Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 37
ingin margfaldast. En jafnvel
þrumuveður gengur yfir án þess
að rigni. Þótt líkneski af Þór sé
sett út í glugga í þeirri veiku von
að karlinn sveifli nú hamrinum af
fornum karlmennskukrafti, gerist
ekkert, í mesta lagi falla tíu drop-
ar úr þessum skýjum sem eru ekk-
ert nema tál og skapa einungis tál-
vonir. Þór, hvar er þín
fornaldarfrægð?
Að þreyja þorrann og góuna
98% af jörðum í NSW tilheyra
sjálfstæðum bændum og fjölskyld-
um þeirra. Oft liggja þessar jarðar
í afskekktum héruðum án greiðs
aðgangs að heilsugæslu, skólum
eða góðri símaþjónustu. Bændur
hafa lagt sig fram um að tækni-
væða búskapinn og hefur fram-
leiðsla þrefaldast á tímabilinu frá
1960–61 til 1989–99. Heildarfram-
leiðslan í NSW var á síðasta ári
metin á 10 milljarða ástralskra
dala og veitti 122 þúsundum at-
vinnu. Aðstoð fylkisstjórnarinnar
til bænda nemur aðeins 4% af
heildartekjum.
En hversu vel sem haldið er á
spöðunum þá ráða bændur ekki
náttúruöflunum – stjórna hvorki
regni né frosti.
Bændur í Nýju Suður-Wales
biðu lengi í viðbragðsstöðu; tilbún-
ir að sá því uppskeran var í veði.
Best er að sá þegar vætan í jarð-
veginum er mikil, fáir sá í þurra
moldina í von um regn. En í ár
gátu fæstir sáð; í ár verður engin
uppskera á korni nema hjá þeim
örfáu sem hafa áveitukerfi. Upp-
skera annarra og þeirra sem sáðu í
þurra moldina lognaðist hreinlega
út af. Þeir fáu sem geta státað af
grænum akri eiga nú í vök að verj-
ast því hvert eiga kengúrurnar að
leita þegar engin er beitin í skóg-
um og á hæðum? Og þær birtast í
hópum.
Einn bóndi í Viktoríufylki sagði
sínar farir ekki sléttar er hundruð
emufugla lögðu leið sína á akur
hans og hugðust heldur betur
seðja hungur sitt. – Emufugl veg-
ur um 45 kg og er allt að 2 m á
hæð og tekur þar af leiðandi
hressilega til matar síns.
Þegar ljóst var í hvað stefndi
seldu flestir bændur allar þær
skepnur sem þeir máttu missa en
héldu eftir bústofninum (the
breeding stock). En nú hefur sá
búpeningur verið á gjöf mánuðum
saman og eru flestir bændur orðn-
ir uppiskroppa með hey. Hver hey-
baggi er gulls ígildi. Þeir sem enn
eiga hey skammta stíft. Margir
bændur tóku búpening sinn út á
vegina um hríð til að nýta beitina
meðfram þjóðvegunum en nú er öll
slík beit búin að vera.
Með fyrstu útgáfu á vikublaðinu
The Land í upphafi hvers árs
fylgir blað sem bændur hengja
upp á vegg og færa inn á regn-
mælingar sínar. Þetta blað er und-
arlega autt þetta árið.
Flestöll bændabýli hafa regn-
vatnstanka og nota það vatn til
heimilisnota. Margir hafa borvatn.
Þá eru vatnsból fyrir skepnurnar.
Þau eru misdjúp. Þegar ekki rign-
ir þorna þau upp. Þá eru góð ráð
dýr. Eftir barning og baráttu hef-
ur tekist að herja út styrk frá al-
ríkisstjórninni sem samþykkir að
borga að nokkru leyti fyrir vatns-
flutninga.
Í Vestur-Ástralíu er reiknað
með að kornuppskera verði helm-
ingi minni en í meðalári.
– 11 milljón tonn af hveiti er
ársuppskeran venjulega en nú er
reiknað með 6 milljónum tonna.
Áhrif á efnahagslíf og einkahagi
eru augljós. Verð á búpeningi hríð-
fellur, verð á heyi hækkar, vatns-
ból tæmast, engin uppskera, engir
peningar. Bændur halda að sér
höndum með framkvæmdir og um-
svif í bæjunum minnka. Tugþús-
undir munu enga vinnu fá við upp-
skerustörfin og þannig mætti
berja lóminn endalaust.
Þeir sem nostra við garðana
sína, sinna hverri plöntu af alúð og
gleðjast yfir hverju blómi, geta
kannski sett sig í spor þeirra sem
geta eða mega ekki lengur vökva
blóm og runna, verða að horfa upp
á jurtirnar visna og deyja smátt og
smátt. Grasblettirnir verða gulir
og síðan brúnir. Moldin sallast
með tímanum niður í sand sem
berst um allt. Annars staðar
myndast sprungur í jörðina.
