Morgunblaðið - 22.12.2002, Side 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TALNINGA-
VOGIR
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
Léttu þér vinnuna
í talningunni!
Auðveld í notkun
Vog á fínu verði
Hafðu samband eða
skoðaðu www.eltak.is
UNDANFARIN misseri hafa
mikil átök geisað á íslenskum fjár-
málamarkaði með tilkomu stækk-
andi hlutabréfamarkaðar, sölu ríkis-
fyrirtækja og samþjöppunar
fjármagns. Þessi bók fjallar að
nokkru leyti um siðferði í því um-
hverfi. Höfundur telur sig hafa verið
illa svikinn í viðskiptum en það olli
honum miklu fjárhagstjóni og gerði
hann næstum gjaldþrota. Einnig
missti hann af mikilvægu tækifæri til
frama. Lög voru ekki brotin en trún-
aður, traust og drengskapur.
Bogi Þór Siguroddsson var fjár-
málastjóri Húsasmiðjunnar í
Reykjavík á árunum 1997 til 2000 og
forstjóri fyrirtækisins frá árinu 2000
til júní á þessu ári. Í fyrri hluta bók-
arinnar rekur hann vöxt fyrirtækis-
ins. Á þessu fimm ára tímabili fjölg-
aði sölustöðum þess úr fjórum árið
1997 í 23 um mitt ár 2002, bæði í
Reykjavík og úti á landi, og eigið fé
þess þrefaldaðist á sama tíma úr tólf
hundruð milljónum árið 1997 í tæpa
fjóra milljarða um mitt ár 2002 er
höfundur var neyddur til að láta af
störfum. Hann
átti, að eigin sögn,
mikinn þátt í vel-
gengni fyrirtæk-
isins enda lagði
hann sig allan
fram í störfum
sínum. Bogi Þór
átti sér drauma
um mikinn fjár-
hagslegan ávinn-
ing af starfi sínu,
meðal annars með því að eignast
hlutabréf í fyrirtækinu. Síðla árs
2000 hóf hann að vinna að undirbún-
ingi fjármögnunar á eigin yfirtöku á
því með það í huga að bjóða sínum
nánustu samstarfsmönnum í fram-
kvæmdastjórninni þátttöku. Hann
vann málið í nánu samstarfi við fjár-
málastjórann en hélt öðru starfsfólki
utan við undirbúninginn vegna þess
að óvíst var hvort nægilegt fjármagn
fengist til að gera yfirtökuna mögu-
lega. Á þessum tíma vildu aðaleig-
endur fyrirtækisins selja sinn hluta
ef viðunandi verð byðist en hluta-
bréfamarkaðurinn var þá í lægð.
Í byrjun júní á þessu ári fór Bogi
Þór utan í frí með fjölskyldunni. Eft-
ir nokkura daga dvöl fékk hann til-
kynningu símleiðis frá Íslandi um að
búið væri að selja Húsamiðjuna og að
kaupendurnir væru einn nánasti
samstarfsmaður hans, fjármálastjór-
inn í Húsasmiðjunni, og félagar hans
og að Bogi Þór fengi ekki að taka
þátt í kaupunum en yrði að láta af
störfum sem forstjóri. Þetta var mik-
ið áfall bæði persónulegt og fjár-
hagslegt. Höfundur heldur því fram
að fjármálastjórinn hafi vísvitandi
setið á svikráðum við sig. Einnig er
hann mjög ósáttur við þátt Búnaðar-
bankans sem fjármögnunaraðila í yf-
irtökuferlinu og þykir samskiptin við
ráðamenn þar hafa verið óhrein-
skiptin og óhreinlynd. Bókin er fyrst
og fremst uppgjör við tvo samstarfs-
menn hans, fjármálastjórann og for-
verann á forstjórastóli og einn
þriggja fyrrverandi aðaleigenda fyr-
irtækisins.
Í bókarlok eru hugleiðingar um
viðskiptasiðferði. Þar segir að
grundvallarforsendur markaðshag-
kerfisins séu þær að farið sé að lög-
um og reglum og að þátttakendur
séu heiðarlegir. Stjórnendur ávinni
sér völd, áhrif og virðingu sem ekki
er hægt að kaupa. Þó séu ávallt ein-
hverjir sem ná ekki að hasla sér völl
eftir þessu leiðum og beiti því „fanta-
brögðum og svikum“ (s. 223) og virð-
ast geta náð langt séu þeir nægilega
ófyrirleitnir. Höfundur segist hafa
hugsað mikið um viðskiptasiðferði
eftir ófarir sínar enda reynt að lifa
eftir þeirri reglu að koma fram við
fólk eins og hann vildi að það kæmi
fram við sig. Honum finnst óskiljan-
legt að hámenntað fólk geti verið jafn
firrt siðferði og hann fékk að reyna í
samskiptum við samstarfsmenn sína
í Húsasmiðjunni. Í bókarlok vitnar
hann í prédikanir sr. Hjálmars Jóns-
sonar dómkirkjuprests frá síðast-
liðnu sumri þar sem meðal annars er
fjallað um viðskiptasiðferði og bent
er á að sumt fólk sé tilbúið til þess að
fórna jafnvel sálinni fyrir auðævi.
