Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 9

Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 B 9 KANNSKI að sú staðreyndað Patty Wagstaff hefurþrisvar sinnum orðiðbandarískur meistari ílistflugi segi eitthvað um persónuleika hennar auk þess að vera vitnisburður um ótvíræða hæfileika. Patty var jafnframt fyrsta konan til að vinna titilinn. „Það dugði mér ekki að vinna hann einu sinni. Mig langaði til að fá titilinn þrisvar til að sanna mig, svo fólk gæti ekki sagt þetta vera einhverja tilviljun,“ segir Patty, sem er þekktur listflugmaður. Hún lét sig ekki muna um að sanna það þrjú ár í röð, 1991–1993, og hefur hún til við- bótar unnið til fjölda annarra verð- launa á sínu sviði. Patty ólst upp að hluta til í Japan en faðir hennar var flugstjóri hjá Jap- an Airlines. „Þess vegna kynntist ég flugheiminum til að byrja með,“ segir hún en útskýrir að í Japan sé engin menning í kringum litlar vélar og flugsýningar hafi ekki tíðkast. „Ég fór ekki á flugsýningu fyrr en ég flutti til Alaska árið 1979. Þar fljúga margir litlum vélum,“ segir hún og bætir við að flugmenningin sé sprottin upp úr víðerni ríkisins og skorti á vegum. Patty lærði að fljúga í Alaska, þar sem hún bjó í 15 ár og kynntist jafn- framt eiginmanni sínum. „Þegar ég kynntist fluginu vissi ég að þetta var það sem ég hafði beðið eftir. Ég hafði starfað við margvíslega hluti áður. Það höfðaði til mín að flugið er spenn- andi og í því felst áskorun. Ég hugsaði að mér ætti ekki eftir að leiðast í þessu því ég er fljót að missa athygl- ina,“ segir hún og bætir við að flugið gefi einnig tækifæri til ferðalaga og hún fái að fara hratt yfir. „Þarna fékk ég allt í einum pakka.“ Flestir eru sáttir við að standa traustum fótum á jörðu niðri þegar þeir sjá listflugvél taka dýfur og slauf- ur í loftinu. Hjá Patty var þessu öðru- vísi farið. „Ég vissi þegar ég fór á flugsýningu og sá listflug að þetta væri það sem ég vildi gera,“ Sýnir listflug um allan heim Patty tók flugmannspróf árið 1980 og hefur í gegnum tíðina bætt við sig réttindum. Hún hefur réttindi til að fljúga bæði orrustuþotum og farþega- þotum auk þess að fást við flug- kennslu. Patty hefur einnig skrifað bók og tímaritsgreinar og langar að skrifa aðra bók þegar tækifæri gefst. Auk þessa má geta að hún er í nefnd- um og ráðum ýmissa félaga tengdum flugi og er starf hennar því fjölbreyti- legt. „Ég keppti í 12 ár og tók líka þátt í flugsýningum. „Það var gaman að því en það var erfitt vegna ferðalaganna sem fylgja en ég var stundum að heiman í tvo mánuði. Ég keppi ekki lengur og skipulegg flugsýningarnar þannig að ég geti reglulega verið heima,“ segir Patty en hún býr í Flór- ída í Bandaríkjunum. Patty er jafnframt með fólk í vinnu sem hjálpar til við skipulagningu flug- sýninga hennar. Hún hefur ferðast um allan heim í tilefni þeirra og má nefna Kanada, Mexíkó, Argentínu, England, Frakkland, Sviss, Rússland og loks Ísland. Patty er ánægð með komuna hing- að til lands, sem er í boði Flugmála- félags Íslands. Henni sýnist flug standa vel að vígi hérlendis og ætlar að koma hingað aftur. Hún sýndi list- flug en segist ekki hafa getað gert allt sem hún er vön því hún hafi ekki verið á sinni venjulegu vél. Patty er hvað þekktust fyrir nákvæmt lágflug og áleitinn en mjúkan stíl. Að sögn Pattyar eru um 6% flug- manna í Bandaríkjunum konur. Stóru flugfélögin eru með átak í að fá konur til starfa og segir Patty það hvetjandi. Hún sér sjálf ekki eftir því að hafa ekki valið að verða farþegaþotuflug- maður, þrátt fyrir mörg tilboð, því hún hafi fengið svo mörg tækifæri. „Konur vita núna að það er mögu- leiki að verða flugmaður. Þegar ég var lítil var þetta ekki raunverulegur möguleiki,“ segir hún en svo virðist sem flugið sé í blóðinu því yngri systir hennar er einnig flugmaður. „Núna koma feður til mín á flug- sýningum með dætur sínar því þeir vilja að þær viti að þeim standa allar dyr opnar,“ segir hún. Þekktur bandarískur listflugmaður á Íslandi Á ferð og flugi Konur vita núna að það er möguleiki að verða flugmaður segir Patty Wagstaff. TENGLAR .............................................. www.pattywagstaff.com Patty Wagstaff hefur í þrígang orðið bandarískur meistari í listflugi því