Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 51 MINNINGARGREINUM í Morg- unblaðinu hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Til að öllu efni Morgunblaðsins verði haganlega fyrir komið reynist nauðsynlegt að setja minningargreinum, sem og öðru efni, ákveðin lengdarmörk. Því hefur verið ákveðið að fyrir ut- an aðalgrein verði aðrar greinar 1.500 slög (með bilum), sem eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksenti- metrar) og í kringum 300 orð. Hinsta kveðja – nýtt form Ætlast er til að þær greinar, sem skilað er inn eftir þessa helgi, verði innan þeirra lengdarmarka sem að framan er lýst. Jafnhliða þessu verður tekin upp nýjung sem kölluð er HINSTA KVEÐJA þar sem hægt verður að senda örstutta kveðju (5–15 línur), þegar það á við. Þetta form á við þegar votta á virðingu án þess þó að það sé gert með langri grein (sjá sýnishorn). Blaðið vonast til að þessum breytingum verði vel tekið af lesendum og að eftir þeim verði farið í hvívetna. Ritstj. Lengd minningargreina Hæfileg lengd. Til þess að sjá lengd minningargreinar í t.d. Word-ritvinnslu, þá er valið Tools-valblaðið og síðan Word Count. Þá opnast þessi upplýs- ingagluggi og sýnir orðafjöldann (Words); slagafjölda án orðabila (Characters (no spaces)); slaga- fjölda með orðabilum (Characters (with spaces)): 1.500. g fa g n ar n k, a ð- m g m n- r r ð r- i. m r- n- í ar l- u í ð ð- ð gg g Sú hugsun að svo kynni að fara var manni þó oftast fjarri, svo mikill var lífsþróttur hennar, hugurinn vökull og atorkan óbilandi. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj. lkasdjf laksjf laks jdf. Laksdjælaskdjfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs kd. Jón Jónsson og Jónína Jónsdóttir Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh dfgh dfgh dfh fdgh. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- djfæalskjfaæls kdjfaæl sk. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- djfæalskjfaæls kdjfaæl sk. Jón Jónsson HINSTA KVEÐJA ✝ Jóhanna Petrún-ella Vilhjálms- dóttir fæddist í Mið- húsum í Þórkötlu- staðahverfi í Grinda- vík 29. ágúst 1917. Hún andaðist á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 13. október síðastliðinn. Foreldr- ar Jóhönnu voru Vil- hjálmur Jónsson tré- smiður, f. 3.8. 1866, d. 22.8. 1960, og Jó- hanna Bjarnadóttir, f. 3.8. 1886, d. 20.8. 1962. Jóhanna var yngst af 10 systkinum. Albræður hennar voru Reginbaldur og Bjarni Kristinn. Hálfsystir sam- mæðra var Guðbjört og hálfsystk- in samfeðra voru Guðjón, Jó- hanna, Magnúsína, Arnfríður, Jón og Lilja. Arnfríður er ein á lífi 96 ára að aldri. Jóhanna giftist Garðari Sig- urðssyni frá Miðhúsum í Kálfs- hamarsvík á Skaga, f. 2.8. 1911, d. 25.8. 2002. Börn þeirra eru: 1) Sig- urður Vilhelm, f. 17.2. 1934. Maki Brynhildur Ingibjörg Vilhjálms- dóttir f. 1.10. 1933. Þau eiga fimm börn, tíu barnabörn og þrjú barnabarna- börn. 2) Ingibjörg, f. 4.11. 1935. Maki Ein- ar Þorleifsson, f. 6.7. 1927, d. 18.4. 1988. Þeirra synir eru tveir. 3) Jóhanna, f. 10.8. 1940. Maki Gestur Ragnarsson, f. 9.4. 1939, og eiga þau fjögur börn, níu barnabörn og eitt barnabarnabarn. 4) Bjarni Kristinn, f. 5.3. 1943. Maki Svava Gunnlaugsdóttir, f. 3.3. 1944. Þau eiga þrjár dætur, og fjögur barnabörn. 5) Ester, f. 30.12. 1947. Maki Gísli Ófeigsson, f. 13.6. 1943. Þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn. 6) Eygló, f. 25.9. 1960. Maki Hafsteinn Ólafsson, f. 3.10. 