Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VILJA ENN SAMSTARF
Lýst var yfir fullum stuðningi við
borgarfulltrúa Vinstrihreyfing-
arinnar-græns framboðs á fjölmenn-
um fundi sem haldinn var í gær að
frumkvæði borgarmálaráðs flokks-
ins um samstarfið innan Reykjavík-
urlistans. Fundarmenn vildu að
staðfastlega yrði unnið að því að
tryggja áframhaldandi samstarf
flokkanna þriggja en ekki yrði hvik-
að frá því að Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir yrði að velja hvort hún vildi
vera borgarstjóri áfram eða fara í
framboð til þings.
Kvótum ESB mótmælt
Breskir sjómenn hafa mótmælt
málamiðlunarsamkomulagi Evrópu-
sambandsins um að minnka þorsk-
veiðar á næsta ári um 45% og segja
að það verði til þess að mörg fyr-
irtæki verði gjaldþrota og þúsundir
manna missi atvinnuna. Umhverf-
isverndarsamtök segja hins vegar að
ESB, sem hafði boðað 80% nið-
urskurð, hafi ekki minnkað kvótana
nógu mikið til að bjarga þorskinum í
Norðursjó.
Gögn um vopn Íraka afhent
Bandaríkjastjórn hefur orðið við
beiðni vopnaeftirlitsnefndar Sam-
einuðu þjóðanna um að afhenda
henni leyniþjónustugögn, aðallega
frá njósnahnöttum, í von um að hún
finni gereyðingarvopn Íraka.
Hótelherbergjum fjölgar
Útlit er fyrir að hótelherbergjum í
Reykjavík fjölgi um 20% á næstu
mánuðum, úr 1.560 frá því í sumar í
1.900 með vorinu. Heilsárshótelum á
landinu hefur fjölgað úr 54 í 58 á
árinu sem er að líða.
Of hátt verð fyrir bankann?
Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður fimmmenninganna svo-
nefndu úr hópi stofnfjáreigenda
SPRON, segir þá hafa ástæðu til að
ætla að verðið sem sparisjóðurinn
greiddi fyrir hlut Kaupþings í
Frjálsa fjárfestingarbankanum hafi
verið alltof hátt. Sparisjóðsstjóri
SPRON hefur sakað fimmmenn-
ingana um ófrægingarherferð á
hendur sparisjóðnum.
Minni fólksfjölgun á Íslandi
Íbúar á Íslandi voru 288.201 1.
desember og þeim fjölgaði um 0,68%
frá því á sama tíma í fyrra.
Drottning, mær og njósnari
Þótt Jörundur Jörundarson skrifaði margt um ævi sína, var hann ekki margmáll um kvennamál sín. Hann átti sér
þó tilvonandi drottningu á Íslandi, bað um hönd skozkrar yngismeyjar í Frankfurt og giftist írskum njósnara í
Tasmaníu. Freysteinn Jóhannsson hefur gluggað í heimildir um konurnar í lífi hundadagakóngsins.
ferðalög Í skíðaferð um jólin sælkerarKalkún börnGullplánetan bíóTurnarnir tveir
Út úr öngstrætinu
Hilmar Jensson og sköpun í djassi
Fer ekki
troðnar
slóðir í tón-
sköpun sinni
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
22. desember 2002
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 49
Hugsað upphátt B8 Myndasögur 50
Listir 26/35 Bréf 50/51
Af listum 26 Dagbók 52/53
Birna Anna 26 Krossgáta 55
Forystugrein 32 Leikhús 56
Reykjavíkurbréf 32 Fólk 56/61
Skoðun 38/39 Bíó 58/61
Minningar 40/44 Sjónvarp 54/62
Þjónusta 48 Veður 63
* * *
VERÐMAT, sem fimmmenningarnir svonefndu
úr hópi stofnfjáreigenda SPRON eru að láta
vinna fyrir sig, bendir til þess að sparisjóðurinn
hafi keypt Frjálsa fjárfestingarbankann af Kaup-
þingi á of háu verði, þegar greiddir voru tæpir
fjórir milljarðar króna fyrir bankann í haust.
