Morgunblaðið - 11.05.2003, Qupperneq 18
18 C SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Styrkur
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir styrk til konu
sem stundar eða hyggst hefja í haust nám í
verkfræði eða tæknifræði.
Einungis nám til fyrstu prófgráðu í greininni
er styrkhæft. Styrkurinn verður veittur um
mánaðamótin ágúst—sept. nk.
Styrkupphæðin er 450 þúsund krónur.
Umsóknum með náms- og starfsferil ásamt
upplýsingum um fyrirhugað nám og staðfest-
ingu á skráningu skilist til Orkuveitu Reykjavík-
ur, Bæjarhálsi 1, 6. hæð (sími 516 7707),
110 Reykjavík, fyrir 20. júní nk.
Orkuveita Reykjavíkur hefur það sem lið
í jafnréttisáætlun sinni að hvetja konur
til náms í tæknigreinum og reyna þar með
að stuðla að auknu framboði af vel
menntuðum konum á þeim sviðum sem
best nýtast Orkuveitunni.
Styrkir
Sparisjóður Kópavogs auglýsir eftir
umsóknum um námsstyrki
Sparisjóður Kópavogs veitir tvo styrki að fjár-
hæð 100.000 kr. hvor. Styrkirnir eru veittir fé-
lögum í námsmannaþjónustu Sparisjóðs Kópa-
vogs. Annar styrkurinn er ætlaður útskriftar-
nema í framhaldsskóla og hinn styrkurinn er
ætlaður nema í háskólanámi.
Umsóknum um styrkinn þarf að skila inn fyrir
15. maí næstkomandi, ásamt upplýsingum
um námsferil, starfsreynslu, viðurkenningar
og framtíðaráform.
Umsóknir berist til Sparisjóðs Kópavogs,
b.t. markaðsdeild, Hlíðasmára 19,
201 Kópavogi.
Þú gætir orðið 100.000 kr. ríkari!
Doktorsstyrkur í vetnis-
tækni
Norræna Orkuverkefnið NER hefur ákveðið
að veita styrk til doktorsverkefnis á sviði vetnis-
geymslu frá júlí 2003 í þrjú ár. Styrkurinn er
launastyrkur og styrkur vegna ferða- og dvalar-
kostnaðar.
Verkefnið felur í sér að rannsaka svokölluð
málmhýdríð til geymslu vetnis og einbeita at-
huguninni að notkun þeirra í jarðhitaumhverfi,
efnisfræði og kerfisfræði slíkrar geymslu.
Verkefnið verður undir aðalleiðsögn Þorsteins
I. Sigfússonar, prófessors við Háskóla Íslands,
og í sambandi við IFE í Noregi og prófessor
V. Yartys. Mestur hluti vinnu verkefnisins mun
fara fram á Íslandi, en hluti þess verður unninn
í Noregi.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi
í vélaverkfræði, eðlisfræði eða skyldum grein-
um og hafa til að bera hæfni til sjálfstæðra
rannsóknarstarfa og samvinnu í öflugum rann-
sóknahópi.
Upplýsingar um styrkinn fást hjá Þorsteini
I. Sigfússyni prófessor á netfanginu:
this@raunvis.hi.is .
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk.
Fyrirtæki óskast
Samheld fjölskylda með góð fjárráð óskar að
kaupa heildsölu eða fyrirtæki í góðum rekstri.
Fullum trúnaði heitið. Öllum svarað.
Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „V — 13680“, fyrir 16. maí.
Lítið fyrirtæki óskast
Leitum að litlu fyrirtæki eða umboðum með
neysluvörur þ.m.t. snyrtivörur eða vörum til
heimilisnota svo sem rafmagnstæki o.fl.
Upplýsingar merktar: „H — 13677“ sendist
til auglýsingadeildar Mbl. eða í tölvupósti á
box@mbl.is fyrir 16. þ.m.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Verslunarhúsnæði/Kringlan
Óskum eftir að taka á leigu/kaupa 90—130 fm
verslunarhúsnæði á góðum stað í Kringlunni.
