Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 27
ANDSTÆÐINGAR „sólskins-
stefnu“ stjórnvalda í Suður-Kóreu,
sem miðast að því að ná sáttum við
kommúnistastjórnina í Norður-Kór-
eu, segja að hún sé nú liðin undir lok
vegna þeirra tíðinda að Norður-Kór-
eumenn hafi viðurkennt að þeir séu
að þróa kjarnavopn á laun.
Viðleitni Kims Dae-Jungs, forseta
Suður-Kóreu, til að bæta samskiptin
við Norður-Kóreu náði hámarki í
júní 2000 þegar hann fór til Pyong-
yang til að ræða við Kim Jong-Il,
leiðtoga norður-kóresku kommún-
istastjórnarinnar. Mörgum Suður-
Kóreumönnum féll allur ketill í eld
þegar þeir fréttu af því að Norður-
Kóreumenn hefðu gengist við því á
fundi með bandarískum embættis-
mönnum að þeir hefðu unnið að smíði
kjarnavopna eftir leiðtogafundinn
sem hafði vakið vonir um að Kóreu-
ríkin myndu loks ná sáttum eftir
meira en hálfrar aldar fjandskap.
„Þar sem Norður-Kóreumenn
héldu kjarnavopnaáætlun sinni
áfram eftir að við hófum sáttaumleit-
anirnar er ljóst að sólskinsstefnan
hefur beðið skipbrot,“ sagði suður-
kóreska dagblaðið Joong Ang, sem
hefur lengi gagnrýnt stefnu forset-
ans. „Við hvetjum stjórnina til að
móta nýja, öfluga og djúptæka
stefnu.“
Hætt verði við að reisa
kjarnorkuverið
Hafi Norður-Kóreumenn reynt að
þróa kjarnavopn er það brot á samn-
ingi við Bandaríkin frá 1994 og sam-
eiginlegri yfirlýsingu Kóreuríkjanna
um kjarnorkuafvopnun á Kóreu-
skaga. Andstæðingar sólskinsstefn-
unnar í Suður-Kóreu segja að ekki sé
hægt að treysta því að kommúnista-
stjórnin í Pyongyang efni loforð sín.
Chosen Ilbo, stærsta dagblað Suð-
ur-Kóreu, lýsti leynilegri kjarnorku-
vopnaáætlun Norður-Kóreumanna
sem „miklum svikum “ og sakaði Kim
Jong-Il um að hafa logið að suður-
kóreska forsetanum.
Hátt settur embættismaður í
Seoul, sem hefur tekið þátt í sátta-
umleitunum stjórnarinnar, sagði
hins vegar að játning Norður-Kór-
eumanna gæti verið góðs viti. „Þeir
hafa nú viðurkennt þetta í fyrsta sinn
og hægt verður að leggja þetta mál á
samningaborðið.“
Dong-A Ilbo, eitt áhrifamesta dag-
blað Suður-Kóreu, sagði hins vegar
að samskipti Kóreulandanna væru
nú komin í sama horf og þau voru
fyrir samninginn árið 1994 þegar
stríð virtist yfirvofandi vegna grun-
semda um að Norður-Kóreumenn
væru að framleiða plúton í kjarna-
vopn.
Samningurinn kvað á um að Norð-
ur-Kóreumenn hættu að þróa
kjarnavopn og í staðinn lofaði Banda-
ríkjastjórn að reisa kjarnorkuver, er
byggðist á tækni sem ekki er hægt að
nota til að framleiða efni í kjarna-
vopn. Joong Ang sagði að hætta ætti
við að reisa kjarnorkuverið þar sem
Norður-Kóreumenn hefðu lýst því
yfir á fundinum með bandarísku
embættismönnunum að samningur-
inn væri ekki lengur í gildi.
„Sólskinsstefnan“
sögð liðin undir lok
Seoul, Washington. AFP, AP.
STJARNFRÆÐINGA hefur lengi
grunað, að í miðju Vetrarbraut-
arinnar sé að finna óttalegt leynd-
armál, það er að segja risastórt
svarthol. Nú hefur hópi vísinda-
manna tekist að sýna fram á það
með betri rökum en áður, að þetta
sé alveg rétt og svartholið, sem
kallast Sagittarius A, engin smá-
smíði. Massi þess er um það bil
jafnmikill og þriggja milljóna
sólna á stærð við okkar sól.
„Ég held þetta sé útkljáð mál.
