Morgunblaðið - 25.10.2002, Síða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 47
HJÓLSÖG 5704R
0 = 190 mm, 1200 W
TILBOÐSVERÐ
16.000.00
KENNARAHÁSKÓLI Íslands
brautskráði 48 kandídata föstudag-
inn 18. október sl. Úr grunndeild
brautskráðist að þessu sinni 21
kandídat en úr framhaldsdeild 27,
þar af fimm með meistaragráðu í
uppeldis- og menntunarfræði.
Sex kandídatar luku B.Ed.-námi í
grunnskólakennarafræði og 11
kennsluréttindanámi, en það er ætl-
að þeim sem hafa lokið námi í
kennslugrein, hafa t.d. meistarabréf
í iðngrein eða BS- eða BA-gráðu úr
háskóla. Þá lauk einn kandídat
B.Ed.-námi í leikskólakennarafræði
og tveir diplómunámi í leikskóla-
fræði. Einn kandídat lauk BS-prófi í
þroskaþjálfun.
Úr framhaldsdeild lauk einn
kandídat Dipl.Ed.-námi í uppeldis-
og menntunarfræði með áherslu á
sérkennslufræði, 11 luku Dipl.Ed.-
námi með áherslu á stjórnun og 10
luku sama námi með áherslu á tölvu-
og upplýsingatækni.
Kandídatar úr grunndeild
B.Ed.-gráða í grunnskóla-
kennarafræði (90 einingar)
Anna Birna Einarsdóttir
Hlín Hulda Valsdóttir
Íris Reynisdóttir
Kristín Kristjánsdóttir
Oddný Helga Sigurðardóttir
Þuríður Anna Jónsdóttir
Kennsluréttindanám
(15 einingar)
Ásgeir Helgi Erlingsson
Ástþór Ragnarsson
Egill Örn Jóhannesson
Eygerður Guðbrandsdóttir
Halldór Ingi Hannesson
Ólöf Húnfjörð Samúelsdóttir
Sigmar Pétursson
Vagn Preben Boysen
Örlygur Hinrik Ásgeirsson
Kennsluréttindanám
(30 einingar)
Hjörtfríður Jónsdóttir
Ingibjörg Ingadóttir
B.Ed.-gráða í leikskóla-
kennarafræði (90 einingar)
Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir
Leikskólafræði til diplómu
(45 einingar)
Guðrún Fjóla Guðbjörnsdóttir
Hrönn Sigurjónsdóttir
B.S.-gráða í þroskaþjálfun
(90 einingar)
Guðlaug Þórðardóttir
Kandídatar úr framhaldsdeild
Dipl.Ed.-gráða í uppeldis- og
menntunarfræði með áherslu á
sérkennslufræði (30 einingar)
Bea Boudina J. G. Meijer
Dipl.Ed.-gráða í uppeldis- og
menntunarfræði með áherslu á
stjórnun (30 einingar)
Anna Fríða Bjarnadóttir
Birna Björnsdóttir
Börkur Vígþórsson
Helga Sigurbjörnsdóttir
Helgi Arnarson
Jóhanna S. Vilbergsdóttir
Leifur A. Ísaksson
Sigríður D. Goldsworthy
Skarphéðinn Jónsson
Þór Pálsson
Þórgunnur Torfadóttir
Dipl.Ed.-gráða í uppeldis- og
menntunarfræði með áherslu á
tölvu- og upplýsingatækni
(15 einingar)
Elínborg Sigurðardóttir
Lilja Dóra Harðardóttir
Dipl.-Ed.-gráða í uppeldis- og
menntunarfræði með áherslu á
tölvu- og upplýsingatækni
(30 einingar)
Björg Vigfúsína Kjartansdóttir
Herdís K. Brynjólfsdóttir
Jóna Björk Jónsdóttir
Kirsten Lybæk Vangsgaard
Lilja Jóhannsdóttir
Margrét Sigurgeirsdóttir
Oddný Ingiríður Yngvadóttir
Sigríður Sigurðardóttir
M.Ed.-gráða í uppeldis- og
menntunarfræði (60 einingar)
Anna Guðrún Edvardsdóttir
Anna Guðmundsdóttir
Guðný Helga Gunnarsdóttir
Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir
Kolbrún Vigfúsdóttir
Brautskráning í
Kennaraháskólanum
Morgunblaðið/Jim Smart
Styrktartónleikar
Í frétt um tónleika til styrktar
fórnarlömbum flóðanna í Tékklandi,
sem fram fara á Broadway á sunnu-
daginn, eru tvær meinlegar villur. Í
fyrsta lagi kann að vera óljóst í frétt-
inni að Barduka er í raun íslenskur
kvartett og í öðru lagi eru rangar
upplýsingar um hvert hægt er að
snúa sér ef vilji er til að styðja fórn-
arlömb Tékklandsflóðanna með
beinum fjárframlögum. Hið rétta er
að hægt er að leggja inn á tékka-
reikning númer 72000 í aðalbanka-
útibúi Búnaðarbanka. Aðstandendur
söfnunarinnar eru beðnir velvirðing-
ar á villunum.