Áhugasamir sendi upplýsingar til auglýsinga-
deildar Mbl., merktar: „B — 13674.“
FYRIRTÆKI
VEIÐI
Stangveiðileyfi til leigu
Óskað er eftir tilboðum í veiðileyfi í Hvíta á
Langholtssvæði í Hraungerðishreppi í sumar.
Um er að ræða 3 stangir í 20 daga sem dreifast
jafnt yfir tímabilið 14. júní—28. sept. Á svæð-
inu veiðist lax og sjóbirtingur. Veiðihús, sem
stendur á bakka svæðisins, fylgir veiðileyfun-
um umrædda daga.
Tilboð merkt: „Stangveiði í Hvítá“ berist í póst-
hólf 57, 800 Selfoss.
SUMARHÚS/LÓÐIR
Sumarbústaðalóðir
Til sölu leigulóðir undir sumarbústaði í landi
Ketilsstaða, Holta- og Landsveit, Rangárvalla-
sýslu. Lóðirnar eru frá 5.000—20.000 m².
Rafmagn, kalt og heitt vatn komið á staðinn.
Frábært útsýni og góðar reiðleiðir.
Upplýsingar í síma 892 5077.
& % !
Þú ert velkomin(n) á skrifstofu okkar og fáðu allar nánari upplýsingar.
Hús og heimili - Bjálkahús ehf., Borgartúni 29, 105 R. S. 511 1818.
www.husogheimili.isVið látum drauminn rætast!
Hágæða sumarhús
hefur skapað sér
orð fyrir vönduð hús, hús sem
eiga að endast öldum saman.
Við höldum nú upp á 11 ára
afmæli okkar og erum stolt af
því að hafa byggt yfir 300
glæsileg hús víða um landið.
Bjálkahús ehf.
Rafiðnaðarsamband Íslands
Seinni úthlutun orlofshúsa
er frá 9. maí til 15. maí
Hægt er að sækja um beint á vef-
fangi Rafiðnaðarsambands Íslands.
www.rafis.is .
Orlofsnefnd.
+ ? " ! !
9 @ )
A" &" ! * ? " + ) ( (
)
"
+ ) * " B! ? "
-
C , + ?
.,)!;!"0 7 8 , " . ;!"0 9%9
6"
+! ) !, ! ( ?
) ! " 5 &6 &9 :*!, !
" < 5 &6 < &9 :*!, ! < + = 9%9
6 < 4>= 9%9
6%
!
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
ÞAÐ ER líflegt og fjölþætt starf eldri borgara í Árnessýslu. Hópur þeirra
kom saman á Flúðum 2. maí á einskonar árshátíð. Sjö félög eldri borgara eru
starfandi í Árnessýslu og eru um 900 félagsmenn skráðir. Þessar sameig-
inlegu samkomur eru jafnan haldnar um þetta leyti á vorin, til skiptis hjá
hverju félagi.
Að þessu sinni sóttu um 240 manns samkomuna. Þar fór fram ljóðalestur,
leiklestur, séra Bernharður Guðmundsson í Skálholti flutti ágæta tölu um
hlutverk og líf þeirra sem farnir eru að eldast. Þá söng Hörpukórinn á Sel-
fossi nokkur lög undir stjórn Björns E. Söllermann. Kórfélagar sem eru yfir
fjörutíu eru úr sex sveitarfélögum, þeir elstu eru að nálgast nírætt.
Nokkrar fyrirhugaðar ferðir voru kynntar en félögin standa fyrir hóp-
ferðum bæði innanlands sem utan. Þá voru tekin nokkur dansspor um stund.
Veislukaffi var framreitt sem kvenfélag Hrunamanna annaðist.
Félögin bjóða upp á fjölþætt félagsstarf. Má þar nefna margskonar hand-
verk, tréskurð, föndur, glerlist, bókband, snóker, vatnsleikfimi, dans svo eitt-
hvað sé nefnt auk sumarferðanna sem eru ýmist dagsferðir eða hluta úr degi
eða uppí þriggja vikna utanlandsferðir. Það ætti því enginn að þurfa að láta
sér leiðast þó að árin færist yfir hjá þeim sem eru virkir í félagsstarfinu.
Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson
Eldri borgarar tóku að sjálfsögðu lagið á árshátíðinni á Flúðum.
Fjölþætt félagsstarf
eldri borgara