Þetta fullyrðir Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður fimmmenninganna, í samtali við Morg-
unblaðið en vill ekki greina nánar frá niðurstöðu
verðmatsins. Það sé þó meginástæða fyrirspurnar
til Fjármálaeftirlitsins um viðskiptin. Auk þess
vilji umbjóðendur sínir fá á hreint hvort SPRON
hafi leitað til Fjármálaeftirlitsins fyrir eða eftir að
kaupin fóru fram. Það séu mikilvægar upplýs-
ingar því lög kveði á um að leita beri til eftirlitsins
áður en slíkir samningar séu gerðir.
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri
SPRON og stjórnarformaður Kaupþings, sagði í
Morgunblaðinu í gær að fyrirspurn fimmmenn-
inganna væri liður í ófrægingarherferð þeirra á
hendur SPRON. Ekkert óeðlilegt væri við við-
skiptin og þau hefðu verið samþykkt af Fjármála-
eftirlitinu.
„Það er óskiljanlegur hroki í þessum viðbrögð-
um Guðmundar,“ segir Jón Steinar, „og þetta er í
raun nákvæmlega eins og hans fyrri viðbrögð í
málinu. Það er líkt og að hann, og aðrir forsvars-
menn sparisjóðsins, treysti sér ekki til að fjalla
efnislega um málið. Alltaf þarf að hafa uppi ein-
hver stóryrði um að árásir eða ófrægingarher-
ferðir séu í gangi. Þessi vanstilltu viðbrögð við
einfaldri fyrirspurn benda nú bara til þess að
samviskan sé ekki góð af viðskiptunum.“
„Verið að taka stórfé út úr SPRON“
Jón Steinar segir umbjóðendur sína hafa
ástæðu til að ætla að verðið sem SPRON borgaði
fyrir hlut Kaupþings í Frjálsa fjárfestingarbank-
anum á síðasta degi þriðja ársfjórðungs, eða 30.
september síðastliðinn, hafi verið alltof hátt.
Verðmatið, sem er á lokastigi, bendi til þessa.
„Til að geta gætt hagsmuna sinna, sé þetta
rétt, þurfa umbjóðendur mínir að sjálfsögðu að fá
vitneskju um hvort staðið hafi verið lögformlega
rétt að þessari sölu. Af þeirri ástæðu er fyr-
irspurnin send til Fjármálaeftirlitsins og óþarfi er
fyrir Guðmund að vera að hlaupa upp út af því.
Hafi verðið verið allt of hátt þá er verið að taka
stórfé út úr SPRON, hið heilaga, eigendalausa fé
sem Guðmundur er búinn að tala um síðustu mán-
uði með geislabaug yfir höfði sér, og færa yfir í
Kaupþing, þar sem hann er stjórnarformaður.
Menn þurfa að huga að réttarstöðu sinni gagn-
vart þessu. Þarna virðist sparisjóðsstjórinn vilja
hafa sjálfdæmi um að færa eigendalausa eigin féð
úr sparisjóðnum yfir til Kaupþings,“ segir Jón
Steinar.
Verðmat fimmmenninga á bankakaupum SPRON af Kaupþingi
Telja SPRON hafa keypt
bankann á of háu verði
NEYTENDUR virðast ætla að
halda fastar um budduna fyrir
þessi jól en síðustu því velta
dagvöru var tæpum 3% minni í
nóvembermánuði á þessu ári en
í fyrra, skv. smásöluvísitölu
SVÞ – Samtaka verslunar og
þjónustu. Ekki virðist eins fast
haldið þegar kemur að áfengi
því velta áfengis í nóvember er
um 2% meiri en á sama tíma í
fyrra. Þá jókst sala áfengis um
tæp 10% frá því í október sl.
