Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÉG verð að segja eins og erað plástursaðgerðir erualltof algengar í öldrunar-málum á Íslandi. Gottdæmi eru hugmyndir um
að breyta Vífilsstöðum í hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða. Alltof kostnað-
arsamt væri að gera nauðsynlegar
úrbætur á húsnæðinu miðað við að
aðeins væri um tímabundið úrræði
að ræða. Aðbúnaðurinn yrði heldur
aldrei í takt við nútímann. Þessum
fjármunum væri mun betur varið til
nýframkvæmda í málaflokknum,“
segir Guðmundur Hallvarðsson,
stjórnarformaður Hrafnistu, og
áætlar að breytingarnar myndu
kosta á bilinu 400 til 500 milljónir í
samanburði við 1,2 milljarða heild-
arkostnað við uppbyggingu nýrrar
90 rýma hjúkrunarálmu með öllum
búnaði við Hrafnistu í Hafnarfirði.
Hann gagnrýnir heilbrigðisráðu-
neytið harðlega fyrir stefnuleysi í
daggjöldum vist- og hjúkrunarheim-
ila og takmarkaðan áhuga á sam-
vinnu við Hrafnistu um lausn á vist-
unar- og hjúkrunarvanda aldraðra.
Tveir þjónustukjarnar
Dvalarheimilin Hrafnista í
Reykjavík og Hafnarfirði hafa frá
upphafi verið rekin af stéttarfélögum
sjómanna í Reykjavík og Hafnar-
firði. Sjómannadagsráð var stofnað
til að halda sjómannadaginn hátíð-
legan hinn 25. nóvember árið 1937.
Fljótlega eftir að haldið hafði verið
upp á sjómannadaginn í fyrsta skipti
6. júní 1938 var ákveðið að annað
helsta markmið ráðsins yrði að reisa
dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn.
Ekki var setið við orðin tóm og var
Hrafnista í Reykjavík vígð fyrir 45
árum – hinn 2. júní árið 1957. Hrafn-
ista í Hafnarfirði var vígð fyrir 25 ár-
um – á sjómannadaginn árið 1977.
Uppbyggingin hélt áfram og var
hjúkrunarálma reist við Hrafnistu í
Hafnarfirði fyrir 20 árum – árið 1982.
Hrafnista tók að beiðni heilbrigðis-
ráðuneytisins við rekstri Víðiness
fyrir tveimur árum.
Nú eru 316 aldraðir heimilisfastir
á vist- og hjúkrunarheimili Hrafnistu
í Reykjavík. Íbúar í raðhúsum við
Jökulgrunn og fjölbýlishúsi við
Kleppsveg 62 sækja þangað þjón-
ustu á borð við mat, endurhæfingu,
sund og föndur. Stöðugildi eru 238 og
410 starfsmenn á launaskrá í hluta-
og heilsdagsstörfum. Nokkuð færri
eða 227 eru heimilisfastir á vist- og
hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Þeim til viðbótar sækja 26
dagvistun til Hrafnistu í Hafnarfirði
og 72 búa í raðhúsum við Nausta- og
Boðahlein. Stöðugildi eru 176 og 300
starfsmenn á launaskrá í hluta- og
heilsdagsstörfum.
Nýr valkostur fyrir aldraða
Athygli vakti þegar hafist var
handa við byggingu tveggja íbúða-
blokka við Hrafnistu í Hafnarfirði í
júní í fyrra. „Eins og nýlega kom
fram í könnun Gallup eiga 90% Ís-
lendinga eigið húsnæði við 67 ára
aldur og 44% af þeim eiga húsnæði
sitt skuldlaust. Gallinn er að alltof
margir eiga í erfiðleikum með að
standa straum af kostnaði við hús-
næðið, t.d. eignaskatti, fasteigna-
skatti og viðhaldi eignar og lóðar.
Eldra fólk kvartar oft yfir því að hafa
úr litlu að spila því eignir þess séu
bundnar í fasteignum. Með íbúðar-
blokkunum viljum við bjóða 60 ára og
eldri upp á nýjan valkost, þ.e. að
leigja sér íbúð. Íbúðirnar eru í fjór-
um stærðum sérhannaðar fyrir aldr-
aða og með neyðarkalls- og bjöllu-
kerfi, sérstöku brunavarnarkerfi og
aðgengi að lokuðum bílastæðum.
