Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 29
MIKIL umræða hefur verið um
verðlag á matvörum undanfarnar
vikur, nú síðast hefur verið rætt um
háa álagningu í smásöluverslun.
Rifja má upp að eitt sterkasta efna-
hagsveldi landsins hefur verið byggt
upp á um 15 árum í kringum mat-
vöruverslun. Það fjármagn sem þar
hefur safnast saman hefur væntan-
lega að mestu aflast í ferlinu frá
framleiðendum til neytenda.
Annað sem athyglisvert er að
skoða í þessu sambandi er samband
verðlags (metið miðað við kaupmátt-
arvirði, PPP) og rauntekna. Með-
fylgjandi yfirlit er unnið af frá
Landbrugsrådet í Danmörku (Sam-
tökum framleiðenda og fyrirtækja í
vinnslu búvara) og sýnir þetta sam-
band í flestum löndum þess heims-
hluta sem okkur er gjarnt að bera
okkur saman við. Landbrugsrådet
bendir á að það sé einkenni á lönd-
um þar sem mikil velmegun ríkir að
tiltölulega stór hluti þjóðartekna
kemur frá atvinnugreinum sem hafa
mikla framleiðni eða geta selt afurð-
ir sínar á tiltölulega háu verði á al-
þjóðlegum markaði. Þess vegna
geta laun og ávöxtun fjárfestinga
verið hærri, án þess að íþyngja sam-
keppnishæfni og greiðslujöfnuðin-
um. Í þessum löndum verða at-
vinnugreinar sem eiga erfitt með að
auka framleiðni sína mikið (sérstak-
lega þjónustugreinar og vinnuafls-
frekar greinar) að geta greitt starfs-
fólki sínu nokkuð há laun og
hluthöfum viðunandi arð, því annars
dragast þessar greinar saman þar
sem bæði starfsfólk og fjárfestar
sækja í aðrar atvinnugreinar með
hærri framleiðni. Þættir sem einnig
ýta undir hátt verðlag hérlendis
samhliða þessu eru:
Tiltölulega lítill munur á tekjum
faglærðra og ófaglærðra.
Smæð matvörumarkaðarins hér á
landi.
Okkar eigin gildi s.s. kröfur til
gæða matvæla og heilbrigðis- og
umhverfiskröfur, sem gera sam-
anburð við önnur lönd erfiðan.
Það vekur athygli hve sterkt sam-
band er milli rauntekna og verðlags
og er Ísland þar engin undantekn-
ing, með tekjur um 25% yfir áætl-
uðu meðalverði og verðlag um 20%
yfir áætluðu meðaltali.
Það virðist stundum gleymast í
umræðum um matvælaverð hér á
landi og samanburð við ESB, að
þjóðartekjur á mann eru hér mun
hærri en að meðaltali innan ESB.
Flest þekkjum við mun á verðlagi
hér á landi og t.d. á Spáni og í
Portúgal. En þar syðra er verð á
flestum neysluvörum mun lægra en
hér á landi enda laun mun lægri.
Ábendingarnar hér að ofan sýnast
því þarft innlegg í umræðuna um or-
sakir hás matvælaverðs og raun-
hæft að spyrja um leið og kröfur um
lægra matvælaverð eru settar fram
hvort við viljum að laun lækki fyrir
störf sem tengjast framleiðslu og
vinnslu matvæla.
Eftir Ernu
Bjarnadóttur
„Þjóð-
artekjur á
mann eru
hér mun
hærri en að
meðaltali innan ESB.“
Höfundur er forstöðumaður fé-
lagssviðs Bændasamtaka Íslands.
Um verðmyndun
á matvörumarkaði
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 29
ÍBÚAR Garðabæjar mótuðu
metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir bæ-
inn á íbúaþingi um síðustu helgi. Um
250 Garðbæingar á aldrinum níu ára
til níutíu ára tóku virkan þátt í þess-
ari stefnumótun og með samstilltu
átaki tókst þeim að teikna upp Garða-
bæ framtíðarinnar. Bæjarbúar nutu
liðsinnis ráðgjafarfyrirtækisins Alta
sem hafði umsjón með þinginu. Við,
sem frá degi til dags störfum í þágu
bæjarbúa, sátum á hliðarlínunni og
fylgdumst spennt með.
