Morgunblaðið - 25.10.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 25.10.2002, Síða 16
SUÐURNES 16 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Brósi, Caracter, Carmen, Cleo, Dúddi, Elegans, Hár- og snyrting, Hárný, Hársaga, Höfuðlausnir, Jói og félagar, Medulla, Möggurnar, Salon Veh, Perma. w w w. i n t e r c o i f f u r e . i s LAUGARDAGAR verða framvegis helgaðir fjölskyldunni á Bókasafni Reykjanesbæjar. Auk þeirra fjöl- mörgu bóka, blaða og tímarita sem safnið hefur upp á að bjóða verður yngstu fjölskyldumeðlimunum boð- ið upp á sérstaka laugardags- dótakistu. Einnig verður á boð- stólum fjöldi spila sem fjölskyldan getur glímt við í sameiningu. Í stefnumótun Reykjanesbæjar er lögð áhersla á að bærinn verði fjölskylduvænt sveitarfélag og að undanförnu hefur verið lögð áhersla á þætti sem miða að því að styrkja fjölskylduna. Starfsfólk Bókasafns Reykjanes- bæjar vill með fjölskyldudögum taka þátt í því að gera Reykja- nesbæ fjölskylduvænt sveitarfélag. Að sögn Huldu Bjarkar Þorkels- dóttur, forstöðumanns bókasafns- ins, hafa fjölskyldur verið dugleg- ar að notfæra sér laugardagsafgreiðslutíma safnsins og því hafi verið ákveðið að ýta enn frekar undir heimsókn þeirra á safnið. „Með þessum hætti getum við samþætt ýmis atriði sem miða að því að styrkja fjölskylduna. Hér er nóg úrval bóka til að taka þátt í lestrarátakinu og við höfum jafn- framt útbúið lista yfir bækur sem gott er að nota í átaki sem þessu. Þá geta fjölskyldumeðlimir hlúð hver að öðrum með því að gera eitthvað skemmtilegt saman, eins og spila. Fólk tók strax mjög vel í þetta og sérstaklega hefur dóta- kistan vakið mikla lukku hjá þeim yngstu,“ sagði Hulda Björk. Teitur Ari og Birta Ósk Theódórsbörn kunnu vel að meta dótið í kistunni á fjölskyldudögum í Bókasafni Reykjanesbæjar. Reykjanesbær Fjölskyldan saman á laugardögum FLEIRI fluttust frá Suðurnesjum en komu þangað fyrstu níu mánuði ársins. Vegna þessa fækkar íbúum svæðisins um 58. Samkvæmt upplýsingum Hag- stofu Íslands fluttust fleiri frá fjór- um sveitarfélögum á Suðurnesjum en þangað komu. Brottfluttir um- fram aðflutta voru 31 í Reykja- nesbæ, 26 í Sandgerði, 12 í Vatns- leysustrandarhreppi og 4 í Gerðahreppi. Hins vegar varð fjölg- un í Grindavík, þangað komu 15 um- fram þá sem fóru. Fækkar um 58 íbúa vegna bú- ferlaflutninga Reykjanes BÆJARRÁÐ Grindavíkur lýsir áhyggjum sínum af uppsögnum heilsugæslulækna, í ályktun sem samþykkt var á fundi ráðsins í fyrrakvöld. Bæjarráðið skorar á deiluaðila að finna lausn svo tryggja megi nauðsynlega þjónustu við íbúa Grindavíkur. „Það er með öllu óviðunandi að Grindavík verði án heilsugæslulæknis um skemmri eða lengri tíma,“ segir í samþykkt bæjarráðs. Áhyggjur af læknaleysi Grindavík BYRJAÐ hefur verið á byggingu 43 íbúða í Garði undanfarin tvö ár og bú- ið að úthluta lóðum fyrir 25 til við- bótar. Þegar allar þessar íbúðir verða komnar í gagnið fjölgar íbúðum í sveitarfélaginu um 20%. Sigurður Jónsson sveitarstjóri hef- ur látið taka þessar tölur saman. Hann segir að nú þegar sé flutt inn í 16 af þessum íbúðum. Þar munar mest um tíu íbúðir sem byggðar voru fyrir Búmenn og flutt hefur verið í. Fleiri íbúðir eru í byggingu fyrir Bú- menn og þá er byrjað á 10 íbúðum fyrir aldraða í nágrenni Garðvangs. Sigurður sveitarstjóri segir að hreppsnefnd bjóði lág byggingaleyf- isgjöld til að stuðla að fjölgun íbúa þannig að sveitarfélagið verði hag- kvæmari eining. Þannig eru gjöld fyrir einbýlishús á bilinu 300–400 þúsund krónur. Telur hann að það eigi sinn þátt í þeim miklu bygginga- framkvæmdum sem nú standa yfir. Mun skila sér í fjölgun Íbúum hefur ekki fjölgað í Garð- inum á síðasta