Morgunblaðið - 25.10.2002, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 25.10.2002, Qupperneq 31
Morgunblaðið/Pétur Óskarsson Hér eru framsögumennirnir fjórir um viðskipti Íslands og Bandaríkjanna. Frá vinstri: Magnús Gústafsson, for- stjóri Icelandic í Bandaríkjunum (áður Coldwater), Brad Horowitz, forstjóri Western Wireless, Kenneth Pet- erson, forstjóri Columbia Ventures, og Árni Sigurðsson, forstjóri Digital World Service, dótturfyrirtækis Bertelsmanns í Bandaríkjunum. ÓHÆTT er að fullyrða aðþau erindi sem þeir BradHorwitz, forstjóri West-ern Wireless Internat- ional, sem seldi hlut sinn í Tali í lið- inni viku, og Kenneth Peterson, aðaleigandi Norðuráls á Grundar- tanga og nú stærsti hluthafinn í Ís- landssíma eftir að Íslandssími keypti svo stóran hlut í Tali, fluttu á námstefnunni í gær hafi vakið hvað mesta athygli námstefnugestanna sem voru flestir úr bandarísku og ís- lensku viðskiptalífi en einnig sátu hana stjórnmálamenn, embættis- menn og starfsmenn utanríkisþjón- ustunnar. Dagskráin skiptist í fjóra hluta: Í fyrsta hluta voru viðskipti Íslands og Bandaríkjanna í brennidepli ásamt vangaveltum um fjárfesting- ar; í öðrum hluta var fjallað um ferðamennsku og möguleika ferða- þjónustunnar á vexti á næstu árum; í þriðja hluta var fjallað um fjár- málamarkaði vestan hafs og heima á Íslandi og lokahluti námstefnunnar var helgaður orkumálum, virkjun- um og vetnisnotkun. Það var Ólafur Jóhann Ólafsson, formaður Íslensk-ameríska versl- unarráðsins, sem setti námstefnuna í gærmorgun og bauð gesti vel- komna. Magnús Bjarnason, starf- andi aðalræðismaður Íslands í New York og viðskiptafulltrúi Íslands í Bandaríkjunum, og Pétur Óskars- son, viðskiptafulltrúi á ræðismanns- skrifstofunni í New York, báru hit- ann og þungann af skipulagningu námstefnunnar, sem hefur verið í undirbúningi um nokkurra mánaða skeið. Sósulestin á eftir að bæta við sig vögnum Fyrsta erindi dagsins flutti Magnús Gústafsson, forstjóri Ice- landic í Bandaríkjunum, þar sem hann velti upp spurningunni hvort sjávarfang yrði jafnmikill hluti af útflutningi Íslendinga til Bandaríkj- anna í framtíðinni og hann væri nú, eða um 77%. Magnús kvað litlar vonir hægt að binda við að útflutn- ingur sjávarfangs frá Íslandi ætti eftir að vaxa til muna í framtíðinni, vegna þess að ekki hefði gengið vel, hvorki hjá Íslendingum eða öðrum fiskveiðiþjóðum, að byggja upp og efla villta fiskistofna. Sagði hann að því væru meiri líkur á því að Íslend- ingar ættu eftir að auka fiskeldi og efla og þar af leiðandi gæti þar verið mögulegur framtíðarvaxtarbroddur í útflutningi. Erindi sitt nefndi Magnús „Will the Gravy Train Stay on Track?“ á ensku, sem gæti út- lagst á því ylhýra: Mun sósulestin haldast á sporinu? Niðurstaða Magnúsar var sú að sósulestin (mat- arlestin) ætti á næstu árum eftir að bæta við sig nokkrum vögnum en í þá vagna kæmu nýjar matvörur, há- gæðavörur og okkar kappsmál yrði að selja þær við sem hæstu verði, rétt eins og Björn bóndi hefði gert í Brekkukotsannál Laxness. Eftirsóknarvert að starfa á Íslandi Brad Horowitz, forstjóri Western Wireless International, sem í síð- ustu viku seldi sinn hluta í Tali til Ís- landssíma, lýsti