Morgunblaðið - 23.06.2002, Side 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 55
Helber sannleikurinn
(Bare Witness)
Spennumynd
Bandaríkin, 2001. Skífan VHS. (90 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn: Kelley
Cauthen. Aðalhlutverk: Angie Everhart
og Daniel Baldwin.
DULARFULLT morðmál teygir
anga sína á ýmsa staði í mynd
þessari þar sem meiri áhersla er
þó lögð á að skapa tækifæri fyrir
aðal- og aukapersónur að fækka
fötum og stunda villt kynlíf en að
byggja upp sannfærandi sögu. En
svo virðist sem
seinheppinn leigu-
morðingi hafi orð-
ið fyrir þeirri
ógæfu að stund
hans með vændis-
konu er kvik-
mynduð og á
myndbandinu
reynast síðan
leynast vísbend-
ingar um fyrirhugað morð á
stjórnmálamanni. Vændiskonan er
myrt, myndbandið týnist, en eins
og áður segir dregur hlykkjóttur
söguþráðurinn ekkert úr kynhvöt
þeirra sem að málinu koma.
„Spennumynd“ þessi (ef það er
ekki of hátíðlegt nafn fyrir mynd
af þessu tagi) er því einungis ætl-
uð þeim sem fylgdust reglulega
með miðnætursýningum á sjón-
varpsstöðinni Sýn fyrir nokkrum
árum en öðrum ekki.
Myndbönd
Svik og
prettir
Heiða Jóhannsdóttir
Sálumorðinginn
(Soul Assassin)
Spennumynd
Holland 2001. Skífan VHS. (98 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn og hand-
rit Laurence Malkin. Aðalhlutverk Skeet
Ulrich, Kristy Swanson.
Í ÞESSARI litlu hollensku
spennumynd leikur Skeet Ulrich
(Scream) ungan mann á uppleið.
Hann er við það að gerast einn sá
hæst setti hjá alþjóðlegri fjármála-
stofnun í Rotterdam og forstjórinn
lítur á hann sem sinn eigin son.
Ekki nóg með
það, heldur hefur
hann líka fundið
þá einu réttu. En
þegar hann er við
það að bera upp
bónorðið skellur
myrkrið yfir er
hann verður vitni
að því að unnust-
an er myrt með
köldu blóði. Hann einsetur sér að
komast til botns í því hver stóð að
baki þessu kaldrifjaða morði og
kemst brátt að því að hann þarf ef
til vill að líta sér nær en hann hélt
í fyrstu.
Þetta er sannarlega nýmóðins
spennumynd, allt á fleygiferð,
tökuvélin, litirnir, leikararnir og –
því miður – fléttan. Í þessari
fyrstu mynd sinni ætlar hinn
sprenglærði leikstjóri tónlistar-
myndbanda og auglýsinga, Malkin,
sér einfaldlega um of. Í ljósi þess
að hann ku einnig vera nokkuð eft-
irsóttur háskólafyrirlesari í fræð-
um handrits- og kvikmyndagerðar
þá ætti hann að geta notað mynd
sína sem dæmi um að mikið þurfi
ekkert endilega að þýða betra. En
samt er þessi mynd um margt
áhugaverð. Tilraunir eru margar
og býsna ferskar, litanotkunin at-
hyglisverð og þráðurinn heldur
manni alveg. Skarphéðinn Guðmundsson
Martröð í
Rotterdam
UNDANFARIN ár hefur lesendum
Morgunblaðsins gefist tækifæri til að
taka þátt í brúðkaupsleik, sem mark-
aðsdeild blaðsins hefur staðið fyrir í til-
efni af útkomu brúðkaupsblaðauka
blaðsins. Að vanda voru veglegir vinn-
ingar í boði og í ár fengu sigurveg-
ararnir gjafabréf frá Smáralindinni og
Kringlunni, hvort að verðmæti 20 þús-
und krónur.
Að þessu sinni voru það brúðhjónin
tilvonandi, Þórhildur Halldórsdóttir og
Þórður Þórarinn Þórðarson, sem höfðu
heppnina með sér í leiknum. Þau munu
láta gefa sig saman í Viðey í byrjun júlí.
Um leið og Morgunblaðið óskar til-
vonandi brúðhjónunum til hamingju,
þakkar það lesendum fyrir góða þátt-
töku í leiknum.
Morgunblaðið/Arnaldur
Sesselja Magnúsdóttir, stjórnandi þjónustuborðs Kringlunnar (t.v.), og Sigurjón A. Friðjónsson, for-
stöðumaður Vetragarðs Smáralindar (t.h.), afhentu brúðhjónunum tilvonandi, Þórhildi Halldórsdóttur og
Þórði Þórarni Þórðarsyni, gjafabréfin.
Lánsöm brúðhjón