Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„Gríðarlega vel skrifuð“
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
ED
D
1
91
47
10
/2
00
2
Frá höfundi Hótel Kalifornía
kemur nú ný skáldsaga.
Saga af síðustu hetjunni - Ísrael.
Stefán
Máni
„Gríðarlega vel
skrifuð bók.“
Súsanna Svavarsdóttir
„Afar góð skáldsaga.“
Kolbrún Bergþórsdóttir
„Persóna Ísraels er
flókin og áhugaverð.“
Jón Yngvi Jóhannsson
„... áhrifamikil og grípandi skáld-
saga sem á ekki eftir að gleymast
auðveldlega.“
Úlfhildur Dagsdóttir, Kastljós
ÍSLENSKUR sjómaður, Eiríkur Óð-
inn Hauksson, hélt til í björg-
unarbát í þrjár klukkustundir áður
en honum var bjargað um borð í
rússneskt flutningaskip eftir að
bátur hans fórst vestur af Eger-
sundi við vesturströnd Noregs, að-
faranótt sunnudags.
„Ég geri mér í raun enga grein
fyrir því hvað gerðist. Það komst
sjór inn í vélarúmið, en ég áttaði
mig á því þegar tækin duttu út. Þá
fór ég aftur í bátinn og sá að vél-
arrúmið var orðið hálffullt af sjó,“
sagði Eiríkur í samtali við fréttavef
Morgunblaðsins. Hann telur að um
20 mínútur hafi liðið frá því að
hann varð var við lekann þar til að
hann var búinn að klæðast björg-
unargalla og kominn um borð í
björgunarbátinn.
Hann hafði ekki ráð-
rúm til að kalla eftir
aðstoð áður en hann
yfirgaf bátinn.
Voru að flytja
eldsneyti
Eiríkur sagði að
vanalega væri mikil
umferð skipa á því
svæði sem báturinn
fórst á, allt að því 10
bátar á klukkutíma, en
hann varð ekki var við
neinar skipaferðir í
hátt á þriðju klukku-
stund. Um fimmleytið
um morguninn sá hann loks til
flutningaskipsins.
„Ég skaut upp
tveimur neyðarblysum
til þess að vekja at-
hygli á mér en var ef-
ins um að þeir hefðu
séð þau þar sem þeir
voru langt frá mér. Ég
var á báðum áttum
hvort ég ætti að nota
þriðja blysið þar sem
ég vissi að mér yrði
bjargað að lokum. Ég
taldi blysin og sá að ég
ætti nægilega mörg
blys eftir og ákvað því
að skjóta upp þriðja
neyðarblysinu.
Þá sneri skipið og
stefndi í áttina að mér. Svo kom í
ljós að þeir höfðu séð fyrsta blysið.
Þeir voru hins vegar ekki vissir um
hvort þeir ættu að ná í mig þar sem
þeir fluttu bensín og voru hræddir
vegna eldhættu af völdum blys-
anna. Þeir könnuðu hvort einhver
annar gæti náð í mig, en þar sem
alltof löng bið var í næsta bát var
ákveðið að sækja mig,“ sagði Eirík-
ur, sem fór með flutningaskipinu til
Fredericia á austurströnd Jótlands.
„Ég var í áfalli næstu tvo daga á
eftir, en er búinn að ná mér að
mestu leyti,“ sagði Eiríkur, sem
hefur búið tæplega átta ár í Dan-
mörku. Eiríkur er ættaður frá
Grindavík en hefur gert Isbjørn
HM-222, sem er 13,5 tonn að stærð,
út frá Hanstholm á Jótlandi. Hann
kveðst ætla að hefja störf í landi á
næstunni.
Rússneskt flutningaskip bjargaði íslenskum sjómanni við Noregsströnd
Hræddir við eldhættu frá neyðarblysunum
Eiríkur Óðinn
Hauksson
FIMM bandarískir hnefaleikamenn
munu mæta jafnmörgum Íslending-
um í hnefaleikakeppni í Laugardals-
höllinni 16. nóvember en að keppninni
standa Sextándinn og BAG, box-
klúbbur Hnefaleikafélags Suður-
nesja. Verður þetta fyrsta stóra
keppnin í ólympískum hnefaleikum
sem fram fer hér á landi.
Íslensku keppendurnir eru þeir
Þórður Svavarsson og Skúli Vilbergs-
son, sem unnu til gullverðlauna á
meistaramótinu HSK Box Cup í Hill-
erød í Danmörku, Árni Ísaksson, Æv-
ar Ómarsson og Axel Borgarsson.
Andstæðingar þeirra eru sterkir og í
hópi Bandaríkjamannanna eru m.a.
tveir kappar sem hafa gert atvinnu-
mannasamning og berjast því í síð-
asta sinn sem áhugamenn.
