Morgunblaðið - 25.10.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.10.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 11 R í t a E d d u f e l l i 2 – B æ j a r l i n d 6 – s . 5 5 7 1 7 3 0 – s . 5 5 4 7 0 3 0 . O p i ð m á n . — f ö s . f r á k l . 1 0 — 1 8 , l a u . 1 0 – 1 5 . Innilegt þakklæti til allra sem heimsóttu okkur afmælisdaginn 19. okt. Starfsfólk Rítu 1. Helga Birna Jónasdóttir, Mosarima 5, 270 Mosfellsbæ. 2. Kolbrún Skjaldberg, Lautasmára 8, 201 Kópavogi. 3. Aðalheiður Alfreðsdóttir, Hrafnshöfða 12, 270 Mosfellsbæ. 4. Hjördís J. Sigvaldadóttir, Bröttukinn 11, 220 Hafnarfirði. 5. Anna Kjartansdóttir, Jöklafold 14, 112 Reykjavík. 6. Agnes Agnarsdóttir, Engjahlíð 3a, 221 Hafnarfirði. 7. Elva Hannesdóttir, Bylgjubyggð 5, 625 Ólafsfirði. 8. Ásta Haraldsdóttir, Vesturbergi 128, 111 Reykjavík. 9. Helga Lára Árnadóttir, Hábergi 7, 111 Reykjavík. 10. Friðbjörg Egilsdóttir, Unufelli 23, 111 Reykjavík. 11. Helga Torfadóttir, Byggðarenda 1, 108 Reykjavík. 12. Elín M. Óskarsdóttir, Eyjahrauni 19, 815 Þorlákshöfn. 13. María Guðmundsdóttir, Hvannalundi 9, 210 Garðabæ. 14. Kristjana Leifsdóttir, Hólmasundi 16, 104 Reykjavík. 15. Ingunn Jónsdóttir, Hólabraut 6, 780 Höfn. 16. Ragnheiður Gísladóttir, Digranesheiði 26, 200 Kópavogi. 17. María Hjaltalín, Flókagötu 15, 105 Reykjavík. 18. Maríanna Jónsdóttir, Breiðagerði 15, 108 Reykjavík. 19. Fanney Dóróthe, Hlíðargötu 26, 245 Sandgerði. 20. Særún Björnsdóttir, Birkihlíð, 565 Hofsósi. 21. Guðrún Jónsdóttir, Sigtúni 34, 800 Selfossi. 22. Ásthildur Þ. Einarsdóttir, Þrúðvangi 31, 850 Hellu. 23. Móeiður M. Þorláksdóttir, Suðurmýri 16, 170 Seltjarnarnesi. 23 happdrættisvinningar hafa verið dregnir út 1. vinningur fataúttekt kr. 23.000 22 vinningar PAS buxur að eigin vali Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) sími 568 2560 www.brudarkjolaleiga.is • Halda að • Lyfta upp • Lengja leggi S-M-L-XL-XXL Sendum í póstkröfu Bylting fyrir konur Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222 Stærðir frá 36-60 Samkvæmisfatnaður Björn Bjarnason gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík dagana 22. og 23. nóv- ember nk. Hann sækist eftir stuðningi í þriðja sæti listans. Björn er fæddur í Reykjavík í nóvember 1944. Hann lauk stúd- entsprófi við MR 1964 og lögfræði- prófi við Háskóla Íslands árið 1971. Björn var útgáfustjóri Almenna bókafélagsins 1971–1974, frétta- stjóri erlendra frétta á Vísi 1974, deildarstjóri í forsætisráðuneytinu 1974–1975 og skrifstofustjóri 1975– 1979. Hann var blaðamaður á Morgunblaðinu 1979–1984 og að- stoðarritstjóri Morgunblaðsins 1984–1991. Hann hefur setið á Al- þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1991 og gegndi starfi mennta- málaráðherra frá 1995–2002. Borg- arfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2002. Ásta Möller alþingismaður gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Hún sækist eftir kosningu í 4.–5. sæti í próf- kjörinu. Ásta er 45 ára Reykvíkingur. Hún tók sæti sem þingmaður Reykvíkinga fyr- ir Sjálfstæð- isflokkinn í síð- ustu alþingiskosn- ingum á árinu 1999. Ásta lauk B.Sc.-prófi í hjúkr- unarfræði frá Háskóla Íslands 1980. Hún starfaði við hjúkrun, hjúkrunarstjórnun og sem fræðslu- stjóri á Borgarspítalanum 1980–82 og 1984–1992. Fastur stundakenn- ari í námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands 1981–84, settur aðjunkt 1982–1984. Formaður Fé- lags háskólamenntaðra hjúkr- unarfræðinga 1989–1994 og for- maður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 1994–1999. Stundakennari við HÍ frá 1981. Ásta sat í stúdentaráði HÍ 1977– 1979 og var varaformaður Vöku, fé- lags lýðræðissinnaðra stúdenta við HÍ 1979–1980. Í stjórn Félags há- skólamenntaðra hjúkrunarfræðinga 1980–1982, í kjaranefnd Félags há- skólamenntaðra hjúkrunarfræðinga 1987–1988. Í öldungaráði Banda- lags háskólamanna 1984–1990, í stjórn Bandalags háskólamanna 1996–1998 og í miðstjórn Banda- lags háskólamanna 1989–1999. Varaformaður Sygeplejernes Sam- arbeid i Norden, samtaka hjúkr- unarfræðinga á Norðurlöndum 1996–1999. Í stjórn International Council of Nurses (ICN), alþjóða- samtaka hjúkrunarfræðinga frá 1999 og 2. varaformaður samtak- anna frá 2001. Í hjúkrunarráði 1996–1999. Í stjórn Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga frá 1994, for- maður stjórnar 1997 og 1999. Í stjórn heilbrigðis- og trygginga- nefndar Sjálfstæðisflokksins frá 1990, formaður nefndarinnar 1991– 1995. Varamaður í tryggingaráði 1995–1999. Í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins og ritari þingflokks Sjálfstæðisflokksins frá 1999. Á sæti í allsherjarnefnd, heil- brigðis- og trygginganefnd og um- hverfisnefnd Alþingis frá 1999 og tók sæti í fjárlaganefnd 2002. Hún hefur verið í Íslandsdeild Al- þjóðaþingmannasambandsins