Morgunblaðið - 25.10.2002, Page 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 35
PRÓFKJÖR Samfylkingarinnar í
Reykjavík fer fram hinn 9. nóvem-
ber nk. Meðal fram-
bjóðenda er Ágúst
Ólafur Ágústsson
formaður Ungra
jafnaðarmanna. Ég
hef þekkt Ágúst Ólaf
í nokkur ár og hef
fylgst með hans
ötula starfi innan Samfylkingarinn-
ar. Hann hefur barist af krafti fyrir
stefnumálum sínum og unnið mikið
starf í stefnumótun Samfylkingar-
innar. Ágúst Ólafur er til að mynda
annar höfunda sjávarútvegskaflans í
bókinni Evrópuúttekt, sem Samfylk-
ingin gaf út fyrir um ári. Í þeim kafla
bendir Ágúst Ólafur á að sjávarút-
vegsstefna Evrópusambandsins er
ekki hindrun að aðild Íslands að
sambandinu eins og af er látið. Þvert
á móti telur hann að ýmislegt í lög-
um og innri gerð Evrópusambands-
ins geri það að verkum að líklega
yrði fallist á sérhagsmuni Íslands,
komi til aðildar landsins að Evrópu-
sambandinu.
Ágúst Ólafur Ágústsson er ungur,
kappsfullur og áræðinn maður.
Hann er 25 ára og lýkur prófi í lög-
fræði og hagfræði í vor frá Háskóla
Íslands. Ágúst Ólafur er verðugur
fulltrúi sinnar kynslóðar á Alþingi
Íslendinga.
Ágúst Ólaf
í 4. sætið
Gunnar Alexander Ólafsson,
fyrrverandi formaður Sambands
ungra jafnaðarmanna, skrifar:
FEMINISMI hefur lengi verið
helsta tæki kvenna til að ná fram
jöfnum kjörum. En
hvað verður um fem-
inisma þegar gler-
þakinu er náð? Þeg-
ar óréttlæti er ekki
áberandi dregur úr
áhuga fólks og að-
gerðir til jöfnuðar
eru litnar hornauga. Því er brýnt
fyrir feminista að laga sig að breytt-
um aðstæðum og leita nýrra leiða í
baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.
Herskáu aðferðirnar sem nýttust
svo vel á sínum tíma hafa þveröfug
áhrif í dag. Fólk hvekkist við og neit-
ar að hlusta á gild rök. Því er þörf á
rólegri og stöðugri herferð til að ná
til fólks. Bryndís Hlöðversdóttir er
gott dæmi um stjórnmálakonu sem
hefur tekist að halda uppi merkjum
feminismans við nýjar aðstæður og
samþætta jafnréttisstefnu í öllum
sínum verkum.
Bryndís hefur sýnt að hún er
verðugur leiðtogi sem Samfylkingin
er stolt af. Þess vegna kýs ég Bryn-
dísi Hlöðversdóttur í 2. sæti í kom-
andi prófkjöri í Reykjavík.
Bryndís Hlöðvers-
dóttir – nútímaleg
jafnréttisstefna
Bryndís Nielsen, varaformaður
Ungra jafnaðarmanna, skrifar:
NÆSTKOMANDI laugardag
velja framsóknarmenn í efstu sex
sæti á framboðslista
flokksins í Suðvest-
urkjördæmi fyrir
komandi alþing-
iskosningar.
Páll Magnússon,
aðstoðarmaður iðn-
aðar- og við-
skiptaráðherra, hefur gefið kost á
sér í annað sæti á lista flokksins.
Pál þekki ég vel og ég mun styðja
hann í það sæti. Páll var varamaður
í bæjarstjórn Kópavogs í tvö kjör-
tímabil frá árinu 1990 til 1998.
Hann tók að sér mörg vandasöm
trúnaðarstörf og þrátt fyrir ungan
aldur leysti hann þau öll vel af
hendi. Meðal annars var Páll for-
maður íþróttaráðs Kópavogs í átta
ár og stýrði einni mestu uppbygg-
ingu á því sviði í sögu Kópavogs.
Páll hefur frá árinu 1999 verið að-
stoðarmaður iðnaðar- og við-
skiptaráðherra og hefur í þeim
störfum öðlast mikla reynslu og
góðan skilning á málefnum Alþingis
og þjóðlífsins í heild. Ég skora á
fulltrúa á kjördæmisþingi flokksins
nú á laugardag að tryggja Páli
glæsilega kosningu í annað sæti
listans.
Styðjum
Pál Magnússon
í 2. sæti
Sigurður Geirdal bæjarstjóri
í Kópavogi skrifar:
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Einstakt tækifæri
Vættaborgir - sérhæðir
Nýjar glæsilegar sérhæðir í
raðhúsalengju á frábærum
stað í Grafarvogi. Um er að
ræða neðri sérhæðir, ca 80-90
fm 3ja herbergja, og efri sér-
hæðir, ca 150-160 fm 4-5 her-
bergja, m. innbyggðum bílskúr.
Stutt í alla skóla, verslun og
þjónustu við Spöngina. Eignirnar til afhendingar mjög fljótlega og á
næstu mán., fullbúnar að utan, tilbúnar undir tréverk að innan á
góðu verði, 9,2 millj. (neðri hæð) og 14,2 millj. efri hæðin. Hægt að
fá keypt fullbúið án gólfefna með flísal. baði. Verð þá 11,2 millj. og
17,2 millj. Hægt að fá allt að 9,0 millj. húsbréf á hverja eign. Hægt
að kaupa aðra íbúðina í hverju raðhúsi eða báðar og fá allt að 8-9,0
millj. húsbréf á hvora eign (örugglega 9 millj. á efri hæðina). Hér er
um frábæran kost að ræða. Fyrstur kemur fyrstur fær. Lyklar á skrif-
stofu Valhallar og teikningar.
Tilboðsverð
Baðinnréttingar
Mikið úrval
Síðumúla 34, Fellsmúlamegin
Opið 9-18, lau.: 10-14
Sími 588 7332