Morgunblaðið - 25.10.2002, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 25.10.2002, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT Einn óvæntasti spennutryllir ársins! 1/2Kvikmyndir.is EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4. með ísl. tali  HL Mbl Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. „DREPFYNDIN“ ÞÞ. FBL Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá. Það verður skorað af krafti. Besta breska gamanmyndin síðan „Bridget Jones’s Diary.“ Gamanmynd sem sólar þig upp úr skónum. Sat tvær vikur í fyrsta sæti í Bretlandi. Sýnd kl. 5.45.  SK RadíóX 5 , 7.30 og 10. Sýnd kl. 4, 5.30, 6.30, 8, 9, 10.30 og 11.30. Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 16. . Maðurinn sem getur ekki lifað án hennar leyfir henni ekki að lifa án hans. Hvernig flýrðu þann sem þekkir þig best? Magnaður spennutryllir í anda Sleeping With the Enemy. Gott popp styrkir gott málefni Sýnd kl. 5.50. Bi. 16. Maðurinn sem getur ekki lifað án hennar leyfir henni ekki að lifa án hans. Hvernig flýrðu þann sem þekkir þig best? Magnaður spennutryllir í anda Sleeping With the Enemy. Einn óvæntasti spennutryllir ársins! 1/2Kvikmyndir.is Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER anthony HOPKINS edward NORTON ralph FIENNES harvey KEITEL emily WATSON mary-louise PARKER philip seymour HOFFMAN Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 16. 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  SV Mbl  HK DV  SK RadíóX Gott popp styrkir gott málefni ARI Í ÖGRI Liz Gammon. ÁSGARÐUR, Glæsibæ Afmæl- ishátíð Félags harmonikuunnenda föstudagskvöld kl. 20.30. BARINN Plast BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi DJ Skugga-Baldur. BÖGGVER, Dalvík Sixties. CAFÉ ROMANCE Andy Wells. CATALINA, Kóp Sælusveitin. CELTIC CROSS Ómar Hlynsson. CHAMPIONS CAFÉ Léttir sprett- ir. FJÖRUKRÁIN Víkingasveitin. GAUKUR Á STÖNG Ber. GULLÖLDIN Svensen og Hallf- unkel. HÓTEL FRAMNES, Grundarfirði Hörður Torfa kl. 21.00. IBIZA BRAUT- ARHOLTI Dj Exos, Dj Bjössi brunahani, Dj Kiddi ghost og Dj Ívar amore. KAFFI AKUREYRI Spútnik. O’BRIENS Halli og Hjörtur. ODD-VITINN, Akureyri Sverrir Stormsker. PLAYERS-SPORTBAR, Kópavogi Í svörtum fötum. RÁIN, Reykjanesbæ Hljómsveit Stefáns P. VIÐ POLLINN, Akureyri Bylting.  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Ber á Gauknum. ÞAÐ er sannarlega fengur fyrir ís- lenska tónlistarunnendur að Stereo- lab, sem er hiklaust eitt það mesta ævintýraband sem tíundi áratugurinn gaf af sér, leiki nú hér á landi. Linnu- laus, listræn leit er dagskipunin á þeim bænum, þar sem tám er dýft í hina ólíkustu stíla og þeim blandað saman á athyglisverðan, óvæntan en þó alltaf áheyrilegan hátt. Sykurpopp frá sjöunda áratugnum, jaðarbundið listarokk, kvikmyndatónlist, hipp hopp og raftaktar – allt hefur þetta runnið í gegnum hendur forsprakk- ans Tim Gane, sem rekur bandið ásamt konu sinni, Laetitiu Sadier, en aðrir meðlimir nú eru þau Simon Johns og Mary Hansen. Fleiri heyrt um sveitina en í henni – Stereolab til Íslands. Afhverju? „Við höfum reyndar verið á leiðinni í nokkurn tíma en það hefur alltaf dottið upp fyrir einhverra hluta vegna. Vinur okkar, Ölli (Örlygur Ey- þórsson, einn skipuleggjenda), hafði svo samband við okkur og sagðist vera að reyna að toga í einhverja spotta. Hann ákvað svo á endanum að gera þetta bara sjálfur og nú er þetta komið í gegn. Við erum komin með flugmiðana í hendur þannig að þetta virðist loks ætla að ganga (hlær).