Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 18
SsangYong Rexton-jepp-
inn – Aflmikill og laglegur
BERND Pischetsrieder, stjórnarformaður
Volkswagen AG, tók nýlega við umhverf-
isverðlaunum ARBÖ, Automobil- und Radfa-
hrerbund Österreich, en þetta eru einhver virt-
ustu verðlaun sinnar tegundar í bílaheiminum.
Verðlaunin fær VW fyrir smíði á fyrsta ökuhæfa
bílnum sem nær 100 km akstri á aðeins einum
lítra eldsneytis. VW hefur einu sinni áður hlotið
ARBÖ verðlaunin. Það var árið 1998 fyrir
„þriggja lítra bílinn“ sem seinna fór svo í fram-
leiðslu sem Lupo 1.0 dísil. Eins lítra bíllinn fékk
sína frumraun í apríl sl. þegar þáverandi stjórn-
arformaður, Ferdinand Piëch, ók honum frá
Wolfsburg til Hamborgar. Bíllinn eyddi að jafnaði
á þessari leið 0,89 lítrum af dísilolíu. Bíllinn er
með 0,3 lítra vél sem er gerð að mestu leyti úr
áli og skilar að hámarki 8,5 hestöflum. Hann
vegur aðeins 290 kg en nær 120 km hámarks-
hraða.
Eins lítra bíll VW fær
umhverfisverðlaun
1 lítra bíllinn eyddi að meðaltali 0,89 l á hundraðið.
GENERAL Motors, nýr eigandi Daewoo, hefur
látið hendur standa fram úr ermum og búið til nýtt
einkennismerki og undarlega límúsínu með smábíl-
anafninu Kalos. Vandséð er hver breytingin á merk-
inu er önnur en sú að GM hefur bæst við fyrir fram-
an Daewoo. Límúsínan hefur hvergi verið sýnd og
er raunar alls ekki til, nema á veggspjöldum sem
Daewoo kom upp víða í Birmingham í tilefni af bíla-
sýningunni þar. Líklega er tilgangurinn sá að enginn
velkist í vafa um mikilfengleg áform Daewoo í fram-
tíðinni.
GM-Daewoo límúsína
sem ekki er til
NÝR Opel Vectra hlaut Gullna
stýrið, sem er ein eftirsóttasta
viðurkenning sem bílaframleið-
anda hlotnast. Gullna stýrið hef-
ur verið veitt af vikublaðinu Bild
am Sonntag síðan 1976. Opel
Vectra hlaut Gullna stýrið í
flokki stórra millistærðarbíla.
Vectra hlaut mikið lof fyrir nýj-
an IDS-undirvagn sinn sem er
bæði með nýrri kynslóð veg-
gripsstýringar og spólvarnar.
Einnig þótti það afgerandi í vali
dómnefndar hve vel bíllinn er
hljóðeinangraður, vel búinn ör-
yggisbúnaði og gæði í innrétt-
ingu. Aðrir bílar sem kepptu um
Gullna stýrið voru Skoda Su-
perb, Nissan Primera, Mazda 6
og Saab 9-3.
Þá hlaut Renault Espace
Gullna stýrið í flokki fjölnotabíla.
Þetta er í þriðja sinn sem Es-
pace verður fyrir valinu en árin
1991 og 1997 varð hann einnig
hlutskarpastur. Aðrir bílar sem
kepptu um Gullna stýrið í flokki
fjölnotabíla voru Peugeot 807,
Lancia Phedra, Chrysler Voya-
ger og Mercedes-Benz Vaneo.
Þá hlaut völdu lesendur Bild
Am Sonntag VW Touareg jepp-
ann þann besta í sínum flokki og
hlaut hann fyrir vikið Gullna
stýrið. Það athyglisverða við val-
ið er að verðlaunin hlýtur Toua-
reg áður en honum hefur verið
opinberlega hleypt af stokkun-
um. Touareg verður ekki settur
á markað fyrr en 22. nóvember.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson.
Nýr Espace var sýndur í París í september. Opel Vectra fékk Gullna stýrið.
Touareg, Vectra og
Espace fá Gullna stýrið
VW Touareg jeppinn var bestur í sínum flokki.
TIL athugunar er hjá Honda-um-
boðinu að hefja innflutning á nýjum
jeppa frá Honda sem heitir Pilot og
hefur verið markaðssettur í Banda-
ríkjunum. Þarna er um að ræða full-
vaxinn jeppa með sambyggða yfir-
byggingu og grind með 3,5 lítra
V6-álvél. Þetta er nýjasta gerð af
bensínvél með breytilegri ventla-
stýringu, VTEC, og skilar að há-
marki 240 hestöflum við 5.400 snún-
inga á mínútu. Pilot er með sítengdu
fjórhjóladrifi sem miðlar aflinu milli
öxla eftir þörfum. Pilot er umtalsvert
stærri en Honda CR-V sem menn
kannast mæta vel við. Pilot er 4,77 m
á lengd og tæpir 2 metrar á breidd.
Hann er boðinn með þremur sæta-
röðum í Bandaríkjunum og staðal-
búnaður er þar ríkulegur.
Honda Pilot er stór jeppi,
4,77 m á lengd, með
240 hestafla V6-vél. Honda Pilot hugs-
anlega fluttur inn
RÆSIR hf. er að fá fyrstu bílana af
Chrysler gerð til landsins en nokkuð er
um liðið síðan fyrirtækið tók við um-
boði fyrir Chrysler bíla á Íslandi. Að
sögn Guðmundar Baldurssonar, sölu-
stjóra hjá Ræsi, er von á nokkrum
Chrysler bílum til landsins, þ. á m.
Wrangler, PT Cruiser, Cherokee og
Grand Cherokee.
Ræsir hefur innflutn-
ing á Chrysler
STARFSMENN ARO Campulung
jeppaverksmiðjunnar í Rúmeníu hafa
bundist samtökum um að selja sæði
úr sér til að rétta við fjárhag verk-
smiðjunnar. Í frétt BBC um málið
segir að um 100 starfsmenn fyr-
irtækisins ráðgeri að eiga þessi við-
skipti við sæðisbanka í borginni Tim-
isoara en bankinn er sagður bjóða
þeim sem svarar til 4.350 ÍSK fyrir
skammtinn sem er nærri tveir þriðju
hlutar af mánaðarlaunum starfs-
mannanna. Um 5.000 manns starfa
í verksmiðjunni og skuldir eru miklar.
Í frétt BBC er látið að því liggja að
aðgerðir starfsmannanna séu í
reynd gagnrýni undir rós á stjórn-
völd sem ekki hafa fundið erlenda
fjárfesta til að koma að rekstri verk-
smiðjunnar þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Sæði fyrir störfin
Handfrjáls búnaður í bíla
fyrir flestar gerðir GSM síma.
Ísetning á staðnum.
árg. 3/00, 67.000 km, ssk.,
leður, álfelgur, cruise contr-
ol, rafmagn í sætum, rúðum,
samlæsingar. Ríkulega búinn
forstjórabíll.
Verð aðeins kr. 4.800.000.
J.R. Bílasala, Bíldshöfða 3,
s. 567 0333.
Toyota Landcruiser VX 100, 4,7
(bensín)