Morgunblaðið - 07.04.2003, Blaðsíða 1
Stríð í Írak: Sprengjuárás á bílalest Kúrda fyrir
mistök „Meira en hálft ár í valdaskipti“ 14
STOFNAÐ 1913 95. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
HERSVEITIR Bandaríkjamanna
og Íraka háðu í gær mjög harða bar-
daga í úthverfum Bagdad. Talsmenn
herstjórnar bandamanna segja að
þúsundir íraskra hermanna hafi fall-
ið eða særst þar síðustu daga. Frétt-
ir bárust af því að fjöldi óbreyttra
borgara hefði einnig fallið. Banda-
ríkjamenn kváðust í gær hafa lokið
við að umkringja Bagdad og í suðri
hélt breskur liðsafli inn í Basra,
næststærstu borg Íraks. Hermdu
fréttir að almenningur þar hefði
fagnað komu bresku hersveitanna.
Gavin Hewitt, fréttamaður breska
ríkisútvarpsins, BBC, greindi í gær
frá því að hann hefði séð fjölmarga
sundurtætta brynvagna Íraka í út-
hverfi í vesturhluta Bagdad. Lík fall-
inna íraskra hermanna lágu í ná-
munda við brennandi skriðdreka.
Hewitt, sem er í för með bandaríska
herliðinu sem sækir inn í Bagdad,
kvaðst einnig hafa séð brennandi bif-
reiðar og lík óbreyttra borgara sem
sýnilega hefðu fallið í átökunum er
þeir reyndu að flýja höfuðborgina.
Fréttir af mannfalli voru óljósar
en talsmenn herstjórnar banda-
manna sögðust telja að tvö til þrjú
þúsund íraskir hermenn hefðu fallið
eða særst í bardögum í gær og á
laugardag þegar brynsveit Banda-
ríkjamanna hélt inn í borgina.
Bandaríkjamenn kváðust í gær hafa
treyst stöðu sína í úthverfunum.
Uppgjöf er þó fjarri Írökum ef
marka má yfirlýsingar þeirra í gær.
Myndir af Saddam Hussein forseta á
fundi með ráðgjöfum sínum voru
sýndar í sjónvarpi. Forsetinn var
brosandi og reykti vindil. Upplýs-
ingaráðherra hans fullyrti að yfirlýs-
ingar bandamanna væru lygar og
áróður. Hann lýsti yfir því að Írakar
réðu enn alþjóðaflugvelli Bagdad
sem bandamenn segjast hafa náð á
sitt vald. Hermt var að fyrsta banda-
ríska flutningavélin hefði lent á flug-
vellinum í gær en áður hafði íraski
upplýsingaráðherrann sagt Íraka
hafa hrundið áhlaupi Bandaríkja-
manna á völlinn og fellt 50 menn úr
liði óvinarins.
Hundruð falla í Karbala
Breskir hermenn gerðu sprengju-
árás á höfuðstöðvar íraska stjórnar-
flokksins í Basra og þúsundir her-
manna og hundruð brynvagna og
skriðdreka réðust inn í borgina, að
sögn BBC. A.m.k. þrír breskir her-
menn féllu. Þá voru 400 íraskir her-
menn sagðir hafa fallið í hörðum
átökum um borgina Karbala.
Mikið mannfall í
úthverfum Bagdad
Breskt herlið
heldur inn í
Basra-borg
Bandaríkja-
menn kveðast
hafa umkringt
höfuðborgina
Reuters
Breskur bryndreki í Basra þegar breskur herafli réðst inn í borgina í gær eftir hálfs mánaðar umsátur og skærur.
Reuters
Írakar fella styttu af Saddam Hussein í borginni Karbala, suður af Bagdad.
EKKI hefur tekist að finna lækningu
við nýju sjúkdómsafbrigði, heilkenni
alvarlegrar og bráðrar lungnabólgu,
HABL, sem nýlega kom upp í Kína.
Sjúkdómurinn hefur þegar dregið 94
menn í allmörgum löndum til bana.
