Morgunblaðið - 13.04.2003, Blaðsíða 4
4 C SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Tónmenntaskóli
Reykjavíkur
Tónlistarkennari
Tónmenntaskólinn óskar eftir að ráða tón-
menntakennarar (tónlistarkennara) frá
1. september nk. fyrir skólaárið 2003—
2004.
Um er að ræða eina til tvær stöður eða
hlutastöður. Kennslusvið nær frá forskóla-
kennslu 6 og 7 ára barna til hópkennslu
nemenda á aldrinum 8—15 ára, en þar er um
að ræða samþætta kennslu í tónfræði, tón-
heyrn, hlustun, sköpun o.fl.
Tónmenntaskóli Reykjavíkur er einn af elstu
tónlistarskólum landsins, stofnaður 1952, og
er til húsa við Lindargötu. Kennsluaðstaða er
góð og tækjakostur mjög góður.
Þeir, sem áhuga hafa á þessu starfi, vinsam-
lega sendi skriflega umsókn, þar sem fram
koma persónulegaupplýsingar og upplýsingar
um menntun og kennsluferil. Meðmæli óskast.
Umsóknir sendist augldeild Mbl. fyrir 23. apríl,
merktar: „Tónlistarkennsla — 111.“
STAÐA SKÓLASTJÓRA
Umsækjandi þarf að hafa kennaramenntun.
Æskilegt er að hann hafi framhaldsmenntun í
stjórnun og reynslu af skólastjórnun. Nauðsyn-
legt er að hann hafi góða stjórnunar- og skipu-
lagshæfileika, geti starfað sjálfstætt og hafi gott
vald á mannlegum samskiptum.
Giljaskóli er heildstæður, einsetinn grunnskóli.
Nemendur verða um 400 á næsta skólaári.
Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur með mikla
fötlun.
Skólinn er í nýju húsnæði, seinni áfangi bygging-
arinnar var tekinn í notkun síðastliðið haust og
eru aðstæður og búnaður samkvæmt nýjustu
kröfum. Skólinn er enn í mótun, fjöldi starfs-
manna um 60 og hlutfall fagmenntaðra starfs-
manna er yfir 95%.
Nánari upplýsingar er að hafa á heimasíðu skól-
ans: http://www.giljaskoli.akureyri.is.
Allar nánari upplýsingar veitir deildarstjóri skóla-
deildar, Gunnar Gíslason, í síma 460 1456 eða
892 1453, netfang: gunnarg@akureyri.is og
skólastjóri, Halldóra Haraldsdóttir, í síma
462 4820, netfang: halldora@akureyri.is.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar
Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu
í starfið.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og
Launanefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar um kaup og kjör eru veittar á
starfsmannadeild Akureyrarbæjar í síma
460 1000.
Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri í
Geislagötu 9 á eyðublöðum sem þar fást.
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu
Akureyrarbæjar - www.akureyri.is.
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2003.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Staða skólastjóra við Giljaskóla
á Akureyri er laus til umsóknar