ári og í ár. Sigurður segir að breytt fjölskyldumynstur hljóti að valda því en einnig telur hann að einhverjir eigi eftir að flytja lögheimili sitt í sveitarfélagið. Segist sveitarstjórinn sannfærður um að umrædd aukning í byggingu íbúðar- húsnæðis muni skila sér í fjölgun íbúa á næstu árum. Þá aukist útsvarstekj- ur og hreppssjóður fái aukin fast- eignagjöld. Getur Sigurður þess að þótt íbúum hafi ekki fjölgað undan- farna mánuði hafi þeim fjölgað um rúm 12% á síðasta áratug. Sigurður segir að tölur Hagstof- unnar um búferlaflutninga sýni að mikil hreyfing sé á fólki. Fasteignir í Garði hafi selst fljótt og verð farið hækkandi. Sveitarstjórinn segir að það sé al- varlegt mál þegar fólk komist upp með að flytja ekki lögheimili sitt þeg- ar það flytur á milli staða. „Því miður virðist það vera svo að fólk komist upp með að hafa lögheimili sitt skráð í öðru sveitarfélagi en það býr í. Dæmi eru um slíkt hér í Garði. Erfitt er að fá Hagstofuna til að breyta þessu, þótt það sé hægt að sýna fram á það með rökum að fólk hafi búsetu hér í sveitarfélaginu,“ segir Sigurður. Einnig er aukning á atvinnuhús- næði. Fiskivinnsluhús hafa verið stækkuð og fleiri í undirbúningi. Þá hafa Samkaup fengið lóð fyrir nýja verslun í nágrenni bensínstöðvar Esso. Margar íbúðir í byggingu í Gerðahreppi Stefnir í 20% fjölgun íbúða Garður SKÚLI Thoroddsen telur að Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hafi misnotað jafnréttislögin þegar hann rökstuddi ráðningu Sigríðar Snæbjörnsdóttur í embætti fram- kvæmdastjóra Heilbrigðistofnunar Suðurnesja. Hyggst hann leita eftir rökstuðningi ráðuneytisins og öllum gögnum til undirbúnings þess að höfða mál á hendur ráðuneytinu vegna stöðuveitingarinnar. „Það er augljóst að ráðherra hef- ur ákveðið að hunsa vilja Suður- nesjamanna í þessu máli, ákvörðun hans fer gegn ótvíræðum vilja meiri- hluta stjórnar Heilbrigðisstofnunar- innar,“ segir Skúli þegar leitað er viðbragða hans við ráðningu Sigríð- ar Snæbjörnsdóttur í stöðu fram- kvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Eins og fram hefur komið stóð valið einkum milli tveggja umsækj- enda af átta, það er þeirra Sigríðar og Skúla sem metin voru hæfust. Fjórir fulltrúar í stjórn stofnunar- innar mæltu með ráðningu Skúla og einn mælti með ráðningu Sigríðar. Fulltrúi ráðherra í stjórninni, Hall- grímur Bogason í Grindavík, sem er formaður stjórnarinnar, greiddi Sig- ríði atkvæði. Þeir stjórnarmenn sem lögðu til að Skúli yrði ráðinn eru Böðvar Jónsson og Björk Guðjóns- dóttir, bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í Reykjanesbæ, Jórunn Guðmundsdóttir, fulltrúi Sandgerð- isbæjar, og Agnes Garðarsdóttir, fulltrúi starfsmanna. Við ákvörðun um að ráða Sigríði kvaðst ráðherra í yfirlýsingu styðjast við ákvæði laga sem kveði á um að stefnt skuli að því að framkvæmdastjórar sjúkrahúsa hafi sérþekkingu á rekstri sjúkra- húsa. Einnig hafi verið tekið mið af ákvæðum jafnréttislaga en engin kona hafi áður verið skipuð í emb- ætti af þessu tagi. Undirbýr málshöfðun Skúli segir að krafan um sérþekk- ingu geti ekki beinst gegn ráðningu sinni í starfið, hann búi yfir slíkri þekkingu. Hann segist hafa eins árs sérnám á þessu sviði við Norræna heilbrigðisþjónustuskólann í Gauta- borg og auk þess rekið heilbrigð- isstofnun á grundvelli þeirra laga sem ráðherra nefnir og hliðstæðra laga. Vísar hann þar til reksturs afeitrunarsjúkrahúss í Svíþjóð. „Þá standa eftir jafnréttissjónar- miðin sem hann byggir ákvörðun sína á og telur greinilega ráða úrslit- um. Þá hlýtur hann að meta Sigríði að minnsta kosti jafnhæfa mér ef ekki hæfari. Það er eingöngu mat ráðherrans sjálfs. Með þessu