Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 24
Sópar Hafið til sín Eddu- verðlaununum árið 2002? Sæbjörn Valdi- marsson spáir í spilin fyrir verð- launaathöfnina í kvöld  BRESKI leikstjórinn Anthony Minghella er lentur í vandræðum með nýja mynd sína eftir að hafa hlotið mikið lof fyrir The English Patient og The Talented Mr. Rip- ley. Nýja verkefnið heitir Cold Mountain eða Kaldafjall og fjallar um særðan hermann í bandaríska borgarastríðinu sem snýr heim aftur í fjallaþorpið og til æskuást- arinnar sem hann skildi þar eftir. Í aðalhlutverkum er mikið mannval – Jude Law, Nicole Kidman, Ren- ee Zellweger, – og myndin mun kosta um 80 millj- ónir dollara. Nú er farið að kólna verulega á Kalda- fjalli því MGM, meðframleiðandi Miramax, hefur hætt við þátttöku í gerð myndarinnar. Miramax er þó ekki af bakið dottið og leitar dyrum og dyngjum að nýjum meðframleiðanda. Kólnar enn á Kaldafjalli Jude Law: Nýtt verkefni með Minghella í lausu lofti.  BRESKI leikstjórinn John Boorman, sem síðast sendi frá sér The Tailor Of Panama eftir sögu Johns Le Carré, er nú að undirbúa gerð nýrrar myndar, Country Of the Skulls. Þetta er dramatísk mynd, byggð á dag- bókum Antjie Krog, um átök og undirferli í Suður-Afríku, líkt og sú fyrrnefnda lýsti í Panama. Samuel L. Jackson leikur bandarískan blaðamann og Juliette Binoche unga konu af Afrikaanerættum sem eiga samskipti við háskaleg- an leyniþjónustumann. Boorman til Suður-Afríku John Boorman: Frá Panama til Suður-Afríku.  LEIKSTJÓRINN Curtis Hanson hefur gert prýðilegar saka- málamyndir á ferlinum, The Bedroom Window, Bad Influence, en þó fyrst og fremst Ósk- arsverðlaunamyndina LA Confid- ential. Hann hefur undanfarið gert annars konar myndir eins og The Wonder Boys og 8 Mile með rapp- aranum Eminem. Nú hefur Warner Bros.-félagið í hyggju að beina Hanson aftur inn á glæpabrautina því það hefur tryggt sér kvikmynda- réttinn á fjórum sakamálasögum rithöfundarins George P. Pelecanos um líf og störf einkaspæj- arans Dereks Strange í Washington og á Hanson bæði að leikstýra syrpunni og framleiða. Hanson aftur á glæpabrautina Curtis Han- son: Glæpir borga sig.  BANDARÍSKI leikarinn Edward Norton, sem við getum nú séð í Red Dragon, mun framleiða og leika eitt aðalhlutverkanna í mynd- inni The Painted Veil sem byggð er á skáldsögu W. Somerset Maugham. Sag- an, sem Ron Nyswaner (Philadelphia) færir í hand- ritsbúning, segir frá trúboðslækni í Hong Kong árið 1920 sem vogar sér inn á svæði þar sem kóleran geisar til að stöðva ástarævintrýri konu sinnar og annars manns. Norton mun leika lækninn en Naomi Watts (Mulholland Drive) eiginkonuna. Leikstjóri er enn óráðinn. Norton framleiðir Maugham Edward Norton: Framhjáhaldsdrama. STELLA í orlofi er einhver vin- sælasta gamanmynd íslenskrar kvikmyndasögu, en myndinni, sem frumsýnd var árið 1986, leik- stýrði Þórhildur Þorleifsdóttir eftir handriti Guðnýjar Halldórs- dóttur. Nú hefur Guðný sjálf leik- stýrt nýrri gamanmynd um æv- intýri Stellu eftir eigin handriti og verður hún frumsýnd hinn 19. desember. Myndin heitir Stella í framboði og snúa þar aðalpersón- urnar úr fyrri myndinni aftur, húsmóðirin hartkeyrða Stella, sem Edda Björgvinsdóttir leikur sem fyrr, og Salómon, sem kom drukkinn úr Svíaríki til að fara hér í áfengismeðferð, leikinn eins og áður af Þórhalli Sigurðssyni, Ladda. Guðný segist í samtali við Morgunblaðið hafa ákveðið að gera nýja mynd um Stellu vegna fjölda áskorana frá aðdáendum þeirrar fyrri, sem lifað hefur góðu lífi á myndbandi frá því hún var frumsýnd. Og Guðný kveðst hafa sent aðalpersónuna í pólitík vegna þess að hún hafi sjálf lifað og starfað mikið í stjórnmálum undanfarin ár með þátttöku í sveitarstjórn Mosfellsbæjar. „Nýja myndin lýsir sigurgöngu Stellu í stjórnmálunum og hrak- fallasögu Salómons úti á lands- byggðinni en báðar þessar sögur fléttast saman og einnig við sögur af