Liðlega 2.700 manns hafa nú fengið
sjúkdóminn en að jafnaði deyja um
4% þeirra sem smitast, hinir ná sér á
um það bil viku. Ekki er vitað með
vissu hvernig sjúkdómurinn berst
milli fólks og heldur ekki hvers kyns
veiran er. Rannsóknir benda til að í
henni séu m.a. erfðaefni úr kynsjúk-
dómnum klamydíu. Gæti það bent til
þess að um samruna ólíkra sjúkdóms-
veira sé að ræða.
Skýrt var frá því í gær að níu Kan-
adamenn hefðu þegar látist en flest
eru fórnarlömbin í Guangdong-héraði
í Kína, 51. Starfsmaður Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar (ILO), Finninn
Pekka Aro, lést í gær úr sjúkdómnum
í Peking. Sjúkdómurinn hefur dregið
mjög úr umsvifum í ferðaþjónustu og
flugi og eru efnahagsleg áhrif hans
því þegar orðin mikil.
Reuters
Fórnar-
lömbum
fjölgar
Hong Kong. AFP.
Konur í Hong Kong með andlits-
grímur til að verjast HABL-smiti.
TALSMAÐUR Sameinuðu þjóðanna
sagði í gær að talið væri að 966
óbreyttir borgarar hefðu verið myrtir
í árásum á um það bil fimmtán þorp í
norðausturhluta Lýðveldisins Kongó
sl. fimmtudag. Fjöldamorðin voru
framin í Ituri-héraði þar sem blóðug
átök hafa geisað milli tveggja ætt-
bálka. Hermenn frá Úganda hafa
einnig barist þar við uppreisnarmenn
í stríði sem staðið hefur í fjögur og
hálft ár.
Ekki var ljóst í gær hverjir frömdu
morðin, en sjónarvottar sögðu fulltrú-
um SÞ að nokkrir árásarmannanna
hefðu verið í herbúningum og aðrir í
borgaralegum klæðnaði. Fulltrúar
SÞ fundu um 20 fjöldagrafir.
Leiðtogi uppreisnarhreyfingar,
sem barist hefur við hermenn frá Úg-
anda, sagði þá hafa tekið þátt í fjölda-
morðunum en talsmaður úgandíska
hersins neitaði því.
Átökin milli ættbálkanna hófust
vegna deilu um jarðnæði og hafa kost-
að yfir 50.000 manns lífið, auk þess
sem um hálf milljón manna hefur
flosnað upp.
Fjöldamorð
í Kongó
Nairobi. AP.
STJÓRNVÖLD í Írak lýstu í gær yfir banni við
ferðum til og frá Bagdad frá sólarlagi til sól-
arupprásar í dag, mánudag, en þúsundir manna
hafa flúið borgina síðustu daga af ótta við götu-
bardaga. Enn voru verslanir opnar sums staðar í
eldri hverfunum austan við Tígris. Þar eru íbúar
ekki í jafn mikilli snertingu við átökin þótt allir
heyri sprengjuhávaðann. Og fátt er vitað um líð-
an fólks í fátækrahverfum eins og Saddam City
en þar búa einkum shía-múslímar.
Í fréttum CNN kemur fram að Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin, WHO, hafi áhyggjur af mann-
falli óbreyttra borgara, erfiðleikum við að koma
hjálp til veikra og særðra og skorti á hreinu
drykkjarvatni. Talsmenn WHO segja að raf-
magnsleysi í Bagdad valdi því að vatnsdælukerfi
virki ekki í sumum hverfum og í suðurhluta
Íraks skorti allt að 1,5 milljónir manna góðan að-
gang að vatni. Hitastig í Bagdad fer nú upp í 35
stig á Celsíus yfir daginn. „Þegar hiti hækkar í
Írak er næstum því óhjákvæmilegt að skortur á
hreinu vatni valdi faraldri niðurgangspestar og
öðrum heilsufarsvanda,“ segir í skýrslu WHO.
Á vefsíðu sjónvarpsstöðvarinnar Al-Jazeera
segir að fulltrúar sjúkrahúsa í Bagdad hafi skýrt
frá stöðugum straumi særðra er barst þangað í
gær, um 100 manns á klukkustund. Birgðir af
lyfjum og öðrum gögnum væru að minnka en
rafmagn fengist enn frá vararafstöðvum.
Hætta á faraldri sjúkdóma í Írak
Vaxandi skortur á
drykkjarvatni
♦ ♦ ♦