Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Brandugla gerir sig heimakomna
Sjaldséður gestur heimsótti ábúendur í Árbót í Að-
aldal snemma í apríl 2001. Það var brandugla sem
flaug inn um gat á fjóshlöðunni. Þar gerði hún sig
heimakomna, hændist að húsráðendum og vildi
ekki yfirgefa skjólið fyrst um sinn þótt Hákon
Gunnarsson bóndi gerði nokkrar tilraunir til að
sleppa henni út undir bert loft. Atli Vigfússon
fréttaritari fylgdist með Hákoni og uglunni og
vann með því í opnum flokki í ljósmynda-
samkeppni Okkar manna.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Leu Hrund varð eðlilega nokkuð hverft við þegar hún var í
fyrsta skipti sett undir sturtu og segir svipur hennar allt sem segja
þarf um það. Stoltur faðir stúlkubarnsins, Hafþór Hreiðarsson,
fréttaritari á Húsavík, var ekki langt undan með myndavélina
og hlaut fyrir fyrstu verðlaun í flokki mynda úr daglega lífinu.
Fyrsta sturtan
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Frækileg björgun, mynd sem Alfons Finnsson í Ólafsvík tók af björgun manna úr sjónum við Ólafsvíkurenni í nóvember á síð
ljósmyndasamkeppni fréttaritara og ljósmyndara Morgunblaðsins á landsbyggðinni. Úrslit voru kynnt í gær á aðalfundi Okka
verðlaun afhent. Á opnunni eru birtar þær myndir sem fengu fyrstu verðlaun í einstökum keppnisflokkum. Keppt var um bes
unum 2001 og 2002, í níu flokkum. Slíkar keppnir hafa verið haldnar í mörg ár en þátttaka hefur aldrei verið meiri en nú. Ta
dómnefnd, frá 32 ljósmyndurum. Úrval myndanna hefur verið sett upp á sýningu í Kringlunni og er áformað að setja sýningu
landsbyggðinni á næstu vikum og mánuðum. Heiti sýningarinnar, Landsmenn í linsunni, vísar til þess að þótt viðfangsefni fré
í landinu ávallt í brennidepli linsunnar á myndavélum þeirra og miðpunktur fréttaskrifa.
Landsmenn í linsun
Margar göngur smalanna á Höfðabrekkuafrétti eru
erfiðar enda landslagið hrikalegt og sums staðar er yfir
jökul að fara. Fjallastangirnar eru því þarfaþing. Jónas
Erlendsson, fréttaritari og smali, myndaði Gunnar Val-
geirsson, Ingvar Á. Þórisson og Ragnar Indr-
iðason þegar þeir voru að skima eftir fé inni við
Mýrdalsjökul í fyrsta safnið haustið 2002 og hlaut
fyrir verðlaun í flokki atvinnulífsmynda.
Skimað eftir fé
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Morgu
Margir fallegir staðir eru við Hvítá í Árnessýslu. Hjálm-
ur Pétursson var í útreiðartúr í kvöldsólinni á eyrum
Hvítár, við Hvítárholt, og þar tók Sigurður Sigmunds-
son, hestamaður og fréttaritari í Hrunamannahreppi,
þessa fallegu mynd. Mynd hans
efst í flokki mynda úr náttúru og
ur tekið margar fallegar og eftir
hestum og hestamönnum og hér
Kvöldsól við Hvítá
Sjóslys
Einum manni var bjarg
þegar fiskibáturinn Sv
fórst sunnan við Öndve
un desember 2001. Bjö
afrek þegar henni tóks