mörgu fleira fólki,“ segir hún. Sögunni lýsir hún svo: Stella og Salómon reka saman fagurkera- fyrirtæki, Framkoma.is. Salómon er ráðinn af Antoni Skúlasyni flugstjóra (Gísli Rúnar Jónsson) til þess að fegra og umbreyta þorpi, sem hann hefur eignast. Stella verður eftir í bænum og tekur að sér að kenna stjórnmála- mönnum að koma fram, enda kosningar í nánd. Af misskilningi þvælist Stella inn í framboð Centrumlistans, sem berst við höfuðandstæðing sinn, Miðflokk- inn, og veit ekki fyrri til en hún er komin á kaf í pólitík. Fjölskyldumál Stellu blandast inn í frásögnina með stórslysum, eldsvoða, beiskju og mótlæti af öllu tagi, sem aðeins „Stellufólk- ið“ getur orðið fyrir á fáeinum vikum. Auk Eddu, Ladda og Gísla Rúnars eru í helstu hlutverkum Rúrik Haraldsson, Nína Dögg Filippusdótt- ir, Björn Jörundur, Róbert Ólíver Gíslason, Alda Rós Hafsteinsdóttir, Árni Pétur Guð- jónsson, Örn Árna- son, Gestur Einar Jónasson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Júlíus Brjánsson, Sigurður Sigur- jónsson, Helga Braga Jónsdóttir, Stefán Karl Stefánsson, Steinn Ár- mann Magnússon, Hjálmar Hjálm- arsson, Eggert Þorleifsson, Randver Þorláksson, Þorsteinn Guðmundsson o.m.fl. Framleiðandi er Halldór Þor- geirsson fyrir Umbi Film. Kvik- myndatöku annaðist Hálfdán Theo- dórsson, Pétur Einarsson hljóð, Þorkell Harðarson leikmynd, Re- bekka Ingimundardóttir búninga, Ragna Fossberg hár og förðun, Ragnhildur Gísladóttir tónlist og El- ísabet Rónaldsdóttir klippingu. Stella í framboði, ný íslensk gamanmynd Guðnýjar Halldórsdóttur, frumsýnd 19. desember Sigurgangan hjá Stellu – hrakfarirnar hjá Salómon Stella slysast í framboð: Edda Björg- insdóttir í hlutverki sínu. Salómon í fegrunaraðgerðum úti á landi: Þór- hallur Sigurðsson, Laddi í Stellu í framboði. ÞESSI dagblaðapapp-írsheimspeki er hér á þess-um stað og þessari stund vegna verðlaunaveitinga, hvorki meira né minna, nánar tiltekið verðlaunaveitinga fyrir kvikmynd- ir. Tilgangurinn með slíkum veit- ingum, eins og verðlaunaveit- ingum yfirleitt, er að verðlauna það sem vel er gert. Það er gert með því að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert með verð- launum. Skiljiði? Og athygli fólks er ekki síst vak- in með því að skapa eftirvæntingu, forvitni, spennu um hver eða hverjir hreppa hin eftirsóttu verð- laun. Í dag bíða þeir, sem áhuga hafa, í eftirvæntingu, spennu og töluvert forvitnir eftir því að upp- lýst verði hverjir hreppa Eddu- verðlaunin í kvöld, viðurkenningu Íslensku kvikmynda- og sjón- varpsakademíunnar á því sem vel er gert á því sviði. Þeir, sem áhuga hafa, verða að bíða til kvölds eftir því að þetta upplýsist. Ef þeir vissu nú þegar hverjir verðlauna- hafarnir verða biðu þeir ekki í neinni eftirvæntingu eða spennu, hvað þá forvitnir, eftir útsendingu frá verðlaunaafhendingunni. Þeir myndu þá fara frekar í bíó eða leikhús eða horfa á Skjá 1 eða lesa bók eða fara að sofa eða heim- sækja mömmu og pabba eða leika við börnin. Eða eitthvað allt annað en fylgjast með verðlaunaveitingu sem vitað er hvernig fer. Sama gildir um aðrar veitingar af þessu tagi. Óskarsverðlaunin vekja jafn mikla athygli á kvikmyndum og kvikmyndagerðarfólki og þau gera ekki síst vegna þess að úrslitin liggja ekki fyrir áður en verðlaun- in eru afhent. Jæja, allt ættu þetta að vera sjálfsagðir hlutir. En á vettvangi Norðurlandaráðs og nor- ræns samstarfs fer því fjarri að þetta sé sjálfsögð og augljós sannindi. Loks- ins þegar ráðið tekur sig saman í andlitinu og veitir þeirri listgrein samtímans sem mestra vinsælda nýt- ur hjá almenningi, list- grein sem stendur einmitt með miklum blóma á Norðurlöndum um þessar mundir, verðlaun á borð við þau sem þegar eru veitt fyrir bókmenntir og tónlist, þá tekst að klúðra þeim. Ég á ekki við að Norrænu kvikmyndaverð- launin hafi farið í rangar hendur; Aki Kaurismäki er eflaust prýðilega að þeim kominn. Nei, það