Morgunblaðið - 25.10.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Stóráfangi Gídeonfélagsins
Framleng-
ingararmur
kirkjunnar
GÍDEONFÉLAGIÐá Íslandi náðimerkum áfanga
fyrir skemmstu, er félagið
afhenti 300.000. eintak
Nýja testamentisins, en
félagið hefur um árabil
gefið þá bók og hefur það
verið sú þungamiðja í
starfsemi félagsins sem
verið hefur hvað sýnileg-
ust þeim sem ekki þekkja
félagið. Gídeonfélagið er
þó annað og meira en félag
sem gefur bækur, það á
sér langa og merka sögu,
bæði ytra þar sem það var
fyrst stofnað, svo og á Ís-
landi. Sigurbjörn Þorkels-
son er forseti félagsins og
hann svaraði nokkrum
spurningum.
Segðu okkur fyrst –
…hvað er Gídeonfélagið?
„Gídeonfélagið er alþjóðasam-
tök leikmanna, áhugamanna um
útbreiðslu hins lifandi, kærleiks-
ríka og kröftuga orðs Guðs, Bibl-
íunnar og Nýja testamentisins.
Félagið var fyrst stofnað í
Bandaríkjunum árið 1899, af
þremur sölumönnum. Nú starfar
félagið í 175 löndum og hefur
gefið yfir þúsund milljón eintök
af Biblíunni og Nýja testament-
um, yfir einn milljarð eintaka. Ís-
land er þriðja landið þar sem
Gídeonfélagið hóf starfsemi sína.
Það var 30. ágúst 1945.
Stofnandi Gídeonfélagsins á
Íslandi var Vestur-Íslendingur-
inn Kristinn Guðnason. Naut
hann aðstoðar Ólafs Ólafssonar
kristniboða við að koma félaginu
á fót. Fyrsti formaður félagsins
og sá sem lengst hefur verið í
forystusveit þess ásamt mörgu
góðu fólki er Þorkell G. Sigur-
björnsson. Formlegir stofnfélag-
ar voru 17. Gídeonfélagið byggist
upp á þátttöku innfæddra liðs-
manna í hverju landi fyrir sig. Í
félaginu eru ekki prestar eða
safnaðarleiðtogar, aðeins leik-
menn.“
Hvert er markmið félagsins?
„Markmiðið er að fólk verði
meðvitað um hið græðandi og
lífgefandi orð Guðs og vitna
þannig, með útbreiðslu þess, um
kærleika hans. „Því elskaði svo
Guð heiminn að hann gaf son
sinn eingetinn til þess að hver
sem á hann trúir glatast ekki
heldur hafi eilíft líf.“ Þá er einnig
markmið félagsins að sameina
leikmenn, áhugamenn um út-
breiðslu Biblíunnar, til þjónustu
og starfa, þrátt fyrir annars ólík-
ar skoðanir.“
Hvað er þetta fjölmennt félag?
„Félagar á Íslandi eru um 300,
allir virkir að einhverju leyti. Í
heiminum öllum eru yfir 240.000
félagar í yfir 7.500 deildum. Fé-
laginu er skipt niður í deildir eft-
ir landsvæðum og borgarhlutum.
Hér á landi eru starfandi 16
deildir.“
Hverjum gefið þið
Nýja testamentið?
„Eintökum er komið
fyrir í náttborðsskúff-
um við hvert sjúkra-
rúm, í fangaklefum, eintökum á
íslensku annars vegar og þýsku,
ensku og frönsku hins vegar, er
komið fyrir á herbergjum hótela
og gistiheimila og stundum hafa
eintök verið gefin í skip og flug-
vélar. Hjúkrunarfræðingum og
sjúkraliðum eru gefin eintök við
útskrift og eitthvað hefur verið
um að lögreglu- og slökkviliðs-
mönnum hafi verið færð eintök.
Fyrir nokkrum árum var hand-
boltalandsliðinu okkar færð ein-
tök og árið 2000 var t.d. öllum Al-
þingismönnum og starfsmönnum
Alþingis gefin eintök. Stærsta
verkefni félagsins frá 1954 hefur
hins vegar verið að heimsækja á
hverju hausti alla skóla landsins
þar sem 10 ára börn stunda nám
og færa þeim persónulega eintak
af þessu óendanlega dýrmæta
orði. Skólarnir eru tæplega 200
og hefur okkur á undanförnum
árum tekist að heimsækja þá alla
árlega. Reyndar voru börnin 12
ára sem fengu fyrstu eintökin
1954. Þetta er því samtals orðinn
51 árgangur eða nánast allir Ís-
lendingar 10 til 60 ára, sem er
einsdæmi í heiminum.“
Er Gídeonfélagið trúfélag eða
bara félagsskapur innan þjóð-
kirkjunnar?
„Gídeonfélagið er bara eins og
hvert annað sjálfstætt starfandi
félag. Það er ekki sérstakur
söfnuður og er heldur ekki innan
þjóðkirkjunnar. Félagar eru hins
vegar allir meðlimir kirkjunnar,
þjóðkirkju eða fríkirkna. Það er
því þverkirkjulegt eða sam-
kirkjulegt, einskonar framlengd-
ur armur kirkjunnar.“
Verður einhver uppákoma í til-
efni af 300.000. bókinni?
„Í kvöld klukkan
20.30 verðum við með
þakkargjörðarhátíð af
þessu tilefni í húsi
KFUM&K við Holta-
veg. Þar munu meðal
annarra flytja ávörp forseti Ís-
lands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra og biskup
Íslands, herra Karl Sigurbjörns-
son. Um opið hús er að ræða og
því allir vinir og velunnarar fé-
lagsins velkomnir og bara allir
þeir sem fengið hafa Nýja testa-
mentið að gjöf frá félaginu, á
meðan pláss er í húsinu.“
Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson er
fæddur 21. mars 1964. Var fram-
kvæmdastjóri Gídeonfélagsins á
Íslandi 1986–1998 og forseti þess
síðan í maí 2001. Hefur verið for-
stöðumaður í Vatnaskógi frá
árinu 1989 og framkvæmdastjóri
KFUM&K í Reykjavík 1998–
2000, í tengslum við 100 ára af-
mæli félaganna. Verið fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju
frá 2000 og hefur ennfremur lagt
stund á ritstörf, m.a. gefið út átta
bækur frá 1995. Sigurbjörn er
kvæntur Laufeyju Geirlaugs-
dóttur og eiga þau synina Þorkel
Gunnar, Geirlaug Inga og Pál
Steinar.
Félagið ekki
sérstakur
söfnuður
Hún elskar mig, hún elskar mig ekki, hann elskar mig, hann elskar mig ekki, hún …