Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 12
Í Þýskalandi eru 586 farfuglaheimili og
kostar gisting með morgunverði rúmar
þúsund krónur. Nánari upplýsingar
fást á www.djh.de
NÚ liggur fyrir hugmynd að
nýrri gestastofu í Þjórsárdal en
um skeið hefur verið rætt um að
reisa þar nýtt hús sem hýsa
myndi safn eða sýningar. Ás-
borg Arnþórsdóttir, ferðamála-
fulltrúi uppsveita Árnessýslu,
segir að Þjórsárdalurinn sé van-
nýtt auðlind í ferðaþjónustu og
fjölmargar hugmyndir hafi kom-
ið fram um hvernig efla megi
svæðið. „Ein af þeim hugmynd-
um var að byggja gestastofu og
bæta merkingar og fræðslu til
muna. Því var ráðist í að láta
hanna hugmynd að gestastofu
og á næstunni ætla menn að
kanna leiðir til að framkvæma
og fjármagna hugmyndina.“
Í gestastofunni yrði fróðleik-
veldisbænum en gert er ráð fyr-
ir að gestastofan sé í návígi við
hann. Við hönnunina nýtti hann
sér því samspil fortíðar og fram-
tíðar.
„Ég legg mig fram við að
sækja í íslenskar rætur og í ís-
lensku náttúruna þegar ég er að
vinna verkefni þar. Að þessu
sinni notaði ég vatnið, það má
segja að á renni eftir þaki bygg-
ingarinnar og móti síðan foss við
innganginn og fólk gengur undir
fossinn þegar það fer í gesta-
stofuna.“ Guðmundur segist
nota efni með skírskotun til
gamalla byggingarhefða á nú-
tímalegan og abstraktan hátt,
efni eins og torfhleðslu, grjót-
hleðslu og trévirki.
ur um náttúru
og sögu svæð-
isins, fornleifa-
rannsóknir,
vatnið og virkj-
anir svo fátt
eitt sé nefnt.
Þar yrði sögu
dalsins gerð
skil ásamt sögu
fólksins sem
þar bjó og
samskiptum
þeirra við náttúruöflin. Heima-
menn ákváðu að fá Guðmund
Jónsson arkitekt í Noregi til að
vinna hugmynd að gestastofu,
húsi og sýningu. Guðmundur
segist hafa byggt hugmyndina
að gestastofunni á gamla Þjóð-
Búið að vinna hugmynd að gestastofu í Þjórsárdal
Í gestastofunni yrði fróðleikur um náttúru og sögu svæðisins, fornleifarannsóknir, vatnið og virkjanir. Þar
yrði sögu dalsins gerð skil ásamt sögu fólksins sem þar bjó og samskiptum þeirrra við náttúruöflin.
Guðmundur
Jónsson
arkitekt
Í anddyrinu er
gengið undir foss
Í LOK-
þessa
mánaðar
verður
opnuð
sýning-
armiðstöð
á Schip-
hol-flugvelli í Amsterdam í Hollandi.
Það er safnið Rijksmuseum í Amst-
erdam sem stendur að opnun þess-
arar sýningaraðstöðu á flugvellinum.
Sýnd verða verk tíu þekktustu mál-
ara sem voru uppi á gullaldrarárum
hollenskrar myndlistar. Þar á meðal
eru verk eftir Jacob van Ruisdael,
Pieter de Hoogh og Jan Steen. Þá
verður einnig málverkið Saskia van
Uylenburg eftir Rembrandt til sýnis.
Auk sýningarinnar er í miðstöðinni
lítil verslun. Safnið er á bakvið vega-
bréfaskoðun á svokallaðri Holland
boulevard-götu. Aðgangur er ókeyp-
is.
Sýna verk þekktustu
meistara Hollands
HÓTELIN Ritz-Charlton og Mercedes Benz hófu
hinn 1. nóvember sl. samvinnu en þau bjóða gestum
upp á pakka sem heitir Lykill að lúxus. Átta hótel af
tuttugu og níu með þessu nafni í Bandaríkjunum
taka þátt en fimm þeirra eru á Flórída, eitt í Kolorado
og tvö í Kaliforníu. Gestir á Ritz-Charlton hótelunum
fá afnot af glænýrri Benz bifreið meðan á dvöl þeirra
stendur og hvern morgun er búið að fylla tankinn af
bensíni. Auk bifreiðarinnar fá gestir valdar vist-
arverur og annað sem hæfir lúxuspakkanum.
Næsta vor verður Lykill að lúxus einnig í boði hjá
fleiri hótelum í keðjunni.
Benz bifreið fylgir
með herberginu
FARÞEGAR sem ferðast á viðskiptafarrými með
flugfélaginu Singapore Airlines geta nú haft það
huggulegt því búið er að taka í notkun nýja gerð af
sætum um borð.
Þetta eru svokölluð geimrúm því það er hægt að
breyta sætunum í rúm með einu handtaki en þau
eru 65 cm breið og 1,98 m á lengd. Auk þess geta
farþegar kippt upp örmum sætanna og þar með
stúkað sig aðeins af ef þeir vilja vera aðeins út af
fyrir sig á meðan þeir hvíla sig
Himnasæng í háloftunum
FAGNEFND á vegum Flugörygg-
issamtaka Evrópu, JAA, hefur lagt
til að flugmenn megi undir ströngum
skilyrðum taka sér örstuttan blund
meðan þeir eru við vinnu sína. Tveir
flugmenn eru alla jafna í stjórnklef-
anum og þetta mun þýða að annar
þeirra geti í löngu flugi tekið stuttan
lúr í einu á fyrirframákveðnum tím-
um meðan hinn stendur vaktina.
Pétur K. Maack framkvæmdastjóri
flugöryggissviðs Flugmálastjórnar
Íslands segir að þó að fagnefndin
hafi þegar skilað þessu áliti til Flug-
öryggissamtaka Evrópu eigi eftir að
taka endanlega afstöðu til þess. Slík
ákvörðun krefjist reglugerðarbreyt-
inga hérlendis og það geti tekið ein-
hvern tíma að koma því í fram-
kvæmd.
Hann segir að ein af ástæðum
fyrir því að farið var að skoða þessi
mál hjá Flugöryggissamtökum Evr-
ópu sé að Ástralir hafi mjög góða
reynslu af því að leyfa flugmönnum
að hvíla sig á löngu flugi. Þeir hafa
gert ítarlegar rannsóknir þar sem
komið hefur í ljós að dregið hafi úr
vökusvefni hjá flugmönnum ef þeir
hafa fengið tækifæri til að taka
stutta lúra í flugi.
Mega flugmenn
brátt taka sér
lúr í flugi?
Auglýsendur!
Jó l i n 2002
30. nóvember
Pantið fyrir kl. 12
föstudaginn 15. nóvember!
Pantið tímanlega þar sem uppselt
hefur verið í jólablaðauka fyrri ára.
Allir nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Jólablaðaukinn
fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 30. nóvember.