Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 42

Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 42
MINNINGAR 42 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristinn Gests-son fæddist á Dal- vík 21. maí 1934. Hann varð bráð- kvaddur í Kópavogi 14. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðrún A. Kristinsdóttir hús- freyja, f. 1913, d. 2001, og Gestur Hjör- leifsson, organisti og söngstjóri á Dalvík, f. 1908, d. 1995. Systk- ini Kristins eru Loril- ey, Þóra, Álfhildur, Sigurbjörg og Kári. Kristinn kvæntist hinn 31. desem- ber 1956 eiginkonu sinni, Ásdísi Gísladóttur leikskólakennara, f. 1935. Foreldrar hennar voru Fanný Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 1904, d. 1997, og Gísli Kristjáns- son, útgerðarmaður á Akureyri, f. 1893, d. 1989. Systkyni Ásdísar eru Margrét, Ingvar, María, Krist- ján og Tryggvi. Börn Ásdísar og Kristins eru: 1) Guðrún María fornleifafræðingur, f. 1956, maki Björn Vigfússon sagnfræðingur, f. 1955. Börn þeirra eru Vigfús, verkfræðinemi, f. 1979, unnusta Guðlaug Þóra Stefánsdóttir, Kristinn, mennta- skólanemi, f. 1982, og Sigurbjörg, f. 1992. 2) Ásdís bókmenntafræðingur, f. 1962. Dóttir hennar er Snæfríð- ur Björnsdóttir, f. 1995. Faðir Snæfríðar er Björn Helgason verkfræðingur. 3) Gísli húsasmið- ur, f. 1964. 4) Þórir flugmaður, f. 1972, maki Ásta Margrét Guð- mundsdóttir, nemi í Kennarahá- skólanum, f. 1973. Sonur þeirra er Leó Kristinn, f. 2000. Kristinn ólst upp hjá foreldrum sínum og að loknu skyldu- námi í heimabyggð, settist hann í MA og hóf jafnframt nám í Tónlistarskóla Ak- ureyrar. Kennari hans var Margrét Ei- ríksdóttir píanóleik- ari. Að loknu burt- fararprófi frá TA hóf Kristinn nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og eftir lokapróf þaðan lá leið hans til Englands þar sem hann stundaði framhaldsnám í pí- anóleik við Royal College of Music og lauk þaðan einleikaraprófi. Eftir heimkomuna hóf Kristinn störf við TA. Árið 1966 settist fjöl- skyldan að í Kópavogi og Kristinn hóf störf á tónlistardeild Ríkisút- varpsins. Sama ár, 1966, hóf Krist- inn störf við Tónlistarskóla Kópa- vogs og gegndi stöðu yfirkennara við skólann frá 1969 til dánardags. Kristinn sótti mörg námskeið bæði hérlendis og erlendis. Hann tók virkan þátt í félagsstörfum. Sat í stjórn Félags íslenskra tón- listarmanna (FIT) frá 1969 og var þar formaður 1972–1974. Sat í stjórn Félags tónlistarkennara 1976–1981 og í stjórn Evrópusam- bands píanókennara (EPTA) frá stofnun árið 1979 og starfaði þar til 1995. Útför Kristins verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Kær faðir og afi er horfinn, allt of snemma og án þess að nokkur fái kvatt. Við viljum gera orð Stein- gríms Thorsteinssonar að kveðju okkar: Þá vorið aftur vitjar lands, þú viðkvæmt dáins saknar, er sóley grær á sverði hans, en sjálfur hann ei vaknar. En þó hann vanti’ á vorsins hól og vin sinn blóm ei finni, hann lifir þó und þinni sól í þökk og kæru minni. Ásdís Kristinsdóttir og Snæfríður María. Til pabba Í stað valds, stafs eða sprota, í stað þess að ljósta klettinn leiftursnöggt og harðlega kemur birta, kemur ylur, kemur þú glófingruð við klökuga brynjuna. Og sjá: Vatn sprettur fram, vorblá lind fer að niða. (Ólafur Jóhann Sigurðsson.) Þinn Gísli. Í ágústmánuði 1975 lágu leiðir okkar Kristins Gestssonar saman í fyrsta sinn. Þá kom ég á heimili þeirra Ásdísar á Víðihvammi 9 í Kópavogi. Þangað var ég kominn með dóttur þeirra Guðrúnu Maríu unnustu minni, samferðakonu gegn- um lífið og móður þriggja barna minna. Við Guðrún vorum þá á þriðja vetri í Menntaskólanum á Ak- ureyri og Ásdís og Kristinn um fer- tugt. Við fyrstu viðkynningu tók ég eftir því sem mér þótti framar öðru einkenna Kristin Gestsson, – hæg- versku og hlýju. Á þeim rúma ald- arfjórðungi sem eftir fylgdi kynntist ég Kristni betur, bæði þessum þátt- um og öðrum. Einkum var það eftir að börn okkar