Frásögn bókarinnar er skilmerki-
leg og ljóst er að höfundi liggur mikið
á hjarta. Full ástæða er til að minna
fólk á að temja sér heiðarleika í um-
gengni við annað fólk og í viðskipt-
um. Það er hins vegar mikill galli við
efnistökin að aðili að mjög erfiðu
deilumáli skuli vera höfundur bókar-
innar. Þó að lesandinn fái ósjálfrátt
nokkra samúð með höfundi hafa öll
deilumál tvær hliðar. Lesandinn fær
ekki innsýn í sjónarhorn þeirra sem
höfundur telur sig eiga sökótt við og
þeir geta heldur ekki svarað fyrir
sig. Frásögnin hefði verið trúverð-
ugri ef óháður aðili hefði fjallað um
málið og sett fram sjónarmið beggja
aðila og reynt að setja fram eigið
mat.
Um viðskiptasiðferði
BÆKUR
Viðskipti
253 bls. Útg.: Sigur í samkeppni, 2002.
FJANDSAMLEG YFIRTAKA
Bogi Þór
Siguroddsson
Kjartan Jónsson
BARN er oss fætt, Jólaóratoría eftir
John Speight, verður flutt í Hall-
grímskirkju á tónleikum í dag kl.
17.00. Tónleikarnir verða sendir út í
beinni útsendingu á Rás eitt, en jafn-
framt til fjölmargra Evrópulanda
sem eiga samstarf við Ríkisútvarpið í
Evrópusambandi útvarpsstöðva.
Verkið hefur verið tilnefnt til Ís-
lensku tónlistarverðlaunana. Flytj-
endur á tónleikunum verða Elín Ósk
Óskarsdóttir sópran, Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir alt, Garðar Thor
Cortes tenór, Benedikt Ingólfsson
bassi, Schola cantorum, Mótettukór
Hallgrímskirkju og Kammersveit
Hallgrímskirkju, en stjórnandi er
Hörður Áskelsson.
John Speight samdi verkið fyrir
Hörð og kóra Hallgrímskirkju, eins
og hann skrifar á titilsíðu verksins.
Hörður frumflutti það með sínu fólki í
Hallgrímskirkju í desember í fyrra.
„Glæsileg og áhrifamikil jólaóratóría“
var yfirskrift umsagnar Jóns Ás-
geirssonar í Morgunblaðinu eftir
frumflutninginn. Hann sagði meðal
annars: „Tónmál Jóla-
óratóríunnar eftir
John A. Speight er
bæði áhrifamikið og
vel unnið og felur í sér
vel yfirvegað samspil
ómblíðrar og ómstríðr-
ar hljómskipunar.“
Textar verksins eru
teknir úr heilagri ritn-
ingu, aðallega úr Spá-
dómsbók Jesaja og
Lúkasarguðspjalli.
Verkið skiptist í þrjá
hluta og lýkur á dýrð-
arsöng englanna á
Betlehemsvöllum.
John Speight segist
ekki vita ennþá hvaða þýðingu það
muni hafa fyrir hann og verkið að það
hljómar í eyrum milljóna í dag. „Ég
hef ekki hugmynd. Maður vonar þó
alltaf að það komi viðbrögð eftirá, og
að einhverjir sýni tónlistinni áhuga og
vilji jafnvel flytja verkið annars stað-
ar. Það sem er mest spennandi fyrir
mig, er það að ég er búinn að skrifa
fjölskyldu minni og vin-
um í Englandi og láta
þau vita af þessu, – tón-
leikarnir verða sendir út
á BBC og vinir og
vandamenn þar geta þá
hlustað á það sem ég er
að gera hér.“
John Speight segir að
það sé talsvert öðru vísi
að takast á við verkið nú,
en var fyrir frumflutn-
inginn fyrir ári-
.„Strengjasveitin er
stærri í ár, og hljóm-
urinn því miklu fyllri. Ég
finn líka að flutningurinn
er afslappaðri núna og
meiri breidd í honum. Hörður gefur
tónlistinni þann tíma sem hún þarf í
flutningnum, og það er mjög gaman
fyrir mig. Sjálfur hef ég ekki breytt
neinu. Ég er ekki eitt af þessum tón-
skáldum sem er stöðugt að breyta og
pússa; – það sem ég skrifa stendur.“
Tónleikagestum er ráðlagt að
koma tímanlega í Hallgrímskirkju.