Rangt nafn
Eiginmaður Liz Bridgen, sérfræð-
ings í almannatengslum, var rang-
lega sagður heita Mark O’Brien í við-
tali sem birtist í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins í gær. Hann heitir
Adam Bridgen. Morgunblaðið biður
alla hlutaðeigandi afsökunar á þess-
um leiðu mistökum.
LEIÐRÉTT
FIMM einstaklingar luku meist-
araprófum frá Kennaraháskólan-
um að þessu sinni. Þar með hafa
74 lokið meistaraprófi frá KHÍ.
Í meistaraprófsritgerð Önnu
Guðrúnar Edvardsdóttur er velt
upp þeirri spurningu hvort gild-
ismat íslenskra skólastjóra sé
ólíkt eftir kynferði. Leiðbeinandi
var Steinunn Helga Lárusdóttir,
lektor við Kennaraháskóla Ís-
lands, og prófdómari var Trausti
Þorsteinsson, forstöðumaður
skólaþróunarsviðs kennaradeild-
ar Háskólans á Akureyri.
Meistaraprófsritgerð Önnu
Guðmundsdóttur ber heitið „Það
er bara heilans vandamál“ og
byggist á starfendarannsókn á
kennslu í gagnvirkum lestri á mið-
stigi. Leiðbeinendur voru Rósa
Eggertsdóttir sérfræðingur og
Rúnar Sigþórsson lektor sem
bæði starfa við kennaradeild Há-
skólans á Akureyri. Prófdómari
var dr. Kristín Aðalsteinsdóttir,
dósent við kennaradeild Háskól-
ans á Akureyri.
Guðný Helga Gunnarsdóttir
fjallar í verkefni sínu um stærð-
fræðiátakið í Hafnarfirði og áhrif
þess á starfsþróun kennara. Leið-
beinendur voru Anna Kristjáns-
dóttir, prófessor við Kennarahá-
skóla Íslands, og Ingvar
Sigurgeirsson, prófessor við
Kennaraháskólann. Prófdómari
var Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,
dósent við kennaradeild Háskól-
ans á Akureyri.
Ritgerð Hafdísar Fjólu Ás-
geirsdóttur fjallar um tengsl
stærðfræðiörðugleika við heyrn-
rænt skammtímaminni, langtíma-
minni, sjónræna rökhugsun og
málþroska. Leiðbeinandi hennar
var Sigurveig Sigurðardóttir sál-
fræðingur. Prófdómari var Hall-
dór Júlíusson sálfræðingur.
Meistaraprófsritgerð Kolbrún-
ar Vigfúsdóttur nefnist „Því læra
börnin málið að það er fyrir þeim
haft“ og greinir frá rannsókn á
málumhverfi í leikskóla með tilliti
til barna sem eiga annað móður-
mál en íslensku. Leiðbeinandi var
Birna Arnbjörnsdóttir, lektor við
Háskóla Íslands, og prófdómari
Sigríður Sigurjónsdóttir, dósent
við Háskóla Íslands.
Meistarapróf
Borgaraleg ferming Kynning-
arfundur fyrir unglinga sem áhuga
hafa á borgaralegri ferminga vorið
2003 og aðstandendur þeirra verður
haldinn laugardaginn 26. október kl.
11–12. Fundurinn verður í Kvenna-
skólanum, Fríkirkjuvegi 9, nýbygg-
ingu 1. hæð stofum 2, 3 og 4. Nám-
skeið Siðmenntar til undirbúnings
borgaralegri fermingu verður kynnt
og gerð verður grein fyrir efn-
isþáttum og umsjónarkennurum.