klúðr- aðist að nýta tækifærið til að vekja verulega athygli á verðlaunaveitingunni, at- hygli sem felst í eftirvænt- ingunni, spennunni, for- vitninni. Forráðamenn verðlaunanna tóku þá óskiljanlegu ákvörðun að tilkynna fyrirfram hver verðlaunahafinn væri og gerðu þarmeð verðlaunaveit- inguna sjálfa sem næst óþarfa, að eins konar formsatriði í sam- kvæmisdressi. Í stað þess að taka sér til fyrirmyndar þær hefðir sem myndast hafa á verðlaunahátíðum, sýna úr öllum tilnefndum myndum og byggja upp ofurlítið dramatískt ris í útsendingunni lyppaðist til- efnið niður í flatneskju. Kannski finnst hinu háæruverðuga ráði ómenningarlegur markaðskeimur af þessum hefðum. Kannski finnst því að norrænt samstarf sé yfir slíkt hafið. En þá gleymist enn ein augljós staðreynd: Hér er skatt- peningum norræns almennings varið til að vekja athygli á norræn- um kvikmyndum og þá hlýtur krafan að vera sú að þeir peningar nýtist í þeim tilgangi. Það mis- tókst. Eða er tilgangurinn einhver annar en að sem flestir, bæði Norðurlandabúar og aðrir, sjái og meti norrænar kvikmyndir? Fram hefur komið að Norrænu kvikmyndaverðlaunin voru veitt í þetta sinn en ekki sé víst að þau verði árlegur viðburður. Framtíð þeirra hljóti að ráðast af því hvernig til tókst nú. Ýmsan lær- dóm má draga af því, en alls ekki þann að Norrænu kvikmynda- verðlaunin eigi ekki fullan rétt á sér. Ef rétt er að þeim staðið, ef menn draga réttan lærdóm af frumrauninni, hafa þau mikla þýð- ingu fyrir viðvarandi baráttu nor- rænna kvikmynda við ofureflið að vestan. Fyrir utan framkvæmd og kynningu verðlaunaafhending- arinnar sjálfrar er afar brýnt að þær bíómyndir sem tilnefndar eru frá hverju landi fái vel útfærðar og kynntar sýningar á öllum Norð- urlöndunum, jafnvel að þær verði undirstaða lítillar norrænnar kvik- myndahátíðar í hverju landi rétt fyrir verðlaunaathöfnina. Þessum myndum þarf að tryggja fastan og öruggan sýningarfarveg svo þær verði ekki aðeins innihaldslausir titlar í vitund almennings á Norð- urlöndunum. Þannig mun það fé, þeir skattpeningar, sem varið er í Norrænu kvikmyndaverðlaunin, nýtast og skila sér til baka. Þá sitjum við ekki aðeins uppi með spurningar heldur bíðum eft- ir svörunum, full eftirvæntingar, spennt og forvitin. Eftirvæntingin í óvissunni SJÓNARHORN Árni Þórarinsson „Ef maður er jafnan viðbúinn hinu óvænta verður þá hið óvænta ekki jafn- an viðbúið?“ Þetta er svo óvænt spurn- ing að ég er einmitt viðbúinn að svara henni. Svarið er já. En þar með er eft- irvæntingin horfin úr lífinu, ekki satt? Forvitnin. Spennan. Spurningin um hvað gerist á næsta augnabliki og því næsta eftir það. Eða svarið við spurningunni. Og ef spurning og svar eru eitt og hið sama er það ekki tilgangsleysið upp- málað? Dauðinn sjálfur? Aki Kaurismäki dansar á rauða dreglinum: En við vissum það fyrirfram... AP  NÚ eru aðeins tvær vikur þangað til nýjasta Harry Potter myndin verður frum- sýnd hér á landi, en síðan hann kom fyrst fram á sjón- arsviðið árið 1997 í bókinni Harry Potter og viskusteinn- inn hafa vinsældir hans slegið öll met um allan heim. Fjórar bækur hafa komið út og sú fimmta er á leiðinni. Fyrsta kvikmyndin um hann, sem byggð var á fyrstu bók- inni, var frumsýnd í nóvember í fyrra og komst fljótt í annað sæti yfir vinsælustu bíómyndir allra tíma. 22. nóvember nk. verður Harry Potter og leyniklefinn frumsýnd sem byggð er á bók númer tvö í Harry Pot- ter seríunni, en alls verða kvikmyndirnar sjö talsins. Með aðalhlutverk fara: Daniel Radcliffe, Rupert Grint, Emma Watson (II), Kenneth Branagh, Rob- bie Coltrane, Richard Harris, Alan Rickman, Mag- gie Smith, John Cleese og Warwick Davis. Höf- undur Harry Potter-sagnanna er J.K. Rowling, en leikstjórn var í höndum Chris Columbus. Harry Potter er á leiðinni Nýja myndin: Daniel Radcliffe og Rupert Grint í hlutverkum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.