Morgunblaðið - 13.04.2003, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2003 C 13
ÚTBOÐ
Tækni- og umhverfissvið, Framkvæmdadeild, fyrir
hönd Akureyrarbæjar og Norðurorku óskar eftir
tilboðum í gatnagerð og lagnir vegna 1. áfanga
Síðubrautar, annars vegar frá Hörgárbraut að
Vestursíðu og hins vegar frá Hlíðarfjallsvegi að
Lögmannshlíðarvegi. Jafnframt er um að ræða
tengingu Austursíðu og Vestursíðu við Síðubraut.
Tilboðið nær til nýbyggingar um 1.000
lengdarmetra af götum ásamt tilheyrandi holræsa-,
vatnslögnum og götulýsingu.
Helstu magntölur:
Uppúrtekt úr götu
um 14.000 m³
Fylling í götu
um 13.000 m³
Lagnaskurðir fráveitu- og vatnslagna
um 1.300 m
Lengd stofnlagna fráveitu
um 950 m
Lengd stofnlagna vatnsveitu
um 500 m
Uppsetning ljósastaura ásamt lögnum
30 stk.
Skiladagur verksins er 1. október 2003.
Útboðsgögnin verða seld í Þjónustuanddyri
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri, frá og með
þriðjudeginum 15. apríl nk. kl. 13:00 á kr. 5.000.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en föstu-
daginn 2. maí kl. 11:00 og verða þau þá opnuð í
fundarsal á fyrstu hæð að viðstöddum þeim
bjóðendum, eða fulltrúum þeirra, sem þess óska.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Tilboð óskast í iðnaðarhúsnæði
á Smiðshöfða 8, Reykjavík
13138 Smiðshöfði 8, Reykjavík.
Um er að ræða iðnaðarhúsnæði (innréttað sem
íbúðarherbergi) á 2. hæð í steinsteyptu húsi,
byggt árið 1978. Stærð húsnæðisins er 201,9
fermetrar. Brunabótamat húsnæðisins er kr.
16.180.000 og fasteignamat er kr. 12.006.000.
Húseignin er til sýnis í samráði við Ríkiskaup,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík í síma 530 1400. Til-
boðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt
reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu-
blaði.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 11.00
hinn 23. apríl 2003 þar sem þau verða opnuð
í viðurvist þeirra bjóðenda er þess óska.
Tilboð óskast í jörðina
Fyrirbarð í Skagafirði
Sala 13292 Fyrirbarð í Skagafirði (áður
Fljótahreppi).
Um er að ræða jörðina Fyrirbarð í Skagafirði
(áður Fljótahreppi). Á jörðinni er einbýlishús
124,8 m², byggt úr steinsteypu árið 1955, (ástand
hússins er lélegt). Fjárhús með áburðarkjallara,
steinsteypt, stærð 185,5 m², er frá 1977. Hlaða
m/súgþurrkun, steinsteypt, stærð 80,0 m², er
frá 1979. Flatgryfja, steinsteypt, 32,0 m², er frá
1979. Hesthús (bogaskemma) er 102,9 m², byggt
úr stáli 1960. Ræktað land er 27,3 ha. Þessi jörð
er við þjóðveginn skömmu áður en kemur að
gatnamótum upp í Stíflu annars vegar og út á
Siglufjörð hins vegar. Jörðin er grösug og stend-
ur í aflíðandi halla og sést vel yfir Haganesvík
og Miklavatn. Með jörðinni fylgir 102,3 ærgilda
réttur.
Jörðin og húsakosturinn eru til sýnis í samráði
við Ríkiskaup, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, í síma
530 1400. Tilboðin liggja frammi á sama stað
ásamt reglum um frágang og útfyllingu á til-
boðseyðublaði.
Tilboð skulu berast á þar til gerðum tilboðseyðu-
blöðum fyrir kl. 11.00 þann 13. maí 2003 þar sem
þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda er
þess óska.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h.
Verkefnisstjórnar um uppbyggingu í
Norðlingaholti, Landsíma Íslands og
Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir til-
boðum í eftirfarandi verk: Norðlinga-
holt áfangi 1a, gatnagerð og lagnir
Helstu magntölur eru:
Lengd 8,0 m gatna 300 m
Lengd 7,5 m gatna 250 m
Lengd 7,0 m gatna 170 m
Lengd 6,0 m gatna 105 m
Hringtorg 1 stk
Gerð ljósagatnamóta 1 stk
Holræsalagnir Ø600 - Ø1000 1000 m
Holræsalagnir Ø250 - Ø500 1000 m
Holræsalagnir Ø150 - Ø200 400 m
Verkinu skal lokið fyrir 15. október 2003.
