Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
hér sérðu
debetkort, skólaskírteini, afsláttarkort
og alþjóðlegt stúdentaskírteini.
4kort
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
SKOSKA strandgæslan
kom íslenska skútueig-
andanum Gesti Gestssyni
og tveimur írskum fé-
lögum hans til bjargar 17.
júní en ofsaveður brast á
eins og hendi væri veifað
þar sem Gestur og félagar
hans voru á ferð um 200
mílur norður af Írlandi.
Gestur segir í samtali
við Morgunblaðið að bæði
hann og áhöfn skútunnar,
sem ber nafnið Delis, hafi
margra ára reynslu í að
sigla á þessum slóðum.
Þeir hafi verið búnir að
vera í þrjá daga á sjónum
á milli Norður-Írlands og
Skotlands. Veðurspáin
hafi verið góð en að
kvöldi 16. júní hafi
skyndilega komið mikil
vindhviða og stormur
brostið á. Gestur segir
enga viðvörun hafa verið
gefna í veðurfréttum en hefði
hann haft grun um óveðrið hefði
hann snúið við eða reynt að sigla
skútunni burt. Veðrið hafi hins
vegar komið öllum í opna skjöldu
og nokkrar skemmdir hafi orðið
á nálægum eyjum. „Ölduhæðin
minnti mig helst á tólf hæða
blokk. Það er í raun erfitt að
lýsa þessu þar sem það var eng-
inn fyrirvari og við höfðum eng-
an tíma til þess að undirbúa okk-
ur en við náðum að halda ró
okkar,“ segir Gestur.
Gátu ekki kallað sín á milli
Að sögn Gests var stormurinn
það versta sem þeir hafa lent í
og sökum mikillar vindhæðar og
hávaða í rokinu gátu þeir ekki
kallað sín á milli og notuðust því
um tíma við fingramál. Þeir ósk-
uðu eftir aðstoð og heyrði norsk-
ur togari kallið en komst ekki að
skútunni fyrr en sex klukkutím-
um síðar þar sem hann var langt
í burtu.
Togarinn var við hlið skútunn-
ar en áhöfn hans gat ekkert
gert. Tólf tímum eftir að kallað
hafði verið eftir aðstoð kom
þyrla frá skosku strandgæslunni
sem tók við björgunaraðgerðun-
um en áhöfnin hafði einungis tíu
mínútur til þess að koma sér um
borð í þyrluna. Í heildina stóðu
þeir í baráttu við veðrið í tæpan
sólarhring.
Íslenskur skútueigandi og félagar
hans á leið til Íslands
Bjargað úr
sjávarháska
Ljósmynd/Stornoway-strandgæslan
Áhöfn skútunnar Delis, Gestur Gests-
son, Paul Hich og David McGlowgh-
lin, komnir í örugga höfn um borð í
þyrlu skosku strandgæslunnar sem
vann frækilegt björgunarafrek.
Ölduhæðin/4
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segist enga trú hafa á að þjóðin
muni hafa áhuga á að gera Evrópu-
málin að kosningamáli í komandi al-
þingiskosningum. Hann segir einnig
að allir sjái í hendi sér að engin rík-
isstjórn verði mynduð um þetta mál
eftir næstu alþingiskosningar.
Forsætisráðherra ræðir m.a. um
ágreining milli forystumanna
stjórnarflokkanna um Evrópusam-
bandið í viðtali sem birt er í Morg-
unblaðinu í dag. Fram kemur að for-
sætisráðherra er ekki ánægður með
endurteknar yfirlýsingar Halldórs
Ásgrímssonar utanríkisráðherra um
kosti aðildar að ESB, vegna þess að
ríkisstjórnin fylgi ákveðinni stefnu
sem samkomulag var gert um á þá
leið að ekki væri stefnt að aðild að
ESB.
„Minn ágæti utanríkisráðherra
virðist algerlega ónæmur fyrir öll-
um göllum þess en hver rispa sem
sést í stækkunargleri á EES-samn-
ingnum virðist virka sem illyfirstíg-
anleg gjá,“ segir Davíð.
Vinstri stjórn gæti ekki haft
aðild að ESB á sinni könnu
Í viðtalinu er Davíð spurður hvort
það geti haldið svona áfram næstu
mánuði og út kjörtímabilið þar sem
oddvitar stjórnarflokkanna eru á
öndverðum meiði. „Það vita allir í
dag að næsta ríkisstjórn verður ekki
mynduð um Evrópusamstarfið. Þeg-
ar menn fara með svona nokkrum
mánuðum fyrir kosningar þá vita
þeir vel að ekki er verið að efna til
raunverulegrar umræðu, sem mun
ráða því hvers konar stjórn verður
mynduð eftir kosningar. Næsta rík-
isstjórn verður ekki mynduð um
inngöngu í Evrópusambandið. Eng-
um dettur það í hug. Hvers vegna er
þá verið að taka þetta mál upp með
þessum hætti fyrir kosningarnar?
Er verið að rugla kjósendur í rím-
inu? Ef svo er, afhverju?“ spyr
hann.
