Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 20

Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 20
LANDIÐ 20 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FYRIRTÆKIÐ Plastmótun ehf., sem er að Læk í Ölfusi, hefur um ára- bil endurunnið fiskikör og troll sem ekki er hægt að nota lengur sem slík. Að sögn Hjartar Jónssonar fram- leiðslustjóra eru vörunúmerin orðin hátt í eitthundrað hjá fyrirtækinu, sem hóf starfsemi sína árið 1982. Nú á dögunum kom gámur frá Færeyjum fullur af plasti og netum, sem end- urvinna á hér á landi. Stöðug þróun hefur verið í gangi og sumar hugmyndir af framleiðsluvör- um eru fengnar frá öðrum en aðrar eru heimatilbúnar. Landsmenn kann- ast allir við vegstikurnar, sem fram- leiddar eru hjá Plastmótun, einnig eru framleidd ýmiskonar rör, trjáhlíf- ar og fleira. En hvernig skyldi standa á því að fyrirtæki í Ölfusinu er farið að end- urvinna sorp frá Færeyjum? Hjálmar Árnason þingmaður og „kvart-Fær- eyingur“, eins og hann orðar það sjálfur, svarar því. „Ég vissi af þessu fyrirtæki, kynnt- ist því fyrir tilviljun. Það var svo sl. vor að ég var á þingmannafundi í Færeyjum og hitti þar Peter Adel- bert Ellingsgaard sem stýrir sorp- samlagi sveitarfélaganna í Færeyj- um. Hann sagði mér að þeir þyrftu að brenna sorp með tilheyrandi kostnaði og allri þeirri mengun sem fylgir. Það varð því að samkomulagi að ég kann- aði hug Plastmótunarmanna og í framhaldi var ákveðið að stofna hluta- félag um verkefnið,“ segir Hjálmar. Drasl verður að nytjahlutum Endurvinnslan verður hliðarverk- efni að Læk. Færeyingar skuldbinda sig til að koma sorpinu í gáma og koma þeim hingað til lands. Einnig munu þeir taka að sér sölu og dreif- ingu á því sem unnið verður úr plast- inu og trollunum. Sorpið fer þá frá Færeyjum sem ónýtt drasl og kemur aftur sem nytjahlutir. Að sögn Hjálmars er verið að kanna möguleika á svipaðri samvinnu við Grænlendinga og Hjaltlendinga. Hjálmar er þegar búinn að hitta þing- menn á Grænlandi og sýna þeir verk- efninu mikinn áhuga. Skipið með gámana sem koma frá Færeyjum fer héðan með fisk og ferðin til baka nýt- ist til að flytja endurtvinnanlegt sorp frá Færeyjum. Það leggjur að í Þor- lákshöfn, sem er í nokkurra kílómetra fjarlægð frá Læk. Það er því orðið stutt úr Ölfusinu og út í heim. Íslendingar endur- vinna færeyskt sorp Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Hjálmar Árnason þingmaður, bræðurnir Hjörtur og Gunnar Hrafn Jóns- synir frá Plastmótun og Peter Adelbert Ellingsgaard, forstjóri sorp- samlags sveitarfélaganna í Færeyjum, standa við fyrsta gáminn sem kom frá Færeyjum með endurvinnanlegt sorp. Hveragerði STYKKISHÓLMUR hefur mikla þýðingu sem veðurathug- unarstaður. Þar hafa farið fram lengstu samfelldar veðurmælingar á Íslandi. Árni Thorlacius kaup- maður byrjaði að skrá veðurlýs- ingar og hitastig árið 1845 og síð- an þá hafa veðurlýsingar verið skráðar í Stykkishólmi. Varðandi allan samanburð á veðurfari á Ís- landi gegnir Stykkishólmur mik- ilvægu hlutverki. Í haust var tekin í notkun sjálf- virk veðurathugunarstöð í Stykk- ishólmi, en fyrir er önnur stöð sem er vöktuð og lesið á mæla á þriggja stunda fresti. Að sögn Hreins Hjartarsonar á Veðurstofu er ástæðan fyrir sjálfvirku stöð- inni sú að veðurathugunarstöðin í Stykkishólmi hefur verið flutt til innan bæjarins eftir því hverjir hafa umsjón með henni hverju sinni, sem er ekki gott. Sú nýja verður hins vegar alltaf á sínum stað og fæst með því ná- kvæmari samanburður. Sjálfvirka stöðin skráir hitastig, rakastig og vindhraða, en veðurathugunar- maðurinn skráir til viðbótar veð- urþætti s.s. ský, skyggni, úrkomu- magn og tegund úrkomu. Á textavarpinu á síðu 172 koma fram upplýsingar frá báðum veð- urathugunarstöðvunum, sú sjálf- virka gefur upplýsingar á