Morgunblaðið - 27.04.2003, Síða 3

Morgunblaðið - 27.04.2003, Síða 3
hafði verið stolið, 15 nýjum vörubíl- um og 7 jeppum og var ákveðið að fækka starfsmönnum Alþjóða Rauða krossins í Líberíu um tíma. Þjóðarmorðin í Rúanda Þorkell veiktist af malaríu í Líb- eríu og var enn veikur af henni að talið var þegar hann fór þaðan til Genfar. Hann náði sér fljótlega og var þá beðinn um að fara til Rúanda í Afríku haustið 1994. Tveir þjóðflokk- ar búa í Rúanda, Hútúar og Tútsar. Hútúar eru fjölmennastir eða um 85% þjóðarinnar en Tútsar, sem töldust til yfirstéttar áður fyrr, eru um 15%. Árið 1959 gerðu Hútúar uppreisn og steyptu ríkjandi kon- ungi landsins af stóli og í kjölfarið hófust fjöldamorð á Tútsum. Um 120 þúsund Tútsar flúðu þá land og síðan hefur hvað eftir annað komið til átaka milli þjóðflokkanna í Rúanda. Oftast voru það Hútúar sem myrtu hina hötuðu yfirstétt Tútsa. Landið hlaut sjálfstæði árið 1962 og héldu Hútúar völdum fram til 1973 þegar herinn tók völdin undir forustu Hab- iyarimana, sem var Hútúi. Hann hélt velli þar til flugvél hans var skotin niður í byrjun árs 1994 og var Túts- um í fyrstu kennt um. Í júní sama ár hófust þjóðarmorð Hútúa á Tútsum og er talið að um 800.000 Tútsar, börn og fullorðnir, hafi verið teknir af lífi í þeim mánuði einum. „Það var mikið búið að ganga á þegar ég kom til höfuðborgarinnar Kígalí haustið 1994,“ segir Þorkell. „Ástandið var mjög slæmt. Töluvert var um hryðju- og hefndarverk og búið að drepa um milljón manns bæði Tútsa og Hútúa.“ Þorkell segir það hafa verið skelfi- legt að koma á þá staði, þar sem fjöldamorð höfðu verið framin á Tútsum og það jafnvel í kirkjum. Tútsar eru flestir kaþólskrar trúar og höfðu flúið þangað, þar sem þeim var hreinlega slátrað. „Það var ósjaldan að maður táraðist þegar við komum á slíka staði,“ segir Þorkell. Sterk viðbrögð Meðal verkefna Þorkels var að taka manntal á nokkrum strjálbýlum svæðum. Hann stýrði hundrað manna flokki, sem gekk hús úr húsi og skráði íbúana. Húsin stóðu sum hver ein og stök og oft þorðu íbú- arnir ekki að gera vart við sig. Fyrir kom að þeir földu sig eða að komið var að fólki sem hafði verið myrt. „Það gat hafa gerst fyrir nokkru eða jafnvel nýlega,“ segir Þorkell. „Þetta var hræðilegt. Í flokknum sem ég stjórnaði voru um hundrað manns og voru flestir Tútsar. Meðalaldur þeirra var um tvítugt og hafði margt af þessu unga fólki misst alla fjöl- skylduna. Það voru því sterk við- brögð hjá þeim þegar komið var að húsum, þar sem fyrir var fólk sem fallið hafði fyrir óaldarflokkum. Ein stúlknanna, Tútsi, sagði mér að hún hefði átt heima í bæ skammt frá Kí- galí. Fjölskyldan, sem faldi hana og hennar fólk þegar þjóðarmorðin fóru fram, voru reyndar Hútúar en þegar gengið var hús úr húsi í leit að Túts- um þá földu þau hana og yngri syst- ur hennar undir rúmi. Hún sagðist hafa verið svo hrædd um að hljóð heyrðist frá systurinni að hún greip fast um munninn á henni. Svo fast að systirin var með fingraför á kinnun- um þegar hún sleppti takinu.“ Ólýsanleg tilfinning Þorkell var í Rúanda fram í apríl 1995 og segist hann hafa lært þar mikið um Rauða krossinn og hvernig hann starfaði. „Þá fór mér að falla verulega vel við hjálparstarfið,“ seg- ir hann. „Við erum töluvert vernduð án þess að verið sé að hlífa okkur. Á endanum eru þeir hörðustu eftir en hinir gefast upp. Það er ekki hægt að lýsa hvernig tilfinning það er að hjálpa fólki sem hefur lent í hungurs- neyð. Þarna var fólk sem ekkert átti, ekkert húsnæði eða akra, ekkert að borða og ekkert vatn, ekkert. Ef hægt var að ná í vatn þá var það í mörgum tilfellum fúlt, mengað eða eitrað. Það er ólýsanlegt að sjá hvað fólk var ánægt þegar það fékk loks mat.“ Ný ríkisstjórn var mynduð um haustið og til að lægja öldurnar og fá Hútúa sem flúið höfðu land til að snúa heim á ný var sæst á að forset- inn yrði Hútúi en forsætisráð- herrann Tútsi. Samt sem áður veigr- uðu Hútúar sér í fyrstu við að snúa til baka af ótta við hefndir Tútsa og að verða ákærðir fyrir þátttöku í þjóðarmorðinu. Fengu sinn dóm Þorkell segir að oft hafi verið erf- itt að átta sig á muninum á Hútúum og Tútsum. „Eitt sinn þegar við vor- um að dreifa matvælum þá varð mik- ið uppistand í hópnum, sem taldi milli 5.000 og 6.000 manns,“ segir hann. „Einn af aðstoðarmönnum mínum kom til mín og sagði að fleiri en einn kannaðist við tvo af starfs- mönnum mínum sem menn er höfðu komið ásamt öðrum í þorp skammt frá og drepið fjölda manns. Verra var að annar þeirra var túlkurinn minn og hugsaðu þér kaldhæðnina, störf Flóttafólk byggði sér skýli í garði Rauða krossins í Freetown í Sierra Leone. Rauði krossinn dreifir mat til nauðstaddra í Rúanda. Rifist um kornið í Rúanda. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 B 3 Lækkum virðisaukaskatt af tónlist Fellum niður skatt af bókum Eflum framleiðslu leikins sjónvarpsefnis Reisum tónlistarhús án tafar Útflutnings- og þróunarsjóð tónlistarinnar Aukið samstarf atvinnulífs og menningarlífs Íslensk menning –vannýtt auðlind Hádegisfundur á Hótel Borg mánudaginn 28. maí kl. 12-13 Frummælendur: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Einar Már Guðmundsson rithöfundur Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður Hulda Hákon myndlistarmaður Fundarstjóri: Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri Eftir stutt framsöguerindi verða almennar umræður, súpa og brauð. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.