1949. Þau eiga tvo syni. Jóhanna og Garðar bjuggu á Sólbakka í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík en síðustu árin voru þau til heimilis í Víðihlíð, heimili aldraðra í Grindavík. Útför Jóhönnu verður gerð frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Það er svo stutt síðan afi minn dó að það er mjög sárt að sjá á eft- ir ömmu minni svona stuttu seinna. Samrýndari hjón er erfitt að hugsa sér. Þau voru samtaka í öllu og það hefði verið erfitt fyrir annað þeirra að vera án hins. Það var aðdáunarvert að sjá ömmu við jarðarför afa míns. Þrátt fyrir mikil og erfið veikindi lét hún sig hafa það að mæta. Hún gat ekki hugsað sér annað. En eftir jarðarförina var eins og lífsviljinn minnkaði og heilsu henn- ar hrakaði stöðugt. Það var alltaf gott að koma á Sólbakka þegar þau hjúin bjuggu þar. Þau tóku alltaf hlýlega á móti okkur og ekki vantaði upp á höfðinglegar veit- ingar. Á Sólbakka var alltaf allt fínpússað að innan og bar það snyrtimennsku ömmu gott vitni. Ekki var síður notalegt að heim- sækja þau í Víðihlíð (Dvalarheimili aldraðra í Grindavík) á seinni ár- um. Alltaf eftir ánægjulegar heim- sóknir til þeirra minnist ég hversu hlýlega þau kvöddu okkur. Þau fylgdu okkur alltaf út á hlað og kysstu okkur í kveðjuskyni. En nú hafa þau kvatt okkur í síðasta sinn og eftir standa fallegar minningar og söknuður. Blessuð sé minning þeirra. En samband þeirra hefur borið góðan ávöxt og það var aðdáun- arvert að sjá hversu góð börn þeirra og tengdabörn voru þeim alveg fram á síðustu stundu. Þau vöktu við rúm þeirra, dag og nótt, allt þar til yfir lauk. Guð launi þeim það og styrki þau í sorg þeirra. Þorleifur. Elsku amma er dáin. Fallega rósin okkar hefur lagt saman blöð- in sín en opnar aftur krónu sína á móti eilífðarljósinu. Nú hefur hún amma kvatt þennan heim eftir baráttu við illvígan sjúkdóm. Bar- áttan var ekki löng en erfið. Að- eins eru 7 vikur síðan hún amma horfði á eftir afa yfir móðuna miklu eftir erfið veikindi. Nú ganga þau saman hönd í hönd inn í eilífðina. Aðdáunarvert var að sjá hvernig börn ykkar umvöfðu þig kærleika og veittu þér allan þann styrk sem mannlegur máttur gat veitt. Elsku amma, efst er mér þó í huga öll sú umhyggja og kærleikur sem þú hefur sýnt okkur. Allt sem þú hefur kennt og miðlað til okkar verður góður grunnur í okkar veganesti. Góðar minningar eru gulls ígildi. Elsku amma, Guð geymi þig og varðveiti. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Kveðja, Kristín Kristinsdóttir og fjölskylda. Elsku amma. Nú er baráttu þinni lokið við erfiðan sjúkdóm. Stríðið var kannski ekki mjög langt en erfiðir voru þessir tímar fyrir þig. Veik- indi afa tóku líka mikið á þig en aðeins eru 7 vikur síðan hann dó. Þið voruð alltaf mjög samrýnd og leiddust í gegnum lífið. Við vitum að þið leiðist nú á öðrum stað. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Elsku amma, við kveðjum þig nú og þökkum fyrir alla þá hlýju og ástúð sem þið veittuð mér og fjöl- skyldu minni. Betri ömmu og afa hefði ekki verið hægt að eiga. Takk fyrir allt. Linda og fjölskylda. JÓHANNA VILHJÁLMSDÓTTIR Kveðja frá Bandaríkj- unum. Mér brá þegar ég frétti að minn góði vinur Pétur Friðrik listmálari væri fallinn frá. Fáein- um dögum fyrir andlát hans höfðum við verið í símasambandi. Þótt hann væri nýkominn heim úr uppskurði var gott í honum hljóðið. Ég sagði honum að við Edith myndum líklega verða á ferð til Íslands seinna í haust og að við myndum þá hittast eins og svo oft áð- ur. Það er komið hátt í hálfa öld frá okkar fyrstu kynnum. Ég hafði þá séð málverk eftir Pétur Friðrik sem hreif mig mjög. Ég hringdi í listamanninn og við mæltum okkur mót og áður en varði höfðum við Edith eignast okkar fyrsta málverk eftir Pétur og vináttu sem varað hefur æ síðan. Hann var góður drengur hann vinur minn, ein- lægur var hann og listamaður í húð og hár. Við áttum margar góðar stundir saman. Oft var ekið