Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Gefðu öðruvísi jólagjöf
Fallegu kertastjakarnir frá
Bernardaud fást hjá
Laugavegi 22a, sími 551 5272.
HUGVÍSINDASTOFNUN Há-
skóla Íslands hefur sent frá sér
bókina „Ekkert orð er skrípi ef
það stendur á réttum stað“ en hún
er safn fyrirlestra sem fluttir voru
á Laxnessþingi ráðstefnu um ævi
og verk Halldórs Laxness sem
Hugvísindastofnun, Edda – miðlun
og útgáfa, Morgunblaðið og Stofn-
un Sigurðar Nordals stóðu fyrir í
tilefni af 100 ára afmæli hans í apríl
á þessu ári. Markmiðið með ráð-
stefnunni var ekki að efna til lof-
söngs um afrek skáldsins heldur að
safna saman fólki sem hefur rann-
sakað hinar ólíku hliðar ævi hans
og verka og sýna breiddina í því
sem kalla má íslenskar Laxness-
rannsóknir. 26 fyrirlestrar voru
haldnir á ráðstefnunni utan erinda
við setningu. Í bókinni birtast 23
fyrirlestranna auk setningarerindis
Magnúsar Magnússonar en við
setningu þingsins töluðu einnig
Ólafur Ragnarsson og Ingibjörg
Haraldsdóttir.
Fyrirlestrar
Listasafn Íslands Rakel Péturs-
dóttir deildarstjóri fræðsludeildar
verður með leiðsögn um sýninguna
Íslensk myndlist 1980–2000 kl. 15–16.
Jólasöngvar í Dómkirkjunni Dóm-
kórinn í Reykjavík og Barnakór
Dómkirkjunnar flytja jólasöngva kl.
17. Flutt verða verk eftir eftir
Praetorius, Eccard, Brahms, Þorkel
Sigurbjörnsson o.fl. Báðir kórarnir
syngja „Quempas-sönginn“ í þýðingu
sr. Sigurbjörns Einarssonar og í lok
tónleikanna verður kveikt á kertum í
sálminum Blíða nótt sem Helgi Hálf-
dánarson þýddi. Stjórnendur kór-
anna eru Kristín Valsdóttir og Mar-
teinn H. Friðriksson.
Alla, Ása og Anna Sigga sjá um að-
ventuvöku í Fríkirkjunni í Reykjavík
kl. 22. Aðventuvakan sem ber yf-
irskriftina Á dimmri nóttu er klukku-
stundar kyrrlát dagskrá með kerta-
ljósum, hugleiðingum og ljúfum
tónum. Anna Sigríður Helgadóttir
söngkona og Aðalheiður Þorsteins-
dóttir píanóleikari munu sjá um tón-
list og Ása Björk Ólafsdóttir guð-
fræðinemi mun flytja hugleiðingar
um aðventu og jólahald.
Kammerkór Vesturlands flytur
dagskrá í Borgarneskirkju kl. 21.30
og hefur dagskráin yfirskriftina
Náttsöngur í Borgarneskirkju. Á
efnisskránni verða m.a. kantöntur,
einsöngslög og jólasálmar.
Með kórnum koma fram fiðluleik-
ararnir Lilja Hjaltadóttir og Elfa
Kristinsdóttir og Kristinn Örn Krist-
insson píanóleikari. Einsöngvarar
eru úr röðum kórfélaga.
Stjórnandi Kammerkórs Vest-
urlands er Dagrún Hjartardóttir.
Samkór Selfoss, undir stjórn Edit
Molnar, verður með jólavöku í Sel-
fosskirkju kl. 22. Jóhann Yngvi Stef-
ánsson verður gestur Samkórsins
ásamt eldri barnakór Selfosskirkju.
Jóhann Yngvi leikur á trompet ásamt
Miklos Dalmay píanóleikara og einn-
ig með Samkórnum. Eldri barnakór
Selfosskirkju flytur nokkur lög með
stjórnanda sínum, Glúmi Gylfasyni.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
VORKVÆÐI um Ísland erheitið á nýjasta geisladiskiHamrahlíðarkórsins – ogmá með sanni segja að sé
viðeigandi í þeirri einmunablíðu sem
ríkt hefur í landinu þótt enn teljist
desember ekki til vormánaða en
eins og segir í Syngur sumarregn,
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við
ljóð Hildigunnar Halldórsdóttur:
Syngur sumarregn/á bárujárninu
bratta/og svæfir sárþreyta veru,/
sætt lætur hljóðið í eyru. Syngur
sumarregn. – og auðvitað á falleg
tónlist við á öllum árstímum. Öll
verkin á diskinum eru íslenskar tón-
smíðar og eru flest þeirra samin fyr-
ir Hamrahlíðarkórinn. Auk lags
Hildigunnar eru á diskinum verk
eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Jón
Þórarinsson, Snorra Sigfús Birg-
isson, Hróðmar Inga Sigurbjörns-
son, Jón Ásgeirsson, Hjálmar H.