Íslensk Jólaóratoría
hljómar um alla Evrópu
John Speight
ÞAÐ var fjölmennt í húmaðri
Kópavogskirkju á fimmtudagskvöld,
þegar kammerhópurinn Camerarct-
ica hóf sína árlegu jólatónleika Moz-
art við kertaljós. Tvö verk voru leik-
in, Kvartett í G-dúr fyrir flautu og
strengi eftir Jóhann Christian Bach
og Kvintett í A-dúr fyrir klarinettu
og strengi eftir Mozart.
Jóhann Christian Bach var yngsti
sonur Jóhanns Sebastians, og voru
faðir hans og elsti bróðir, Carl Philip
Emanuel Bach, hans fyrstu kennar-
ar. Hann átti eftir að verða mikilsvirt
tónskáld og gera víðreist; starfaði
um tíma á Ítalíu, en settist síðar að í
London og naut mikillar velgengni
og frama fyrir tónlist sína. Mozart
var aðeins strákhnokki þegar hann
kom til London og kynntist Lund-
úna-Bach eins og hann er oft kall-
aður, og þau kynni höfðu mikil áhrif
á Mozart, sem mat hann mikils og
tók sér til fyrirmyndar í tónlistinni.
Það var því vel viðeigandi að tefla
verkum þessara tveggja meistara
saman á tónleikum.
Camerarctica byrjaði á Bach og
fyrsti þátturinn rann ljúflega í léttri
spilamennsku. Trillur og skraut ein-
kenna fyrsta þátt verksins og tókst
hópnum með leikandi spilamennsk-
unni að laða fram talsverða heiðríkju
í flutningnum. Hægi þátturinn var
þokkalega leikinn, en nokkuð dauf-
ur. Í þriðja þætti verksins var létt-
leikinn hins vegar fyrir bí; hann var
of þunglamalegur, strengirnir eins
og þrír stakir hljóðfæraleikarar en
ekki einn þriggja manna hópur og í
flautuna vantaði meira flæði. Það var
verið að spila allt of margar nótur, en
allt of lítið af músík. Það vantaði
hreinlega meira rennsli, léttleika og
lipurð.
Mozart fór líka vel af stað, eins og
Bach, og tilfinning hljóðfæraleikar-
anna fyrir því verki auðheyrilega
næmari en var fyrir Bach. Það má
kannski skjóta því inn í að það er
synd að heyra ekki meira af verkum
sona Bachs, svo ágæt tónskáld sem
þeir voru. Sennilega gjalda þeir þess
hver yfirburðamaður faðir þeirra
var, og hve stutt var í yfirburða-
manninn Mozart. En klassíski tím-
inn hefði tæpast orðið samur hefði
þeirra ekki notið við. Hægi þátturinn
í kvintett Mozarts var músíkalskt
leikinn og var það besta á tónleik-
unum. Í síðustu þáttunum tveimur
var klarinettan orðin broti úr tóni
hærri en strengirnir og það hljómaði
verulega truflandi. Það voru óþarfa
mistök því að baki var músíkalskur
leikur Ármanns Helgasonar á klar-
inettið og fínn samleikur
strengjanna fyrir utan svolitla
hnökra í kadensu, þar sem hópurinn
var ósamtaka.
Það var falleg stemmning í kerta-
ljósinu í kirkjunni, en Camerarctica
hefur oft leikið betur.
Bach í skugga Mozarts
TÓNLIST
Kópavogskirkja
Camerarctia lék Kvartett fyrir flautu og
strengi eftir Jóhann Christian Bach og
Kvintett fyrir klarinettu og strengi eftir
Mozart. Hljóðfæraleikarar voru Hallfríður
Ólafsdóttir á flautu, Ármann Helgason á
klarinettu, Hildigunnur Halldórsdóttir og
Sigurlaug Eðvaldsdóttir á fiðlur, Guð-
mundur Kristmundsson á víólu og Sig-
urður Halldórsson á selló.
MOZART VIÐ KERTALJÓS
Bergþóra Jónsdóttir
Afhverju Hvern-
igson og regnbog-
inn er eftir Elínu
Arnar. Myndhöf-
undur er Hans Al-
an.
Afhverju Hvern-
igson er frá Spurn-
ingalandi en
Viskudrottningin
hefur falið honum að hjálpa börn-
unum á jörðinni með ýmsar spurn-
ingar sem þau eru að glíma við og í
kjölfarið hefst viðburðaríkt ferðalag.