“ – Þið hlakkið semsagt til? „Ó já. Þetta er í fyrsta skipti sem við förum til Íslands en fullt af vinum og kunningjum hafa verið að segja okkur magnaðar sögur af landi og þjóð. Þannig að við erum himinlif- andi.“ – Gætir þú sagt okkur aðeins frá Stereolab? „Ja ... Fyrsta platan okkar, fjög- urra laga tíu tomma, kom út 1991. Við gáfum hana út sjálf og vinnubrögðin voru fremur fornfáleg. Við keyptum ódýrasta pappírinn sem hægt var að prenta á og sum eintökin fóru ofan í plastpoka sem venjulega eru notaðir til að geyma frosnar matvörur í! Við seldum þetta á tónleikum, fengum plötubúðir í London eins og Sister Ray og Rough Trade til að hjálpa okkur og gengum jafnvel um bæinn með þær í matvörukerrum og seld- um. Í kjölfarið fórum við svo að starfa með merki sem heitir Too Pure en fljótlega sló í brýnu með okkur og þeim. Okkur fannst aðstandendur út- gáfunnar vera farnir að líta of stórt á sig og merkið var orðið mikilvægara en hljómsveitirnar sem það gaf út. Við gerðum því í kjölfarið góðan samning við stórfyrirtæki, Elektra Records. Okkur fannst gott að kom- ast á stórt merki því við viljum lifa á tónlistinni og það þarf að borga fólki laun. Þar fáum við fullkomið listrænt frelsi sem er forsenda fyrir starfsem- ina.“ – Þannig að það er ekki sjálfgefið að stórfyrirtæki séu „vond“? „Nei, alls ekki. En ef metnaður okkar lægi í því að vera markaðsvæn þá gætum við ábyggilega fengið að- stoð þaðan við það. En áhugi okkar liggur ekki í því, hann liggur í því að semja áhugaverða tónlist.“ – Myndir þú skrifa undir það að Stereolab sé hópdýrkuð sveit (e. cult)? „Já, að vissu leyti. Við seljum ekki mikið af plötum en allir virðast hafa heyrt um okkur, þá frekar en í okkur. Fólk gerir líka svolítið af því að nefna okkur á nafn. The Neptunes (einir af heitustu upptökustjórum dagsins í dag) segjast bara hlusta á Stereolab og Eddie Vedder (söngvari Pearl Jam) talar víst líka mikið um okkur. En við erum auðvitað fyrst og fremst bara hljómsveit sem gefur út plötur og spilar á tónleikum. Það er raun- veruleikinn.“ Nýtt en kunnuglegt – Er það rétt að langt sé um liðið síðan þið stilltuð saman strengi síð- ast? „Já. Við höfum ekki spilað í átta mánuði. Við vorum að æfa í fyrradag og dusta rykið af okkur. Það er oft mjög hollt að koma aftur inn, endur- nærður og hvíldur. Þannig að þetta verður „ný“ sveit með kunnuglegan hljóm.“ – Þegar maður horfir á Stereolab úr fjarlægð virðist einkennilega heim- ilislegur blær leika um hana. Maður ímyndar sér að þið verðið enn starf- andi og gefið út plötur eftir tuttugu ár. Hvað finnst þér? „Ja ... ég veit ekki. Við erum að byggja hljóðver í Frakklandi núna sem við hyggjumst nota í framtíðinni. Tim er búinn að semja nýja plötu og ég þarf því að fara að taka til við textagerðina. Svo verður líkast til önnur plata í viðbót ...“ – Er þér það mikilvægt að sveitin haldi áfram að starfa? „Já, þ.e.a.s. ef við erum enn að gera eitthvað sem skiptir okkur máli. Ég tel að við verðum að breyta okkur reglulega til að viðhalda sköpunargáf- unni. En ég vil ekki halda í þetta bara til að halda í þetta. Ég trúi því nefni- lega að við getum enn bætt okkur og orðið miklu betri en við erum í dag. Það er alltaf hægt að bæta sig.“ Stereolab spila á Grand Rokk um helgina „Getum enn bætt okkur“ Tilraunapoppsveitin Stereolab þykir ein merk- asta og frumlegasta sveit tíunda áratugarins og nýtur mikillar hópdýrkunar. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Laetitiu Sadier vegna tónleika þeirra í kvöld og á morgun. Ljósmynd/Deidre O’Callaghan Stereolab, 2002: Simon Johns, Tim Gane, Laetitia Sadier, Mary Hansen. arnart@mbl.is Í DAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.