Ragnarsson, Jón Nordal, Atla
Heimi Sveinsson, Mist Þorkels-
dóttur og Karólínu Eiríksdóttur.
Þegar stjórnandi Hamrahlíð-
arkórsins, Þorgerður Ingólfsdóttir,
er spurð hvers vegna kórinn hafi
valið að flytja eingöngu íslensk verk
á diskinum, segir hún: „Þessi diskur
hefur ákveðna sérstöðu. Því nær öll
verkin á diskinum eru samin fyrir
kórana sem kenna sig við Hamra-
hlíð. Ef við skoðum málið í stærra
samhengi en okkar litla andapolli
hér, þá er mjög sérstakt að hér skuli
vera til svona margar tónsmíðar
sem samdar eru sérstaklega fyrir
þetta unga fólk, sem allt er sprottið
úr sama jarðvegi, það er að segja úr
einum og sama menntaskólanum.
Og þetta er bara smáhluti, því það
hafa um áttatíu verk verið samin
fyrir þetta unga fólk í Hamrahlíð –
og þar má einnig nefna erlend tón-
skáld, meðal annarra má nefna Arvo
Pärt sem tileinkaði mér eitt af sín-
um kórverkum.“
Öll ár eru stór
Í ár eru þrjátíu og fimm ár frá
stofnun Kórs Menntaskólans við
Hamrahlíð og tuttugu ár frá stofnun
framhaldskórsins, Hamrahlíð-
arkórsins, og þegar Þorgerður er
spurð hvort þetta sé þá ekki dálítið
stórt ár hjá kórnum, svarar hún því
til að öll ár séu stór og bætir við:
„Ég hef að vísu aldrei verið upp-
tekin af afmælum.“
Á þessum áratugum hefur kórinn
hljóðritað þrjár plötur og fimm
geisladiska en Íslensk tónverkamið-
stöð gaf þrjá þeirra út. Vorkvæði
um Ísland er fimmti diskurinn.
Fjórir diskanna innihalda verk eftir
íslensk tónskáld.
Flest verkanna eru gjafir
„Ég hef alltaf litið á flutning ís-
lenskrar tónlistar sem ákveðið trú-
boð,“ segir Þorgerður. „Ef við flytj-
um þessa tónlist ekki hér á Íslandi,
getum við ekki búist við því að aðrir
geri það. Og við eigum að vera fyrst
til. Þá á ég einkum við tónlist sem er
samin fyrir raddir og við texta,
vegna þess að aðrar þjóðir eiga oft í
erfiðleikum með okkar tungu.
Í útgáfu finnst mér það hafa verið
verðugt verkefni, því kórtónlist eftir
erlenda höfunda er fáanleg með öðr-
um flytjendum. Það er ástæðan fyr-
ir því að ég hef lagt mikla áherslu á
okkar tónlist.“
Eins og áður segir eru nær öll
verkin á diskinum samin fyrir
Hamrahlíðarkórinn, það elsta frá
1971 og það nýjasta frá 1997, en þá
var kórinn að ljúka upptökum á
diskinum.
„Það hefur tekið tæplega tvö ár
að hanna umbúðirnar. Við lifum á
miklum umbúðatímum,“ segir Þor-
gerður.
En hvers vegna hafa íslensk tón-
skáld samið svona mikið af verkum
fyrir Hamrahlíðarkórinn?
„Það má eiginlega segja að líf
mitt liggi í þessum diski, vegna þess
að flest verkin eru gjafir frá vinum
mínum til mín og fólksins sem ég
starfa með – þetta eru vinagjafir.“
Alltaf á byrjunarreit
Þorgerður hefur stjórnað Hamra-
hlíðarkórunum frá upphafi og þegar
hún er spurð hvort hana hafi aldrei
langað til þess að gera eitthvað ann-
að, svarar hún: „Jú, jú, það er ótal
margt sem mig hefur langað til að
gera. Þegar ég byrjaði á þessu
starfi, ætlaði ég bara að láta á það
reyna hvort hægt væri að halda
saman hópi af unglingum og láta þá
syngja vel. Síðan ætlaði ég mér nú
bara að halda áfram í mínu fram-
haldsnámi og vinna að vís-
indastörfum og slíku í tónlist. En
einhvern veginn hefur þetta togað
svona í mig, annars hefði ég ekki
verið í starfinu í allan þennan tíma.“
Hefurðu tölu á því hversu margir
hafa sungið með kórnum frá upp-
hafi?