tel ég að hann sé að misnota jafnréttislög- in og tel að í því felist áskorun hans til mín um að láta á þessi ákvæði reyna fyrir dómstólum,“ segir Skúli. Hann kveðst munu gera það. Fyrst verði leitað eftir því að fá afrit af öllum þeim gögnum sem ráðherra byggi ákvörðun sína á, meðal annars greinargerð um mat á hæfni um- sækjenda, svo og rökstuðningi fyrir ákvörðuninni. Telur landlækni vanhæfan Landlæknir hefur eftirlit með heilbrigðisstofnunum landsins, gæð- um þjónustunnar sem þar er veitt og á að gæta hagsmuna sjúklinga. Skúli vekur máls á þessu og lætur þá skoðun í ljósi að þar sem Sig- urður Guðmundsson landlæknir sé eiginmaður nýráðna framkvæmda- stjórans hljóti landlæknisembættið að vera vanhæft til að sinna þessari skyldu sinni gagnvart Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja. Telur hann að með pólitískri ákvörðun hafi ráð- herrann sett sig út á hálan ís í þessu efni. Elsa B. Friðfinnsdóttir, aðstoðar- maður heilbrigðisráðherra, segist ekki sjá nein vandamál þessu sam- fara. Ef málefni tengd Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja komi upp muni landlæknir víkja sæti í málinu og að- stoðarlandlæknir eða einhver annar til þess bær aðili verða settur í hans stað. Skúli Thoroddsen unir ekki ákvörðun um ráðningu framkvæmdastjóra HSS Segir ráðherra hafa misnotað jafnréttislögin Keflavík Ljósmynd/Hilmar Bragi ÁÆTLAÐ er að 52 milljóna króna halli verði í ár af rekstri bæjarsjóðs Reykjanesbæjar, samkvæmt tillögu að endurskoðaðri fjárhagsáætlun. Er það 128 milljóna króna verri afkoma en gert var ráð fyrir í upphaflegri fjárhagsáætlun ársins. Árni Sigfússon bæjarstjóri lagði fram endurskoðaða fjárhagsáætlun í bæjarráði í gær. Í greinargerð bæj- arstjóra kemur fram að launakostn- aður hefur aukist um 133 milljónir frá því fjárhagsáætlun var gerð. Er þar aðallega um að ræða uppsafnaðar greiðslur í kjölfar starfsmats og nýir samningar við tónlistarkennara. Þá hefur bæjarráð samþykkt aukin út- gjöld að fjárhæð 134 milljónir kr. sem vísað hefur verið til endurskoðunar fjárhagsáætlunar. Fram kemur hjá bæjarstjóra að þar er meðal annars verið að bregðast við þörf fyrir nýjar kennslustofur, kostnaði við bruna- varnir og skertum framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Minni tekjur af gatnagerð Tekjur af gatnagerðargjöldum virðast ekki ætla að skila sér í sam- ræmi við áætlanir. Nú er gert ráð fyr- ir að þar vanti 69 milljónir upp á. Þá hafa endurgreiðslur frá varnarliðinu vegna þátttöku þess í holræsafram- kvæmdum ekki skilað sér með þeim hraða sem áætlað var í upphafi ársins en samningar tryggja greiðslur til Reykjanesbæjar innan tíu ára. Fram kemur að gengisþróun hefur verið jákvæð á árinu. Bæjarstjóri gerir ráð fyrir því að skuldir í árslok samsvari um 390 þúsund krónum á íbúa en þær námu um 400 þúsund krónum í upphafi árs. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í upphafi árs var gert ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði tæplega 76 milljónir króna á árinu. Nú er áætlað að halli verði á rekstrinum, 52 millj- ónir kr. 128 milljóna kr. verri afkoma Reykjanesbær TÓNLISTARSKÓLINN í Keflavík stóð fyrir strengjamótum á árunum 1994 og 1996, svipuðum mótinu sem Tónlistarskóli Reykjanesbæjar hélt um helgina. Að sögn Kjartans Más Kjartans- sonar, fyrrverandi skólastjóra Tón- listarskóla Keflavíkur, voru þátttak- endur þá einnig um 200, víðs vegar að af landinu. Af fyrirsögn fréttar um mótið um helgina mátti ráða að það hafi verið hið fyrsta sinnar tegundar. Svo er ekki eins og sést á upplýsingum Kjartans Más. Strengjamót voru haldin Keflavík ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.