Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 40

Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 40
MINNINGAR 40 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristín Halldórs-dóttir fæddist 1. febrúar 1924 í Reykjavík. Hún varð bráðkvödd í Reykja- vík 14. október síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Kristól- ína Þorleifsdóttir, f. í Haga í Holtum í Rangárvallasýslu 12. september 1898, d. 21. mars 1962, og Halldór Sigurðsson, beykir, f. á Péturs- borg í Glæsibæjar- hreppi í Eyjafirði 27. ágúst 1893, d. 30. nóvember 1981. Systkini Kristínar eru: Jón Krist- inn, f. 9. desember 1925, d. 9. júlí 1978, Auður, f. 5. nóvember 1927, Halldór Geir, f. 28. júlí 1929, og Unnur Anna, f. 1. nóvember 1942. Kristín giftist 2. júní 1945, Ole P. Pedersen garðyrkjustjóra, f. 22. september 1913, d. 27. desember 1984. Börn þeirra: Halldór Krist- inn, f. 23. maí 1946, d. 7. mars 1947, Halldór Kristinn, f. 21. des- ember 1947, Bendt, f. 24. ágúst 1949, kvæntur Kolbrúnu Guðjóns- dóttur, þau eiga þrjú börn og sex barnabörn. Einar Ole, f. 6. mars 1952, kvæntur Helgu Hannesdótt- ur, þau eignuðust fimm börn og eru fjögur á lífi og eitt barnabarn. Auður Anna, f. 2. desember 1957, gift Guðmundi Kjartanssyni og eiga þau tvo syni. Kristín ólst upp í Reykjavík, gekk í Miðbæjarskólann og var veturinn 1941–1942 í húsmæðra- skólanum á Hverabökkum í Hveragerði. Þau Kristín og Ole hófu búskap í Hveragerði en fluttu fljótlega til Reykjavíkur og bjuggu lengst í Kirkjuhvoli í Foss- vogi. Kristín vann við fiskvinnslu á Akra- nesi um tíma á sínum yngri árum og ýmis- legt sem til féll þar og í Reykjavík. Flest sumur frá árinu 1954 til 1978 vann Kristín við sumardvalar- heimili fyrir börn, var ráðskona á Barnaheimili Vor- boðans í Rauðhólum og sumar- dvalarheimili Mæðrastyrksnefnd- ar í Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit, veitti forstöðu sumardvalarheimili Reykjavíkurdeildar Rauða kross- ins á Silungapolli og á Jaðri. Krist- ín gekk ung að árum til liðs við Húsmæðrafélag Reykjavíkur og var valin fulltrúi þess í Mæðra- styrksnefnd til margra ára. Var einn af stofnendum Kvenfélags Grensássóknar, sat í stjórn þess um árabil þar af formaður í tutt- ugu ár. Starfaði í sóknarnefnd Grensássafnaðar í á þriðja tug ára, var fulltrúi safnaðarins á héraðs- fundum Reykjavíkurprófastsdæm- is vestra og sat í fulltrúaráði Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir hönd prófastsdæmisins í þrjú kjör- tímabil og á Leikmannastefnu kirkjunnar um nokkurt skeið. Útför Kristínar verður gerð frá Grensáskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Amma mín í Kirkjuhvoli var stór og mikil kona, bæði að vexti og í huga. Hún kom víða við og hafði álit bæði á mönnum og málefnum. Ljós- lifandi eru mér kaffi- og matarveisl- urnar sem hún bauð í af margvís- legu tilefni og alltaf fullt hús af fólki. Suma þekkti ég, en aðra ekki en öll- um skyldi heilsað með handabandi – það þótti ömmu vera sjálfsögð kurt- eisi. Hvað mér fannst amma vera flott. Hún fór aldrei neitt nema með hatt og svo reykti hún vindla. Það þarf kannski ekki mikið til að lítil hnáta líti upp til ömmu sinnar, enda barnssálin svo hrifgjörn. Þegar litla hnátan