klukku- tíma fresti, en hin á þriggja tíma fresti. Sjálfvirka veðurstöðin er við setja upp skjá við stöðina svo að bæjarbúar og ferðamenn geti fylgst með veðrinu. Einnig að setja upp skilti þar sem sögð er saga veðurathugunar í Stykkishólmi. Veður mælt á tveimur stöðum í bænum Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Stykkishólmur Hjónin Ann Linda Denner og Þórir Halldórsson sjá um veðurathuganir í Stykkishólmi og lesa á mæla á þriggja stunda fresti. Þrátt fyrir sjálfvirknina mælast ekki allir þættir veðurs og er þá gott að hafa manninn til aðstoðar. innkeyrsluna í bæinn við bensín- stöðina sem er í næsta nágrenni við tjaldsvæðið. Það er verðugt verkefni fyrir Veðurstofu og bæjaryfirvöld að GÖMLU fjárhúsin í Saltvík sunnan Húsavíkur voru nýlega rifin og var brakinu komið burt með gröfu og vörubíl. Fjárhús þessi höfðu sett mikinn svip á umhverfið í hálfa öld, en þau voru byggð 1952 af Páli Guðmunds- syni þáverandi bónda í Saltvík og voru fyrir 200 fjár. Eftir að Páll flutti af jörðinni 1960 voru fjárhúsin notuð af næstu ábúendum og samfellt í nokkra áratugi eða þar til fjárbú- skapur lagðist af á staðnum. Vegfarendum á leið til Húsavíkur mun þykja sjónarsviptir að húsunum en óhjákvæmilegt var að rífa þau þar sem byrjað var að fjúka úr þeim þak- járn og fleira lauslegt. Morgunblaðið/AtliRústir gömlu fjárhúsanna í Saltvík. Fjárhús jöfnuð við jörðu Laxamýri SLÁTRUN er lokið í sláturhúsi Slát- urfélags Austurlands á Breiðdalsvík. Alls var slátrað þar rúmlega 15 þús- und fjár þetta haustið, þar af um 14 þúsund dilkum og um 1 þúsund full- orðnu. Meðalfallþungi dilka reyndist 15,95 kíló eða um 300 grömmun meiri en í fyrrahaust. Þyngsta dilk- inn átti Kjartan Herbjörnsson í Snæhvammi 30,8 kíló, Kjartan hafði einnig hæsta meðalvigt innleggjenda við húsið eða 20,2 kíló en hann lagði inn 113 dilka. Fjárflesti innleggjandi við húsið var Þorvaldsstaðabúið í Breiðdal þaðan komu 944 lömb og var meðalvikt þeirra 16,0 kíló. Flokkun falla var nokkuð góð en 12 lömb fóru í E-flokk sem er besti flokkurinn, 3% fóru í U, 44% fóru í R, 51% fór í O og 2% í P. Að sögn Stefáns Eðvalds Stefáns- sona sláturhússtjóra gekk sláturtíð- in vel, enda einmunatíð sem gerir alla flutninga á fé til hússins auðveld- ari sem og flutninga á kjötinu burtu. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins Björgvin Ragnarsson og Aðalsteinn Bjarkason við fláningu í sláturhús- inu á Breiðdalsvík en fláningin fer að hluta til fram með talíu. Fallþungi dilka meiri en í fyrra Norður-Hérað SAMSTARFSSAMNINGUR milli Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans á Laugarvatni við Skógrækt ríkisins á Suðurlandi, Landgræðslu ríkisins og Suður- landsskóga var nýlega undirritaður í Haukadal í Biskupstungum. Samn- ingurinn felur í sér að nemendur í þessum skólum fá fræðslu um skóg- rækt og landgræðslu og fara a.m.k. einn dag á ári í vinnuferð þar sem þeir kynnast skógar- og land- græðslustörfum af eigin raun. Markmið samningsins er að tengja kennslu í náttúrufræðum við landgræðslu og skógræktarstarfið og efla þannig þekkingu og áhuga framhaldsskólanemenda á mála- flokkunum. Fyrsta vinnuferðin var farin í Haukadal í Biskupstungum í tilefni af undirritun samningsins þar sem nemendur frá skólunum unnu að gerð skógarstígs fyrir hreyfihaml- aða og við frætínslu. Á móti mun fag- fólk flytja fræðsluerindi fyrir nem- endur í skólunum. Morgunblaðið/Kári Jónsson Sigurður Sigursveinsson, skólameistari FSu, Halldór Páll Halldórsson, skólameistari ML, Hreinn Óskarsson, skógarvörður Skógræktar ríkisins, Björn B. Jónsson, frkvstj. Suðurlandsskóga, og Guðjón Magnússon frá Landgræðslu ríkisins undirrita samstarfssamning í Haukadalsskógi. Fræðast um skógrækt og landgræðslu Laugarvatn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.