„Ævintýri Afhverju og vina hans
minnir okkur á hvað það er gaman að
vera áhugasamur um lífið og tilveruna
og að spurningar geta verið til alls
fyrstar,“ segir í fréttatilkynningu.
Elín gaf nýlega út aðra bók sem
nefnist Koss götunnar og fjallar um
fíkniefnaheiminn á Íslandi.
Útgefandi er Salka. Bókin er 40
blaðsíður, prentuð hjá Prentmet.
Verð: 1.380 kr.
Börn
Mat á skólastarfi
– handbók fyrir
skóla er eftr
Steinunni Helgu
Lárusdóttur.
Kverið fjallar
um mat á skóla-
starfi og er tilraun
til þess að styðja
starfsfólk skóla
við að meta jafnt einstaka starfsþætti
sem og starfið í heild á formlegan og
kerfisbundinn hátt. Ekki er gert ráð
fyrir að lesendur hafi sérstaka þekk-
ingu á mati.
Í Mati á skólastarfi hefur verið tekið
mið af þeirri lagastoð sem matið hef-
ur. Með hliðsjón af lögunum er lögð
áhersla á þann tvíhliða tilgang mats-
ins að nýta það til umbóta í skóla-
starfinu og upplýsa um það starf sem
fram fer í skólum.
Steinunn Helga er lektor við Kenn-
araháskóla Íslands. Hún hefur sér-
hæft sig í mati á skólastarfi og haldið
fjölda námskeiða og fyrirlestra um
efnið.
Útgefandi er Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla Íslands. Ritið er 84
bls., prentað í Hagprent. Verð: 2.000
kr.
Skólastarf
Stafrófsspjaldið
er byggt á lesbók-
inni Gralli Gormur
og stafaseiðurinn
mikli eftir Berg-
ljótu Arnalds. Á
spjaldinu, sem er
plastað, er hver
stafur sýndur
bæði stór og lítill
og mynd fylgir hverjum staf til útskýr-
ingar. Myndirnar eru litríkar og líflegar.
Spjaldið er hannað þannig að bæði er
hægt að hengja það uppá vegg og
eins nota sem diskamottu eða borð
þar sem barnið leikur sér við að
teikna og lita.
Útgefandi er Virago. Verð: 990 kr.
Ævintýri í Jökul-
heimum er fyrsta
bók Ingvars Sig-
urðssonar. Sögu-
persónurnar,
systkinin Sunna
og Máni, fara í
skíðaferð á Snæ-
fellsjökul. Þar
upphefst ævintýri
sem er ofar skilningi nútímamanna.
Bárður Snæfellsás, rammgöldróttur
landnámsmaður sem hvarf í jökul-
inn fyrir eitt þúsund árum, fangar
þau inn í furðuheima goða og jötna.
Til að komast til baka, inn í heim
mennskra manna, verða systkinin
að leysa af hendi erfitt verkefni.
Höfundur notast við nöfn og
heimildir úr Bárðarsögu Snæfells-
áss. Einnig er stuðst við hugmyndir
úr norrænni goðafræði. Í nokkrum
tilfellum hefur höfundur breytt lít-
illega út frá sögulegum heimildum
svo þær falli betur að skáldsög-
unni. Í bókarlok er kafli um uppruna
rúnanna.
Höfundur myndskreytir bókina,
gefur hana út og dreifir. Á vefsíð-
unni ljosbra.is hægt að kynna sér
efni bókarinnar og skoða allar
myndir úr henni. Bókin er 63 bls.,
prentuð í Litróf. Verð: 2.400 kr.
Börn
Bjöllur og títur
eftir Jen Green er í
bókaflokknum
Skoðum náttúr-
una. Gissur Ó. Erl-
ingsson og Örn-
ólfur Thorlacius
þýddu.
Í þessari bók
eru mörg for-
vitnilegustu atriðin í lífi bjalla og títna
tekin til athugunar, frá því hvernig lík-
amir þeirra starfa – og taka stórkost-
legum breytingum við hvert þrep í lífs-
ferlinum – að fæðuöflun og
bardagaaðferðum, dulbúnaði og að-
ferðum til að laða að sér maka. Nær-
myndatökur birta leyndardóma smá-
dýraveraldarinnar. Rammagreinar
segja frá bjöllum og títum í goðsögn-
um, bókmenntum og kvikmyndum.
Bókin geymir meira en 200 litmyndir,
auk teikninga sem sýna innri gerð
skordýranna og hvernig líffæri þeirra
starfa.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
64 bls. Verð: 2.380 kr.
Dýraríkið