Hnefaleikar
í Laugar-
dalshöll
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ fellst
ekki á að Starfsmannasjóður
SPRON ehf. kaupi meirihluta stofn-
fjár í SPRON, þar sem það telur
kaupin ekki tryggja hagsmuni Spari-
sjóðsins með fullnægjandi hætti og
að í áformunum felist hætta á hags-
munaárekstrum á fjármálamarkaði.
Starfsmannasjóðurinn hefur ákveðið
að kæra úrskurðinn þar sem hann
telur forsendur FME fyrir synjun-
inni ekki standast. Segir stjórnarfor-
maður sjóðsins vinnubrögð FME
vera mótsagnakennd og leikreglur
óskýrar.
Jón G. Tómasson, stjórnarformað-
ur SPRON, sagði á blaðamannafundi
í gær að SPRON og Starfsmanna-
sjóðurinn teldu synjun Fjármálaeft-
irlitsins gerða á hæpnum forsendum
og því hefði verið ákveðið að kæra
úrskurðinn til stjórnsýslunefndar
sem tæki slík kærumál fyrir. Sagðist
Jón ekki sjá annað í stöðunni nú en
að bíða niðurstöðu þeirrar nefndar,
en kæruferlið tekur 8 vikur.
Ólíklegt að komist verði
lengra með FME
Ari Bergmann Einarsson, formað-
ur Starfsmannasjóðs SPRON ehf.,
segir þessa ákvörðun Fjármálaeftir-
litsins vera ákaflega mikil vonbrigði.
FME segist í áliti sínu vera tilbúið að
taka til athugunar mögulega út-
færslu á áformum sjóðsins og nýja
umsókn.
„Ég má ekkert útiloka í þessu efni
en eftir allar bréfaskriftirnar, fundi
með forsvarsmönnum Fjármálaeft-
irlitsins, samtal við þá í gær og álitið
tel ég einfaldlega að við komumst
ekki lengra með Fjármálaeftlirlitið,“
segir Ari. Svo virðist sem FME ætli
ekki að samþykkja að stofnfjáreig-
endur geti selt bréf sín á genginu 5,5
en það sé þó það verð sem hafi komið
til vegna ákvörðunar FME um að
stofnfjáreigendur mættu selja hlut
sinn á yfirverði.
Starfsmannasjóður SPRON var
stofnaður í sumar í kjölfar þess að
tilboð barst í stofnfjárskírteini í
SPRON frá fimm stofnfjáreigendum
í umboði Búnaðarbanka Íslands.
Í fréttatilkynningu frá Starfs-
mannasjóðnum kemur fram að
áform sjóðsins byggðust á samning-
um við stofnfjáreigendur um kaup á
54,2% stofnfjárhluta í SPRON á
genginu 5,5 og endursölu á 42,4%
eignarhlutarins, þannig að sjóðurinn
héldi eftir 11,8%.
Niðurstaðan kemur á óvart
„Það liggur ljóst fyrir og við erum
búin að sanna að við getum þetta. Við
erum með kaupendahópinn, það eru
fjárfestar tilbúnir að greiða þetta
verð,“ segir Ari. Hann segir að FME
hafi litið svo á að Starfsmannasjóð-
urinn yrði fullvirkur eigandi um
tíma, með 54% eignaraðild. Það hafi
þó legið ljóst fyrir að 42,2% yrðu seld
aftur.
„Þetta liggur allt ljóst fyrir og við
höfum skýrt fyrir FME hvernig við
ætlum að gera þetta. Þeir eru eigi að
síður að rengja okkur og gefa sér
ákveðnar forsendur.“ Starfsmanna-
sjóðurinn hafi alltaf haft það mark-
mið að bjóðast til að kaupa stofnfjár-
hlut þeirra 46% sem ekki höfðu verið
gerðir samningar við. Í umsókninni
til FME hafi ekki verið búið að
tryggja kaup á þessum hluta en nú
sé það þó í höfn.
Óskýrar leikreglur FME
Ari segist telja Fjármálaeftirlitið
fara frjálslega með vald sitt og
vinnubrögð þess séu mótsagnar-
kennd. „Leikreglurnar í þessu máli
hafa ekki verið skýrar, við erum að
reyna að vinna þetta eftir bestu vit-
und og samvisku. Okkur finnst að
leikaðferðirnar séu samdar jafnóð-
um. Um leið og við komum fram með
eitthvað kemur eitthvað nýtt upp.
Við erum t.d. búin að skrifast á við þá
sjö sinnum, sjö sinnum höfum við
sent þeim bréf og stórar greinar-
gerðir. Það hefur ekki staðið á upp-
lýsingum hjá okkur,“ segir Ari.