Innangengt er úr báðum blokkunum
í Hrafnistu og áfram mætti telja því
við erum að leigja út alvöru sérhann-
aðar íbúðir fyrir aldraða. Sumir hafa
lent í því að fara úr venjulegum íbúð-
um í sérstakar íbúðir fyrir aldraða og
komast að því að eini munurinn er að
í nýju íbúðinni eru engir þröskuld-
ar.“
Leiguverð íbúðanna var nýlega
gagnrýnt í sjónvarpsfréttum. „Íbúð-
irnar verða leigðar á u.þ.b. 1.000 kr.
fm, þ.e. sama verði og nýju Búseta-
íbúðirnar. Flestar íbúðirnar eru 76
ferm. að flatarmáli og 98 ferm. með
sameign. Leigan er 76.000 kr. á mán-
uði og gera áætlanir ráð fyrir að hús-
gjald vegna kostnaðar við sameign
verði 6.500 kr. á mánuði. Samkvæmt
reglum Íbúðalánasjóðs þarf leigjandi
hverrar íbúðar að greiða 30% af
kostnaðarverði hennar fyrir svokall-
aðan afnotarétt. Sú upphæð nemur
tæplega 4,5 milljónum fyrir 76 ferm.
íbúð og er endurgreidd miðað við
verðtryggingu og 2% árlega rýrnum
við slit á leigusamningnum,“ segir
Guðmundur og tekur fram að frétta-
flutningurinn af leiguverði íbúðanna
hafi verið afar villandi. „Fréttaflutn-
ingurinn gekk út á dæmi um leigu-
verð miðað við stærstu íbúðirnar,
hússjóð og bílageymslu sem ekki
þarf að leigja frekar en vilji er til.
Staðreyndin er að stór hópur fólks
getur beinlínis komið út í peninga-
legum hagnaði með því að nýta sér
fjármagnstekjur af andvirði fast-
eignar sinnar til að greiða leigu.
Ágætt dæmi er að ef skuldlaus eign
upp á 15 milljónir er seld og upp-
hæðin ávöxtuð miðað við 7% frjálsa
ávöxtun nemur hagnaðurinn miðað
við 76 ferm. leiguíbúð samtals tæp-
lega 6.000 kr. á mánuði.“
Íbúðirnar verða afhentar í fyrra
húsinu 1. des. nk. og 1. mars 2003 í
hinu síðara.
Beðið eftir svari í ellefu ár
Guðmundur minnir á að á fjórða
hundrað manns bíði eftir rými á
hjúkrunarheimilum og tæplega 200
manns séu á biðlistum eftir rými á
vistheimilum. „Við lögðum fyrst inn
umsókn til heilbrigðisráðuneytisins
um framkvæmda- og rekstrarleyfi
fyrir tveimur nýjum hjúkrunarheim-
ilum árið 1991. Ekki alls fyrir löngu
barst okkur jákvætt svar um upp-
byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis
við Hrafnistu í Reykjavík og er gert
ráð fyrir að skóflustunga að þeirri
hjúkrunarálmu verði tekin um miðj-
an nóvember. Enn liggur fyrir um-
sókn í ráðuneytinu um uppbyggingu
90 rýma hjúkrunarálmu við Hrafn-
istu í Hafnarfirði.“
Guðmundur er spurður hvaða svör
hafi borist úr ráðuneytinu varðandi
seinni umsóknina. „Fyrst var tekið
fram að hjúkrunarheimilið væri í
Reykjaneskjördæmi og útreikningar
segðu til um að þar væri ekki þörf
fyrir fleiri hjúkrunarrými. Á móti
bentum við á að um 40% heimilis-
manna á Hrafnistu í Hafnarfirði
væru fyrrverandi Reykvíkingar. Við
því barst okkur ekkert svar. Aftur á
móti var veitt leyfi fyrir nýju hjúkr-
unarheimili á Reykjavíkursvæðinu í
millitíðinni – Sóltúni sem kostaði í
byggingu og mun kosta í rekstri um-
talsvert meira en áður hefur þekkst
við nýbyggingu og rekstur hjúkrun-
arheimila hér á landi. En guð láti
gott á vita ef stefna heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytisins er fundin í