út fyrir bæinn á PÉTUR FRIÐRIK SIGURÐSSON ✝ Pétur FriðrikSigurðsson fædd- ist á Sunnuhvoli í Reykjavík 16. júlí 1928. Hann lést hinn 19. september síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Há- teigskirkju 1. októ- ber. fallegum sumardegi. Það var stoppað þegar listamannsaugað sagði til, og þá var tekið til verka. Það voru ánægjulegar stundir að horfa á Pétur skapa listaverk. Það var ferðast víða um landið og tjaldað í fegurð nátt- úrunnar án þess að nú- tíma þægindi væru til staðar. Það var líka gaman að fá Pétur í heimsókn til okkar í Bandaríkjunum og skynja hve næmt listamannsauga hans var einnig þar. Oft nutum við gestrisni Péturs og Dídíar á fallegum heimilum þeirra, bæði í Hafnarfirði og svo seinna á Arnarnesinu og fjölskyld- ur okkar áttu margar góðar samveru- stundir. Við hjónin vottum Dídí og fjöl- skyldu þeirra einlæga samúð. Vertu sæll kæri vinur. Bob Warner. Ég flyt þér móðir þakk- ir þúsund faldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt. Er Íslands mestu mæður verða taldar, þá mun það hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna. Blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson.) Við kveðjum þig kæra móðir. Blessuð sé þín minning. Fjóla og Þór. Elskuleg amma okkar, Björg Lilja Jónsdóttir, lést 5 október sl. á 94 aldursári. Við systkinin urðum þeirra gæfu aðnjótandi að kynnast ömmu og umgangast alla tíð, jafnt í leik og í starfi. Fyrir um 2–3 árum flutti amma til foreldra okkar, en veikt- ist skömmu seinna og dvaldi hún BJÖRG LILJA JÓNSDÓTTIR ✝ Björg Lilja Jóns-dóttir fæddist 15. maí 1909 á Karls- stöðum í Fljótum í Skagafirði. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni laugar- daginn 5. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Neskirkju 14. október. því stutt hjá þeim. Amma var mjög fróð kona, hún miðlaði okkur af visku sinni og reynslu, og hafði alltaf tíma fyrir okkur og fjölskyldur okkar. Aldrei bar hún við tímaskorti eða önnum, þó svo hún hefði mikið að gera. Amma var einnig mikil hagleik- skona og alveg sama hvað hún gerði, allt lék í höndum hennar. Minnumst við þess þegar saumaðir voru upphlutir á okkur systurnar og að auki voru saumaðir upphlutir á langömmudætur sem þá voru 3 og 5 ára. Þessir búningar eru til enn og bera ömmu fagurt vitni. Það væri ekki í anda ömmu að hlaða hana gullhömrum nú á kveðjustundu. Við vitum að allt sem við vildum segja veit hún og hún heyrir bænir okkar. Elsku amma, við þökkum þér fyrir allt sem þú varst okkur, fyrir allt sem þú kenndir okkur, í orðum og í verki, fyrir óeigingirnina og kærleikann sem þú barst til okkar og fjölskyldna okkar. Við þökkum fyrir samfylgdina og kveðjum þig með söknuði og trega í hjarta. Við vitum að nú ert þú komin heim, og að við hittumst aftur seinna. Takk fyrir allt og allt. Guð blessi þig. Móður okkar, systkinum hennar og fjölskyldum biðjum við guðs blessunar. Björg, Þuríður, Svavar og fjölskyldur. Elsku afi, við sökn- um þín svo sárt. Það var svo gaman þegar við fluttum frá Hornafirði og bjugg- HANNES EINAR GUÐLAUGSSON ✝ Hannes EinarGuðlaugsson fæddist í Reykjavík 6. desember 1955. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 23. sept- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Langholts- kirkju 30. septem- ber. um við hliðina á þér og ömmu. Við gátum alltaf farið í heimsókn til ykk- ar. Og allar helgarnar okkar saman, við bröll- uðum svo mikið, fórum oft upp í sumarbústað. Það fannst okkur svo gaman. Þessi tími sem við áttum með þér gaf okkur svo mikið, elsku afi. Við munum passa ömmu fyrir þig því þú ert hjá englunum núna. Fannar Þór og Hrafnhildur. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.