. Ekki fyrr en hann kynnist hinum 12 ára gamla Marcusi, sérvitr- um syni einstæðrar móður, þunglynd- issjúklings og vinkonu annarrar ein- stæðrar móður sem Will reyndi árangurslítið að gera hosur sínar grænar fyrir. Þannig verður kjarni sögunnar samband manns og drengs, hvernig piparsveinn á fertugsaldri upplifir allt í einu uppeldishlutverkið og hvernig 12 ára drengur sem aldrei hefur um- gengist fullvaxta karlmann bregst við föðurímyndinni. Sjálfur er Nick Hornby hamingju- samlega giftur fjölskyldumaður, faðir hins 9 ára gamla Danny sem greindist með einhverfu 3 ára gamall. Því fer því fjarri að Hornby lifi einhvers kon- ar rómantísku bóhemalífi eins og halda mætti um rithöfund sem skrifar sögur um piparsveina í tilvistar- kreppu. Hornby segist vissulega byggja About A Boy á eigin reynslu af því að vera uppalandi – og í reynd barn líka. Sagan er um hvernig það er að þurfa að fullorðnast of fljótt, að fá ekki tæki- færið til þess að hegða sér barnalega og hafa gaman af sömu hlutum og önnur börn. „Hún veltir einnig fram þeirri fullyrðingu að til þess að lifa barnæskuna af þá þarf maður að upp- lifa hana nákvæmlega eins og öll önn- ur börn,“ skýrir hann. „Allt sem gerir Marcus sérstakan, öðruvísi, er ná- kvæmlega það sem er að skaða hann. Ekki mjög upplífgandi staðreynd en sönn þó.“ Hornby skrifaði About A Boy eftir að kvikmyndagerðarmenn voru farn- ir að sýna sögum hans áhuga og því segir hann vart hafa getað komist hjá að skrifa hana með það í huga, djúpt undir niðri, að hugsanlega myndi hún endað á hvíta tjaldinu, enda hafði Tri- BeCa, fyrirtæki Roberts De Niro, keypt réttinn áður en Hornby byrjaði á henni. Kannski þess vegna þykir About A Boy best heppnuð af mynd- unum þremur og segir hann það hugsanlega geta verið vegna þess að hún innihaldi ólíkt hinum ákveðna fléttu sem megi fanga, sé um margt meðfærilegri og meira blátt áfram saga. Hornby segist samt aldrei geta búið til persónur með einhverja leik- ara í huga, þannig hafi Hugh Grant aldrei læðst í hugarskot hans þegar Will í About A Boy - eða Saga um dreng eins og kvikmyndin hefur verið skírð á íslensku - varð til. „Mér leist samt strax vel á að hann tæki að sér hlutverkið. Hann sóttist mjög snemma eftir því, sem mér þótti góðs viti. Svo skemmdi frammistaða hans í hlutverki skúrksins í Bridget Jones’s Diary ekki fyrir áliti mínu á honum.“ Og það var í raun höfundur tónlist- arinnar í About A Boy, Badly Drawn Boy, sem var örlagavaldurinn í því að Hornby fól myndina í hendur banda- rísku Weitz-bræðrunum – þeim er gerðu fyrstu American Pie myndina. „Ég var löngu búinn að bíta í mig að Badly Drawn Boy ætti að semja tón- listina í myndinni, yrði hún einhvern tímann gerð. Það fór því um mig á fyrsta fundinum með bræðrunum þegar þeir tilkynntu mér af fyrra bragði að þeir vildu fá Badly Drawn Boy til að sjá um tónlistina. Þá rann upp fyrir mér að þeir væru hinir einu réttu.“ Það er ofsaleg pressa á okkur og al- ið á sektarkenndinni að við elskum og verði að líka við foreldra okkar, börn, bræður og systur, nokkuð sem rök- rétt séð er bara ekki hægt að ætlast til. Fyrir mér er sú hugmynd fáránleg að maður þurfi að vera náinn ættingj- um sínum. Í fyrra kom fjórða bók Hornbys út. Nefnist hún How To Be Good en í henni kveður við nýjan tón því þar setur hann sig í fyrsta sinn í spor kvenmanns. Auðvitað hefur kvik- myndarétturinn þegar verið seldur að henni en engar fregnir hafa þó borist af því hvort eða hvenær hún birtist á hvíta tjaldinu. Hornby vann nýverið að sínu fyrsta kvikmyndahandriti, í félagi við Óskarsverðlaunaleikkonuna Emmu Thompson, handrit sem Uni- versal kvikmyndarisinn hefur þegar tryggt sér. Saga um rithöfund Hann þykir kærkominn málsvari nútímakarl- mannsins en um leið bera einstakt skynbragð á venjulegu hlutina, feg- urð hins hversdagslega í lífi okkar. Skarphéðinn Guðmundsson kynnti sér nánar höfund bók- anna og síðar myndanna Fever Pitch, High Fid- elity og About A Boy – Arsenal-aðdáandann, plötusafnarann, blaða- manninn og kennarann Nick Hornby. Boltinn eða konan? Colin Firth er a.m.k. í réttu treyjunni í Fever Pitch. skarpi@mbl.is Pilturinn og piparsveinninn: Hugh Grant sýnir Nicholas Hoult hvernig vera á svalur strákur í Sögu um dreng. Nick Hornby: Málsvari nútíma karlmannsins. Nick Hornby er höfundur bókarinnar sem kvikmyndin Saga um dreng er gerð eftir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.