Morgunblaðið - 10.11.2002, Side 19

Morgunblaðið - 10.11.2002, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 B 19 bílar STEPHAN Wöllenstein er sölu- stjóri fólksbíla VW í 16 löndum í norðanverðri Evrópu þar sem sam- anlögð sala á VW-bílum er 550-600 þúsund á ári. Þar af er heildarsalan á Íslandi 900-1.500 bílar á ári en Wöll- enstein segir að engu að síður sé það mikilsverður markaður í huga sölu- stjóra VW. Wöllenstein var staddur hérlendis á dögunum vegna 50 ára afmælis VW á Íslandi og kynningar á nýja Touareg-jeppanum. Rætt var við hann í nýjum salarkynnum Heklu sem eru hönnuð í samræmi við forskrift VW um alla Evrópu. Mikið er lagt í nýju húsakynnin og því lá beint við að spyrja Wöllenstein hvort ætlunin væri að færa VW-bíla þrepi hærra í virðingarstiganum, í átt að lúxusbílum. Brugðist við samkeppni frá Mercedes-Benz „Já, það er okkar stefna. Við vilj- um ekki týna sjálfum okkur eða upp- runa okkar en við viljum teygja okk- ur inn í lúxusbílaflokkinn. Við höfum þegar tekið tvö skref í þá átt. Það fyrra felst í lúxusfólksbílnum Pha- eton, sem hefur verið afar vel tekið af bílapressunni í ljósi tæknilegrar getu sem við sýnum í bílnum. Pha- eton keppir við S-bíl Mercedes-Benz og BMW 7-línuna og fleiri. Seinna skrefið er Touareg, sem tilheyrir lúxusflokknum með mesta búnaðin- um og stærstu vélunum. Jafnvel með grunngerð Touareg er VW að fram- leiða dýrari gerð bíls þótt hún til- heyri kannski ekki alveg lúxusbíla- flokknum. Við tókum þá ákvörðun fyrir nokkrum árum að bregðast þannig við samkeppni frá öðrum bílaframleiðendum sem hættu sér inn á okkar heimavöll, að sækja þá heim á þeirra eigin heimavelli. Þetta er einmitt það sem nafntogaður keppinautur okkar í suðurhluta Þýskalands gerði. Hann hóf fram- leiðslu á Mercedes-Benz A sem er beinn keppinautur við Golf. Við svör- um því með því að teygja okkur inn á lúxusbílamarkaðinn sem gefur okk- ur jafnframt tækifæri til að sýna nú- verandi eigendum VW-fólksbíla að merkið sé á leið upp á við og þeir þurfi ekki að skipta um merki vilji þeir færa sig upp í lúxusbíl. Nú þeg- ar eru tveir lúxusbílar frá okkur komnir á markaðinn og fleiri eru á leiðinni,“ segir Wöllenstein. Miklar vonir voru bundnar við smábílinn Lupo. Ollu móttökurnar ykkur vonbrigðum? „Nei, það gerðu þær ekki. Okkar vandamál er það að margir bera alla okkar bíla saman við Golf. Salan á Lupo virðist miklum mun minni en á Golf, og er það vissulega, en þess ber að gæta að heildarsalan í smábíla- flokknum sem Lupo tilheyrir er mun minni. Mörgum þykir verðbilið milli Lupo og Golf einnig lítið en þegar lit- ið er á gæði allra bíla VW, efnisval, tækni og öryggisbúnað, er ljóst að við getum ekki og viljum ekki lengur framleiða ódýra bíla. Séu viðskipta- vinir að leita að ódýrum bílum getur VW ekki orðið að óskum þeirra. Þeir snúa sér þá vonandi til Skoda,“ segir Wöllenstein. Lítill fjölnotabíll og hugsanlega jepplingur Á næsta ári býður VW í fyrsta sinn lítinn fjölnotabíl inn á markað þar sem Renault Scénic og Opel Zaf- ira hafa að mestu ráðið ríkjum. Bíll- inn verður bæði boðinn fimm sæta og sjö sæta og mætir því helsta keppinautnum, Zafira, með því móti. Ætlar VW að framleiða minni gerð jeppa eða jeppling? „Við skulum sjá hvað setur. Ég get ekki upplýst þig að fullu um áætlanir okkar en þú getur rétt ímyndað þér hvort við höfum ekki leitt hugann að framleiðslu á minni jeppa sem hægt er að selja í mun meira magni en Touareg. Þetta er hugsanlegt en þó ekki fyrr en árið 2006 í fyrsta lagi. Stóru tíðindin framundan á næsta ári er kynning á fimmtu kynslóð VW Golf á bílasýn- ingunni í Frankfurt og hann kemur á markað seint á næsta ári. Seinna meir koma að sjálfsögðu einnig nýjar kynslóðir Passat og Bora, þ.e.a.s. 2003-2005.“ Wöllenstein segir að menn megi einnig eiga von á nýjum dísilvélum með háþrýstiinnsprautun, pümpe- diesel og einnig nýjum bensínvélum með beinni strokkinnsprautun, svo- nefndum FSI-vélum, sem eru spar- neytnari en um leið aflmeiri en hefð- bundnar gerðir bensínvéla. VW hvorki vill né getur boðið ódýra bíla Stephan Wöllenstein, sölustjóri VW í Þýskalandi í 16 Evr- ópulöndum, segir í samtali við Guðjón Guðmundsson að það sé stefna fyrirtækisins að færa framleiðsluna upp í staðlaða lúxusbíla. Ljósmynd/Stefán Ásgrímsson Stephan Wöllenstein, sölustjóri VW í Evrópu, við nýjan Touareg-jeppa. Hekla hf. er fyrst umboða í Evrópu til að sýna bílinn. Moggabúðin Íþróttataska, aðeins 2.400 kr. MMC Pajero GLX 2500 Diesel, f.skr.d. 29.06. 2001, ek. 26 þús. km, 5 dyra, beinskiptur. Verð 3.450.000 IS200 LEXUS STYRKIR SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S TO Y 19 07 6 1 0/ 20 02 LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS Ef til vill finnst flér tvisvar á dag ekki nóg. A› minnsta kosti ekki flegar upplifun í IS200 er annars vegar. fia› ver›ur nánast vanabindandi a› finna spennuna, sem fylgir flví a› snúa lyklinum, a› skynja afli› og fjöri›. Stíll og fágun au›kenna sérhvert smáatri›i. Glæsileg innrétting og sjálfvirk loftræsting ver›a til fless a› ökumanni og farflegum lí›ur betur en í nokkrum ö›rum bíl. 6 diska geisla- spilari er felldur inn í mælabor›i›. fiú hlustar á uppáhaldstónlistina flína og ert í sjöunda himni frá flví a› lagt er af sta› og flar til slökkt er á bílnum. Sérkenni Lexusbíla, hva› fleir láta vel a› stjórn og eru gæddir frábærum aksturseiginleikum, gera fla› enn ánægjulegra a› aka IS200. En fyrst og fremst er léttir til fless a› vita a› flví eru engin takmörk sett hversu oft á dag má njóta fless a› aka IS200. En hér er gó› vi›mi›unarregla: fieim mun oftar, fleim mun skemmtilegra. Rá›lag›ur dagskammtur: a.m.k. tvisvar N Á N A R I U P P L † S I N G A R U M I S 2 0 0 O G U M A L L A R A ‹ R A R G E R ‹ I R A F L E X U S M Á F Á H J Á S Ö L U D E I L D L E X U S Í S Í M A 5 7 0 5 4 0 0 E ‹ A Á W W W . L E X U S . I S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.