hún vildi sanna að ekki væri bara um tilviljun að ræða. Wagstaff var hér á ferð fyrir skömmu og Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við þessa ævintýrakonu. ingarun@mbl.is Lið-a-mót FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla Viðbótar styrkleiki M ik lu ó d ýr a ra FRÍHÖFNIN -fyrir útlitið Alternatorar og startarar BÍLARAF HF., Auðbrekku 20 • S. 564 0400 • Fax 564 0404 í fólksbíla, báta, rútur, vörubíla, vinnuvélar o.fl., frá Valeo o.fl. Einnig viðgerðir á alternatorum og störturum. Kúplingar í rútur, vörub. frá Valeo. Olíumiðstöðvar, vélahitarar f. bíla, báta o.fl. Trumatic gasmiðstöðvar fyrir bíla, báta, húsbíla, fellihýsi, sumarhús o.fl. 12 v. blástur, thermostad. Vídeómyndavélar fyrir sendibíla o.fl. til að sjá fyrir aftan þegar bakkað er, fyrir báta að fylgjast með vélarúmi o.fl. Neðansjávarmyndavélar, hægt að sjá niður á 20 m dýpi, fyrir bátaeig., hafnir, björgunarsv., o.fl. o.fl. Örbylgjuofnar, kaffivélar o.fl. 12 og 24 volt. Spennubreytar úr 12 volt í 220 v., margar stærðir. Sólarrafhlöður, vindrafstöðvar fyrir sumarhús o.fl. umboðið umboðið Jónsmessurunni (Jóhannesarjurt) Hypericum perforatum L. Nafn náttúrulyfsins, lyfjaform og styrkur: Modigen, 300 mg Hypericum perforatum L. extrakt. Hvað inniheldur lyfið? Eitt hylki inniheldur 300 mg af Hypericum perforatum L. extrakti, staðlað innihald 900 míkróg hypericin. Handhafi markaðsleyfis: Jemo-pharm A/S, Hasselvej 1, 4780 Stege, Danmörk. Umboðsmaður á Íslandi: Heilsuverslun Íslands ehf., Borgartúni 7, 105 Reykjavík. Við hvaða sjúkdómi er náttúrulyfið notað? Notist við depurð, framtaksleysi og vægu þunglyndi. Ef áhrifa verður ekki vart innan 4-6 vikna skal meðferð hætt. Þungun og brjóstagjöf Þungaðar konur og konur með barn á brjósti ættu ekki að nota lyfið þar sem engin reynsla af notkun lyfsins er fyrirliggjandi. Lyfjameðferð samtímis töku þessa náttúrulyfs: Modigen minnkar áhrif eftirtalinna lyfja og ætti því ekki að nota það samtímis töku þeirra án samráðs við lækni: Warfarín og önnur skyld segavarnarlyf (blóðþynningalyf), ciklosporin, teófyllín, sterar, þunglyndislyf, digoxín, karbamazepín, fenemal og fenýtóín, (flogaveikilyf) indinavír og aðrir próteasahemlar, og bakritahemlar sem ekki eru núkleótíð (lyf sem notuð eru við HIV sýkingum). Þessar milliverkanir virðast flestar eða allar byggjast á því að hypericum eykur virkni ensíma af gerðunum CYP3A4, CYP1A2 og e.t.v. fleiri. Ekki skal hætta töku náttúrulyfsins skyndilega hafi það verið notað í einhvern tíma ásamt framangreindum lyfjum, án þess að endurskoða skammtastærðir þeirra. Einnig hefur verið greint frá auknum aukaverkunum vegna svonefndra triptan lyfja (notuð við mígreni) þegar þau eru notuð ásamt náttúrulyfjum sem innihalda hypericin. Gæta á varúðar ef náttúrulyfið er tekið samtímis lyfjum sem auka ljósnæmi t.d. kíníni, tetrasýklíni, tíasíð-þvagræsilyfjum og metoxaleni. Hjá konum sem taka getnaðarvarnartöflur hafa milliblæðingar komið fyrir og einnig getur Modigen dregið úr virkni getnaðar- varnartaflna. Framangreind áhrif náttúrulyfsins geta varað í 1-2 vikur eftir að töku þess er hætt. Hvernig skal nota náttúrulyfið? Fullorðnir 1-2 hylki á dag. Náttúrlyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára án tilvísunar læknis. Hvað gerist við ofskömmtun? Ef börn hafa tekið náttúrulyfið í ógáti skal hafa samráð við lækni. Hæfni til að stjórna vélum og ökutækjum Upplýsingar eru ekki fyrirliggjandi. Hvaða aukaverkunum getur náttúrulyfið valdið? Ljósnæmisviðbrögð s.s. kláði og roði á húð geta komið fram, einkum hjá fólki með ljósa húð. Aðrar aukaverkanir eru óþægindi frá meltingarfærum, svimi og þreyta. Í einstaka tilvikum hefur oflæti (mania) komið fram. Hafið samband við lækni ef aðrar aukaverkanir koma fram. Hvernig á að geyma náttúrulyfið? Geyma á náttúrulyfið við stofuhita. Geymsluþol náttúrulyfsins er í samræmi við fyrningardagsetningu á umbúðum þess. Notið náttúrulyfið ekki eftir þá dagsetningu. Lesið eftirfarandi texta vel yfir áður en meðferð með náttúrulyfinu hefst. Modigen er náttúrulyf gegn vægu þunglyndi, depurð og framtaksleysi. Modigen fæst í apótekum án lyfseðils. H U G V E R K A sm ið ja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.