varð eldri þá skildi hún að það var ekki hatturinn eða vindillinn sem gerði ömmu hennar flotta, held- ur hún sjálf. Og virðingin fyrir henni átti einungis eftir að aukast. Amma hafði sínar skoðanir og meiningar sem vissulega gat sviðið undan, því sannleikanum verður hver sárreið- astur. Reyndar held ég að þetta hafi líka verið hálfgert próf hjá henni til að sjá hvað í okkur bjó og um leið að gera okkur að sterkari persónum. Sem barn bjó ég suður með sjó og samgangurinn því ekki mikill eins og gefur að skilja, en með árunum urðum við nánari og kom þá í ljós þegar við tókumst á um ýmis mál- efni að við vorum kannski líkari er okkur grunaði og skoðanirnar oft ekki svo ólíkar. Hvað sem því líður þá áttum við góðar stundir við eld- húsborðið með kaffibollann og mörg símtölin voru ekki síðri. Vissulega gat hvesst á báða bóga en það risti aldrei djúpt og fljótlega var hringt aftur, málin rædd og hent gaman að. Mér er það minnisstætt þegar ég var nýflutt norður á Laugarbakka í Miðfirði og var að stússast í eldhús- inu að ég sé ömmu Stínu bregða fyr- ir gluggann. Ég hélt að þá væri ég endanlega að tapa mér, en viti menn þarna var hún mætt til að heilsa upp á sonardóttur sína og með henni var full rúta af konum sem voru í kven- félagsferðalagi. Henni fannst það nú ekki vera mikið mál að snúa heilli rútu og öllum hópnum inn á Laug- arbakka bara til að heilsa upp á mig og sjá hvernig ég byggi norðan heiða. Amma ræktaði garðinn sinn vel, hún fylgdist vel með ættingjum og vinum og ef það voru veikindi á heimilinu þá hafði hún reglulega samband og fylgdist með og gjarnan lét hún góð ráð flakka. Hún kenndi manni líka að það stoðaði ekki að væla eða vola yfir því hvernig maður hefði það og nú síðast þegar við spurðum hana eftir líðan hennar, þá svaraði hún að bragði að hún hefði það alveg ágætt, hún væri á leiðinni upp í kirkju því þar væri nú kirkju- þing og nóg að starfa þar. Svo mörg voru þau orð um líðan hennar. Amma sagði oft að annaðhvort gerði maður hlutina vel eða sleppti því að taka þá að sér og þetta vildi hún að við tileinkuðum okkur. Hún vann af fullum hug þau störf sem að henni voru rétt bæði stór og smá, nema hún gerði ekki hlutina bara vel, hún gerði þá með stæl. Það er kannski ekki viðeigandi að segja það en dauðanum mætti hún líka með stæl; í kirkjunni sem hún unni og hafði átt svo margar góðar stundir í bæði við uppbyggingu safnaðar- starfsins og byggingu kirkjunnar sjálfrar. Þegar ég kveð ömmu er mér þakklæti efst í huga fyrir umhyggj- una fyrir mér og mínum. Elsku amma, hafðu hjartans þakkir frá okkur fyrir allt og megir þú hvíla í friði. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Ingunn. Við fráfall góðs vinar kvikna ýms- ar tilfinningar, fyrst söknuður og eftirsjá yfir að hafa kannski ekki skipulagt tíma sinn nógu vel og hist oftar í seinni tíð. Hvort tveggja eru þetta sjálfhverfar og eigingjarnar kenndir. Sem betur fer er önnur til- finning sem rís mun hærra og það er þakklætiskennd. Þakklæti fyrir þau áhrif sem hún Stína frænka mín hafði á mig. Það eru ekki allir svo heppnir að fá að kynnast manneskju á borð við Kristínu móðursystur mína. Mér lærðist sem smáhnokka að hún væri ekkert venjuleg mann- eskja því vinir