Morgunblaðið - 25.10.2002, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Háhraðasítenging
við Netið
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ fellst
ekki á að Starfsmannasjóður
SPRON ehf. kaupi virkan eign-
arhlut í Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis. Telur FME að í áform-
um starfsmannasjóðsins um að
kaupa upp 54,2% stofnfjárhluta í
SPRON á genginu 5,5 felist hætta
á hagsmunaárekstrum á fjármála-
markaði. Jafnframt tryggi áformin
ekki með fullnægjandi hætti hags-
muni Sparisjóðsins.
Stjórn starfsmannasjóðsins telur
líkt og SPRON að forsendur Fjár-
málaeftirlitsins fyrir synjuninni
standist ekki og hefur ákveðið að
kæra úrskurðinn. Segir í frétta-
tilkynningu að stjórnin muni færa
rök fyrir þeirri afstöðu frammi
fyrir kærunefndinni. Kæruferlið
tekur átta vikur.
Ari Bergmann Einarsson, for-
maður Starfsmannasjóðs SPRON
ehf., sagði á blaðamannafundi síð-
degis í gær að þessi ákvörðun
Fjármálaeftirlitsins væri ákaflega
mikil vonbrigði. Ákvörðunin hefði
sömuleiðis komið mikið á óvart.
Svo virðist sem Fjármálaeftirlitið
ætli ekki að samþykkja að stofn-
fjáreigendur geti selt bréf sín á
genginu 5,5 en það sé þó það verð
sem hafi komið til vegna ákvörð-
unar FME frá 19. júlí síðastliðnum
um að stofnfjáreigendur mættu
selja hlut sinn á yfirverði.
Starfsmannasjóður SPRON var
stofnaður í lok júlí í sumar í kjöl-
far þess að tilboð barst í stofnfjár-
skírteini í SPRON frá fimm stofn-
fjáreigendum í umboði
Búnaðarbanka Íslands.
Í fréttatilkynningu frá starfs-
mannasjóðnum kemur fram að
áform sjóðsins hafi byggst á samn-
ingum við stofnfjáreigendur um
kaup á 54,2% stofnfjárhluta í
SPRON á genginu 5,5 og end-
ursölu á 42,4% eignarhlutarins,
þannig að sjóðurinn héldi eftir
11,8%.
FME segist í úrskurði sínum
tilbúið til að taka til athugunar
mögulega útfærslu á áformum
sjóðsins og nýja umsókn. „Ég má
ekkert útiloka í þessu efni en eftir
allar bréfaskriftirnar, fundi með
forsvarsmönnum Fjármálaeftirlits-
ins, samtal við þá í gær og álitið
tel ég einfaldlega að við komumst
ekki lengra með Fjármálaeftirlit-
ið,“ segir Ari. Hann segir vinnu-
brögð Fjármálaeftirlitsins mót-
sagnakennd og leikreglur óskýrar.
Starfsmannasjóður SPRON kærir synjun Fjármálaeftirlits
Telja að forsendur FME
fyrir synjun standist ekki
Óskýrar leikreglur/6
ELDUR og brennisteinn eru ekki
það eina sem eldfjallið Hekla skilar
upp á yfirborð jarðar er það tekur
til við að gjósa. Gosefnin úr Heklu
eru súr sem þýðir m.a. að í gosum
kemur upp mikill vikur. Vikur er
hægt að nota í ýmislegt, t.d. þykir
hann góður við ræktun.
Fyrirtækið Jarðefnaiðnaður í
Þorlákshöfn nýtir vikurlindir við
Heklu og selur til útlanda. Helstu
viðskiptalöndin eru í Norður-
Evrópu, t.d. Holland og Danmörk.
„Vikur er t.d. mikið notaður í út-
veggjastein og skorsteinseiningar,“
segir Bjarni Jónsson hjá Jarð-
efnaiðnaði. „Við erum stundum að
vinna fram eftir hausti eins og
núna, það fer eftir veðri og auðvit-
að hvernig gengur að selja. Salan
er nú frekar stirð núna.“
Morgunblaðið/RAX
Verðmæti í vikrinum
DRAGA hefur þurft verulega úr
þjónustu barnalæknavaktarinnar
í Domus Medica að undanförnu
þar sem einingakvóti ársins, sem
greiðslur Tryggingastofnunar
miðast við, er að verða uppurinn.
Hópur barnalækna rekur barna-
læknamóttökuna samkvæmt
samningi sem fyrirtæki þeirra,
Barnalæknaþjónustan ehf., gerði
við Tryggingastofnun um síðustu
áramót.
Að öllu jöfnu annast tveir til
þrír læknar móttöku barna á
hverri vakt, en að undanförnu
hefur aðeins einn læknir getað
sinnt þjónustunni á hverju kvöldi
og hefur þurft að vísa barnafólki
frá.
Segir 7 milljónir vanta
svo veita megi
óbreytta þjónustu
Að sögn Kristleifs Kristjáns-
sonar, læknis og eins af forsvars-
mönnum Barnalæknaþjónust-
unnar, greiðir Tryggingastofnun
eingöngu fyrir hverja komu á
læknavaktina og er miðað við
ákveðinn fjölda eininga yfir árið.
