Morgunblaðið - 23.06.2002, Page 58

Morgunblaðið - 23.06.2002, Page 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ komið fyrir víða á eynni og vöktu þau mikla athygli í sérstöku umhverfi og fór svo að flest verkin seldust á staðnum. Hátíðin í Hvítabjarnarey tókst mjög vel og heimsóttu um 400 gestir eynna, þakklátir gestgjafanum Gesti Hólm. HVÍTABJARNAREY á Breiðafirði var á vörum manna fyrir 32 árum. Þá var hún vinn- ingur í happdrætti til styrktar byggingu fé- lagsheimilisins í Stykkishólmi. Voru miðarnir auglýstir undir kjörorðinu „Kóngur í eigin ríki“. Enginn náði því marki vegna þess að vinningurinn kom á óseldan miða og eyjan var áfram í eigu Stykkishólmsbæjar. Fyrir ári síðan seldi Stykkishólmsbær eyjuna og keyptu tveir Hólmarar hana og gerðust kóngar í eign ríki. Laugardaginn 15. júní bauð annar eigand- inn, Gestur Hólm Kristinsson, til veislu í ríki sínu. Voru allir Hólmarar velkomnir sem og ferðamenn sem áttu leið um Hólminn þennan dag. Hvítabjarnarey er skammt undan Stykkishólmi og þurfti 7 hraðbáta til að ferja gesti til og frá eynni. Í blíðskaparveðri í Hvítabjarnarey var boðið upp á dagskrá og veitingar. Á mat- seðlinum var sjávarréttasúpa í brauði og rituegg. Rúsínan í pylsuendanum var sýning Sjafnar Har, myndlistarmanns og Hólmara, á glerverkum hennar, sem nefndist „Lista- hreiður“. Um var að ræða 25 verk og heiti þeirra allra end- aði á -hreiður eins og t.d. Brúð- kaupshreiður, Vinarhreiður, Arnarhreiður og Sólskins- hreiður. Listaverkunum var Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Hólmararnir Bjarni Lárusson og Hallfreður Lárusson. Bjarni var í heyskap í Hvítabjarnarey er hann var ungur með foreldrum sínum. Hrappsey og Klofningur í baksýn. Gestur Hólm Kristinsson, eyjabóndi og gestgjafi, og Sjöfn Haraldsdóttir við glerlistaverkið Víkingahreiður sem Sjöfn gaf síðan Stykkishólmsbæ. Kóngur í eigin ríki býður til veislu Glatt á hjalla í Hvítabjarnarey Stykkishólmi. Morgunblaðið. Það var nóg að gera við að fæða hátt í 400 manns. SUMIR LÍKJA sögunni af Wilco og nýrri plötu hennar, Yankee Hotel Foxtrot, við grískan harmleik, í það minnsta lýsti kvikmyndagerð- armaður henni svo eftir að hafa eytt síðasta ári í að gera heimildarmynd um hljómsveitina. Hann samdi við sveitina um að fá að taka myndir af henni er hún tæki upp fjórðu breið- skífu sína og átti ekki von á öðru en úr yrði saga af glaðværum félögum og meistaraverki þeirra. Rétt í þá mund sem tökur hófust á myndinni í æfingaplássi Wilco í Chicago var trymbill sveitarinnar rekinn ófor- varandis og það var bara byrjunin. Sveitatónlist og grípandi rokk Wilco á rætur í hljómsveitinni Uncle Tupelo, sem er yfirleitt talin upphafssveit nýsveitatónlistar, enda var hreyfingin framan af kennd við fyrstu breiðskífu Uncle Tupelo, No Depression. Á henni tóku sveit- armenn, með þá Jeff Tweedy og Jay Farrar fremsta í flokki, þjóðlega sveitatónlist af frumstæðari gerð- inni og hrærðu saman við rokk með góðum árangri. Hljómsvein náði ekki að senda frá sér nema fjórar plötur, gegnsýrðar sveitatónlist og kryddaðar grípandi rokki og allar afbragð, helst síðustu plöturnar; March 16–20, 1992 og Anodyne. Þegar Anodyne var tekin upp var orðið grunnt á því góða milli Tweedy og Farrar, eins og reyndar má heyra á plötunni, og þeir skildu í fullum fjandskap. Farrar kallaði saman mannskap í hljómsveitina Son Volt og hélt áfram á sömu braut tónlistarlega en Tweedy stofnaði Wilco með öðrum Uncle Tupelo-meðlimum og breytti fljótlega um kúrs. Fyrsta platan, AM, er eins konar biðleikur en á næstu skífu þar á eftir, tvöföldu plötunni Being There, eru þeir Wilco-félagar farnir að þreifa fyrir sér í tilraunakenndari tónlist með góðum árangri. Á Summer Teeth, sem kom út fyrir þremur árum, voru sveitartónlistaráhrifin síðan horfin og eftir stóð ævintýralegt lagrænt rokk, glaðvær og áferðarfalleg tón- list með myrkum og fjölsnærðum textum; framúrskarandi skífa. Trymbillinn rekinn Í janúar á síðasta ári hófst sveitin handa við æfingar til að undirbúa plötuna nýju. Æfingar voru í Chic- ago og þangað kom kvikmyndatöku- maðurinn Sam Jones sem sagt er frá í upphafi. Daginn áður en tökur áttu að hefjast kallaði