þessari framkvæmd og góðum dag-
gjöldum hvar arðsemi fjárfestingar
er orðin hluti rekstrarþáttarins í
daggjöldum.“
Misháar daggjaldagreiðslur
Guðmundur vekur athygli á ólíku
rekstrarumhverfi vist- og hjúkrun-
arheimila. „Ólíkt mörgum vistheim-
ilum erum við ekki á föstum fjárlög-
um og getum því ekki hagrætt
rekstrinum eftir fjárframlögum
hverju sinni. Daggjaldakerfið veldur
því að við erum sífellt að berjast við
að ná 99,9% nýtingu. Ekki bætir
heldur úr skák hvað daggjöldin eru
lág, t.d. fær Sóltún 31% hærri dag-
gjöld í ár og 40% hærri daggjöld en
Hrafnista á næsta ári. Okkur hefur
verið sagt að ástæðan fyrir þessum
mismun sé að Sóltún taki aðeins við
öldruðum af sjúkrahúsunum. Við
höfum tekið við fjölmörgum öldruð-
um beint af deildum sjúkrahúsanna í
áraraðir og aldrei fengið neitt auka-
lega fyrir að vera með þyngri heim-
ilismenn. Ef kostnaður við lyf heim-
ilismanns á Sóltúni fer yfir 21
daggjald greiðir ríkið umframkostn-
að. Hrafnista fær engan slíkan
stuðning. Ekki er heldur allt upp tal-
ið því ólíkt Hrafnistu renna sérstak-
ar greiðslur til Sóltúns vegna hús-
næðiskostnaðar, þ.e. kostnaðar við
byggingu og viðhald húsnæðis,“ seg-
ir Guðmundur og upplýsir að
Hrafnista hafi boðið í rekstur Sól-
túns á sínum tíma. „Við drógum um-
sóknina til baka því okkur var sagt að
við þyrftum að vera í hinu almenna
rekstrarumhverfi, þ.e. ehf., og mátt-
um við ekki nota hagkvæmni rekstr-
areldhússins á Hrafnistu.“
Guðmundur tekur fram að dag-
gjöld til Hrafnistu hafi ekki að öllu
leyti tekið verðlags- né vísitölubreyt-
ingum undanfarin ár. „Við höfum
reglulega farið í gegnum reksturinn
og reynt að draga saman kostnað eft-
ir fremsta megni. Ekki vekur því
furðu að bæði Ríkisendurskoðun og
heilbrigðisráðuneytið hafa staðfest
bréflega að rekstarkostnaður Hrafn-
istu sé innan eðlilegra rekstrar-
marka. Engu að síður hefur ekki ver-
ið tekið mið af raunkostnaði á
legudag við ákvörðun um daggjöld
frá ári til árs. Þrátt fyrir 10.741 kr.
raunkostnað á legudag árið 2000
voru daggjöldin ákveðin 9.504 árið
2001. Sama mynstrið endurtekur sig
árið eftir því að þrátt fyrir 11.263 kr.
raunkostnað á legudag árið 2001 eru
Vistunar- og hjúkrunarheimilismál aldraðra
Plástursaðgerðir alltof
Hvítu þökin sýna fyrirhugaðar byggingar við Hrafnistu í Reykjavík. Áætlað er að fremsta húsið á teikningunni hýsi
heilsugæslu hverfisins og hin tvö hjúkrunarálmu.
Morgunblaðið/Þorkell
Guðmundur fyrir framan fyrirhugaða byggingarlóð við Hrafnistu í Reykjavík.
’ „Hjúkrunarheimili á að mínu mati ekkiað reisa ein og sér. Eðlilegra er að úthluta
lóðum fyrir stærri kjarna með þjónustu-
miðstöðvum, hjúkrunarheimilum, þjón-
ustuíbúðum o.s.frv. Með því móti er hægt
að bjóða upp á mun betri þjónustu við
aldraða.“ ‘
Sjómannasamtökin hafa lengi unnið ötullega að
uppbyggingu þjónustukjarna fyrir aldraða á
Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði. Anna G.
Ólafsdóttir fékk í samtali við Guðmund
Hallvarðsson, stjórnarformann Hrafnistu, að vita
að vonbrigði hefðu verið varðandi stuðning
yfirvalda við uppbygginguna síðustu árin.