Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 50

Morgunblaðið - 25.10.2002, Side 50
DAGBÓK 50 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Kinsho Maru no.18 kem- ur í dag. Mánafoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Marschenland kom í gær og fer í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Bingó í dag kl. 14. Árskógar 4. Kl. 13–16.30 opin smíða- og handa- vinnustofan, kl. 13.30 bingó, kl. 10–16 púttvöll- urinn. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 12.30 böðun, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13–16 spilað. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Laugard: kl. 10–12 bók- band, línudans kl. 11. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 op- in handavinnustofan, hárgreiðslustofan opin kl. 9–16.45 alla daga nema mánudaga. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–12 applikering, kl. 10–13 op- in verslunin. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 böð- un, kl. 9–16.30 opin vinnustofa, myndlist, kl. 9.30 gönguhópurinn Gönuhlaup leggur af stað, kaffi á eftir göng- unni, allir velkomnir, kl. 14 brids og spila- mennska, hárgreiðslu- stofan opin 9–14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13. „Opið hús“, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Föstud.: kl. 11 námskeið í skyndihjálp, kl. 14.15 spænska. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjá- bakka) kl. 20.30. Bingó kl. 14 í Gullsmára. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tréút- skurður kl 13, brids kl 13.30, púttað á Hrafn- istuvellli kl. 14–16. Á morgun laugardag , morgungangan kl. 10 frá Hraunseli Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er lokuð vegna breytinga í Glæsibæ. Föstud: Fé- lagsvist kl. 13.30. Heilsa og hamingja Ásgarði Glæsibæ laugardaginn 26. október kl. 13. Erindi flytja: Tómas Helgason skýrir frá rannsókn sinni um samband heilsu og lífsgæða á efri árum og Júlíus Björnsson sál- fræðingur um svefnþörf og svefntruflanir aldraðs fólks. Almennur fé- lagsfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður haldinn í Ásgarði í Glæsibæ fimmtudaginn 31. október kl. 17. Fundarefni: Skattlagn- ing ávöxtunarhluta líf- eyrisgreiðslna, íslenska ríkinu stefnt og önnur mál. Félagar fjölmennið. Allt áhugafólk um mál- efni aldraðra velkomið. Silfurlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12. Skrifstofa fé- lagsins er flutt í Faxafen 12 s. 588 2111. Fé- lagsstarfið er áfram í Ás- garði Glæsibæ. Upplýs- ingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf, frá hádegi spilasalur og kjl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. kortagerð og servéttu. Veitingar í kaffi Berg. Fimmtud. 31. okt. „Kynslóðir saman í Breiðholti“ félagsvist í samstarfi við Seljaskóla. Föstud. 1. nóv. dans- leikur, frá 20–23.30, hús- ið opnað kl. 19.30, hljóm- sveit Hjördísar Geirs skemmtir. Veitingar í Kaffi Berg. Allar upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 9.15 ramma- vefnaður, kl. 13 bókband. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlistahópur, kl. 14. bingó. Fjöl- skyldudagur í Gullsmára laugard. 26. okt kl. 14, leikherbergi fyrir yngstu börnin, til afnota verða litir, pappír og leir. Ung- lingakór Digraneskirkju syngur undir stjórn Heiðrúnar Há- konardóttur. Brúðuleik- hús fyrir fólk á öllum aldri. Leikritið Loð- inbarði í umsjá Hall- veigar Thorlacíus. Ragn- ar Bjarnason rifjar upp gamlar perlur. Vöfflu- kaffi. Allir velkomnir, takið börn og barnabörn með. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, fótaaðgerð og hár- greiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, kl. 10 mæðra- morgunn. Fótaaðgerð, hársnyrting. Allir vel- komnir. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmtud: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 545 4500. Vesturgata 7. Kl. 9.15– 14.30 handavinna, kl. 10– 11 kántrýdans, kl. 11–12 stepp, kl. 13.30–14.30 Sungið við flygilinn, kl. 14–15 félagsráðgjafi á staðnum, kl. 14.30–16 dansað í aðalsal. Mynd- listarsýning Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur er opin virka daga til 8. nóv. Getum bætt við brids- félögum í tvímenning, spilað á þriðjudögum kl.13–16. Stjórnendur Bjarni Guðmundsson og Guðmundur Pálsson. Landsbanki Íslands veit- ir almenna bankaþjón- ustu föstud. 1. nóv. kl.13.30–14. Lyfjafræð- ingur veitir lyfjaráðgjöf og mælir blóðþrýsting mánud. 4. nóv. Allar uppl. í s. 562 7077. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17, hár- greiðsla kl. 10–11 boccia. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bók- band og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 12.30 leir- mótun, kl. 13.30 bingó. Þorrasel dagdeild, Þorragötu 3. Laug- ardaginn 26.10. verður opið hús og basar frá kl.13–17. Mikið úrval muna til sölu, kaffisala á staðnum. Allir velkomn- ir. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laugardögum. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum með börnin sín á fimmtud. kl.13–15 á Loftinu í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5. Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Borgfirðingafélagið í Reykjavík spiluð fé- lagsvist á morgun laug- ardag kl. 14 á Suður- landsbraut 30. Allir velkomnir. Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík. Opið hús í Höllubúð föstudaginn 25. okt kl. 20.30 léttar veitingar. Breiðfirðingafélagið vetrarfagnaður í Breið- firðingabúð laugardag- inn 26. okt. Eskfirðingar og Reyð- firðingar. Vetrarkaffi fyrir eldra fólk frá Eski- firði og Reyðarfirði á höfuðborgarsvæðinu verður sunnud. 27. okt. kl. 15 í Félagsheimili eldri borgara í Gull- smára 13, Kópavogi. Ath. nýr staður. Húnvetningafélagið í Reykjavík. Sunnudaginn 3. nóvember er árlegur kirkju- og kaffi- söludagur. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14. Prestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirson. Organisti Árni Arinbjarnar. Húna- kórinn syngur undir stjórn Eiríks Gríms- sonar. Að athöfn lokinni kl. 15. kaffi í Húnabúð, Skeifunni 11, í umsjá kaffinefndar. Allir vel- komnir. Í dag er föstudagur 25. október, 298. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og mig hólpinn leiða inn í sitt himneska ríki. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen. (Tím. 4, 18.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 blóm, 4 hamagangur, 7 illkvittin, 8 þjóti, 9 gróða, 11 beitu, 13 kunna, 14 álíta, 15 sögn, 17 eru und- irgefnir, 20 iðn, 22 skipu- lag, 23 kjánar, 24 afkom- enda, 25 himingeimur- inn. LÓÐRÉTT: 1 bjarga, 2 óneysluhæfan, 3 ránfugla, 4 ströng, 5 hellir, 6 byggja, 10 velta, 12 eldstæði, 13 kostur, 15 ber, 16 líkamshlutinn, 18 fót, 19 ákveð, 20 flot, 21 borgaði. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 vergangur, 8 kúsks, 9 gusta, 10 ill, 11 asann, 13 aurar, 15 herma, 18 aggan, 21 náð, 22 áttan, 23 aflar, 24 vatnslaus. Lóðrétt: 2 elska, 3 gisin, 4 nagla, 5 ufsar, 6 ekta, 7 gaur, 12 nem, 14 ugg, 15 hrár, 16 rytja, 17 annan, 18 aðall, 19 gildu, 20 norn. KÆRI/kæra 190952-4019. Vegna skrifa þinna um viðræðuþátt á Stöð 2 og við- tal við Jóhannes í Bónus vil ég reyna að leiðrétta mis- skilning þinn. Misskilningur er mjög slæmur skilningur. Megininntakið í gagnrýni á verslanir Baugs og Bónus felast ekki endilega í háu/ lágu vöruverði í þeirra verslunum, heldur hvernig að málum er staðið. Jóhann- es og félagar eru sakaðir um að vinna gegn markmiðum markaðshagkerfisins og samkeppnislaga. Þeir eru sakaðir um að misbeita markaðsráðandi stöðu sinni við samningagerð sem færir þeim einum hagstæðari verð en öðrum gefst kostur á. Dæmi 1: (fákeppni): Við birgja sem vill selja öllum vöru sína á t.d. kr. 125 per einingu er sagt. Hafðu lista- verðið kr. 150 og við fáum 50% afslátt. Þú selur öðrum vöruna á kr. 150. Dæmi 2: (einokun): Við birgja sem vill selja t.d. ver- tíðarvöru eða vöru af tak- mörkuðu upplagi er sagt. Við kaupum allan lagerinn en þú verður að lofa að selja engum öðrum. Samningar sem þessir eru yfirleitt leynilegir og af- sláttarkjörin geta ýmist komið fram í formi kredit- reiknings í lok einhvers tímabils eða þeir koma fram í meira magni af afgreiddri vöru en reikningur segir til um. Í öllum tilfellum er birgjum stillt upp við vegg og þeim gerð grein fyrir því að ekki verði af viðskiptum nema þeir gangi að afar- kostunum og haldi þeim leyndum. Ekki er deilt um að vöruverð er lægst í Bón- us heldur hvernig það er fengið. Afstöðu þinni, þegar þú þakkar Jóhannesi í Bón- us, má líkja við það ef fórn- arlamb ofbeldis segði: Ó, þakka þér fyrir, þetta var svo gott. Í eðlilegu við- skiptaumhverfi væri afstaða þín og skoðun rétt. Málið snýst hins vegar um afar óeðlilegt viðskiptaumhverfi sem samkeppnisyfirvöld hefðu með réttu átt að vera búin að taka á fyrir löngu. Ath. dæmin tvö eru tilbúin og sett fram til að sýna fram á hugsanlega aðferðafræði. Með virðingu, 100444-2089. Svör óskast Í VELVAKANDA 17. októ- ber sl. var fyrirspurn til Davíðs Oddssonar. Í pistlin- um, sem Þórir Guðmunds- son skrifar, kom fram að hann fékk niðurfellingu á fasteignagjöldum á íbúð sinni upp á kr. 33.599 eða um tæp 60%. Og þá spyr ég: Á hvaða forsendum fékk Þórir þessa niðurfellingu? Eins vil ég koma þeirri fyrirspurn á framfæri við Félag eldri borgara í Reykjavík hvers vegna ein- staklingur þarf að borga í félagsgjöld kr. 2.800 en hjón 2.000 kr. hvort um sig. Sigríður Pétursdóttir. Stórkostlegt kvöld STÓRKOSTLEGT laugar- dagskvöld var með Gísla Marteini laugardagskvöldið 19. október. Kærar þakkir fyrir frábæran þátt, bæði til stjórnandans og viðmæl- andans. Sigrún. Góðir þættir ÉG VIL þakka Ríkissjón- varpinu fyrir góða þætti sem þeir hafa verið með undanfarið, það eru Grikk- landsþættirnir og Flug- þættirnir. Mjög góðir þætt- ir. Svo vil ég fara fram á að endursýndir verði þættirnir Þjóð í hlekkjum hugarfars- ins eftir Baldur Her- mannsson. Sjónvarpsáhugamaður. Fyrirspurn EF hringt er og síminn hringir í 1–2 mínútur áður en svarað er teljast þá þess- ar mínútur með símtalinu eða borgar maður einungis eftir að svarað er? Notandi. Tapað/fundið Barnabílstóll týndist BRITAX-barnabílstóll, blá- köflóttur, týndist líklega mánudaginn 21. október. Skilvís finnandi hafi sam- band við Sigurð í síma 659 2300 eða á: smm@hi.is Armband týndist ARMBAND, gyllt keðja, týndist á leiðinni Bólstaðar- hlíð 45 niður á Laugarnes- veg 8. október sl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 588 8919. Dýrahald Krúsilíus týndist á Ströndum HANN hvarf frá Ingólfs- firði á Ströndum í júlímán- uði sl. og hefur ekki fundist þrátt fyrir mikla leit. Eng- inn hefur séð hann þarna á næstu bæjum. Hann gæti hafa flækst vestur eða til baka suður á bóginn, en hann á heima í Hafnarfirði. Hann er einlitur, fallega grár á litinn, eyrnamerktur og var með hálsól. Þeir sem hafa séð hann einhvers stað- ar á landinu vinsamlega hringið í síma 555 0474, 698 0472 og 866 6434. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Ísland í bítið – misskilningur Víkverji skrifar... VÍKVERJI á oftast nær voðabágt með að hlýða fyrirmælun- um, sem standa á brottfararspjaldinu þegar hann er á leið í flug til útlanda, um að hann eigi að vera kominn að hliðinu á tilteknum tíma. Alla jafna er ekkert að gerast í hliðinu ef fólk mætir á réttum tíma og þá tekur bara við drepleiðinleg bið, fjarri búðum og börum, og eina björgunin að vera með blað eða bók. Einstaka sinnum hefur þetta komið Víkverja í koll, en hann hefur þó yfirleitt sloppið með skrekkinn og aðeins einu sinni lent í þeirri auðmýkjandi lífsreynslu að vera kallaður upp sem eini farþeginn, sem vantaði í Kaupmannahafnarvél- ina þannig að hún gæti lagt af stað. Nýlega var Víkverji á leið til út- landa og ákvað í Leifsstöð að gera nú einu sinni eins og honum væri sagt og mæta í hliðið á réttum tíma. Þar tók auðvitað við enn ein biðin, en Víkverji var með lesefni og kippti sér ekki upp við það. Þegar fimmtán mínútur voru þangað til flugvélin átti að leggja af stað fóru útlendingar, sem áttu pant- að far með vélinni, að taka sér stöðu í snyrtilegri biðröð við hliðið. Upp til hópa voru þetta Norðmenn og Svíar; akkúrat og skipulagt fólk. Víkverji bættist við í biðröðina og beið. Fimm mínútum fyrir auglýstan brottfarar- tíma var tilkynnt að flugvélin færi frá öðru hliði. Biðröðin færði sig með skipulegum hætti og svo gerðist ekki neitt í u.þ.b. tíu mínútur og flugvélin átti að vera farin. Þá loks birtist bros- milt og stimamjúkt flugvallarstarfs- fólk og byrjaði að hleypa um borð í vélina, sem auðvitað fór alltof seint af stað. Engar skýringar voru gefnar á því, á skjám í flugstöðinni stóð allan tímann að vélin væri á áætlun og eng- inn baðst afsökunar á seinkuninni fyrr en komið var um borð í flugvél- ina. Þetta staðfesti enn þá trú Vík- verja að það borgi sig ekki að mæta á réttum tíma út í hlið. x x x FINNAR hafa byggt sér glæsilegtnútímalistasafn í Helsinki, Kiasma við Mannerheimveg, sem reyndar er stundum gagnrýnt fyrir að líta út eins og pylsa að utan, en þjónar hlutverki sínu með prýði inn- andyra. Víkverji skoðaði þar m.a. sýninguna Poppkorn og pólitík, þar sem sýnd eru verk úr eigu safnsins, sem spanna tímabilið allt frá 1960. Þarna sannfærðist Víkverji um að sú gagnrýni er réttmæt, sem sett hefur verið fram hér á landi, að hin opin- beru listasöfn geri ekki nóg af því að kaupa erlend listaverk til að setja ís- lenska list í rétt alþjóðlegt samhengi. Í safni Kiasma eru verk eftir t.d. bandaríska popplistamenn á borð við Roy Lichtenstein, sem augljóslega hafa haft mikil áhrif á finnska lista- menn á sínum tíma. Jafnframt er á sýningunni verk eftir Íslendinginn Ólaf Elíasson, sem gefur áhugaverð- an samanburð við verk finnskra lista- manna, sem vinna með náttúruna í verkum sínum. Enginn er eyland, eins og þar stendur, og það verður augljóst þegar myndlistarhefð eins lands er stillt upp með dæmum frá öðrum löndum. x x x LESANDI skrifaði Víkverja bréfog skammaði hann fyrir að skrifa á dögunum að hann hefði keypt vörur í Hagkaupi. Lesandinn benti á að Hagkaup væri augljóslega fleirtöluorð. Víkverji veit upp á sig sökina, en á sér kannski þær máls- bætur að hafa reynt að vera sam- kvæmur sjálfum sér, í málinu hafa nefnilega öðlast sess orð á borð við Hagkaupssloppur og Hagkaupsveld- ið, þrátt fyrir að allir hugsandi menn sjái að Hagkaup er fleirtöluorð. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.