Morgunblaðið - 27.04.2003, Page 18

Morgunblaðið - 27.04.2003, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ferðalög Sumarhús á Jótlandi og Fjóni Getum útvegað fjölda sumarhúsa með leigutíma frá miðvikudegi til miðvikudags v. Billund-flugs Bjóðum ódýrari bílaleigubíla frá Billund. Verð frá dkr. 1.595 vikan, auk afgr.gjald dkr. 281. Innifalið: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar og skattar, engin sjálfsábyrgð og frí skráning á viðbótarbílstjórum. Hafið samband sem fyrst Fylkir - Bílaleiga ehf. ferðaskrifstofa Sími 456 3745 – www.fylkir.is „Á SUMRIN förum við yfirleitt um hverja helgi út úr bænum ef veðrið er skaplegt,“ segir Linda Kristín Guðmundsdóttir en fjölskyldan hef- ur í mörg ár átt annaðhvort fellihýsi eða tjaldvagn sem hún hefur farið með í ferðalög um landið. „Einn af okkar uppáhaldsstöðum er Langaholt á Snæfellsnesi en sá staður verður oft fyrir valinu ef veðrið er gott því það er mátulega langt að keyra þangað með börnin í aftursæt- inu og staðurinn ekki síst frábær fyrir þau. Víðáttan er mikil og sandurinn og fjaran fyr- ir framan tjaldsvæðið. Börnin geta unað sér þarna heilu dagana, skoðað það sem finnst í fjörunni og hlaupið og leikið sér. “ Linda segir að fólkið sem reki Langaholt sé einstaklega elskulegt og vilji allt fyrir gesti sína gera. Þau reka gistiheimili og þar er fín að- staða til að baða sig en á tjaldsvæð- inu sjálfu er síðan önnur hreinlæt- isaðstaða. Lítil verslun er í Langaholti þar sem hægt er að nálg- ast nauðsynjavöru. Síðast en ekki síst segir Linda að þar sé golfvöllur sem eiginmannin- um finnist ómissandi og hún segist sjálf vera farin að fikra sig áfram með sveifluna. „Við förum svo í stuttar ferðir frá Langaholti, skreppum á Hellnar, Stapann, förum í Dritvík, göngum inn Rauðfellsgjá og í fyrra fórum við t.d. á færeyska daga í Ólafsvík. Við eigum svo eftir að prófa að fara með skíðagræjurnar á jökulinn og sigla um Breiðafjörðinn. Linda segir algengt að nokkur vinahjón dvelji saman á tjald- stæðum og oft segir hún að þannig sé það hjá þeim. „Við erum yfirleitt með vina- hjónum og þá getur oft verið fjör þegar nokkrar fjölskyldur fara sam- an.“ Mikil uppbygging á tjaldsvæðum En hvar er aðstaðan best á land- inu fyrir fólk sem er á ferð með tjald- vagna eða fellihýsi? „Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil uppbygging á tjaldsvæðum og Uppáhalds tjaldstæði Lindu Kristínar Guðmundsdóttur er á Snæfellsnesi Ekkert toppar að ferðast um Ísland Strax og fer að sumra fær fjölskylda Lindu Kristínar Guðmundsdóttur fiðring. Fellihýsið er fest á kúluna og góða veðrið ræður áttinni sem valin er. Linda og Bárður bíða eftir að sjá sel. Margt er hægt að finna sér til dundurs í  Langaholt Görðum Snæfellsbæ Sími 435 6789 Hamrar - tjaldsvæði Akureyri sími 4612264 H vert var tilfefni ferðarinnar? „Tilefnið var að halda upp á að hafa náð þeim merka áfanga í lífinu að verða fertugar árið 2001. Við vorum búnar að safna fyrir ferðinni í rúmt ár með því að leggja inn á sameiginlegan reikning tvö þúsund krónur á mánuði. Það var auðvit- að líka tilgangur ferðarinnar að hlæja og tala eins og konum einum er lagið, versla, borða góðan mat og síð- ast en ekki síst að skoða fallega borg.