í mjög áhugaverðu erindi hvernig Western Wireless hefði staðið að fjárfestingum sínum á Íslandi og hver hefði verið hug- myndafræðin á bak við fjárfesting- arnar. Erindi hans nefndist „Secret to Success“ eða Leyndardómur vel- gengninnar. Western Wireless International var stofnað 1996 sem dótturfyrir- tæki bandaríska fyrirtækisins Western Wireless Corporation, með það að markmiði að finna litla en þróaða markaði þar sem kynnu að leynast sóknarfæri fyrir fjarskipta- fyrirtæki. „Ísland féll því vel að þeirri mynd,“ sagði Horwitz. Horo- witz kvað það ekki hafa haft minnst áhrif á ákvarðanir um að fjárfesta á Íslandi að á Íslandi var stöðugleiki, stjórnvöld hefðu skapað viðskipta- legt umhverfi sem væri eftirsókn- arvert að starfa í og því hefði verið tekin sú ákvörðun 1997 að fara út í fjárfestingu á Íslandi í samvinnu við Norðurljós og byggja upp nýtt fjar- skiptafyrirtæki á Íslandi, Tal, þegar einkaréttur Landssímans á slíkum rekstri var afnuminn með lögum. Fjárfestingin hefði verið þrír milljarðar króna (34 milljónir doll- ara), þar af 800 milljónir í hlutafé frá hluthöfunum og 2,2 milljarðar í lánsfé og nú fimm árum síðar, þegar Western Wireless hefði selt hlut sinn, hefði fyrirtækið verið 74 millj- óna dollara virði. Ávöxtun fjár- magnsins hefði því verið sérstak- lega góð, á skömmum tíma. „Fjárfesting okkar á Íslandi er eiginlega kennslubókardæmi um það hvernig á að fjárfesta í þessum geira og ná góðum árangri,“ sagði Horwitz og þakkaði þann árangur ekki síst hæfu, duglegu og vinnu- sömu starfsfólki. Smæðin gerir mögulegt að ráðast hratt í hlutina á Íslandi Kenneth Peterson, forstjóri Col- umbia Ventures og eigandi Norður- áls á Grundartanga, fjallaði í erindi sínu um fjárfestingar í orkukræfum iðnaði. Peterson sagði að áður en niðurstaða Columbia Ventures varð sú að reisa álver á Íslandi, hefði ver- ið gerð könnun á vegum fyrirtæk- isins á mögulegri staðsetningu fyrir álver um allan heim. Tvö lönd hefðu á endanum komið til greina, ótrú- lega ólík lönd, Ísland og Venezúela. Hann sagði að það hefði einnig haft mikil áhrif á Columbia Ventures við endanlega ákvarðanatöku hversu hratt væri hægt að ráðast í hlutina á Íslandi. Það hefði hjálpað til að Col- umbia Ventures væri lítið fyrirtæki á alþjóðlegan mælikvarða og Ísland væri líka fremur lítil þjóð. Smæðin hefði gert hraðann við ákvarðanatöku mögulegan og ekki væri verið að flækja hlutina um of á Íslandi. Í mars 1997 hefði fengist starfsleyfi fyrir verksmiðjuna á Grundartanga og í júní ári síðar, þ.e. 1998 hefði álbræðslan hjá Norðuráli hafist. „Þetta var líklega methraði í uppbyggingu á álverksmiðju,“ sagði Peterson og bætti við að það hefði mjög auðveldað allar ákvarðanir og hraðann við uppbygginguna að verktakar við byggingu álverk- smiðjunnar voru íslenskir. Staða Íslands innan EES jákvæð Þá hefði staða Íslands innan EES (Evrópska efnahagssvæðisins) einnig haft áhrif á ákvörðunina um að reisa álbræðslu á Íslandi því hægt hefði verið að flytja ál til Evr- ópusambandslanda vegna þess. Pet- erson kvaðst fyllilega taka undir orð Horwitz um að íslensk stjórnvöld hefðu lagt mikið af mörkum til þess að fá erlenda fjárfesta til að horfa