„Sennilega er það farið að nálgast
hátt í annað þúsund manns, en ég er
ekki í þessum þenkingum um fortíð-
ina. Ég er meira að hugsa um fram-
tíðina. Þetta er eins og hvert annað
uppeldisstarf. Mig langar alltaf að
gera betur. Mig langar til þess að
hjálpa þessu unga fólki til að ná ár-
angri. Það koma stöðugt inn nýir
nemendur í skólann og í kórinn og
því er þetta eins og að vera alltaf á
byrjunarreit – að reyna að komast
upp fjallið með þessu fólki. And-
rúmsloftið og það umhverfi sem við
búum við í dag er ekki heldur stuð-
landi að starfi sem þessu, sem krefst
svo mikils úthalds og þolinmæði –
það að æfa eitt lítið lag, getur kostað
þrotlausa vinnu í heilt ár. Mig lang-
ar alltaf jafnmikið til þess styðja við
þetta unga fólk, hjálpa því til að ná
fögrum samhljómi og læra vönduð
vinnubrögð.“
Það langar alla til að vera
„Þetta er vinna sem krefst mik-
illar natni. Í dag finnst okkur sjálf-
sagt að ýta á takka – og þá gerist
það! En þú ýtir ekki á takka og færð
80–90 ungmenni til að syngja tæran
tón. Það er ekki hægt að ná honum
með því að senda SMS-skilaboð, eða
fletta upp á Netinu. Það er svo mik-
ið að gera hjá öllum, æ fleiri nem-
endur vinna með sínu námi. Það get-
ur verið erfitt að ná saman svona
stórum hópi til æfinga. Í dag hefur
enginn tíma til að vera, hvíla í sjálf-
um sér – þó langar alla til að vera.
Það langar alla til að ná fallegum
tóni. Það langar alla til þess að finna
samkyrrleika og þá ró sem fylgir
fallegu sköpunarverki. Þegar þú
hlustar á þessa tónlist, heyrirðu að
sá sem hefur skapað hana og þær
ungu raddir sem eru að koma henni
á framfæri, vilja hvíla í einhverju
stóru og góðu; einhverju sem kemur
frá andanum – en er ekki bara um-
búðir.“
Syngur
sumarregn
í desember
Fyrsta platan með söng Hamrahlíðarkórs-
ins kom út fyrir jólin 1978. Þá hafði kórinn
starfað í ellefu ár. Síðar bættust við tvær
plötur og þá fjórir geisladiskar. Nú nýlega
kom fimmti geisladiskurinn út og hefur að
geyma íslensk tónverk. Súsanna Svav-
arsdóttir spjallaði við Þorgerði Ingólfs-
dóttur, stjórnanda kórsins frá upphafi, um
diskinn og um starf kóranna sem kenndir
eru við Menntaskólann í Hamrahlíð. Morgunblaðið/KristinnÞorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri.
Hringurinn í
Reykjavík. Stofn-
aður 1904 –
Starfssaga er
skráð af Björgu
Einarsdóttur. Rit-
ið er um starf
Hringskvenna og
eflingu heilbrigð-
ismála á Íslandi.
Hringurinn var fyrst skemmtifélag,
síðan berklavarnafélag í nær 40 ár
og reisti þá hressingarhæli í Kópa-
vogi. Hælið ráku Hringskonur á ár-
unum 1926–40 og stunduðu bú-
skap á Kópavogsjörðinni 1931–48.
Frá 1942 hefur markmið félagsins
verið að koma upp barnaspítala hér
á landi.
Hringskonur hafa veitt hundruð
milljónum króna til uppbyggingar
hins nýja Barnaspítala við Hring-
braut, auk hárra fjármuna til tækja-
kaupa fyrir spítalann, styrkt börn til
lækninga erlendis og stuðlað að
sérnámi fagfólks. Allt er þetta veitt í
sjálfsboðinni vinnu.
Fjölmargar myndir prýða bókina
sem margar hafa ekki birst áður.
Útgefandi er Hið íslenska bók-
menntafélag í samvinnu við Hring-
inn í Reykjavík. Ritið er 700 bls.
Starfssaga
Kirkjur Íslands 3.
bindi í sam-
nefndri ritröð er
komin út. Höf-
undar eru Guð-
mundur L. Haf-
steinsson
arkitekt, Páll
Lýðsson, Þór
Magnússon fyrrv.
þjóðminjavörður og Gunnar Bolla-
son. Fjallað er í máli og myndum um
sögu, muni og minningarmörk
Bræðratungukirkju, Búrfellskirkju,
Miðdalskirkju, Mosfellskirkju og Tor-
fastaðakirkju í Árnesprófastsdæmi.
Allar eru kirkjurnar friðaðar og hver
um sig heimild um byggingar- og
listasögu fyrri tíðar. Fjöldi teikninga
eru birtar.
Útgefendur eru Hið íslenska bók-
menntafélag, Þjóðminjasafn Íslands,
Húsafriðunarnefnd ríkisins og Bisk-
upsstofa. Bókin er 178 bls. Verð:
3.600 kr.
Kirkjur
Hrollvekjur og
hugvekjur Storm-
skers hefur að
geyma Morg-
unhrollvekjur
Stormskers á
Stöð 2 ásamt fjöl-
mörgum öðrum
gráglettnum pistl-
um hans og mein-
legum blaðagreinum síðustu 12 ára,
alls 42 talsins segir í fréttatilkynn-
ingu.
Útgefandi er Menn og málning.
Bókin er 165 bls., prentuð í Bókfelli.
Verð: 2.890 kr.
Pistlar