Morgunblaðið - 05.03.2003, Qupperneq 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
H
ONDA hefur kynnt nýjan
Accord sem á að verða
tromp verksmiðjanna í
hörðum slag framleiðenda
stórra millistærðarbíla.
Þarna er um auðugan garð að gresja
og flestir framleiðendur hafa nýlega
sett á markað bíla í þessum stærð-
arflokki. Þeir tveir bílar sem undir-
rituðum finnst standa upp úr hvað
varðar aksturseiginleika í þessum
flokki eru Ford Mondeo og Mazda 6.
Auk þess að vera gerbreyttur í útliti
hefur nýr Accord stækkað, bæði
lengst og breikkað, sem finnst vel á
innanrýminu. Bíllinn tekur sig vel út
og minnir framendinn ekki lítið á
Mazda 6.
Þar er eiginlega komið að kjarna
málsins í samanburðarfræðunum.
Honda ætlar greinilega að jafna met-
in og helst skáka hinum vel heppnaða
Mazda 6 í búnaði og aksturseiginleik-
um og það verður að segjast strax að
nýi bíllinn virðist fara langt með það.
Um leið og hann er þægilegur fimm
manna fjölskyldubíll býður hann upp
á sportlega takta í ríkari mæli en
keppinautarnir. Þar kemur einkum
tvennt til; frísk tveggja lítra i-VTEC-
vél og fimm þrepa sjálfskipting með
handskiptivali ásamt stífri og sport-
legri fjöðrun sem gefur bílnum afar
traustvekjandi veggrip.
Einfaldur og stílhreinn að innan
Að innan er bíllinn fremur einfald-
ur en um leið klassískur. Frágangur
er vandaður og efnisval gott. Sætin
eru þægileg og veita um leið góðan
stuðning sem þarf að vera til staðar í
bíl sem er gaman að keyra. Og það er
gaman að keyra Accord.
Accord er á nýjum undirvagni sem
byggist þó á þeirri formúlu sem hefur
gert þennan bíl að rómuðum aksturs-
bíl með sínar lausnir í hjólaupphengj-
um að framan og fimm liða fjöðrun að
aftan. Fjöðrunin er sportleg og stíf
án þess að koma niður á þægindum í
akstri. Fjöðrunin gerir bílinn afar
rásvissan og hann hefur fyrirmynd-
araksturseiginleika þegar ökumaður
tekur virkilega á honum í beygjum.
Stýringin er nákvæm og gefur öku-
manni góða tilfinningu fyrir bíl og
vegi. Um leið hefur Honda útbúið bíl-
inn með góðum bremsum og staðal-
búnaður er hemlalæsing, hemlunará-
taksdreifing og
neyðarhemlunarátak. Diskar eru að
framan og aftan, 300 mm að framan
kældir, og 260 mm að aftan.
Accord er fernra dyra stallbakur
en er kynntur þessa dagana á bíla-
sýningunni í Genf einnig sem lang-
bakur. Hérlendis er hann fáanlegur
með 2ja lítra i-VTEC-vél og 2,4 lítra
vél. Sú fyrrnefnda skilar að hámarki
um 155 hestöflum en sú síðarnefnda
um 190 hestöflum.
Hnökralaus sambúð vélar og skiptingar
Við prófuðum bílinn með minni vél-
inni. Eins og aðrar vélar með breyti-
legum ventlaopnunartíma líður henni
alveg hreint bærilega á háum vélar-
snúningi og þar fæst líka mest aflið,
eða við 6.000 snúninga á mínútu. Við
vélina er tengd fimm þrepa sjálf-
skipting með handskiptimöguleika.
Sambúð vélarinnar og sjálfskipting-
arinnar gerir að verkum að bíllinn er
þægilegur fyrir þjóðvegaakstur, og
um leið sparneytinn, en um leið er
hann valkostur fyrir þá sem vilja
einnig hafa sportlega takta í sínum
bíl því vélin og sjálfskiptingin svara
kröfum ökumanns um frísklegri
takta. Meðaleyðsla í blönduðum
akstri er uppgefin 8,4 lítrar.
Gott verð
Sú var tíðin að Honda kostaði jafn-
an mun meira en keppinautarnir og
slagaði verðið hátt í verð á BMW. Nú
eru breyttir tímar. Honda er farið að
bjóða góða bíla á viðráðanlegu verði
og auk þess komið með breiða línu
fólksbíla. Skemmst er að minnast
hins nýstárlega smábíls Jazz og Civic
er bíll sem stendur fyrir sínu. Accord
er síðan stóri millistærðarbíllinn sem
jafnan var of dýr. Núna fæst hann vel
búinn á verði frá 2.140.000 kr. Þar er
um að ræða Comfort-útfærslu með
beinskiptingu. Staðalbúnaður í þeim
bíl er m.a. sex loftpúðar, málmlitur,
rafdrifnar rúður, útvarp með geisla-
spilara og margt fleira. Í Sport-út-
gáfu, sem kostar beinskipt 2.340.000
kr. og 2.440.000 kr. sjálfskipt, er að
auki tölvustýrð loftkæling, skriðstill-
ir, regnskynjari, 16" álfelgur, tau og
leður í sætum, leðurstýri og fleira.
Miðað við gerð og búnað Accord er
óhætt að segja að hér sé á ferðinni
bíll sem er allrar athygli verður og
fyllilega samkeppnishæfur í verði.
Króm í grilli og á
hliðum gefur bílnum
sportlegt útlit.
Honda Accord
– sportlegur og
hagkvæmur
%##,'-$$$
%&$,)-#$$
%$.'
*%#
(.),%%.&
%-)*)
)-''#
%-+'$
%-))#
)#&
/ , 0-, -
12
'
12
34!,!
5
!2!67
5 ! 6!,!
5
!2!67
5 "# !7!%$$! $%&'" 6, ()"& *
&
+ *
,%$$! (! ,) !
- !
66
.-
66
/" 66
!#&0% % &+%-&
-% % +
1%/
/ !
1 2
3)!!&4"
5 - !#
-"
6
7&&
%#$,#-+$$
*%$,%-+#$
%$.#
*%#
&.),%".)
%-)'$
)-+$"
%-+)'
%-)'*
)+#,($$
/ , 0-, -
12
)
8
-
-
%)#,'-$$$
%&$,)-#$$
%$.*
*%$
+.&,%%.'
%-*+#
)-+"%
%-(%*
%-)*&
#$$,%-"+$
/ , 0-, -
12
'
9 %-
8
9
%'#,'-)$$
*$+,"-*#$
(.*
**$
(.',%*.*
%-*#$
)-)"$
%-+)#
%-)%#
"+(
/ , 0-, -
12
12
'
:;
"#$$%&'()'*&%*
<- -
= %
%)+,#-'$$
*$"
%$.(
*%$
&.),%".'
%-)##
)-#&'
%-+&(
%-)'$
#"$,%-"'$
/ , 0-, -
12
12
(
:
+ ,
- .
Sætin eru sportleg og í þeim er bæði tau og leður.
Farangursrýmið er ekki það mesta í
þessum flokki bíla.
Stefnuljós eru í hliðarspeglum.
Í Accord Sport eru rauðar tölur á
mælum og í stýri eru stjórnrofar.
gugu@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Minnir dálítið á BMW 3 að aftan.
REYNSLUAKSTUR
Honda Accord
Guðjón Guðmundsson