til Íslands. Hann sagðist telja að það væri algjört lykilatriði. Það var Jakob Falur Garðarsson, aðstoðarmaður Sturlu Böðvarsson- ar, sem flutti ávarp um ferðaþjón- ustuna og horfur í forföllum ráð- herrans. Einnig gerði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, grein fyrir því hvernig flug milli Íslands og Bandaríkjanna hefði þróast síð- astliðna hálfa öld. Ed McKelvey, yfirhagfræðingur hjá Goldman Sachs Group, flutti er- indi um horfur í bandarískum efna- hagsmálum, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, fjallaði um markaðshorfur á Íslandi. Valur Valsson, forstjóri Íslandsbanka, fjallaði um tækifæri fjárfesta á Ís- landi. Lokapartur námstefnunnar var tileinkaður virkjanamálum, þar sem Friðrik Sophusson, forstjóri Lands- virkjunar, fjallaði um hversu mikil orka væri enn ónýtt á Íslandi og hversu mikið hefði verið virkjað árið 2010. Jón Björn Skúlason fjallaði um notkun vetnis sem orkugjafa og dr. Stephan Tang velti upp spurn- ingum um það hvenær kæmi að því að vatn yrði eldsneytið sem við sett- um á bílana. Rætt um viðskipti Íslands og Bandaríkjanna í New York Fjárfesting á Íslandi orðin eftirsóknarverð Húsakynni The Scandinavian House í New York voru þétt setin á námstefnu íslensk-amerísku verslunarsamtakanna í gær, þar sem viðskipti Íslands og Bandaríkjanna við upphaf 21. aldarinnar voru í brennidepli. Agnes Bragadóttir fylgdist með námstefnunni. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 31 a, bólgur angvinna ölskyldu- n. og lífsstíl eir sem ttu, offita þeir sem neyttu fituríkrar og trefjasnauðr- ar fæðu væru einnig í þeim hópi. Sagði hann fjölbreytta og holla fæðu auk reglubundinnar hreyf- ingar geta átt þátt í að draga úr hættu á ristilkrabbameini. Talið er unnt að draga úr tíðni ristilkrabbameins með fjöldaskim- un, skipulagðri leit. Er talið að fækka megi dauðsföllum með því um allt að 30% og jafnvel meira. Ásgeir Theodórs kveðst sjálfur meðmæltur fjöldaskimun og telur ekki hafa verið gert nóg hérlendis til að ráðast gegn sjúkdómnum. Vísaði hann til þess að góður ár- angur hefði verið af leitarstarfi Krabbameinsfélagsins varðandi legháls- og brjóstakrabbamein. Hann sagði kostnað ekki liggja ljósan fyrir en gera mætti ráð fyrir að hann yrði tugir milljóna króna árlega. Talið er að kostn- aður vegna meðhöndlunar ristil- krabbameins hérlendis sé milli 350 og 500 milljónir króna árlega. Ákvörðun um fjöldaskimun pólitísk Ásgeir sagði í samtali við Morgunblaðið að ákvörðun um fjöldaskimun eða kembileit væri pólitísk og lagði áherslu á að fræðsluherferðin nú væri eitt og hugsanleg fjöldaskimun síðar væri annað mál og óskylt. Brýnt væri að fá í reglulegt eftirlit þann hóp sem væri í mestri áhættu, þ.e. þá sem hefðu haft sepa eða bólgur í ristli og hefðu ættarsögu um slíkt. Gætu það verið nokkur hundruð manns og beindist fræðsluherferðin ekki síst að því að ná til þeirra. Fjöldaskimun tæki hins vegar til allra sem væru 50 ára og eldri og einkennalausir og væri allt annar handleggur. Á vegum landlæknisembættis- ins hefur málið verið kannað nokkuð og sagði Haukur Valdi- marsson aðstoðarlandlæknir á fundinum að á næstunni yrði skipuð framkvæmdanefnd. Myndi hún