Á þinginu kom meðal annars fram
sterkur vilji íbúa um að auka vægi
miðbæjarins. Sú hugmynd var
ríkjandi að það ætti að tengja Garða-
bæ saman um einhvers konar hrygg-
súlu eða miðbæjarás frá Vífilsstöðum
og niður að Strandhverfi. Þannig
næðist tenging frá fjöru til fjalls og
með þeim hætti ætti að reyna að
koma í veg fyrir að Hafnarfjarðar-
vegur og Reykjanesbraut kljúfi bæ-
inn jafn mikið og nú er. Ljóst var að
Garðbæingar vilja ekki byggja upp
stórar verslunarmiðstöðvar heldur
vilja þeir skapa bænum sérstöðu með
miðbæjarskipulagi sem býður upp á
iðandi mannlíf innan um fjölda minni
verslana eða veitingastaða í umhverfi
þrengri gatna og smárra torga.
Þátttakendur höfðu mikinn áhuga
á skólamálum og einna mest var rætt
um að skólarnir í bænum mættu ekki
verða of stórir eða bekkir of fjöl-
mennir. Lögð var áhersla á að ákveða
þyrfti staðsetningu nýs grunnskóla
fyrir Ása- og Strandhverfi. Kröfur
komu fram um bætta aðstöðu fyrir
íþróttaiðkun, bæði innanhúss og ut-
an.
Rauði þráðurinn í framtíðarsýn
bæjarbúa er að þeir vilja lifandi og
fjölbreytt samfélag. Þeir vilja að
Garðabær haldi áfram að þróast í
fjölskylduvænan hátæknibæ með að-
laðandi miðbæ. Byggðin eigi að þétt-
ast en hún megi ekki vera of há.
Nauðsynlegt sé að bjóða fjölbreytt
íbúðahúsnæði, jafnt fyrir unga sem
aldna.
Garðabær er fyrsta sveitarfélag
landsins til að boða til íbúaþings með
samráðsskipulagi í tengslum við end-
urskoðun aðalskipulags. Íbúaþing
hafa verið haldin í nokkrum sveitar-
félögum og hverfum en þá hafa af-
markaðri þættir verið teknir fyrir.
Með því að boða til íbúaþings þar sem
allir þættir sveitarfélagsins eru
ræddir er Garðabær að taka stærra
skref. Með því að boða til íbúaþings-
ins er Garðabær að taka stærra skref
í átt til virkara íbúalýðræðis en sveit-
arfélagið hefur áður gert. Í sögulegu
samhengi er vonandi runnin upp öld
virkara lýðræðis en við áður þekkt-
um. Líkt og síðasta öld einkenndist af
auknum rétti einstaklinganna til að
fá að greiða atkvæði mun þessi öld
vonandi einkennast af því að einstak-
lingarnir fái tækifæri til að tjá sig oft-
ar og ítarlegar um málefni sem
standa þeim nærri.
Niðurstaða íbúaþingsins í Garða-
bæ sýnir okkur að þegar íbúarnir
leggjast á eitt, þá ná þeir flugi saman.
Þeir leyfa sér að hafa stóra drauma
um framtíð bæjarfélagsins og kom-
andi kynslóða. Svo kraftmikil sýn
fyrir Garðabæ er dýrmæt, því líkt og
segir í orðatiltækinu, þá eru einungis
þeir sem sjá hið ósýnilega færir um
að framkvæma hið ómögulega. Veik-
leiki stjórnmálamanna er því miður
oft sá að þeir hugsa um of í kjörtíma-
bilum. Sýnin nær því stundum ekki
lengra en fjögur ár fram í tímann. Nú
hafa íbúar Garðabæjar gefið okkur
stjórnmálamönnunum dýrmætt
veganesti, ekki bara fyrir næstu 4 ár-
in, heldur næstu áratugina. Fyrir það
vil ég, fyrir hönd bæjarstjórnar í
Garðabæ, þakka.
Eftir Ásdísi Höllu
Bragadóttur
„Nú hafa
íbúar Garða-
bæjar gefið
okkur stjórn-
málamönn-
unum dýrmætt vega-
nesti...“
Höfundur er bæjarstjóri í Garðabæ.
Bestu þakkir!
ÉG HEF nú verið í hungurverkfalli
í þrjár vikur til að mótmæla náttúru-
spjöllum á hálendinu, þ.e. í sambandi
við Kárahnjúkavirkjun og Norðlinga-
ölduveitu. Eins og þú hlýtur að vita
fer enginn í hungurverkfall að gamni
sínu. Það tíðkast aðeins þegar fólki
finnst það beitt óheyrilegu ranglæti.
