Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 11

Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 11
nefnir sem dæmi að þeir hafi tekið upp fyrsta lagið með honum þegar hann var aðeins ellefu ára, „þvílíkt klár strákur“ segir hann. Næsta skref í sögu Afkvæma guðanna var svo tekið þegar þeir kynntust Páli Þorsteinssyni, Palla, sem verið hef- ur í sveitinni síðan. „Við stunduðum spjallborðið á hiphop.is og þar kynntumst við strák sem hét Palli PTH. Síðan kom upp sú hugmynd á spjallinu að gera vínylplötu og menn ákváðu að hittast á kaffihúsi til að ræða málið betur. Svo mætti enginn nema við Kristján, Palli og Dóri, strákur sem átti Hiphop.is. Við enduðum svo heima hjá Palla að taka upp ein- hverjar rímur. Tveimur dögum seinna mætti ég til Palla til að taka upp lag og það gekk svo vel að eftir það hefur Palli tekið allt upp,“ seg- ir Elvar en síðan slóst plötusnúð- urinn Hjörtur Már Reynisson í hópinn. Þannig skipuð tóku Af- kvæmi guðanna upp plötuna Dæmi- sögur og gerðu allt sjálfir að því Elvar segir; „kostnaður við plötuna var ekki nema 45.000 kr. með öllu og við græddum meira að segja á útgáfunni.“ „Hættu að hringja í mig“ Dæmisögur komu út skömmu fyrir jól 2001 og strax í desember það ár voru þeir komnir aftur í hljóðver að taka upp lög fyrir næstu plötu. „Við læddumst inn í Grjótnámuna eftir lokun og tókum upp á nóttunni sex laga kynning- ardisk sem við síðan notuðum til að leita eftir útgefanda en fengum engar viðtökur, það vildi enginn gefa okkur út,“ segir Elvar en um það leyti varð Hættu að hringja í mig vinsælt og Elvar segir að þá hafi útgefendur tekið betur við sér. „Við ætluðum ekki að hafa það lag inni á disknum, ætluðum að hafa á honum sautján lög, en ákváðum síð- an að bæta því við og einu lagi til og kvikmyndafyrirtækið Zik Zak keypti það svo til að nota í mynd- inni Gemsar, peningur sem við höf- um aldrei séð og munum ekki sjá því það fór næstum á hausinn, en nú skilst mér reyndar að það sé hálfgert comeback í gangi, því þeir gerðu Nóa albínóa,“ segir Elvar og bætir við að þeir hafi þó lært það af þessu að láta ekki hlutina af hendi fyrr en borgun sé komin. „Lagið varð svo gríðarlega vinsælt og við erum þekktir fyrir það í dag sem er grútleiðinlegt. Það er ekkert að því að eiga vinsælt lag, en það er leið- inlegt að hafa á sér einhvern stimp- il og það líka fyrir það lag sem við lögðum minnsta vinnu í.“ Vinsældirnar á Hættu að hringja í mig urðu til þess að Edda vildi fá Afkvæmin á Rímnamínsdiskinn og bauð plötusamning fyrir. Elvar seg- ir að þeir hafi tekið því fegins hendi, það hafi verið fínt að fá að gera almennilega plötu og þurfa ekki að standa í því að dreifa henni sjálfir. „Við tókum plötuna þó upp í stúdíóinu hans Palla, fannst sándið vera best þar, það var allt tekið upp í bílskúr. Svo bjó Palli til vocal booth heima hjá sér úr pappakassa, vöggu, sláttuvél og svefnpoka. Það hljómaði mjög vel.“ Tilgangur lífsins og trúin Þeir félagar Elvar og Kristján ná vel saman í rímum þótt þeir nálgist hlutina úr ólíkum áttum. „Kristján, sem er að læra heimspeki, er mikið að spá í tilgang lífsins en ekki í trúna eins og ég,“ segir Elvar en hann segir það hafa haft mikil áhrif á sig þegar amma hans lést fyrir þremur árum, en það var einmitt eitt af því sem gerði að verkum að hann langaði ekki lengur að vera í Rottweilerhundunum og hafði mikil áhrif á það hvernig Dæmisögur þróuðust. „Ömmu fannst ég ætti að hætta í Rottweiler og þegar hún lést fór ég að hugsa minn gang og frá því hún lést og þar til ég varð pabbi, sem var í sama mánuðinum, samdi ég megnið af því sem ég á á Dæmisögum og Ævisögum líka.“ Eitt laganna á Dæmisögum, Bréf frá Guði, hefur fylgt Elvari öðru fremur, upphaflega samið sem slam-ljóð, ljóð með takti en án und- irleiks, en síðan tók hann það upp með takti og setti á plötuna. Hann hefur flutt það oft síðar með ýms- um undirleik, en segist hafa samið við það eitt erindi til og því ákváðu þeir að taka það upp aftur fyrir Rímur og rapp, en þriðja útgáfan verður svo á AG III. bindi, undir- leikurinn lifandi. Í laginu segir sögumaður frá því að hann hafi fengið bréf frá guði sem getur ekki bent til annars en að guð sé til, í laginu í það minnsta. Elvar vill þó ekki taka af tvímæli með það, hann segist ekki geta sagt af eða á. „Það eru æðri öfl allt í kringum okkur en ekkert eitt öðru meira.“ Tungumálið skiptir engu máli Rímurnar hjá Afkvæmum guð- anna eru á íslensku og það er reyndar eitt af einkennum íslensku hiphop-bylgjunnar að menn ríma á íslensku. Elvar segir að það skipti þó engu máli hvaða tungumál menn noti, hann segist sjálfur til að mynda vera að vinna að smáskífu með Sage Francis og hann eigi talsvert af rímum á ensku. „Það sem ég geri á ensku er auðvitað öðruvísi en það sem ég er að gera á íslensku, en ég er líka að vinna það í öðru samhengi. Mér finnst í sjálfu sér ekkert asnalegt að gefa plötu út á ensku á Íslandi, en það er bara svo miklu minni grundvöllur fyrir því.“ Fyrsta plata Afkvæma guðanna hét Dæmisögur, þá komu Ævisögur og svo eru þeir félagar að vinna að þriðju plötunni sem á að heita AG III. bindi, söguslit. Á þeirri plötu verða fleiri lög sem fjalla um trúna þannig að það yrkisefni er ekki tæmt. Meðfram þessu er Elvar líka að vinna að plötu með Steina gít- arleikara sem hefur unnið mikið með Afkvæmunum og Palla. „Svo er ég bara að semja á ensku fyrir stuttskífu sem við Palli erum búnir að vera að vinna í lengi, en á henni verður Sage Francis með í einu lagi og Panik úr Moleman með takt líka.“ Það stendur líka til að vinna meira með Sage Francis og Elvar segir að hann sé að reyna að fá sig út til að taka upp. „Ég efast þó um að það verði í náinni framtíð sökum peningaleysis, en enska platan okk- ar er eitthvað sem við ætlum að taka rólega, taka upp í pörtum og gefa út þegar við höfum tíma og teljum hana alveg frábæra.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Þrír fjórðu Afkvæma guðanna: Elvar Gunnarsson, Kristján Þór Matthíasson og Páll Þorsteinsson. arnim@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 B 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.