frá 1999 og er varaformaður kvenna- nefndar sambandsins frá 2002. Varamaður í Norðurlandaráði frá 1999. Guðlaugur Þór Þórðarson borg- arfulltrúi gefur kost á sér í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík. Guðlaugur Þór fæddist í Reykjavík í des- ember 1967. Hann lauk stúd- entsprófi við Menntaskólann á Akureyri árið 1987 og BA í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands árið 1996. Guðlaugur Þór var formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 1993–1997, sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1991–1997, framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins 1993–1997 og var varaþingmaður Sjálfstæð- isflokksins 1995–1999. Hann hefur verið formaður viðskiptanefndar Sjálfstæðisflokksins frá 1997 og verið varaformaður Alþjóða- samtaka ungra hægri- og miðju- manna. Guðlaugur Þór hefur verið borg- arfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1998. Soffía Kristín Þórðardóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í próf- kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir alþing- iskosningarnar næsta vor. Soffía skipaði fjórtánda sæti á framboðs- lista Sjálfstæð- isflokksins fyrir síðustu alþing- iskosningar en stefnir nú að öruggu þingsæti. Soffía Kristín, sem er 27 ára gömul, hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. Hún var varaformaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, 1997–1998, sat í stjórn félagsins 1995–1998 og í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1999–2001. Auk þess var Soffía varamaður í jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins 1998–2002 og varamaður í stjórn Heilsugæslunnar í Reykjavík á sama tímabili. Soffía Kristín útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1995. Hún lagði stund á lækn- isfræði við Háskóla Íslands en hún hóf síðar störf í upplýsingatækni- iðnaðinum þar sem hún hefur starfað undanfarin ár, nú síðast hjá hugbúnaðarfyrirtækinu VYRE í London. Soffía gegndi embætti for- manns Vöku, félags lýðræðissinn- aðra stúdenta, veturinn 2000–2001. Hún hefur jafnframt verið virk í alþjóða- samstarfi stúdenta og var m.a. framkvæmdastjóri Nordic Con- servative Student Union (NCSU) frá 1999–2000 og forseti NCSU frá 2000–2001. Soffía er varaformaður í Æskulýðsráði ríkisins og einnig hefur hún átt sæti í skólanefnd Fjölbrautaskólans við Ármúla. Þórunn Sveinbjarnardóttir al- þingiskona gefur kost á sér í flokksvali Samfylkingarinnar í Suð- vesturkjördæmi sem fram fer 9. nóvember nk. Hún sækist eftir 2. sæti framboðs- listans. Þórunn er 36 ára gömul, fædd 22. nóv- ember 1965 í Reykjavík. Hún varð stúdent frá MR og er stjórn- málafræðingur frá Háskóla Íslands og Johns Hopkins University í Bandaríkjunum. Þórunn tók sæti á þingi fyrir Samfylkinguna í Reykjaneskjördæmi árið 1999 en hún er búsett í Garðabæ. Árið 1991–1992 starfaði hún við móttöku flóttamanna hjá RKÍ og var í starfsþjálfun hjá EFTA í Genf. 1992–1995 var Þórunn starfskona Samtaka um kvennalista. Árin 1995–1997 var hún sendifulltrúi RKÍ við hjálparstörf í Tansaníu og Aserbaídsjan. Annar tveggja kosn- ingastjóra R-listans vorið 1998 og blaðamaður á Morgunblaðinu frá miðju ári 1998 þar til hún tók sæti á þingi. Þórunn var fyrsti formaður Röskvu, samtaka félagshyggjufólks í HÍ, og hefur m.a. setið í stjórn Hlaðvarpans og Evrópusamtak- anna. Heimasíða Þórunnar er á slóðinni http://www.althingi.is/tsv. Í DAG STJÓRNMÁL Björn Bjarnason Ásta Möller Guðlaugur Þór Þórðarson Soffía Kristín Þórðardóttir Þórunn Sveinbjarnardóttir ÞEGAR frestur rann út í gær til að gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík höfðu eftirtald- ir 17 frambjóðendur gefið kost á sér: Ásta Möller alþingismaður, Birgir Ármannsson, aðst. framkv.stj., Björn Bjarnason alþingismaður, Davíð Oddsson forsætisráðherra, Geir Hilmar Haarde fjármálaráð- herra, Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi, Guðmundur Hall- varðsson alþingismaður, Guðrún Inga Ingólfsdóttir hagfræðingur, Ingvi Hrafn Óskarsson, form. SUS, Katrín Fjeldsted alþingismaður, Lára Margrét Ragnarsdóttir alþing- ismaður, Pétur Blöndal alþingis- maður, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður, Soffía Kristín Þórðardótt- ir þjónustustjóri, Sólveig Péturs- dóttir dómsmálaráðherra, Stefanía Óskardóttir stjórnmálafræðingur og Vernharð Guðnason, formaður landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Í frétt frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að kjörnefnd Varðar – Fulltrúaráðsins fær framangreind- an lista í hendur og hefur kjörnefnd- in heimild til að bæta við frambjóð- endum ef henni sýnist svo. Prófkjörið fer fram 22. og 23. nóv- ember. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík Sautján gefa kost á sér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.