mínir báru ótta- blandna virðingu fyrir þessari stóru konu með barðastóra hattinn og vindilinn. Lognmolla og ládeyða var henni ekki að skapi, hvar sem hún fór geislaði af henni stórmannlegt fas, hvort heldur var við rekstur sumarbúða, við safnaðarstörf í Grensássókn eða á mannamótum sem hún gjarnan stýrði af mikilli röggsemi. Á heimili þeirra hjóna Ole Pedersen og Kristínar í Kirkjuhvoli var mjög gestkvæmt og móttökur alltaf höfðinglegar, var það stór vinahópur sem leitaði til þeirra til að deila með gleði og sorgum. Sjálfum fannst mér ég aldrei vera gestur, mér fannst ég eiga svolítið heima þarna líka. Við sem þekktum Krist- ínu höfum misst mikið en höfum margar góðar minningar að orna okkur við. Það er ekki kvíðvænlegt að hverfa til sælli veraldar vitandi að þau hjónin taki á móti manni. Ólafur Lúðvíksson. Að kvöldi 14. október sl. bárust mér fréttirnar um andlát Kristínar Halldórsdóttur Pedersen. Vissulega komu tíðindin óvænt. Hún hafði ver- ið svo hress þegar við sáumst í síð- asta skiptið í Garðabænum hjá Auði dóttur hennar og þegar ég heyrði í henni stuttu síðar í síma og var að afla mér upplýsinga um nöfn og ætt- artengsl. Allar upplýsingar runnu lipurlega af vörum hennar. Hugs- unin var eins og í unglambi enda þótt hún væri orðin 78 ára. Frænka var alltaf eins og alfræðiorðabók, ef upplýsingar vantaði um einhverja úr fjölskyldunni. Að þessu leytinu til líktist hún fjöltengi, sem tengdi frændfólkið saman og færði upplýs- ingar á milli manna. Í gegnum hana fylgdist maður með bæði gleði- og sorgartíðindum í stórfjölskyldunni. Í raun miðlaði hún af reynslu sinni um hvernig best er að bregðast við mismunandi aðstæðum í lífinu. Í huga mínum hefur Stína alltaf verið alveg sérstök frænka. Hjálp- semi hennar og greiðvikni var ein- stök. Hún var ávallt reiðubúinn að aðstoða og veita ráðgjöf, þar sem hún taldi sig geta komið að liði. Hún var hrókur alls fagnaðar og víst er að minningin um glaðværð hennar og hjálpsemi mun geymast í hjört- um fjölskyldumeðlima og vina um ókomna tíð. Árið 1998 komum við nokkur ásamt Stínu frænku að því að skipu- leggja ættarmót, sem haldið var á Þverlæk í Holtum, en móðir Stínu, Kristólína, og amma mín Guðfinna voru systur ættaðar frá Þverlæk. Gaman var að finna fyrir skipulags- gáfum þessarar lífsreyndu konu, ekkert fum eða fát. Skipulags- og stjórnunarhæfileikar Stínu voru enda eftirsóttir og nýttust vel í margvíslegu félagsstarfi. Við munum minnast þín í framtíð- inni og trú hef ég á að oftast muni leika bros um varir þeirra er til þín hugsa. Dugnaðurinn, glaðværðin og allur húmorinn, sem fylgdi þér, er gott veganesti fyrir þá sem fengu að njóta samvista við þig. Hafðu það gott hvar sem þú ert. Þorsteinn Steinsson og fjölskylda, Vopnafirði. Lífið í Guði er sönn trú í hreinu hjarta einfalt líf í guðsótta og örlæti á kærleika til náungans. Hjartað hennar var stórt og það rúmaði marga. Sérstaklega þá sem áttu erfitt uppdráttar á einhvern hátt. Stínu frænku var einnig afar annt um fjölskylduna sína og frænd- garð allan og sá mikil gæði í því að halda góðu sambandi við fólk. Hún hringdi til að fá nýjustu fréttir og bankaði upp á til að fylgjast með ungviðinu. Hún kom sjaldnast tómhent. Hún átti alltaf