Guðrúnar komu í heiminn að við fundum fyrir hlýj- unni sem var Kristni eðlislæg og sannri umhyggju í okkar garð. Nú þegar hann er allur verður vissan og minningin um þessa þætti okkur öll- um hollt veganesti. Kristinn var tónlistarmaður. Af Guðs náð er óhætt að segja. Í arf frá foreldrum fékk hann mikla tónlist- argáfu, píanóleik nam hann fyrst í föðurgarði heima á Dalvík, síðan á Akureyri, þá í Reykjavík og loks í Lundúnum þar sem hann útskrifað- ist frá Royal College of Music. Kennsla í píanóleik varð síðan ævi- starf Kristins Gestssonar. Á aðrar listgreinar var Kristinn næmur og vel heima. Sýn hans á tilveruna yf- irleitt var fyrst og fremst listræn. Fyrir mig persónulega var það ómetanlegt að komast í tæri við þessi viðhorf Kristins svo afdrátt- arlaus og gegnheil. Smekkvísari mann hef ég aldrei fyrirhitt. Mánudaginn 14. október síðastlið- inn varð Kristinn bráðkvaddur. Einn á gangi um sína heimaslóð í Kópavoginum – í góðu veðri, í góðu skapi. Eins og hendi sé veifað er allt breytt, lífsförunautur, faðir, bróðir, afi og góður félagi og vinur er ekki lengur. Héðan að norðan fylgja hon- um góðar kveðjur og innilegar þakk- ir. Björn Vigfússon. Á útfarardegi náins venslamanns og vinar fer svo að maður gerir allt í senn, kveður hinn látna í hljóði, þakkar góða samveru og syrgir hann meyrum huga. Ekki fór milli mála, að heilsu Kristins mágs míns hafði hallað hin síðari ár. En ,,örlögslagið þunga“ reið þó af fyrr en varði. Síðast töl- uðum við Kristinn lengi saman í síma aðeins nokkrum dögum fyrir lát hans. Hann var þá vongóður um heilsuna og sáttur við þá breytingu á högum sínum að vera hættur föstu og fullu kennarastarfi við Tónlistar- skólann í Kópavogi. Það hlýtur að hafa verið skólanum ómælt lán að hafa notið starfskrafta svo vel menntaðs tónlistarmanns, frábærs píanóleikara og áhugasams kennara þriðjung aldar án upprofs, heilan mannsaldur að gömlum skilningi. Áður hafði hann verið kennari við Tónlistarskólann á Akureyri um níu ára skeið, 1957–1966. Hann var því tónlistarkennari 42 ár. Starfsævi Kristins, sem nú er lát- inn 68 ára gamall, var því löng og næstum óslitið bundin kennslu frá 23 ára aldri að undanskildum þrem- ur árum sem hann vann að tónlistar- málum hjá Ríkisútvarpinu. Dæmi hans sýnir að hæfileikamenn fá notið sín við kennslu eins og slíkra manna er þörf í skólum á hvaða sviði náms sem er. Kennsla er þjóðnytjastarf í sinni fjölþættu mynd. Kristinn var ekki síður heill og staðfastur í einkalífi sínu. Hann lagði sig fram um að vera góður heimilisfaðir, sinnugur um allt sem laut að velferð fjölskyldunnar, um- hyggju, uppeldi og menntun barna sinna. Með Kristni Gestssyni er genginn ágætur maður að skapgerð og andlegu og líkamlegu atgervi. Háttvísi hans og prúðmennsku var viðbrugðið, en skoðanafestu hans og lífsviðhorfum varð ekki auðhaggað. Kristinn og Ásdís systir mín voru samhent hjón og heimilislíf þeirra til fyrirmyndar í hvívetna. Mér er minnisstætt, hve tengdaforeldrar Kristins, Fanný Ingvarsdóttir og Gísli Kristjánsson, svo mannvönd sem þau voru, mátu hann mikils, enda lagði hann þeim lið þegar þau þurftu á að halda á efri árum. Við Ólöf Auður og okkar fólk sendum Ásdísi, börnum og barna- börnum og systkinum Kristins inni- legustu samúðarkveðjur. Ingvar Gíslason. Kristinn Gestsson frá Dalvík var óvenjulegur maður. Hann var öðrum þræði kröfuharður fagurkeri og heimsmaður, en um leið hógvær og hlédrægur einfari. Hann kynntist ungur stórborginni Lundúnum, þar sem hann nam list sína, en alla tíð var hugur hans bundinn sveitinni fyrir norðan, Dalvík og Svarfaðardal og lífi fólksins þar. Lengi höfum við hjón fylgst með vini okkar, mági og svila, og átt margar ljúfar stundir með þeim hjónum, Ásdísi og Kristni, fyrst á litla heimilinu þeirra í Gamla barna- skólahúsinu undir Brekkunni á Ak- ureyri, fyrir hartnær hálfri öld, og síðast í Kópavoginum, þótt okkur sé einna eftirminnilegust