Þess vegna brenna á mér nokkrar
spurningar og þar eð Reykjavíkur-
borg á sæti í stjórn Landsvirkjunar
vona ég að þú getir svarað þeim. Sam-
kvæmt upplýsingum Náttúruvernd-
arsamtaka Íslands munu fjárskuld-
bindingar Reykjavíkurborgar hækka
um 65 milljarða króna vegna Kára-
hnjúkavirkjunar. Þá hækkar raforku-
verð til almennings um 30–50 pró-
sent, almennir vextir hækka um 2
prósent fyrir utan ýmsar aðrar stað-
reyndir sem varða landið fyrir austan
sem verður fyrir gróðureyðingu, upp-
blæstri og áfoki. Af hverju hafðir þú
ekkert við það að athuga þegar um-
hverfisráðherra felldi úr gildi úrskurð
Skipulagsstofnunar sem hafnaði
Kárahnjúkavirkjun vegna umtals-
verðra og óafturkræfra umhverfis-
spjalla?
Tilraunamat vegna rammaáætlun-
ar sýnir enn fremur að Kárahnjúka-
virkjun veldur hvað mestum um-
hverfisspjöllum en er ekki sú hag-
kvæmasta þrátt fyrir stærð. Hvers
vegna gerir Reykjavíkurborg ekki
kröfu um að upplýsingar sem þessar
séu nýttar og niðurstöður rannsókna
hafðar að leyðarljósi þegar ákvarðan-
ir eru teknar í virkjanamálum? Sam-
kvæmt arðsemismati Þorsteins Sig-
urlaugssonar verður Kárahnjúka-
virkjun rekin með tugmilljarða króna
tapi og er þá fórnarkosnaður ekki tek-
inn með í útreikninga. Hvernig stend-
ur á því að Reykjavíkurborg er tilbúin
að taka slíka áhættu og spila þannig
ábyrgðarlaust með almannafé? Af
hverju gerir Reykjavíkurborg ekki
kröfu um arðsemismat vegna fórnar-
kosnaðar?
Þegar ég kaus þig í vor stóð ég í
þeirri trú að R-listinn, en þar ert þú í
forystuhlutverki, stæði fyrir vinstri
menn, þ.e. félagshyggju, jöfnuð og
sparsemi og að finna leiðir sem hæfa
landinu betur. Þetta er stóriðja af
verstu tegund, Ingibjörg Sólrún, þar
sem bruðlað er með land og peninga,
og ástandið orðið þannig að sumir
þora ekki að tjá sig þó svo eigi að heita
að við búum í lýðræðisríki. Ég skora á
þig að svara bréfi mínu, þetta varðar
ekki bara mig og þig, heldur líka af-
komendur okkar. Tileinkum okkur
breytt og nútímalegri viðhorf.
Eftir Hildi Rúnu
Hauksdóttur
Höfundur er náttúruverndarsinni.
„Eins og þú
hlýtur að
vita fer eng-
inn í hung-
urverkfall að
gamni sínu.“
Opið bréf
til borgarstjóra
HVER er framtíðarsýn Seltirn-
inga? Lifa hér fáir og hugsa smátt?
Varla!
Aðalskipulag Seltjarnarness er í
mótun. Í vaxandi mæli taka íbúar
sveitarfélaga þátt í þeirri hugmynda-
fræðivinnu sem liggur að baki aðal-
skipulagi og skipulagsvinnu almennt.
Íbúarnir eru óþrjótandi uppspretta
hugmynda og ábendinga varðandi
framtíðarsýn. Að baki íbúaþingi með
samráðsskipulagi liggur ákveðin hug-
myndafræði. Miklu skiptir að íbúa-
þingsvinnan skili sér inn í stefnumót-
un og að fengnir séu sérfræðingar
sem kunna að leiða slíka hugmynda-
vinnu til lykta á farsælan hátt.
Laugardaginn 9. nóvember nk. kl.
10 verður haldið íbúaþing í Valhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi. Ráðgjafafyr-
irtækið Alta hefur sérhæft sig í að-
ferðafræði sem kallast samráðsskipu-
lag. Það mun stýra íbúaþinginu í
samvinnu við John Thompson & Part-
ners, sem er leiðandi fyrirtæki á
þessu sviði í Bretlandi og víða í Evr-
ópu. Þessi aðferðafræði skilar gagn-
legum upplýsingum frá íbúum til bæj-
aryfirvalda um þarfir og möguleika
bæjarfélagsins í skipulagsmálum sem
og ýmsum öðrum málaflokkum. Um
leið er íbúaþingið skemmtilegur at-
burður í bæjarlífinu, sem allir aldurs-
hópar geta tekið þátt í. Mjög mikil-
vægt er að fulltrúar allra aldurshópa,
fyrirtækja og félagasamtaka eigi sína
fulltrúa þar.