“ Hvar hélduð þið til? „Við vorum á Gran Catalonia, þriggja og hálfrar stjörnu hóteli, sem er í miðbæ Barcelona, rétt við Römbluna. Hótelið var mög snyrtilegt og með góðum morgun- verði. Við skólasystur erum nefnilega mikið fyrir að næra okkur og var hópurinn sammála um að morgun- verðurinn væri bæði fjölbreyttur og næringarríkur. Það var því borð- að hraustlega á morgnana áður en haldið var á vit ævintýranna.“ Hvernig tók Barcelona hópnum? „Vel. Við vorum átta og vorum til dæmis aldrei í neinum vandræðum með að fá borð á veitingastöðum eða annað þess háttar. Tungu- málaörðugleikar voru engir þar sem Spánverjar tala mjög góða ensku. Við vorum einnig svo ljón- heppnar að ein úr hópnum kunni töluvert í spænsku. Það kom sér einstaklega vel þegar við þurftum t.d. að kalla eftir reikningnum á veitingastöðunum. Þá var kallað „La cuenta, por favor, senjor“ eða „senjorita“ og þá stukku þjónarnir til og afgreiddu okk- ur samstundis. Ég mæli sérstaklega með „La cuenta“.“ Var verðlagið hagstætt? „Já, verðlagið var nokkuð gott. Eins og margir eflaust vita sem komið hafa til Spánar, þá er mjög ódýrt að borða þar og Barcelona var engin undantekning. Verð- lag á fötum og skóm var einnig gott. Auðvitað er hægt að versla dýrt alls staðar í heiminum, en við vorum ekkert að leita sérstaklega að slíkum búðum. Þannig að við „græddum alveg rosalega“ eins og Íslendingum er einum lagið.“ Hvernig eydduð þið tímanum? „Við fórum í eina skipulagða ferð með Úrvali/Útsýn. Það var ferð að Montserrat-fjallinu og Benedikts- klaustrinu sem þar er. Aksturinn þangað tekur um eina klukkustund frá miðborginni. Fjallið Montserrat er um 10 km langt og teygir sig hæst í 1.241 metra hæð yfir sjávarmál. Mjög frægur drengjakór er í klaustrinu og heyrðum við hann syngja tvö lög ásamt því að hlýða á kaþólska messu um hádegisbil á sunnudegi. Mjög tilkomumikið listaverkasafn er undir klaustrinu og mátti þar sjá listaverk eftir víðfræga listamenn á borð við Picasso, Tiepolo, Dalí, Monet og Giovanni svo einhverjir séu nefndir. Því miður var þoka efst á Montserrat-fjallinu þennan dag sem huldi Jóhann- esartindinn og því tilgangslaust að fara upp með kláfnum til að skoða útsýnið þaðan. Við skoðuðum einnig Gaudi-garðinn í Barcelona sem var alveg stór- kostlegur. Einnig skoðuðum við hringlaga hús eftir arkitektinn Gaudi sem nú er safn og var það jafn- framt stórfenglegt. Því miður var búið að loka kirkj- unni La Sagrada Familia, sem er hönnuð af Gaudi, þegar við mættum þangað. Auðvitað þurftum við svo líka að skoða hið fjölbreytta mannlíf, sem í borginni er að finna, en auk þess að verja töluverðum tíma á veitingastöðum, fórum við m.a. á skemmtilegan og gríðarstóran úti- markað í miðborginni sem ilmar af ferskmeti og fjölbreytileika hvert sem litið er. Sérstaka eftirtekt vakti auðvit- að íslenski saltfiskurinn í SÍF- umbúðunum.