Þurrkurinn hefur þegar haft
áhrif á efnahagslífið í heild, tekjur
minnkuðu um 500 milljónir Ástr-
alíudollara síðustu þrjá mánuði.
Peter Castello fjármálaráðherra
varaði við versnandi ástandi ef
ekki rigndi. Verð á ávöxtum og
grænmeti hækkar.
Ástandið er orðið svo slæmt að
margir geta ekki lengur haldið lífi
í skepnum sínum. Þær falla og
deyja drottni sínum. Sama gildir
um villidýrin. Nautpeningur virðir
að mestu rafmagnsgirðingar en
kengúrurnar smeygja sér undir.
Ef það er minnsti vottur um græn-
an lit einhvers staðar þá eru þær
komnar. Óteljandi fjöldi þeirra
keppir um minnstu beit við búpen-
inginn. Villisvín og villigeitur birt-
ast í heilum hjörðum. En þetta er
ekki hið eina. Vegna þurrkanna er
eldhættan í hámarki. Nú þegar
hafa þúsundir ekra ásamt íbúðar-
húsum orðið eldinum að bráð.
Það er ekki mikil huggun í því
þegar klappað er á öxlina og sagt:
Þetta er Ástralía, félagi.
Þurrkur, flóð og skógareldar
Þessi þrenning ræður lífi í land-
búnaðinum í Ástralíu. Af þessu
þrennu er þurrkurinn þó verstur.
Núverandi þurrkur er alverstur
því það hefur einfaldlega ekki
rignt – á þurrkatíma rignir yf-
irleitt minna en venjulega en nú
hefur ekki komið dropi úr lofti.
Að fljúga yfir NSW er átak-
anlegt; þar sem áður uxu blómleg-
ir akrar er ekkert að sjá nema
auðn sem líkist eyðimörk; að aka
um er enn verra. Horaðar skepnur
leita að æti; éta lauf af trölla-
trjánum þar sem þess er kostur;
dauðar kengúrur við vegarbrúnina
á fárra km fresti. Víða eru fyr-
irtæki hreinlega lokuð.
Mikil umræða hefur verið í fjöl-
miðlum um vatnsnotkun. Af öllum
heimsálfum notar sú þurrasta,
Ástralía, mest vatn – hins vegar
virðist samkomulag um hagræð-
ingu og skipulagningu vatnsnotk-
unar eiga langt í land.
Stjórnmálaforingjar heimsækja
verst settu héruðin og blöskrar
ástandið en hvert fylki hefur mis-
munandi reglur um aðstoð sem oft
er seinfengin. Margir bændur eru
of stoltir til að biðja um aðstoð
fyrr en í nauðirnar rekur.
Hiti, ryk, og reykský eru á lofti.
Suma daga dimmt í lofti kl. þrjú
síðdegis er stormar þeyta yfir-
borðsmoldinni upp í loft og út á
sjó.
Í kjölfar flóða og elda kemur
nýr gróður en í kjölfar þurrka
kemur ekkert nema dauðinn.
Höfundur er rithöfundur, búsettur í
Narrabri í Nýju Suður-Wales í
Ástralíu.
Sprengjutilræðið á Balí var reiðarslag fyrir Ástrala. Lýst var yfir þjóðarsorg til að minnast þeirra, sem létu lífið í hryðjuverkinu. Á Duranbah-strönd minntust
strandgestir hinna látnu með því að mynda hring í sjónum.
Sálmar í gleði!
Geisladiskur með 27 lofgjörðarsálmum úr
Sálmabókinni í flutningi Schola cantorum undir stjórn
Harðar Áskelssonar.
Lofsyngið Drottni
Dýrlegi Jesús
Víst ertu Jesús, kóngur klár
Lofið vorn Drottin
Þú, mikli Guð
Guð faðir, himnum hærri
Sé Drottni lof og dýrð
Mikli Drottinn
Ég á mér hirði
Ég veit um himins björtu borg
Nú gjaldi Guði þökk
Stjörnur og sól
Syngið Drottni sól og máni
Nú skrúða grænum
Leið mig, Guð
Lofa, sál mín, lofa Drottin
Lof sé þér, Guð
Upp, skapað allt
Dag í senn
Þú ert Guð sem gefur lífið
Ó, Guð, ég veit hvað ég vil
Fögur er foldin
Englar hæstir
Ó, ást, sem faðmar allt!
Þér lof vil ég ljóða
Drottinn, ó, Drottinn vor
Son Guðs ertu með sanniLaugavegi 31, sími: 552 1090
Sálmar í gleði fást í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31,
stórmörkuðum og í öllum helstu
hljómplötuverslunum um allt land
Í
P
O
K
A
H
O
R
N
IN
U