Svartholin eru til,“ sagði Rainer
Schödel hjá Max Planck-stofnun-
inni í Þýskalandi en hann fór fyrir
vísindamönnunum, sem uppgötv-
unina gerðu. Gerðu þeir grein fyr-
ir henni í breska vísindatímaritinu
Nature á fimmtudag og búist er
við, að hún auðveldi mönnum
skilning á þessum dularfullu fyr-
irbærum, sem menn fóru fyrst að
velta fyrir sér þegar á 18. öld.
Roeland van der Marel, stjarn-
fræðingur við stjarnvísindastöð í
Baltimore í Bandaríkjunum, segir,
að svarthol hafi lengi kynt undir
ímyndunaraflinu, jafnt hjá höfund-
um vísindaskáldsagna sem eðlis-
fræðingum. Samkvæmt kenning-
unni eru þau svæði í geimnum,
sem hafa svo mikið aðdráttarafl,
að jafnvel ljósið sleppur ekki frá
þeim. Verði þau til þegar mikið
efni þjappast saman, til dæmis
þegar stór stjarna eða sól hefur
brennt öllu eldsneyti og hrynur
inn í sjálfa sig.
Dularfullur þröskuldur
Stjarnfræðingurinn Karl Geb-
hardt við Texasháskóla segir, að
svartholin séu ekki eins og risa-
stór ryksuga eins og margir haldi.
Þau gleypi annað efni því aðeins,
að það komi of nálægt, fari yfir
dularfullan baug, sem umlykur
þau.
Vísindamenn telja nú, að svart-
hol sé að finna í miðju flestra vetr-
arbrauta og allt frá því á áttunda
áratugnum hafa þeir beint sjónum
sínum að Sagittarius A. Hingað til
hafa þeir þó ekki getað útilokað
aðrar skýringar, til dæmis, að um
væri að ræða þétta stjörnuþyrp-
ingu eða eitthvað enn annað.
Til að ráða þessa gátu hafa
Schödel og samstarfsmenn hans
varið heilum áratug í að fylgjast
með stjörnu, sem þeir kalla S2, og
er á braut um Sagittarius A. Eftir
að hafa fylgst með S2 fara þrjá
fjórðu af brautinni um Sagittarius
A, reiknuðu þeir út, að hún færi
allan hringinn á 15,2 árum. „Það
er ofsalegur hraði miðað við hæga-
ganginn í alheiminum að öðru
leyti,“ sagði Gebhardt. Stundum
mældist hraðinn vera um 5.000 km
á sekúndu.
Gífurlegur massi
Til samanburðar má nefna, að
sólin okkar lullar áfram á 216 km
hraða á sekúndu og það tekur
hana 230 milljónir ára að fara heil-
an hring um miðju Vetrarbraut-
arinnar.
Út frá umferðarhraða S2 gátu
vísindamennirnir reiknað út massa
svartholsins og hann reyndist vera
2,2 til 3,7 milljón sinnum meiri en
sólin okkar. Þeir gátu líka fundið
út, að allur þessi gífurlegi massi er
í tiltölulega litlu rými.
Mark Morris, stjarnfræðingur
við Kaliforníuháskóla í Los Angel-
es, segir, að nú muni vísindamenn
reyna að svara því hvort kom á
undan, vetrarbrautin eða svarthol-
ið, en við þeirri spurningu hvað
fari fram innan í svartholinu muni
þeir aldrei fá neitt svar.
Gífurlegt svarthol
í Vetrarbrautinni
Massinn eins
og í þremur
milljónum sólna
Reuters
Miðja Vetrarbrautarinnar, séð frá
Chandra-stjörnuskoðunarstöðinni.
Baltimore. Los Angeles Times.
ANDERS Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Dana, ítrekaði í gær,
að Evrópusambandið yrði í miklum
kröggum ef Írar höfnuðu Nice-sátt-
málanum en þjóðaratkvæðagreiðsla
fer fram um hann á Írlandi í dag.
Danir sitja í forsæti ráðherraráðs
ESB en Nice-sáttmálinn kveður m.a.
á um breytingar á stofnunum og
ákvarðanatöku, sem nauðsynlegar
eru vegna stækkunar ESB. Næstum
þrjár millj. manna eru á kjörskrá en
seinast þegar kosið var um sáttmál-
ann á Írlandi mætti aðeins um þriðj-
ungur á kjörstað. Kannanir sýna að
fleiri eru líklegir til að greiða sátt-
málanum atkvæði en að lýsa en
þannig var raunar einnig í aðdrag-
anda síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu,
sem haldin var í júní 2001.
Írar kjósa um Nice
Dyflinni. AFP.