“ Eru einhverjir veitingastaðir sér- staklega eftirminnilegir? „Veitingastaðurinn Los Caracoles í gamla hluta Barcelona er mjög eftir- minnilegur. Þar ganga gestirnir í gegnum eldhúsið, þar sem mat- reiðslumeistararnir standa sveittir yf- ir pottum og pönnum, til að komast inn í veitingasalina, sem sumir eru prýddir eldgöml- um eikartunnum. Þarna fengum við okkur pælu að spænskum sið sem var virkilega góð. Og annað kvöld settumst við inn á Els quatre gats, sem er ekta kata- lónskur veitingastaður í módernískum stíl, en þann stað stundaði Picasso meðan hann bjó í borginni sem og aðrir listamenn. Þar pöntuðum við önd á lín- una. Svo má auðvitað ekki gleyma öllum tapas- börunum, sem eru út um allt, en tapas-réttir eru dæmigerðir spænskir smáréttir. Eftir að hafa heim- sótt nokkra slíka staði, urðum við sammála um að tapasbarinn Txapela, sem stendur rétt fyrir ofan Katalóníutorgið, stæði upp úr, að öðrum ólöstuðum.“ Myndir þú vilja fara aftur til Barcelona? „Já, svo sannarlega. Þetta var svo frábær hópur sem ég var með í Barcelona að í mínum huga verður Barcelona alltaf falleg og skemmtileg borg. Margt að skoða og iðandi mannlíf. “ Í lok marsmánaðar fór Ingibjörg Helgadóttir með æskuvinkonum og skólasystrum frá Húsavík til Barcelona. Æskuvinkonur frá Húsavík brugðu sér til Barcelona, frá vinstri: Valgerður Bjarnadóttir, Kristín Helgadóttir, Berg- ljót Snorradóttir, Sigríður Ingvarsdóttir, Jóhanna Ingvarsdóttir, Guðbjörg Pálsdóttir, Ingibjörg Helgadóttir og í önd- vegi liggur Ragnhildur Arnljótsdóttir, sem kom frá Brussel, þar sem hún nú starfar, til að hitta vinkonurnar. Með æskuvinkonum til Barcelona Hvaðan ertu að koma?  Gran Hotel Catalonia Córcega 323 08037 Barcelona Netfang: cataloni@hoteles- catalonia.es Veffang: www.hoteles- catalonia.es Restaurante Los Caracoles Calle Escudellers, 14 08002 Barcelona Sími: 93-302-3185 Els quatre gats, Calle Monsio 3 Sími: 93-302-4140 prýðilegu jafnvægi og gaf ekki frá sér hljóð. Ég var því engu nær en sá að hún- hann fór að skoða kvenundirfatnað skömmu síðar svo kannski þarna hafi bara verið systir hans eða frænka á ferð. Því ekki ætla ég bin Laden þó hann sé jafnmikið svínabest og allir – ÉG MJAKAÐI mér nær og sá að veran var einnig blæjuð sem er frem- ur óvenjulegt hérna í Sýrlandi. Ég var komin í upplyftan lögguleik og lést loks hrasa við fótskör hinnar skikkjuklæddu í þeirri von að heyra röddina þegar ég bæði innilega af- sökunar. En hún – eða hann – var í einkum Bandaríkjamenn – segja að hann leggi í vana sinn að nota hýjalín og silki undir skikkjunni. Írakar eru áberandi á götum Dam- askus þessar vikurnar og víða má sjá veggspjöld þar sem er verið að safna fé til að hjálpa íröskum borgurum og menn láta glaðir peninga af hendi rakna. Ekki svo að skilja að Írakar hafi verið sérlega vinsælir hér, þeir þykja fullduglegir og of mikil drift í þeim miðað við Sýrlendinga sem ró- legri í tíðinni – ekki hvað síst í vinnu. Þeim er sýnd meiri vinsemd núna og menn gefa sig að þeim og lýsa sam- stöðu með þeim og láta fylgja nokkur vel valin skammaryrði um Banda- ríkjamenn og dæmalausan yfirgang þeirra í þessum heimshluta. Ég hitti Hassan, kunningja minn og teppa- og dúkasölumann á mark- aðnum. Hann bað kærlega að heilsa þeim Íslendingum sem hann hefði Dagbók frá Damaskus Var bin Laden undir skikkjunni? Um daginn þegar ég var í einni af mörgum rannsóknarferðum mínum um markaðinn í Damask- us sá ég allt í einu skikkju- klædda konu sem gnæfði hátt yfir aðra, skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir, og einhverra hluta vegna datt mér í hug hvort þarna gæti bara sjálfur bin Laden verið kominn í dulargervi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.