Veltuvísitala dagvöru var
97,3 stig í nóvember og hækk-
aði einungis um 2,6 stig frá því í
október þegar hún var 94,7
stig. Hækkun vísitölu áfengis á
milli mánaða var mun meiri eða
um 9,8 stig, úr 92,2 stigum í
október í 102,0 stig í nóvember.
Veltuvísitala lyfja er í fyrsta
sinn tekin með í smásöluvísi-
tölu og er byggð á upplýsingum
frá apótekum. Litlar breyting-
ar hafa verið í lyfjasölu að und-
anförnu en vísitalan er miðuð
við september. Hún hækkaði
um 3% í október en lækkaði aft-
ur og stóð í 99,9 stigum í nóv-
embermánuði. Smásöluvísitala
SVÞ byggist á upplýsingum frá
flestum dagvöruverslunum
landsins og er ætlað að greina
þróun í veltu.
Minni
matur
en meira
áfengi
ÞAÐ eru ekki allir ánægðir með að
fá lögregluna í heimsókn til sín en
Elísa Líf Ingvarsdóttir, átta ára
Mosfellingur, var fjarska glöð þeg-
ar Heimir Ríkarðsson hverfislög-
reglumaður bankaði upp á hjá
henni í gær. Heimir kom enda fær-
andi hendi, þar sem Elísa Líf var
svo ljónheppin að vera dregin út í
umferðargetraun barnanna.
Í verðlaun fékk Elísa Líf jóla-
pakka. Börnin sem eru dregin út í
umferðargetrauninni, alls um 300 í
Reykjavík, Mosfellsbæ og á Sel-
tjarnarnesi, fá einnig endurskins-
merki að gjöf frá lögreglunni enda
er nú svartasta skammdegið og því
mikilvægt að vera vel sjáanlegur.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan kemur færandi hendi
„MINNA framboð og hátt verð verð-
ur sennilega til þess að neysla á
þorski minnkar þegar til lengri tíma
er litið,“ segir Gunnar Svavarsson,
forstjóri SH, um niðurskurð Evrópu-
sambandsins á þorskkvótanum.
Hann segir að ákvörðun ESB hafi
áhrif á viðskipti Íslendinga og hlið-
aráhrif eins og áróður gegn þorsk-
veiðum geti haft meiri áhrif.
Eins og greint var frá í blaðinu í
gær hefur Evrópusambandið sam-
þykkt 45% niðurskurð á þorskkvóta
en lagt hafði verið til að niðurskurð-
urinn yrði 80%. Gunnar Svavarsson
segir að minni niðurskurður þýði að
þorskstofnarnir muni líklega byggj-
ast hægt upp og það hafi áhrif á við-
skipti Íslendinga á mörkuðunum.
Gunnar bendir á að þorskveiði hjá
ESB-ríkjunum hafi farið minnkandi
undanfarin ár og áratugi og hafi í
raun ekki skipt miklu máli varðandi
framboð inn á markaðina. Hins vegar
hafi hugsanleg hliðaráhrif eins og
áróður gegn þorskveiðum meiri áhrif.
Hann hafi verið nokkur undanfarin
tvö til þrjú ár og sé að magnast. „Þar
kemur til bæði misskilningur og eins
nota fyrirtæki þennan áróður í mark-
aðslegum tilgangi,“ segir hann og vís-
ar til þess að þá leggi fyrirtæki
áherslu á að bjóða aðrar vörur, jafn-
vel aðrar fisktegundir frá öðrum
heimshöfum, eins og bresk verslun-
arkeðja hafi auglýst í vikunni.
Gunnar segir að þar sem þorsk-
veiði í norðurhöfum hafi farið hnign-
andi sé framboðið tiltölulega tak-
markað sem leiði til þess að
þorskverð sé mjög hátt en lítið fram-
boð og hátt verð dragi sennilega úr
neyslu til lengri tíma og hún komi
ekki til baka með auknu framboði.
„Það er sú þróun sem menn hafa til
dæmis séð í Bandaríkjunum.“
Niðurskurður á þorskkvóta hjá ESB
Hliðaráhrif líkleg