í fórum sínum eitthvað til að gauka að okkur. Fyrst lítil leik- föng og prjál sem í barnsaugunum voru miklar gersemar. Þá ýmislegt sem ungar manneskjur þurfa á að halda til heimilishalds. Síðast smá- ræði handa börnunum okkar sem nutu þess einnig mjög að eiga Stínu frænku að. Í öllum minningum okkar um há- tíðir og dagamun er Stína frænka nálæg. Hún lét sig miklu varða að í veislum væri vel veitt og að þar skorti ekkert. Og hún sá ætíð um að til væru blóm. Mikið af blómum. Stórar fal- legar rósir sem stóðu í marga daga. Stína frænka hafði gaman af því að halda veislur. Og gefa fólki að borða. Stína frænka var auðug af gæðum sem ekki verða metin til fjár. Hún deildi þeim óspart til samferðafólks síns og var örlát á kærleika til náungans. Okkur sem nutum mikilla návista við hana kenndi hún að meta ljóð og sálma, kurteislega framkomu og virðingu við annað fólk. Hún var amman í lífi okkar sem sagði okkur frá sveitinni og lífinu í gamla daga. Að leiðarlokum viljum við systk- inin þakka fyrir allt það sem Stína frænka var okkur og veitti okkur. Blessuð sé minning hennar. Kristín Þórunn, Dagný Halla, Sveinn Bjarki, Gunnfríður Katrín og Jóhannes Þorkell. Kveðja frá Grensássöfnuði og Kvenfélagi Grensáskirkju Kristín Halldórsdóttir, formaður Kvenfélags Grensássóknar, var boð- uð til samráðsfundar mánudaginn 14. þ.m. Hún kom til fundarins vel undirbúin að vanda og með ákveðnar skoðanir sem endranær. Fundurinn var stuttur enda aðilar vel sammála. Þar með lauk síðasta fundi Kristínar um málefni safnað- arins. Hún lést nokkrum mínútum eftir fundarslit. Kristín Halldórsdóttir var öflug kona og stórhuga. Auk þess að vera formaður Kvenfélags Grensássókn- ar var hún varaformaður sóknar- nefndar. Um árabil hefur hún lagt sig fram um að styrkja stöðu aldr- aðra innan kirkjunnar sem og barna- og æskulýðsstarf. Þannig hefur framlag kvenfélagsins til safn- aðarstarfsins verið verulegt. Því stýrði Kristín og félagar hennar. Má í því sambandi minna á barnahús- gögn, sem kvenfélagið gaf söfnuðin- um fyrir alllöngu. Það var mikil og gagnleg gjöf síns tíma. Síðasta stór- gjöf kvenfélagsins til safnaðarins var hið glæsilega og stórbrotna glerlistaverk listamannsins Leifs Breiðfjörð en það styrkir mjög feg- urð nýju kirkjunnar og áhrif henn- ar. Þar var Kristín enn að verki. Lýsir þetta leiðandi stórhug hennar og traustum stuðningi góðra félaga. Grensássöfnuður þakkar Kristínu störf hennar öll, framtak og fórnfýsi í þágu kirkjustarfsins. Hennar verð- ur minnst í sögu safnaðarins með djúpri virðingu og þökk. Guð blessi Kristínu Halldórsdótt- ur, ættingja hennar og vini. Látin er merkiskona, frú Kristín Halldórsdóttir. Hinsta kallið kom snöggt, var afgerandi og á þeim stað sem Kristínu var kærari en flestir aðrir staðir: í Grensáskirkju. En þar hafði hún starfarð mikið allt frá stofnun safnaðarins fyrir tæpum 40 árum. Frú Kristín Halldórsdóttir var stórbrotinn persónuleiki, vel gefin og stórhuga, rausnarleg og gjafmild og marga gladdi hún með blómum. Kristín var mjög félagslynd og tók virkan þátt í öllu kirkjulegu starfi. Hún var óhrædd að takast á við stór verkefni, þótt aðrir efuðust. Mér koma í hug kaupin á kirkjuklukkum Grensáskirkju, sem Kvenfélagið