Útboðsgögn verða seld á 10.000 kr á skrif-
stofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur,
Fríkirkjuvegi 3, frá og með 15. apríl.
Opnun tilboða 25. apríl 2003, kl 9:00
á sama stað.
GAT45/3
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h.
Verkefnisstjórnar um uppbyggingu í
Norðlingaholti, Landsíma Íslands og
Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir
tilboðum í eftirfarandi verk: Norðlinga-
holt áfangi 1b, gatnagerð og lagnir.
Helstu magntölur eru:
Lengd 8,0 m gatna: 350 m
Lengd 7,5 m gatna: 450 m
Lengd 7,0 m gatna: 170 m
Lengd 6,0 m gatna: 105 m
Hringtorg: 1 stk
Holræsalagnir Ø600 - Ø1000: 780 m
Holræsalagnir Ø250 - Ø500: 1.000 m
Holræsalagnir Ø150 - Ø200: 850 m
Reiðstígur: 500 m
Verkinu skal lokið fyrir 15. október 2003.
Útboðsgögn verða seld á 10.000 kr á skrif-
stofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur,
Fríkirkjuvegi 3, frá og með 15. apríl.
Opnun tilboða 25. apríl 2003, kl 14:00
á sama stað.
GAT 46/3
ÚU T B O Ð
Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri
Kennslu- og rannsóknarfjós
Útboð nr. 12223
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri, óskar eftir tilboðum
í að byggja fjós á Hvanneyri í Borgarfirði. Fjósið
verður framtíðarkennslu- og rannsóknarað-
staða í nautgriparækt við Landbúnaðarháskól-
ann. Stærð hússins er: grunnflötur: 1645,0 m2;
rúmmál: 8424,0 m3. Í öðrum enda hússins er
aðstaða fyrir kennslu, skrifstofa, búningsher-
bergi og snyrtingar fyrir starfsfólk og nemend-
ur, aðstaða fyrir móttöku gesta, mjólkurhús
og tæknirými. Síðan tekur sjálft fjósið við með
58 legubásum fyrir mjólkurkýr, mjaltabás og
uppeldisaðstöðu fyrir kálfa og geldneyti í stíum
og á legubásum. Í hinum enda hússins er að-
staða fyrir fóðurtiltekt. Vélfær fóðurgangur er
eftir húisnu endilöngu. Þetta útboð tekur til
smíði á steyptum undirstöðum, dælubrunni,
flórum, gólfum og smíði og uppsetningu húss.
Miðað er við að burðarvirki hússins, útveggir,
allir innveggir, milligólf og loft, hurðir og
gluggar verði fullfrágengnir að utan og innan.
Búið er að skipta um jarðveg í grunni hússins
og í lóð. Í því verki sem hér er boðið út þarf að
grafa í fyllinguna fyrir sökkulveggjum og flór-
um en fylla undir plötur.
Helstu magntölur eru:
Mótafletir 1.200 m2
Steinsteypa 360 m3
Þakflötur 1.680 m2
Veggeiningar 555 m2
Lampar 120 stk.
Vettvangsskoðun verður haldin 30. apríl 2003
kl. 14.00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en
15. mars 2004. Útboðsgögn verða til sýnis og
sölu á kr. 6000 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni
7C, 105 Reykjavík. Tilboðin verða opnuð hjá
Ríkiskaupum 19. maí 2003 kl. 11.00 að viðstödd-
um þeim bjóðendum sem þess óska.
Tilboð óskast í vinnuskúr
án lóðarréttinda til brottflutnings og
notað mótatimbur, staðsett á lóð Náttúru-
fræðihúss Háskóla Íslands, Sturlugötu 7,
Reykjavík
13304 Um er að ræða vinnuskúr sem er fram-
leiddur árið 1973 úr áli og tré, stærð 50 fermetr-
ar, 3 skrifstofur auk kaffistofu og snyrtingar og
er hann hannaður til að vera settur saman og
komast á vörubílspall, notað mótatimbur annars
vegar 12"x6" 15.864 metrar (60 m³) og hins vegar
2"x4" 3.866 metrar (20 m³)
Vinnuskúrinn selst í því ástandi sem hann er í
og þar sem hann er staðsettur núna og skal flutt-
ur af lóðinni fyrir 1. júní nk.
Timbrið skal flutt af lóðinni við greiðslu kaup-
verðs. Vinnuskúrinn og timbrið er til sýnis í sam-
ráði við Sigurð Hermannsson, sími 898 9013.
Eyðublöð liggja frammi á sama stað og hjá Ríkis-
kaupum.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 15.00
hinn 30. apríl 2003 þar sem þau verða opnuð
í viðurvist bjóðenda er þess óska.