Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Alþjóðlegi beinverndardagurinn Beintapið er „þögult“ ALÞJÓÐLEGURbeinverndardagurer á morgun en hér á landi eru starfandi sam- tökin Beinvernd sem munu taka upp þráðinn og kynna vaxandi vanda sem blasir við mannfólkinu, s.s. bein- þynningu. Framkvæmda- stjóri Beinverndar er Hall- dóra Björnsdóttir og svaraði hún nokkrum spurningum Morgunblaðs- ins af þessu tilefni. – Hvað verður gert í til- efni þessa Alþjóðabein- verndardags? „Yfirskrift beinverndar- dagsins 2002 er Fjárfest í beinum: Komum í veg fyrir fyrsta brot. Að þessu sinni gefur Beinvernd út bækl- ing, Fjárfestu í beinum: Mataræði, lífsmáti og erfiðir hafa áhrif á uppbyggingu beina hjá ungu fólki. Þessum bæklingi verð- ur dreift til allra skólahjúkrunar- fræðinga, hjúkrunarfræðinga sem vinna í heilsugæslunni og til þeirra aðila sem sinna forvörnum af þessu tagi. Einnig mun Beinvernd fara af stað með það verkefni að bjóða upp á beinþéttnimælingar á vinnustöðum og hjá félagasamtök- um. Þá geta forsvarsmenn fyrir- tækja pantað mælingar fyrir sitt starfsfólk. Við vitum að þótt bein- þynning sé algengust hjá eldra fólki þá eru margir sem enn eru virkir í atvinnulífinu með bein- þynningu og hefur það áhrif á störf þess og líðan í vinnunni.“ – Hver er tilgangur og tilurð þessa dags? „Fyrsti beinverndardagurinn var árið 1996 að tilstuðlan bresku beinverndarsamtakanna og hann hefur verið haldinn á alþjóðlega vísu frá 1997, þegar IOF, alþjóð- legu beinverndarsamtökin, fóru að skipuleggja hann og hvetja bein- verndarfélög um allan heim til þess að taka þátt í honum. Bein- vernd hefur tekið virkan þátt í átaki beinverndardagsins síðan 1999. Tilgangurinn er að upplýsa almenning og stjórnvöld um bein- þynningu og hvað er til ráða gegn henni.“ – Það er sagt „forðumst fyrsta brot“, er það hægt? „Mikilvægt er að greina bein- þynningu snemma og grípa strax til viðeigandi ráðstafana og beita öflugri forvörn sem er kalk, D-vít- amín og líkamleg hreyfing. Eins og fram kemur í bæklingnum sem við erum að gefa út ráðast um 70% af hámarksbeinþéttni okkar af erfðum, en við getum haft áhrif á hin 30% með lífsháttum okkar.“ – Hvað er beinþynning eigin- lega? „Beinþynning er sjúkdómur í beinum sem einkennist af því að beinmassinn minnkar og beinvef- urinn rýrnar. Þegar beinin verða gljúp og stökk, er stóraukin hætta á beinbrotum, jafnvel við minnsta átak. Beintapið er „þögult“ og stigvaxandi. Fyrstu einkennin koma oft ekki í ljós fyrr en bein brotna.“ – Er hægt að eyða henni? „Með góðri forvörn allt lífið , sbr slagorðið okkar: „kalk við hæfi alla ævi“ auk D-vítamíns og hreyfingar, má seinka eða hægja á beintapinu sem óumflýjanlega verður, er ald- urinn færist yfir. Beintapið er mest hjá konum áratuginn eftir tíðahvörf, og þá er góð forvörn eins mikilvæg og á unglingsárun- um! Á síðustu árum hafa framfarir í lyfjaiðnaðinum gert sjúklingunum mögulegt að fá lyf, sem ekki ein- göngu auka beinmagnið, heldur fækka einnig sannanlega brotum. Þetta er sérstaklega mikilvægt nú, er nýjar upplýsingar hafa komið fram um hættuna sem fylgir lang- tíma hormónauppbótarmeðferð, þ.e. að aðrar meðferðarleiðir eru til fyrir þá einstaklinga sem eru komnir með beinþynningu.“ – Hvað er hún algeng og hversu hættuleg er hún? „Beinþynning verður algengari eftir því sem fólk verður eldra og má ætla að um sjötugt sé önnur hver kona haldin sjúkdómnum. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir afleiðingum beinþynningar- innar, þ.e. beinbrotunum sem eru 1.000 til 1.200 árlega hér á landi. Þriðja hver kona og áttundi hver karl munu brotna á lífsleiðinni vegna hennar.“ – Hvar standa Íslendingar gagnvart beinþynningu og bein- vernd? „Rannsóknir hafa sýnt að bein- þynning og afleiðingar hennar eru algengari á Norðurlöndum en annars staðar í heiminum. Ekki er að fullu ljóst hvort hér sé um erfðaþætti eða lífsstíl að ræða. Hins vegar eru heilbrigðisstarfs- menn að verða mjög meðvitaðir um þennan vanda svo og almenn- ingur, sem birtist t.a.m. í fyrir- spurnum til Beinverndar og heim- sóknum á heimasíðu félagsins. Forvarnar- starf Beinverndar hef- ur verið mjög öflugt og félagið fengið viður- kenningu fyrir það frá IOF, alþjóðlegu beinverndarsam- tökunum. Beinvernd hefur gefið út nokkra bæklinga, gert náms- efni fyrir grunnskóla, útbúið rat- leik fyrir börn og unglinga með spurningum um beinin og bein- heilsuna. Beinvernd er með heimasíðu, www.beinvernd.is og auk þess hefur Beinvernd staðið fyrir fræðslu fyrir heilbrigðis- starfsmenn og almenning.“ Halldóra Björnsdóttir  Halldóra Björnsdóttir er fædd í Reykjavík 12. apríl 1961. Íþróttafræðingur frá University of Alberta og uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands. Stundar nú mastersnám við Uppeldis- og menntunarfræðiskor félagsvís- indadeildar HÍ. Umsjón með morgunleikfimi Ríkisútvarpsins sl. 15 ár, stundakennari við námsbraut í sjúkraþjálfun HÍ, kenndi áður íþróttir við Öskju- hlíðarskóla í 10 ár og hefur verið frkv.stjóri Beinverndar síðan 2000. Maki er Birgir Þór Bald- vinsson og eiga þau fjögur börn, Kjartan Þór, Sigríði Þóru, Hall- dóru Þóru og Kristínu Þóru. Algengari á Norður- löndum Hlaupið þið nú eins og Saddam sjálfur sé á hælunum á ykkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.