meta hvort og með hvaða hætti skimun kæmi til greina. riðja algengasta krabbameinið á Íslandi 0 dauðsföll érlendis Morgunblaðið/Jim Smart ræðsluátakið. F.v. læknarnir Haukur Valdi- dóttir og Sigurður Ólafsson. ynja sepi þróast í illkynja æxli. Allt að 10 ár geta a kirtilæxlis þar til úr verður krabbameinsæxli. stu fundi . ldur eng- nríkisráð- -ríkjanna á fundin- ari viku; norskir ð endur- andi vægi kuðu Evr- i og að ng EES- gufa upp. sen, utan- a Noregs, að vinna urskoðun um Evr- agssvæðið í að sam- ríkin smá. r en þeir r. En það ess að við okkur þá möguleika sem við höfum, þar með talið í EES-ráðinu,“ segir Petersen. Sverrir segir að ekki hafi staðið til að afgreiða fiskverslunarþáttinn á fundinum. „Við höfum hamrað á okkar sjónarmiðum í sambandi við stækkunina, að við séum tilbúnir til þess að taka á okkur þær skyldur sem fylgja stækkuðu EES-svæði. En á móti ætlumst við líka til þess að við fáum óhindraðan aðgang að mörkuðum í þessum löndum og þá sérstaklega með fiskafurðir. Þetta ítrekuðum við enn og aftur. Við lögðum mikla áherslu á að fríversl- un með fisk, eins og hún er núna við umsóknarlöndin, félli ekki niður í reynd þegar þessi ríki eru komin inn í Evrópusambandið.“ Sverrir Haukur segir að Íslend- ingar og Norðmenn séu algerlega samstíga í þessum kröfum þótt við- skipti Norðmanna, einkum við ríkin í Austur-Evrópu, hafi til þess verið mun meiri en okkar Íslendinga. „Menn eru auðvitað minnugir þess,“ segir Sverrir, „sem gerðist árið 1994 þegar Svíar og Finnar gengu í ESB og fríverslunarsamn- ingar okkar við þesi ríki féllu niður en þá lentum við í því að fá úthlutað kvótum miðað við viðskiptin þrjú árin þar á undan.“ Sverrir tekur fram að nauðsyn- legt sé að vinna vel við að koma samningum í höfn sem fyrst þannig að hægt verði að staðfesta EES- samninginn við nýju aðildarríkin um leið og staðfesting fer fram á að- alsamningunum í þjóðþingum þess- ara tíu ríkja sem væntanlega muni ganga í ESB. Sverrir segir að það geti vart tal- ist til tíðinda að Chris Patten, sem fer með utanríkismál í fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins, hafi ekki setið fundinn en auð- vitað þætti mönnum gott ef framkvæmdastjórar á vegum ESB sæktu fundi EES-ráðsins. Á þess- um fundi hafi af hálfu ESB verið Bertel Haarder, Evrópumálaráð- herra Dana, sem nú eru í forsæti fyrir Evrópusambandið. Sverrir segir að þetta hafi verið hefðbundinn fundur hjá EES- ráðinu þar sem farið hafi verið yfir þann árangur sem hafi orðið í sam- starfi á sviði EES-samningsins undanfarna sex mánuði. „Þarna kom t.d. í ljós að það hef- ur tekist að koma mun fleiri gerðum í réttan farveg til lagatöku hér á landi; núna eru mun færri gerðir sem á eftir að lögleiða eða aðeins 99 talsins um mitt þetta ár en um ára- mótin voru þær 170. Þannig að þetta sýnir að kerfið vinnur ágæt- lega og það skiptir vissulega máli að það sé ekki töf hjá okkur við að inn- leiða gerðir sem sameiginleg nefnd EES-ríkjanna hefur komist að nið- urstöðu um,“ sagði Sverrir Haukur Gunnlaugsson. í Lúxemborg áfram- íverslun afurðir miði“ EFTA-ríkjanna að rði margfalt hærri sjóð- tar landbúnaðarafurðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.