Davíð segir einnig að vinstri
stjórn gæti ekki haft á sinni könnu
að fara inn í Evrópusambandið.
Framsóknarflokkurinn sem heild sé
ekki inni á því. Ekki heldur Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð og mik-
ill ágreiningur sé um Evrópumál
innan Samfylkingarinnar.
Davíð segir stjórnarsamstarfið
gott og að þótt menn horfi upp á
mismunandi áhuga hans og utanrík-
isráðherra í Evrópumálum hafi það
ekki úrslitaáhrif á stjórnarsamstarf-
ið, að hans mati. „Það verður síðan
að ráðast hvað gerist eftir kosning-
ar. Líklegast er að flokkarnir gangi
óbundnir til kosninga eins og þeir
gerðu fyrir síðustu kosningar. Að
vísu höfðu þeir uppi góð orð þá um
að gæfu kosningaúrslitin tilefni til,
þá myndu þeir ræða saman fyrst áð-
ur en þeir ræddu við aðra flokka og
þannig gekk það eftir. Engar slíkar
viðræður hafa átt sér stað að þessu
sinni, enda fóru þær umræður ekki
fram fyrr en á síðari stigum fyrir
síðustu kosningar. Það er þó ekkert
óeðlilegt að stjórnmálaflokkar hugsi
sinn gang og líti til allra átta í kring-
um kosningar. Það er eðlileg
lýðræðisleg þróun og ekki hægt að
finna að því,“ segir Davíð.
Forsætisráðherra telur að þjóðin vilji ekki gera Evrópumálin að kosningamáli
Næsta ríkisstjórn verður ekki
mynduð um inngöngu í ESB
Ólíkar/10–12
FYRSTA loftbelgjaflug Svisslend-
inganna Thomasar Seiz og Urs
Mattle yfir landinu tókst með ágæt-
um snemma í gærmorgun.
Vindur var hægur og sól skein í
heiði þegar þeir hófu sig á loft frá
tjaldstæði við Kleppjárnsreyki og
rúmlega klukkustund síðar lentu
þeir mjúklega skammt frá Reyk-
holti í Borgarfirði. Þeir náðu mest
10 km hraða á klukkustund en eins
og flestir aðrir loftbelgjafarar voru
þeir væntanlega ekkert að flýta sér
sérstaklega. Það er líka vindurinn
sem ræður flestu, jafnt hraða sem
stefnu.
Ljósmynd/Kuederli
Fyrsta flugið tókst
með ágætum
Ómögulegt að/6
MENGUNARVARNIR norska rík-
isins og fulltrúar útgerðarfélagsins
Festar hf. funduðu í gær um aðgerð-
ir til þess að koma í veg fyrir mengun
af völdum frystitogarans Guðrúnar
Gísladóttur KE-15, sem sökk við
Noregsstrendur á miðvikudag.
Að sögn Trond Eilertsen, lög-
manns íslensku útgerðarinnar, voru
viðræður aðila á fundinum góðar og
gagnmerkar en ekki var komist að
neinni niðurstöðu í málinu að svo
stöddu. Segir hann að vænta megi
frekari tíðinda eftir helgi.
Engin niður-
staða á fundi
útgerðar og
stjórnvalda
LÖGREGLAN á Selfossi hefur tek-
ið um 1.000 ökumenn fyrir of hrað-
an akstur í umdæmi sínu það sem
af er þessu ári en á sama tíma í
fyrra höfðu um 600 ökumenn verið
teknir fyrir hraðakstur í umdæm-
inu. Að sögn Ólafs Íshólms, varð-
stjóra á Selfossi, eru hugsanlegar
ástæður fyrir þessari aukningu góð
tíð í vetur sem leitt hefur til betri
akstursskilyrða en auk þess hefur
myndavélaeftirlit verið meira en
fyrr og lögreglan almennt reynt að
fylgjast vel með umferð í umdæm-
inu.
Lögreglan á Selfossi
Um 1.000 tekn-
ir fyrir hrað-
akstur á árinu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
SAMKVÆMT upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands verður hiti á landinu
yfirleitt á bilinu 10 til 15 stig næstu
daga en misjafnt er eftir landshlutum
hversu þurrt verður í veðri. Í dag er
gert ráð fyrir hægri suðlægri átt og
að smám saman þykkni upp sunnan-
og vestanlands, en annars verði skýj-
að með köflum. Gert er ráð fyrir rign-
ingu á Suður- og Vesturlandi í kvöld.
Hiti verður á bilinu 8 til 17 stig og
hlýjast í innsveitum á Norðurlandi. Á
mánudag er gert ráð fyrir rigningu
austan til á landinu en skúrum suð-
vestanlands. Á Norðurlandi verður
rigning með köflum í norðanátt á
þriðjudag og miðvikudag en annars
skýjað með köflum. Á fimmtudag er
hins vegar gert ráð fyrir hægu og
björtu veðri. Á föstudaginn er gert
ráð fyrir suðlægum áttum með rign-
ingu sunnan- og vestanlands en ann-
ars verður úrkomulaust.
Hlýtt um landið
næstu daga