Tweedy hann afsíðis og sagði honum frá því að trymbillinn Ken Coomer, sem leikið hafði með sveitinni í áraraðir, hefði verið rekinn. Þeg- ar þetta spurðist út og menn leituðu skýringa vildi Tweedy lítið segja en innanbúð- armenn hafa sagt að það hafi einfald- lega komið í ljós þegar æfingar byrjuðu að Coomer var of einhæfur trymbill til að geta fylgt félögum sín- um. Eftir þetta gengu upptökur bráðvel. Þeir Jay Bennett, sem hefur verið næstráðandi á skútunni Wilco, var við takkana og einnig einn merkasti tónlistarmaður Chicago nú um stundir, fjöllistamaðurinn Jim O’Rourke, sem gaf þeim sem þekkja O’Rourke vísbendingu að eitthvað nýstárlegt væri í aðsigi. Upptökum lauk í júní fyrir ári og sveitin skilaði plötunni inn til fyrirtækis síns, Reprise, sem er undirmerki Warn- er-útgáfurisans, en gefa átti hana út ellefta september þá um haustið. Ekkert heyrðist frá útgáfunni í tvær vikur að því er kemur fram í mynd- inni, en síðan hringdi einn frammá- manna Reprise og óskaði eftir því að sveitin myndi breyta plötunni, sagði hana svo slæma að hún væri ósölu- hæf og myndi skaða mannorð Wilco. Það gat Tweedy ekki sætt sig við og á endanum keypti hljómsveitin út- gáfuréttinn af Reprise, fékk hann fyrir lítið að því er sagt er, og var þar með samningslaus. Spenna milli Tweedy og Bennett Deilurnar við Reprise urðu til að auka spennu milli þeirra Jeff Tweedy og Jay Bennett, sem verið hafði hægri hönd Tweedys frá því Wilco varð til. Bennett kunni ekki að meta hvernig platan nýja, Yankee Hotel Foxtrot, hafði breyst í með- förum Jims O’Rourkes, sem ann- aðist hljóðblöndun. Honum fannst Tweedy gefa O’Rourke of frjálsan tauminn og leiddi þetta til brott- hvarfs Bennett úr sveitinni. Ólíkt því sem var þegar þeim lenti saman Tweedy og Farrar þá er Bennett ekki síður ævintýragjarn en Tweedy sem glöggt má heyra á skífunni Pal- ace at 4 A.M. sem Bennett sendi frá sér með félaga sínum Edward Burch í síðasta mánuði. Hvað sem Bennett líður þá skild- um við við Jeff Tweedy þar sem hann var með upptökur í höndunum en engan útgefanda. Hann var þó ekki af baki dottinn, setti plötuna á Netið fyrir þá sem vildu heyra, og þeir voru ekki fáir, og leitaði síðan hófanna með útgefanda. Þeir voru og nokkrir sem sýndu áhuga, meira að segja kom allgott tilboð frá Reprise, þar á bæ höfðu menn greinilega séð sig um hönd, enda hafði Wilco skaffað ágætlega fyrir fyrirtækið fram að þessu, ævinlega staðið undir sér og skilað meira að segja hagnaði. Til gamans má geta þess að í viðtali skömmu eftir að slitnaði á milli Wilco og Reprise sagðist Tweedy aldrei hafa fengið greidd höfundalaun fyrir plötur sveitarinnar, sem segir sitt um plöt- umarkaðinn vestan hafs. Hetjan snýr heim Að gera mönnum kleift að hlusta á nýju plötuna á Netinu reyndist sveitinni vel við að auka áhuga plötufyrirtækja, en ekki síst segir Tweedy að það hafi aukið áhuga manna á að heyra hana á tónleikum. Að hans sögn þekktu mun fleiri lög- in á tónleikum Wilco í kjölfarið en var reyndin eftir að sveitin var búin að fara um Bandaríkin þver og endi- löng í hálft ár með Summer Teeth á dagskránni á sínum tíma. Á endanum samdi Tweedy við Nonesuch, sem er reyndar und- irmerki Warner líkt og Reprise, og Nonesuch gaf Yankee Hotel Foxtrot síðan út fyrir skemmstu. Plötunni hefur yfirleitt verið vel tekið, ekki síst af þeim sem ekki voru að bíða eftir einni alt.country skífunni til, enda frábær plata á ferðinni. Textar eru enn betri en áður, tónlistin fjöl- breyttari, tregafyllri og einlægari og allt uppfullt af grípandi laglínum og stefjum. Eins og nefnt var í upphafi má líkja aðdraganda Yankee Hotel Foxtrot við grískan harmleik, en réttara að segja hana grátbroslegan gleðileik sem endar vel; hetjan legg- ur upp vongóð, lendir í hremm- ingum og missir félaga, en snýr síð- an heim að loknu þrekvirki með fjársjóð í farteskinu. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Grátbroslegur gleðileikur Wilco má telja með helstu hljómsveitum vestan hafs nú um stundir. Hún lenti í talsverðum æv- intýrum við að gera fjórðu breiðskífu sína, Yankee Hotel Foxtrot, sem kom út fyrir stuttu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.