Óvenjumikil veikindi urðu hins
vegar á fyrri hluta ársins og því
þurfi frekari greiðslur að koma
til svo unnt sé að anna eftirspurn-
inni það sem eftir lifir ársins. Um
20 læknar skiptast á um að vinna
á læknamóttökunni sem er opin
alla daga ársins, jafnt á helgidög-
um sem virkum dögum, og er
komið með 11 til 12 þúsund börn
á læknavaktina á ári.
Að sögn Kristleifs hafa ítrek-
aðar viðræður við heilbrigð-
isráðuneyti og Tryggingastofnun
um frekari framlög engum
árangri skilað allt frá því í vor,
þegar ljóst var hvert stefndi.
,,Fólk hefur notið þessarar
þjónustu og kunnað mjög vel við
hana. Við teljum að það vanti
mjög lítið upp á til þess að hægt
sé að halda áfram óbreyttri starf-
semi eða um sjö milljónir króna,“
segir hann.
Hefðu átt að draga
saman aðeins fyrr
Kristján Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Trygg-
ingastofnun, segir að gerður hafi
verið samningur við læknana um
þessa læknamóttöku sem kveði á
um ákveðinn einingafjölda yfir
allt árið sem byggist á mati á
komufjölda síðasta árs. Skv.
samningnum skuldbindi læknarn-
ir sig til að veita þessa þjónustu
út allt árið.
Læknarnir hafi svo haldið því
fram að svo mikið hafi mætt á
læknavaktinni á fyrri hluta ársins
vegna flensu sem þá gekk, að
þeir hafi klárað stóran hluta
kvótans, og hafa nú farið fram á
meiri greiðslur. Tryggingastofn-
un hafi hins vegar bent þeim á að
þeir hefðu mátt vita að flensa
legðist á börn á hverju ári og
þeir hefðu því átt að draga saman
starfsemina aðeins fyrr.
Kristleifur segir læknana hafa
bent ráðuneytinu og Trygg-
ingastofnun á það strax við gerð
samninga að gera þurfi ráð fyrir
um 13 þúsund komum á ári en
ráðuneytið og TR hafi ekki getað
fallist á það. ,,Þetta er einkenni-
legast í ljósi ástandsins í heil-
brigðiskerfinu. Þarna er um
barnafólk að ræða sem hefur ekki
alltaf aðgang að þessari þjónustu.
Þeir þurfa þá að taka til í heilsu-
gæslunni. Við liggjum ekki á lín-
unni og biðjum fólk að koma til
okkar, það bara kemur,“ segir
hann.
Dregið úr þjónustu á barnalæknavakt-
inni í Domus Medica vegna fjárskorts
Einn læknir
á vakt og vísa
þarf fólki frá
BAUGUR-ID keypti í gær 14,99%
hlutafjár í breska fyrirtækinu The
Big Food Group, sem á og rekur
verslunarkeðjurnar Iceland, Booker
og Woodward.
Í fréttatilkynningu frá Baugi
kemur fram að kaupverð nemi allt
að 40 pensum á hlut, en í Hálffimm-
fréttum Búnaðarbankans segir að
ætla megi að fjárfesting Baugs í
fyrirtækinu nemi um 2,5 milljörðum
eða um þriðjungi þess söluhagnaðar
sem félagið innleysti við sölu á
Arcadia.
Velta 710 milljarðar á ári
Við fréttirnar hækkaði gengi á
hlutabréfum The Big Food Group
um tæp 60%, úr 24 í 38 pens. Gengi
hlutabréfa Baugs í Kauphöll Íslands
hækkaði um 1,5% í gær, í viðskipt-
um fyrir 123 milljónir króna. Velta
The Big Food Group er rúmir fimm
milljarðar punda á ári, eða sem
nemur um 710 milljörðum króna.
Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta
á uppgjörstímabilinu, sem endaði
29. mars sl., nam 52,9 milljónum
punda, eða tæpum 5,9 milljörðum
króna. Hlutir í félaginu, samkvæmt
ársreikningi 2001, eru 500 milljónir
talsins. Því keypti Baugur tæpar 75
milljónir hluta.
Í fréttatilkynningunni frá Baugi
segir að kaupin séu í samræmi við
þá stefnu Baugs-ID að fjárfesta í
arðbærum verslunarfyrirtækjum.
Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnar-
formaður segir að fyrirtækið telji
The Big Food Group vera lágt met-
ið á markaði og því góðan fjárfest-
ingarkost með mikla möguleika.
Baugur ætli sér að styðja við bak-
ið á fyrirtækinu og vonist til þess að
eiga góð samskipti við stjórn þess
þegar þar að kemur.
Baugur fjárfestir
í bresku fyrirtæki
fyrir um 2,5 milljarða
32 ára/22
Eignast um 15% hlut í Big Food Corp, aðaleiganda Iceland