Hann nefnir að Fjármálaeftirlitið
hafi í greinargerð, sem birt var 19.
júlí í sumar, úrskurðað að það væri
stjórnarskrárvarinn réttur stofn-
fjáreigenda að selja á yfirverði. „Þá
fyrst förum við af stað til að verja
Sparisjóðinn. Þegar við leggjum
fram okkar umsókn og erum búin að
vinna þetta faglega gera þeir at-
hugasemd við að gengið sé of hátt!
Mér finnst þetta vera þversögn.“
Ari segist líta svo á að stjórnvöld
hafi talið að markaðurinn ætti að sjá
um þetta þar sem ekkert hafi verið
aðhafst þegar tilboð frá Búnaðar-
bankanum barst, með aðkomu fimm
stofnfjáreigenda í bankanum. „Nú er
markaðurinn að sjá um þetta og
hvað er gert? Þá er allt í einu gripið
inn í og ég vona svo sannarlega að
það sé ekki út af því að það sé vitlaus
aðili sem er að kaupa.“
Starfsmannasjóður SPRON ehf. kærir synjun Fjármálaeftirlits
Óskýrar leikreglur og mót-
sagnakennd vinnubrögð
Morgunblaðið/Kristinn
Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri og Jón G. Tómasson, formaður stjórnar SPRON, stinga saman nefjum við
upphaf blaðamannafundar síðdegis í gær þar sem ákvörðun Fjármálaeftirlitsins var kynnt. Á milli þeirra má sjá
Ara Bergmann Einarsson, formann stjórnar Starfsmannasjóðs SPRON ehf.
SAMKVÆMT áreiðanlegum heim-
ildum Morgunblaðsins mun utan-
ríkisráðherra hafa lagt til við utan-
ríkisráðherra hinna EES-ríkjanna,
Noregs og
Liechtensteins,
að Þorgeir Ör-
lygsson, núver-
andi ráðuneytis-
stjóri iðnaðar-
og viðskipta-
ráðuneytisins,
taki sæti sem
dómari við
EFTA-dómstól-
inn í Lúxemborg
til næstu sex ára
frá ársbyrjun
2003.
Þá lætur Þór
Vilhjálmsson,
sem hefur verið
dómari við
EFTA-dómstól-
inn frá upphafi,
af störfum fyrir
aldurs sakir.
Mun staðfestingar á þessari tillögu
utanríkisráðherra að vænta innan
skamms.
Að því er Morgunblaðið kemst
næst réð það miklu um ráðninguna
að EES-samningurinn hefur haft
mikil áhrif á málefnasvið iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytisins. Þorgeir
Örlygsson hafi af þeim sökum
mjög góða innsýn í framkvæmd
samningsins um Evrópska efna-
hagssvæðið. Þorgeir var um árabil
prófessor við lagadeild Háskóla Ís-
lands og borgardómari í Reykja-
vík.
Þorgeir
Örlygsson
verður dómari
við EFTA-
dómstólinn
Þorgeir Örlygsson
Þór Vilhjálmsson
HERÐUBREIÐ er þjóðarfjallið í
huga flestra Íslendinga ef marka
má niðurstöður könnunar sem
kynntar voru á degi Sameinuðu
þjóðanna í Salnum í Kópavogi í
gærkvöldi.
Að sögn Tryggva Felixsonar,
formanns Landverndar, tók vel
á þriðja þúsund manns þátt í
könnuninni sem fór fram á Netinu.
Flestir eða 48% töldu Herðubreið
vera þjóðarfjallið, 16% nefndu
Heklu og 13% Snæfellsjökul en alls
voru nefnd 75 fjöll. „Hekla er auð-
vitað frægust í útlöndum en hún
hefur valdið þvílíkum usla hér á
landi að menn velja kannski frekar
Herðubreið sem hefur ekki haft
sömu afleiðingar fyrir þjóðina,“
segir Tryggvi. Þótt könnunin sé
meira til gamans gerð telur
Tryggvi að hún gefi ágæta mynd
af því hvaða hug þjóðin ber til
fjallanna. Það héraðsfjall sem
oftast var nefnt var Esjan,
Kirkjufell við Grundarfjörð
hafnaði í öðru sæti en það reisu-
lega fjall hlaut einnig fjölmörg
atkvæði sem þjóðarfjall. Í næstu
sætum voru Keilir og Snæfells-
jökull og Eyfirðingar gátu varla
gert upp á milli Súlna og Kald-
baks.
Landvernd og Náttúru-
fræðistofnun Íslands stóðu fyrir
könnuninni í samstarfi við DV.
Ekki aðeins drottning íslenskra fjalla