gaf kirkjunni á sínum tíma, en Kristín var formaður Kvenfélagsins í mörg ár. Sama er að segja um hið glæsi- lega glerlistaverk í háglugganum yf- ir altari kirkjunnar eftir Leif Breið- fjörð. Báðar þessar gjafir voru mjög dýrar og vafalaust erfiðar litlu kven- félagi, en lýsa vel stórhug, dugnaði og bjartsýni Kristínar og fé- lagskvennanna. Kristín var um árabil í sóknar- nefnd og jafnframt safnaðarfulltrúi. Við unnum því lengi náið saman. Einkum var henni annt um starfið fyrir eldri borgara. Hún fylgdist vel með skjólstæðingum okkar og var óþreytandi að hringja í þá, heim- sækja og aka þeim til og frá kirkj- unni. Og veitingar af hennar hendi voru vandaðar og ekki skorið við nögl. Frú Kristín var einlæg í trú sinni, bænheit og sótti allar messur og bænastundir. Hún fylgdist vel með og hafði ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum og fór ekkert dult með þær. Og Kristín var glaðsinna, hláturmild og brosmild og reyndi alltaf að sjá björtu hliðar lífsins. Ég er mjög þakklátur fyrir hið mikla starf Kristínar Halldórsdóttur í Grensáskirkju árin sem ég þjónaði þar. Það var mér og söfnuðinum ómetanlegt. Við Ingveldur sendum öllum ást- vinum Kristínar Halldórsdóttur innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um þeim blessunar Guðs. Halldór S. Gröndal. Þegar æviþrautin dvín, þegar lokast augun mín, þegar ég við sælli sól sé þinn dóms- og veldisstól; bjargið alda, borgin mín, byrg mig þá í skjóli þín. (Matthías Jochumsson.) Kirkjuþingsfulltrúar, starfslið og gestir höfðu varla sungið þetta er- indi til enda þegar lífgunartilraun- um var hætt og andlát frú Kristínar Halldórsdóttur staðfest. Andlát hennar bar snöggt að og andlátsstundin var friðsæl og þján- ingarlaus. Hún hné niður í anddyri safnaðar- heimilis Grensáskirkju, einmitt þar sem hún hafði svo oft tekið á móti fólki sem komið var til þátttöku í kvenfélagsfundum, samverustund- um aldraðra eða öðru starfi á vegum kirkjunnar. Drottni þóknaðist að taka við henni í faðm eilífrar náðar sinnar á staðnum þar sem hún hafði svo oft tekið opnum örmum þeim sem sóttu samfélag kirkju hans. Að leiðarlokum er efst í huga þökk fyrir allt sem frú Kristín var mér eins og svo ótalmörgum öðrum. Brennandi áhugi hennar á málefn- um kirkjunnar ásamt ótrúlegu út- haldi og endalausu áræði gerði hana einstaka. Hún var rík af þekkingu á mönnum og málefnum, átti kunn- ingsskap og tengsl inn í alla hópa þjóðfélagsins – en notaði aldrei neitt af slíku í eigin þágu heldur eingöngu ef það gat orðið kirkjustarfinu til eflingar eða til blessunar einhverj- um sem stóðu höllum fæti. Frú Kristín var ekki einungis formaður KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURJÓN JÓNSSON bifvélavirki, Breiðuvík 53, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn 17. október sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug, auk sérstakra þakka til Heima- hlynningar Krabbameinsfélagsins. Þeim, er vilja minnast hins látna, er bent á Hjartavernd og Krabba- meinsfélagið. Helga S. Helgadóttir, Hörður F. Magnússon, Gunnhildur Snorradóttir, Halldóra Sigurjónsdóttir, Örn Benediktsson, Þuríður G. Sigurjónsdóttir, Júlíus Bernburg, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.