sumarnótt í gamla Havstenshúsinu við Pollinn á Akureyri, daginn sem við opinber- uðum trúlofun okkar. Aldrei var annað en kyrrlát gleði og hljóðlát elskusemi þeirra hjóna sem ein- kenndi þá fundi, margt var rætt, ekkert mannlegt var okkur óvið- komandi: skáld, listamenn, stjórn- mál, heimspeki og maðurinn sjálfur í öllu veldi sínu og allri sinni smæð. Kristinn Gestsson var góður lista- maður, mjúkhentur píanóleikari með fagran og mjúkan áslátt – og hann var frábær píanókennari og hafa sumir nemendur hans talað um hann sem „Kennarann“ – með stórum staf og mikilli virðingu. En hann vildi ekki feta vandfarinn stíg listamannsins þar sem hörð sam- keppni, óvægin krafa og dómgirni getur ráðið ríkjum og sagði hann okkur frá miklum listamönnum úti í hinum stóra heimi, vinum sínum, sem hefðu orðið að láta sér lynda kröpp kjör og enga frægð. Og hann spurði því spurninga eins og þeirra hvort ljósið væri til án augans. Nú er ljós heimsins horfið Kristni Gestssyni frá Dalvík allt of snemma, en ekkert okkar veit hvenær kallið kemur. En Kristinn lifir og gott er að minnast hans. Við vottum Ásdísi, systur og mágkonu, samúð okkar. Megi styrkur guðs umlykja hana og börn og barnabörn þeirra Kristins sem voru honum svo kær. Margrét Eggertsdóttir, Tryggvi Gíslason. Á fögrum haustmorgni kvaddi minn kæri vinur Kristinn Gestsson þennan heim á göngu um Kópavog- inn og fór þann veg sem við öll mun- um fara um síðir. Hann hafði átt við erfið veikindi að stríða í rúm tvö ár. Liðinn tími kemur upp í hugann, góður tími námsáranna við Tónlist- arskólann í Reykjavík sem var til húsa í Þrúðvangi við Laufásveg en það húsnæði þætti vart boðlegt fyrir tónlistarkennslu í dag. En samt sem áður ríkti þarna sérstök stemning – sérstakt andrúmsloft sem mótaðist af frábærum og eftirminnilegum KRISTINN GESTSSON Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAFSTEINN HANSSON, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 15. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun. Sigurður I. Hafsteinsson, Brynja Traustadóttir, Hans Hafsteinsson, Fríða K. Guðjónsdóttir, Jóhanna J. Hafsteinsdóttir, Guðjón H. Finnbogason, Ingibjörg Hafsteinsdóttir, Hákon Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, SIGRÚN BJÖRK JÓHANNESDÓTTIR, Hjallalundi 13g, Akureyri, lést á heimili sínu mánudaginn 21. október. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 28. október kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti líknarfélög njóta þess. Svanhildur Þorsteinsdóttir, Óli Valur Jónsson, Sigríður Sveinsdóttir, Vala Björk Óladóttir, Þórir Már Ólason, Sveinn Ingi Hrafnkelsson, Sólveig Una Jóhannesdóttir, Fjóla Jórunn Jóhannesdóttir og fjölskyldur. GUÐRÚN ÓLAFÍA ÁSBJÖRNSDÓTTIR, frá Guðmundarstöðum, Vopnafirði, lést á dvalarheimilinu Kumbaravogi miðvikudaginn 16. október sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug. Hrönn Jónsdóttir, Sesselja Hazzard. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, SVEINN KLEMENZSON, Tjarnarbakka, Bessastaðahreppi, andaðist á líknardeild Landakots aðfaranótt miðvikudagsins 23. október síðastliðinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jóhanna Sveinsdóttir, Ingólfur Sveinsson, Halla Hjörleifsdóttir, Pálína Sveinsdóttir, Valgeir K. Gíslason, Ásmundur Sveinsson, Tammy Ryan, Jón Guðlaugur Sveinsson, Jóhanna Siggeirsdóttir, Baldvin Sveinsson, Sigurlína Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Skólinn er lokaður í dag, föstudaginn 25. október, vegna jarðar- farar KRISTINS GESTSSONAR. Tónlistarskóli Kópavogs. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HUGBORG BENEDIKTSDÓTTIR, Lækjartúni, Ölfusi, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands miðvikudaginn 23. október. Ólafur Jónsson, Jón Ólafsson, Sigurborg Valdimarsdóttir, Benedikt Ólafsson, Ásta Hallsdóttir, Kjartan Ólafsson, Arna Hjaltadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.