Einnig verður greint frá tilhögun at-
hafnar næsta vor.
Umræðufundur um húsnæðismál
Borgarmálaráð VG mun halda opinn
umræðufund um húsnæðismál í
Reykjavík laugardaginn 26. október
kl. 11, á Torginu Hafnarstræti 20,
gengið inn frá Lækjartorgi.
Framsöguerindi flytja: Guðmundur
St. Ragnarsson, formaður Leigj-
endasamtakanna, Sigrún Ármanns
Reynisdóttir frá Félagi fátækra og
Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi.
Að loknum framsöguerindum verða
umræður, segir í frétt frá stjórn
borgarmálaráðs VG.
Basar og opið hús í Þorraseli Opið
hús og basar verður haldið á Þorra-
seli, dagdeild aldraðra á Þorragötu
3, Reykjavík, laugardag 26. október.
Á boðstólnum verður úrval muna
sem gestir dagdeildarinnar hafa
unnið undanfarið og rennur allur
ágóði af sölunni í sjóð til kaupa á pí-
anói fyrir dagdeildina. Þá verður
kaffisala á staðnum. Allir velkomnir
sérstaklega aðstandendur dagdeild-
argesta. Þorrasel, sem rekið er af
Félagsþjónustunni, og er dagdeild
fyrir aldraða Reykvíkinga.
Á MORGUN
Heimasíða Lúðvíks Bergvinsson-
ar Lúðvík Bergvinsson alþingis-
maður hefur opnað heimasíðu. Slóð-
in á heimasíðuna er www.bergmal.is/
Í DAG STJÓRNMÁL
NÝSTOFNUÐ sjálfseignarstofnun
í Húnaþingi vestra, er ber nafnið
Grettistak ses, stendur fyrir mál-
þingi um Grettis sögu laugardag-
inn 26. október á Laugarbakka í
Miðfirði. Málþingið hefur fengið
heitið „Miðlun menningararfsins –
Grettis saga í fortíð og nútíð“.
Góðvinir og kunningjar hetjunn-
ar munu þar segja frá kynnum sín-
um af kappanum og hugmyndum
um að halda áfram minningu hans
á lofti, eins og gert hefur verið allt
til okkar tíma, segir í fréttatil-
kynningu. Dagskrá hefst kl. 10.00
að morgni og stendur fram eftir
degi.
Boðið er upp á léttan hádeg-
isverð, morgun- og miðdegiskaffi.
Þá verður stutt leiksýning í hádeg-
ishléi og um miðjan daginn verður
farið að Bjargi og sögustaðurinn
kynntur í leiðsögn Karl Sigur-
geirssonar leiðsögumanns frá
Bjargi.
Framsögur eru fjölmargar, m.a.
mun verða sagt frá áformum í
Húnaþingi um að byggja upp stórt
menningarverkefni út frá Grettis
sögu, teiknimynd um Gretti sem
unnið er að þessa dagana, þá munu
kunnir fræðimenn segja frá rann-
sóknum sínum. Fjallað verður um
skrif Hermanns heitins Pálssonar
um kappann, sagt frá skapgerð
Grettis og velt fyrir sér örnefnum
og mörgu fleiru er tengist sögunni.
Skráning á netfangi grettir.ster-
ki@grettistak.is þar má einnig
óska eftir að fá dagskrá þingsins
senda. Þátttökugjald er kr. 2.500,
innifalið er hádegisverður og kaffi.
Morgunblaðið/K.Á.S.
Ein af myndum Halldórs Péturssonar á Minnismerki við Bjarg, Ásdís Bárð-
ardóttir hlýðir á Þorbjörn öngul lýsa vígi Grettis.
Málþing í Miðfirði
um Grettis sögu
Miðfirði. Morgunblaðið.
VALNEFND Fellaprestakalls í
Breiðholti í Reykjavík ákvað á
fundi sínum 21. október sl. að
leggja til að séra Svavar Stef-
ánsson verði skipaður sóknar-
prestur þar frá 1. janúar nk.
Sjö umsækjendur voru um
embætti sóknarprests í Fella-
prestakalli. Kirkjumálaráðherra
skipar í embættið til fimm ára. Í
valnefnd sitja fimm fulltrúar úr
prestakallinu, auk vígslubiskups
og prófasts Reykjavíkurpró-
fastsdæmis eystra, segir í frétt
frá Biskupsstofu.
Valið í Fella-
prestakall