Íbúaþing Alta er skipulagt þannig
að íbúar geta valið sér viðfangsefni og
verið aðeins hluta dagsins eða allan
daginn, tekið þátt í hugarflugshópi
eða skipulagshópi, einum eða fleiri.
Ekki er síst mikilvægt að heyra og sjá
hverjar niðurstöður íbúaþingsins
verða, en ráðgjafateymi Alta og John
Thompson & Partners munu kynna
þær strax þriðjudagskvöldið 12. nóv-
ember nk. kl. 20:30.
Frekari kynningu og dagskrá verð-
ur dreift á næstu dögum. Allir sem
vettlingi geta valdið ættu að mæta á
íbúaþingið. Þetta er einstakt tækifæri
til að taka þátt í að móta stefnu Sel-
tjarnarness til næstu 20 ára.
Mætum öll og skoðum Nesið í nýju
ljósi!
Eftir Ingu
Hersteinsdóttur
„Þetta er ein-
stakt tæki-
færi til að
móta stefnu
Seltjarnar-
ness til næstu 20 ára.“
Höfundur er formaður skipulags- og
mannvirkjanefndar Seltjarnarness.
Nesið í nýju ljósi!
TÍÐRÆTT hefur verið í fjölmiðl-
um undanfarið leiðtogaleysi okkar
sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi.
Hefur umræðan snúist að miklu leyti
um að fá utanaðkomandi einstakling
til að bjarga málunum. Hafa mörg
nöfn verið nefnd, en ég læt ógert að
nefna þau öll hér. Hefur þessi um-
ræða verið heldur þreytandi, svo ekki
sé meira sagt.
Í mínum huga er þessi umræða
óþörf. Drífa Hjartardóttir er sannur
leiðtogi okkar í næstu kosningabar-
áttu. Hún tók við sæti 1. þm. Suður-
lands við erfiðar aðstæður, og sem
form. landbúnaðarnefndar Alþingis
hefur hún sýnt hvað í henni býr.
Frestun gæðastýringar í sauðfjár-
rækt var t.d. mikið hagsmunamál fyr-
ir bændur og þjóðina alla. Drífa hefur
sýnt að hún hefur dug, þor og það
áræði sem við viljum sjá í leiðtoga.
Hún hefur áunnið sér traust og alltaf
staðið undir því. Drífa vann öturlega
að sveitarstjórnarmálum í 16 ár. Var
formaður SSK 1987–1993. Sat í jafn-
réttisráði 1991–1999. Náði glæsilegri
kosningu inn í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins 1991 og sat þar í 8 ár. Þessi
trúnaðarstörf eru aðeins brot af þeim
fjölmörgu sem hún gegnir eða hefur
gegnt. Drífa hefur ætíð sýnt ábyrgð,
trúnað og heiðarleika í öllum sínum
störfum. Hún er sá foringi sem við
leitum að.
Ég frábið mér þá umræðu sem átt
hefur sér stað um „prinsinn“ eða
„prinsessuna“ á hvíta hestinum. Kjör-
dæmisráð flokksins hefur skipað upp-
stillingarnefnd sem er falið að skila
tillögu að uppstillingu fyrir lok næsta
mánaðar. Sú nefnd er nú að störfum
og ég vona að þeir sem eigi upptök að
þeim áróðri sem verið hefur í fjölmiðl-
um síðustu daga og reyndar allt síð-
astliðið sumar, að gefa nefndinni
vinnufrið. Ég treysti þessum 19 ein-
staklingum til að skila viðunandi nið-
urstöðu til kjördæmisráðs, niðurstöðu
sem allir sjálfstæðismenn kjördæm-
isins geta sætt sig við, niðurstöðu sem
mun „moka flórinn að stórsigri
flokksins“ 10. maí næstkomandi. Þar
er ég ekki í nokkrum vafa um að nafn
Drífu Hjartardóttur verði efst á blaði.
Leiðtogi leiðtoganna
Eftir Ingvar P.
Guðbjörnsson
Höfundur er formaður Fjölnis, f.u.s.
í Rangárvallasýslu, situr í kjördæm-
isráði flokksins í Suðurkjördæmi og í
stjórn SUS fyrir Suðurkjördæmi.
„Drífa hefur
sýnt að hún
hefur dug, þor
og það áræði
sem við viljum
sjá í leiðtoga.“
Meira á mbl.is/Aðsendar greinar